2 minute read
Fimm með yfir 9,6 í meðaleinkunn á vorönn
– Ein stærsta útskrift í sögu Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Fimm nemendur voru með yfir 9,6 í meðaleinkunn á vorönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en skólaslit vorannar og brautskráning fór fram föstudaginn 26. maí. Að þessu sinni útskrifuðust 132 nemendur; 91 stúdent, 26 luku verknámi, sjö útskrifuðust af sjúkraliðabraut, fjórtán af starfsbrautum og einn af framhaldsskólabraut. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Karlar voru 67 en konur 65. Alls komu 92 úr Reykjanesbæ, 17 úr Suðurnesjabæ, 13 úr Grindavík, 4 úr Vogum og aðrir komu frá Reykjavík, Hafnarfirði, Vopnafirði, Kópaskeri og Vestmannaeyjum.
Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Logi Þór Ágústsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Gunnlaugur Sigurðsson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni lék Sara Cvjetkovic nýstúdent á píanó og Magnús Már Newman nýstúdent spilaði sneriltrommudúett ásamt Þorvaldi Halldórssyni.
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa annars staðar í opnunni. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift. Að þessu sinni voru þau Anita Ýrr Taylor og Stefán Elías Berman bæði með 9,72 í meðal -
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA
S Degissk Li
Nám í boði: n HÚSASMÍÐI n RAFVIRKJUN n PÍPULAGNIR n MEISTARASKÓLI IÐNGREINA n SJÚKRALIÐABRÚ
Kennt síðdegis
Tækifæri til þess að stunda nám samhliða vinnu
Sótt er um á umsokn.inna.is
Innritun lýkur 10. júní
Námið fer af stað ef næg þátttaka næst
Einnig er boðið upp á hefðbundna kennslu í dagskóla í húsasmíði, pípulögnum og rafvirkjun
Nánari upplýsingar um námið má finna á heimasíðu skólans www.fss.is
Náms- og starfsráðgjafar FS veita upplýsingar um námið einkunn og fengu bæði styrk úr skólasjóði. Anita og Stefán fengu einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Logi Þór Ágústsson og
Magnús Már Newman fengu hvor 50.000 kr. styrk fyrir störf í þágu nemendafélags skólans og þær
Elísabet Birgisdóttir, Ragnheiður Ýr Þórisdóttir og Tinna Björg
Hammer Gunnarsdóttir fengu víkur F r É ttir á S uður NESJ u M // 29
30.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku.
Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum nemendafélagsins í vetur. Lilja Dögg Friðriksdóttir forvarnafulltrúi skólans afhenti verðlaunin. Það voru þau Jón Garðar Arnarsson og Margrét Norðfjörð Karlsdóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf. Við lok athafnarinnar voru þau Þorvaldur Sigurðsson, Björn Sturlaugsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Ásta Birna Ólafsdóttir og Jón Þorgilsson kvödd en þau láta nú af störfum við skólann. Þorvaldur gat því miður ekki verið við athöfnina. Skólameistari veitti Gunnlaugi einnig silfurmerki skólans fyrir framlag hans til skólans undanfarin tuttugu ár.
Margar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu