3 minute read

AÐFERÐAFRÆÐI – Samvinna í vandamálalausnum

AÐFERÐAFRÆÐI: Samvinna í vandamálalausnum

Samvinna í vandamálalausnum vísar til hæfieika einstaklings til að vinna vel með einum eða fleirum í að leysa vandamál með því að deila skilningi og vinnu sem þarfnast til að finna lausn og safna saman þekkingu, hæfileikum og vinnuframlagi til að finna þá lausn18(OECD, 2015). Þetta gagnast því að:  Samkvæmt OECD er sameiginleg vandamálalausn ein tegund nauðsynlegrar færni innan menntamála og á vinnumarkaði.  Sameiginleg vandamálalausn er sjaldan kennd í skólum þótt slíkt mundi auka þekkingu og árangur Þverfaglegu málin þessi koma úr sálfræði, kennslufræði og félagsfræði.

Advertisement

Tenglar www.oecd.org/pisa/pisaproducts/Draft%20PISA%202015%20Collaborative%20Problem%20Solving%20Fra mework%20.pdf http://www.nesta.org.uk/publications/solved-making-case-collaborative-problem-solving https://nces.ed.gov/nationsreportcard/pdf/researchcenter/collaborative_problem_solving.pdf

Lýsing

Samvinna í vandamálalausnum er farin að vekja áhuga þeirra sem líta til breytanlegs eðlis vinnustaða sem og landsvíðtækra vinnumarkaða eins og sést á því að OECD hafði það með í alþjóðlegri PISA könnun sinni árið 2015 (niðurstöður opinberaðar 2016 og síðar 2017).

Samvinna í vandamálalausnum (CPS) samanstendur af tveimur meginþáttum: samvinnu, að deila, þ.e. hið félagslega og svo hitt, þekkingin, hið vitsmunalega. Því er hinn félagslegi þáttur reginmunurinn á milli einstaklingsbundinna vandamálalausna og hinna sem krefjast samvinnu19 .

Í samvinnu að vandamálalausnum þarf markmið hópsins að nást. Lausnin krefst vandamálalausna, þátttakendur vinna saman að lausninni og svo eru einhvers konar forsendur til að meta hvort markmið hópsins hefur náðst. Einnig eru athafnir einstaklinganna samháðar með mismunandi hlutverkum þannig að enginn einn getur leyst hópmarkmiðið einn og sér. Því er krafist samskipta, samtillingar og samvinnu.

Nauðsynlegir hæfniþættir fyrir samvinnu að vandamálalausnum samkvæmt OECD eru í eftirfarandi töflu:

(A) Könnun og skilningur 1) Fastsetja og viðhalda sameiginlegum skilningi

A1) Finna sýn og hæfileika þátttakenda A2) Finna tegund samvinnu og samskipta til að leysa málið, og markmið A3) Skilja hlutverk til að leysa málið

(B) Lýsing og mótun B1) Vera sammála um eðli vandamálsins

(C) Áform og framkvæmd

(D) Eftirlit og endurskoðun

C1) Samráð um væntanlegar aðgerðir C2) Áform sett af stað C3) Fylgja eftir samskiptamáta (t.d. að hvetja aðra til að gera sitt)

D1) Eftirlit og samstilling á sameiginlegum skilningi D2) Eftirlit á niðurstöðum á framkvæmdum og mat árangurs vandamálalausna D3) Eftirlit, endurgjöf, aðlögun skipulags hóps og hlutverk

2) Bregðast rétt við til að leysa vandamálið 3) Fastsetja og viðhalda hópskipulagi

B2) Ákveða og lýsa verkefnum sem þarf að ljúka B3) Lýsa hlutverki og liðsskipulagi (samskiptareglur/-máti)

18 OECD (2015) ‘Draft Collaborative Problem Solving Framework.’ Paris: OECD. 19 NCES, Collaborative Problem Solving: Considerations for the National Assessment of Educational Progress, 2017

Hvernig Við hönnun smiðju/athafnar um samvinnu að vandamálalausnum skulum við hugsa okkur að ætla að framkvæma breytingar20 á þremur sviðum: - Hönnun verkefnis o Gæta vel að hvaða þekkingu verið er að kynna eða nýta. o Hafa jafnvægi milli gagnkvæms stuðnings og persónulegrar ábyrgðar. o Móta verkefni þannig að það leiði til réttrar hegðunar (t.d. íhugunar, hlutverka) - Kennslumátinn: o Ýjaðu að og spurðu viðeigandi spurninga án þess að gefa svarið. o Fylgstu með hópnum og breyttu honum, ef fólk vill, eða þú stjórnar samsetningu hans. o Láttu stuðning og frelsi hafa jafnvægi. o Sýndu þolinmæði: þetta gæti tekið dálítinn tíma að smella saman. - Stuðningur leiðtoga: o Gefðu starfsfólkinu tíma til að hanna, setja málin saman og bæta sig. o Kynntu rannsóknir, styddu hópinn utan frá (t.d. Ofsted, foreldrar). o Fylgstu með til að meta framfarir og gríptu inn í þegar nauðsyn er.

Útfærsla – ráð  Við samsetningu bekkja eða hópa er mælt með að gefa gaum að fjölbreytileika (t.d. fjöldi, kyn, þjóðerni).  Ekki skal vanmeta færni hópsins sem þarf tíma til að þroskast.  Verkefnið sem hópnum er falið þarf að vera krefjandi til að hvetja til samstarfs innan hans.  Gefa skal hlutverki kennarans athygli svo að hann greiði úr og stjórni ferlinu með því að gefa hópnum ráðrúm til að þróast sjálfstætt.  Við skipulag smiðja skal taka mið af mikilvægi jafnvægis milli einstaklings- og hópathafna.

20 Rose Luckin, Ed Baines, Mutlu Cukurova and Wayne Holmes with Michael Mann, Solved! Making the case for collaborative problem-solving, NESTA 2017

This article is from: