1 minute read

Ávarp ritara

ÁVARP RITARA Davíð Hjaltason

Davíð Hjaltason heiti ég og er ritari Nemendafélagsins og ritstjóri sólrisublaðsins í ár. Í lok síðasta skólaárs bauð ég mig fram í ritarastarfið og var það algjör skyndiákvörðun. Ég vissi að ritarinn sæi um sólrisublaðið og að ekki væri hægt að gefa út svona blað upp á eigin spýtur og fór því að leita að fólki í ritnefnd. Leitin gekk brösulega þar sem hálfur skólinn ákvað að bjóða sig fram og hætta svo við á síðustu stundu en ég endaði með frábæran hóp og hefði ekki getað beðið um betri ritnefnd. Að vísu var leiðinlegt að sjá að enginn nýnemi bauð sig fram í ár (án þess að hætta við!!). Ég er með smá frestunaráráttu og hóf ritnefndin þess vegna ekki að starfa fyrr en eftir áramót. Þetta hefur verið gríðarlega skemmtilegt en strembið ferli. Sólrisuvikan er besti tími skólaársins í mínum augum og ég finn á mér að í ár verður hún ein sú skemmtilegasta í sögu skólans. Ég veit að sólrisunefndin er búin að vera á fullu að skipuleggja frábæra sólrisuviku og er ótrúlega spenntur fyrir sólrisuleikritinu en í ár er leikfélagið að setja upp Mamma Mia! Ég vill þakka Grétari fyrir að taka að sér að hanna blaðið þrátt fyrir að ég gerði honum engan greiða með því að hafa samband við hann alltof seint. Ásgeir náði einhvern veginn að taka frábærar myndir þrátt fyrir endalaust vesen á okkur og breytingu á plönum og einnig vil ég þakka bestu ritnefnd sem hægt er að biðja um. Njótið lestursins og gleðilega sólrisu!

Advertisement

Davíð Hjaltason

This article is from: