SIMPLY CLEVER
Nýr ŠKODA Octavia
Það er jafngaman og það er sjaldgæft að verða furðu lostinn. Það þarf ekki að breyta öllu til að koma manni á óvart. Stundum er nóg að breyta bara um sjónarhorn til að upplifa nær samstundis dásamlegar stundir sem áður voru huldar. Nýr ŠKODA Octavia er hannaður til að koma þeim sem keyra hann stöðugt á óvart. Með bílnum er tekið stórhuga skref inn í framtíðina, eins og sést á öllum glæstu, nýju eiginleikunum og búnaðinum, auk þeirra snjöllu eiginleika, smáu og stóru, sem við köllum Simply Clever lausnir. Rýmið er nægt svo það fer vel um allt og alla. Kraftmikla nýja hönnunin er í senn fáguð og nútímaleg. Þetta er líka vistvænasta útgáfa Octavia frá upphafi, enda meira en 100 kílóum léttari en áður. Fjöldi ósýnilegra tæknilausna og aðstoðarkerfa tryggja öruggar, þægilegar og skemmtilegar bílferðir. Þetta er bíll sem er hannaður til að koma þér í opna skjöldu á hverjum degi og í hverri bílferð.
Feykin贸g r媒mi fyrir allt og alla.
Í bílnum er mikið fóta- og höfuðrými fyrir ökumann og farþega í framsæti. Stillanlegur armpúði við framsætin eykur enn á þægindin.
Þú nýtur frelsis og jafnvel enn meira rýmis með sóllúgunni, sem er gerð úr lituðu gleri svo ljós og hiti komist síður í gegn. Þú getur annaðhvort ýtt henni upp eða rennt henni aftur og búið þannig til opið rými fyrir ofan framsætin í hlaðbaksútgáfunni.
Í nýjum Octavia er ótrúlega mikið pláss, jafnvel þótt bíllinn sé fullskipaður. Vel fer um allt að þrjá farþega í aftursætum. Á meðal staðalbúnaðar eru Isofix-festingar og Top Tether belti til að festa barnabílstóla á ytri aftursæti.
Plássið í farangursýminu á einfaldlega eftir að heilla þig. Í Combi-útgáfunni eru 610 lítrar (sjá mynd) og í hlaðbaksútgáfunni eru 590 lítrar og 1.740/1.580 lítrar þegar baksætin hafa verið felld niður. Nýr Octavia er með farangursrými sem dugar auðveldlega stórri fjölskyldu, sama hvaða útgáfu þú velur.
SIMPLY CLEVER lausnir...
Svörtu þokuljósin með beygjuvirkninni nýtast vel sem beygjuljós og geta lýst upp hindranir sem annars væru vart sýnilegar, t.d. gangstéttarbrúnir. Beygjuvirknin fer í gang þegar bíllinn er á minna en 40 km hraða, nema kveikt sé á þokuljósunum. Það kviknar á hægra eða vinstra ljósinu þegar stýrinu er snúið eða þegar kveikt er á stefnuljósum.
Margmiðlunarfestingin í miðstokknum er ekki bara gagnlegur aukabúnaður, heldur líka öruggur staður til að geyma iPodinn, farsímann o.s.frv.
Þegar þú þarft að setja bílastæðismiða á sýnilegan stað undir framrúðunni er lausnin einföld. Í bílnum er festing fyrir bílastæðismiða.
Það er líka 1,5 lítra flöskuhaldari í rúmgóðu geymslu hólfi í framdyrunum. Þar getur þú líka komið fyrir færanlegri ruslakörfu til að auðvelda þér að halda bílnum snyrtilegum.
USB-Aux-tengið á miðstokknum gerir þér kleift að tengja utanaðkomandi tæki og stjórna því með útvarpinu, leiðsögukerfinu eða hnöppunum á fjölvirka stýrinu.
Aðra „Simply clever“ lausn má finna undir sæti ökumanns. Sérstakur vasi fyrir sjálflýsandi vesti er þar svo vestið sé örugglega innan seilingar ef þörf krefur.
Enn er hægt að fjölga möguleikum bílsins með því að fella niður sætisbak farþega í framsæti, sem gerir þér kleift að laga skipulag innra rýmis að þörfum hverju sinni.
Til að auðvelda flutning á stórum hlutum í hlaðbaks útgáfunni, t.d. barnahjólum, er hægt að draga hlífina fyrir farangursrýmið inn. Þegar bíllinn hefur verið affermdur er auðvelt að Græna skafan, sem fer á eldsneytis setja hana aftur í lokið, er innan seilingar þegar þú upphaflega stöðu. þarfnast hennar og það er hægðar leikur að setja hana á sinn stað í vætu. Önnur Simply Clever lausn er vörn gegn rangri eldsneytis áfyllingu, hugsuð fyrir bíla með dísilvél.
Netabúnaðurinn samanstendur af einu láréttu og tveimur lóðréttum netum sem auka nýtingu á farangursrýminu. Bæði lóðréttu netin eru tvíhliða og í þeim er hægt að geyma ýmsa smáhluti. Auk þess bjóðum við upp á net undir hlífinni fyrir farangursrýmið.
Það þurfa líklega allir stundum að flytja eitthvað skítugt. Tvíhliða teppið í farangursrýminu er hannað fyrir slík tilvik. Þú snýrð hliðinni með fína tauáklæðinu upp þegar þú ert ekki að flytja neitt sem gæti óhreinkað bílinn, en getur svo auðveldlega snúið henni við og notað gúmmíhliðina, sem má þrífa, þegar þörf krefur.
... sem einfalda lífið til muna.
Hægt er að forðast að farangur fari á hreyfingu í akstri með farangurseiningunum. Það eru tvö plaststykki með frönskum rennilás sem eru geymdir á bak við hjólaskálarnar að aftan þegar þú ert ekki að nota þau. Annar gagnlegur fylgihlutur er tvöfaldi niðurfellanlegi krókurinn sem hægt er að nota til að halda fullum innkaupapokum uppréttum.
Með farangurshillunni í Combiútgáfunni er hægt að færa botn farangursrýmisins upp að hleðslubrúninni og auðvelda þannig alla tilfærslu á farangri. Að auki er sérstakt pláss til að geyma rennihlífina eða toppgrindina þegar þess þarf. Þetta nýtist líka sem geymslupláss sem lítið fer fyrir.
Festingin fyrir skyndihjálpar kassann er á bak við hægri hjólaskálina að aftan.
Hægt er að fella niður baksætin með því að nota fjarstýringarhnappinn sem má finna í farangursrýminu í bæði hlaðbaks-* og Combi-útgáfunni og sem gerir það enn auðveldara að hlaða bílinn. Hagnýti vasinn undir rennihlífinni í farangursrými Combi-útgáfunnar nýtist sem öruggur geymslustaður fyrir hluti sem þú vilt ekki að blandist saman við annað í farangursrýminu.
* Fáanlegur frá júní 2013
Rafstýrða afturhurðin í Combi-útgáfunni opnast og lokast sjálfkrafa svo þú þarft ekki að snerta hana, sem kemur sér sérlega vel í rigningu eða vetrarhörkum. Hægt er stjórna henni frá fjórum mismunandi stöðum: með takka á fjarstýrðum bíllykli, takka á miðstokki, takka á innanverðri afturhurðinni og Softtouch-takka utan á hurðinni. Hægt er að stilla hæð aftari hurðar sérstaklega eftir þörfum.
Nýja Octavia hönnunin fangar athyglina með einstakri lögun sinni, sem einkennist af skýrum línum, hvössum brúnum og stílhreinum yfirborðsflötum. Nýi ŠKODA-hönnunarstíllinn er einfaldur, nákvæmur og tær. Bíllinn er hagnýtur, með sígilt útlit og samsvarar sér vel. Á yfirbyggingunni er áberandi framgrill með krómaðri umgjörð, hvers lögun undirstrikar nýja ŠKODA-merkið. Á grillinu eru svo aðalljósin sem eru með dæmigerða lögun. Hönnun og útlit framgrillsins undirstrika aðlaðandi einkenni bílsins og þann sportlega anda sem er yfir honum. Á meðal nýjunga eru LED-ljós til að nota í dagsbirtu með tvöföldum Xenonframljósum, sem lýsa skýrt og óhindrað, auk fallegra svartra þokuljósa með beygjuvirkni.
Afturljósin mynda tvöfalt C þegar kveikt er á þeim og fara ekki framhjá neinum. Þú getur einnig valið afar bjartar og sparneytnar ljósdíóður.
Samsvörunin í nýju Octavia-hönnuninni sést best frá hlið, þar sem kraftur, fágun og hagnýtni mynda sterka heild. Á meðal glæsilegra eiginleika eru krómaðir listar meðfram hliðargluggunum á Combi-útgáfunni (sjá mynd) eða á neðri hluta hlaðbaks glugganna, auk SunSet* –rúða með þéttari skyggingu aftan í bílnum. Þakbogar fyrir Combi-útgáfuna fást silfurlitaðir eða í fallegum svörtum lit.
Séð aftan frá er hönnunin á bílnum sláandi. Myndarlegur stuðarinn vekur öryggiskennd og stór afturhurðin er hagnýt og veitir góðan aðgang að farangursrýminu. Aftan á bílnum er margt sem er einkennandi fyrir nýju ŠKODA bílana: ŠKODA- merkið, letrið og kristalinnskotin á númeraplötunni. * Fáanlegur frá júní 2013.
ŠKODA GreenFuture skipar veigamikinn sess í stefnu fyrirtækisins. Þegar kemur að umhverfisvernd býður Octavia upp á besta kostinn hvað varðar eldsneytisnotkun og CO2 útblástur. Bíllinn er léttari og því skilvirkari. Þrátt fyrir að hann sé stærri og búinn aukatæknibúnaði var hægt að draga úr þyngd hans, þökk sé réttu efnisvali og nútímaframleiðslutækni. Boðið er upp á flestir gerðir í Green tec útfærslu, þar sem StartStop kerfið og aflendurheimt eru á meðal staðalbúnaðar.
Þú getur valið áreiðanlegu beinskiptinguna, með nákvæmri gírskiptingu og auðveldum, stuttum stjórnhreyfingum, með öllum vélunum sem í boði eru.
DSG-sjálfskiptingin (Direct Shift Gearbox) tryggir framúrskarandi hröðun og hámarksvinnslu vélarinnar. Með vistakstri getur þú dregið úr eldsneytisnotkun og þar af leiðandi koltvísýringsútblæstri. Hægt er að velja á milli 7 eða 6 gíra, eftir því af hvaða gerð vélin er.
Hægt er að bæta enn frekar loftfræðilega eiginleika hlaðbaks útgáfunnar með vindskeiðinu á afturhurðinni, sem er innifalið ásamt sportsætum í Kraftpakkanum*.
Bensínvélarnar eru 4-strokka 1.2 TSI/63 kW eða 1.2 TSI/77 kW Green tec, 1.4 TSI/103 kW Green tec og hin geysiöfluga 1.8 TSI/132 kW Green tec. 1.2- og 1.4-vélarnar eru glænýjar, en 1.8-vélin er af þriðju kynslóð TSI-tækninnar. Allar vélarnar eru léttari, eyða minna eldsneyti og losa minna af koltvísýringi.
* Fáanlegur frá júní 2013.
Start-Stop kerfið sparar eldsneyti með því að slökkva sjálfkrafa á vélinni þegar hún þarf ekki að ganga. Þú getur slökkt á Start-Stop kerfinu þegar þess þarf með því að nota hnappinn á listanum fyrir framan gírstöngina. Álag á vél er minnkað og eldsneytisnýting bætt með aflendurheimt, sem nýtir á skilvirkan hátt hreyfiorku bifreiðarinnar til að endurhlaða rafgeyminn.
Dísilvélarnar eru 4-strokka 1.6 TDI CR DPF/66 kW* eða 1.6 TDI CR DPF/77 kW Green tec og toppurinn, 2.0 TDI CR DPF/110 kW Green tec. Allar dísilvélarnar eru glænýjar. Þær eru öflugri, ganga betur, eyða minna eldsneyti og gefa frá sér allt að 45% minna af skaðlegum lofttegundum.
Í nýju Octavia-gerðinni eru stoðkerfi með háþróaðri tækni, sem býður upp á óvenjulega möguleika. Þau geta til dæmis hjálpað þér að forðast neyðartilfelli eða lágmarka skaðann af þeim. Sum stoðkerfi notast við fjölvirku mynda vélina á framrúðinni fyrir neðan baksýnisspegilinn. Akreinaaðstoðin til að halda bílnum á réttri akrein, ljósa- og umferðarmerkjagreinirinn.
Virkni stoðkerfanna sem nota fjölvirku myndavélina er sýnd á mælaborðinu í sjónsviði ökumannsins. Maxi DOT með litaskjá er önnur nýjung.
Þegar þú ekur á þjóðvegum muntu kunna að meta sjálfvirka hraðastillinn* sem stillir hraðann og heldur bílnum í öruggri fjarlægð frá bílunum fyrir framan þig. Þetta stoðkerfi notast við radartæki í framstuðaranum. Þessi virkni er sýnd á Maxi DOT skjánum.
Öryggi þitt, einkum á langferðalögum að næturlagi, er einnig tryggt með akstursupplýsingaaðstoðinni sem metur upplýsingar um stýris-servó á hraða yfir 65 km á klst. Þegar kerfið greinir hegðun sem gæti verið merki um að ökumaðurinn sé þreyttur, t.d. harkalegar stefnuleiðréttingar, mælir það með því að ökumaður hvíli sig.
Hnapparöðin er þægilega nálægt hægri hendi bílstjórans. Þar eru þeir hnappar sem eiga við búnaðinn og vélina sem er til staðar, fyrir samlæsinguna, Start-stop kerfið, dekkjaþrýstingsstýringuna, ASR, akstursham, skynjara að framan og sjálfvirku bílastæðaaðstoðina.
* Fáanlegur frá júní 2013.
Helsta markmið bílastæðakerfanna okkar er að auðvelda þér að leggja bílnum. Bílastæðahjálpin virkjar hljóðmerki sem byggir á ætlaðri stefnu bílsins þegar hindranir eru nærri svo ekki sé t.d. varað við hindrun fyrir framan bílinn þegar hann er í bakkgír. En ef þú vilt gera það sem allra auðveldast að leggja í stæði er sjálfvirka bílastæðahjálpin (Automatic Parking Assistant) besti kosturinn fyrir þig. Kerfið velur viðeigandi stæði, leggur í röð af bílum sem er lagt samhliða eða hornrétt og getur jafnvel ekið út úr röð af bílum sem er lagt samhliða. Sé lagt samhliða gangstétt þarf bara pláss sem er 60 sm lengra en bíllinn sjálfur (myndin sýnir sjálfvirku bílastæðahjálpina á Amundsen+ leiðsögukerfisskjánum).
Þessi einstaka blanda fallegrar hönnunar og nútímatækni sést vel á fjölnýtanlega leðurstýrinu með krómskrauti, sem eykur enn á ánægju þína af því að aka bílnum. Í toppútgáfunni er þriggja arma stýri með stjórnrofum fyrir útvarp, síma og DSGsjálfstýringuna. Nú getur þú hlustað á tónlist eða tal í hágæðum með nýja Canton-hljóðkerfinu með tíu hátölurum, m.a. miðjuhátalara og bassahátalara í farangursrými og hljóðkerfi sem er sérsniðið að innanrými Octavia.
Það er Start/Stop hnappur við stýrið í bílum með KESSY-búnað (Keyless Entry, Start and exit System). Með honum getur þú ræst vélina eða slökkt á henni án þess að nota lykil. Aukahlutarnir í innanrýminu, og stjórnbúnaðurinn sem þeim fylgja, samræmast fullkomlega hönnunar viðbótunum, t.d. nýju skrautlistunum á hurðunum að framan og aftan.
Við bjóðum upp á glænýtt upplýsinga- og afþreyingarútvarp með hátæknivalmynd og virkni undir nöfnunum Blues, Swing og Bolero. Útvarpið þitt er miðstöð margmiðlunarupplýsingakerfis sem tengist bílnum sjálfum. Þannig getur þú notað útvarpið til að stilla valmyndina fyrir bílinn. Bolero-útvarpið er nú með þægilegri og nákvæmari snertiskjá. Forritið nemur ekki bara lauflétta snertingu heldur líka samtímis snertingu fyrir margar aðgerðir.
Útreikningur á flýtileiðum og nákvæm útlistun hefur alltaf verið á meðal þess sem einkennir Columbus-leiðsögukerfið. Nú er þetta hágæða leiðsögukerfi líka glæsilegasta margmiðlunarupplýsingakerfi sem völ er á. Nú getur þú m.a. opnað bílstillingarnar í Columbus. Og síðast en ekki síst er ótrúlega þægilegur 8" skjár sem bregst við þegar höndin á þér nálgast skjáinn.
Símakassinn magnar upp merkið frá þakloftnetinu og flytur það í farsímann þinn. Þú getur líka geymt símann þar á meðan þú keyrir.
Það eru mörg geymslurými og hólf í innanrými bílsins svo þú finnur rétta staðinn fyrir allt sem þú tekur með þér. Í hanskahólfinu undir mælaborðinu farþegamegin er hægt að stilla á loftkælingu svo það er t.d. hægt að geyma þar svaladrykki á ferðalögum.
Hólf fyrir sólgleraugu er að finna í seilingar fjarlægð fyrir ofan baksýnisspegilinn
Opnanlega geymsluhólfið undir fremra farþegasætinu er tilvalið til að geyma smáhluti sem þú vilt hafa í bílnum, en ekki endilega svo þeir sjáist.
Í vösunum aftan á framsætunum má geyma ýmsa hluti, t.d. bækur eða leikföng, allt eftir því hver situr aftur í. Annað sem þú vilt e.t.v. taka með þér, t.d. hálfslítraflösku fyrir börn, má setja í geymsluhólfin í afturhurðunum.
Ökumaður og farþegi í framsæti geta notað tvöfaldan glasahaldafra í miðstokknum, þar sem einnig er að finna annað geymslupláss.
Glasahaldarar ofan á armhvílunni nýtast vel fyrir farþega í aftursætum.
Einn eiginleiki sem fjölskyldur með ung börn kunna að meta er tauáklæðið með leðri sem má þvo aftan á fremri sætisbökunum. Þegar þú notar fjölnota pokann, sem er hannaður fyrir skíði eða snjóbretti, getur þú einfaldlega sett hann í bilið á milli farangursrýmisins og farþegarýmisins.
Leiðarljósin sem virkjast þegar dyr eru opnaðar eða bíllinn tekinn úr lás með fjarstýringu gera þér kleift að forðast t.d. polla eða grjót þar sem lýsing er ekki til staðar.
Handvirku rúllugardínurnar fyrir afturglugga hlaðbaksútgáfunnar verja farþega í aftursætinu fyrir sólarbirtu.
Með CatVisionmjúklýsingunni er hægt að lýsa upp miðstokkinn í myrkri.
Sæti ökumanns er rafstýrt og er með minni sem getur geymt þrjár mismunandi stillingar fyrir sætið og hliðarspegla.
230V-innstunguna aftan á Jumboboxinu er hægt að nota til að stinga t.d. fartölvum, DVD-spilurum og hleðslutækjum í samband. Þar geta einnig verið hnappar til að stjórna hitastýringu fyrir aftursæti.
Með hreinum aðalljósum fæst meiri birta og betra skyggni. Ryk og leðju sem safnast upp á ferðalögum má auðveldlega fjarlægja með innbyggðu útdraganlegu þvottasprautunum. Það er þægilegra að fara í og úr bílnum við lýsingu frá frá fremri og aftari fótalýsingunni, sem hægt er að stilla að vild.
Það er hægðarleikur að tryggja gott loft í bílnum með Climatronic, tveggja svæða rafstýrðri loftkælingu, sem er nú með rakaskynjara til að draga úr móðu á framrúðunni.
Tvískipta rafdrifna sóllúgan í Combi-útgáfunni er einkar notalegur eiginleiki sem gerir ferðina ánægjulegri fyrir alla um borð. Hægt er að þekja alla sóllúguna með rafstillanlegri rennihlíf.
Mikið úrval öryggisbúnaðar tryggir að þú getir treyst á bílinn við allar mögulegar aðstæður. Það eru allt að níu loftpúðar til verndar þér og þínum. Á meðal staðalbúnaðs í öllum bílum er ESC (Electronic Stability Control), sem er nú með nýjum eiginleikum. Fjölárekstrabremsan getur til dæmis komið í veg fyrir frekari stjórnlausar hreyfingar bílsins þegar annar fremri loftpúðanna hefur verið virkjaður. Öryggi hefur verið aukið til muna með öryggisaðstoðarkerfum sem byggjast á nýjustu tækni og eru nú notuð í ŠKODA-bifreiðum í fyrsta sinn. Fyrir utan kerfin sem áður hafa verið nefnd bjóðum við upp á farþegavernd (Crew Protect Assistant), sem herðir öryggisbelti ökumanns og farþega í neyðartilvikum, lokar að hluta rafstillanlegu rúðunum að framan og lokar loks sóllúgunni. Auk farþegaverndarinnar bjóðum við upp á ýmsa aðra öryggisvernd, þ. á m. læsingu sem hindrar að hægt sé að nota t.d. stjórnbúnað, útvarp eða leiðsögukerfi í öðrum bílum.
Hægt er að fá barnaspegil*, fyrir ofan baksýnisspegilinn. Hann er stillanlegur svo þú getir haft auga með börnunum í aftursætinu án þess að þú þurfir að snúa þér við.
Aðfellanlegir hliðarspeglar dragast sjálfkrafa inn þegar bílnum er læst til að vernda þá fyrir skemmdum.
Aerorúðuþurrkurnar að aftan þrýsta jafnt á allt svæðið. Í bílnum eru einnig Aerorúðuþurrkur að framan.
Loftpúðar í framog aftursætum vernda mjaðmir og bringu farþega við hliðarárekstur.
Hnéloftpúðar sem eru staðsettir undir stýrisstönginni verja fótleggi ökumanns. Hægt er að koma fyrir þjófavarnarkerfi í bílnum sem hefur eftirlit með innanrýminu, bílflautu með vararafhlöðu og hallanema. Möguleikinn á að aftengja innanrýmisgæsluna kemur sér einkar vel fyrir hundaeigendur.
Öryggisljósin í geymsluhólfinu á framhurðinni vekja athygli annarra ökumanna þegar dyrnar eru opnar og bíllinn kyrrstæður. * Fáanlegur frá júní 2013.
Sérhannaði Sport Look pakkinn frá ŠKODA aukahlutum ljær bílnum sportlegt yfirbragð. Í pakkanum eru svartar skrautfilmur með með köflóttri áferð, vindskeið fyrir afturhurðina og hliðarspeglar í möttum dökkum lit. Við mælum með því að nota saman 18" Turini-álfelgur í möttum dökkum lit og glansandi svarta skrautrönd á vindskeiðið að framan.
Þegar þú fermir og affermir þunga hluti verður þú þakklátur fyrir varnarlistann á hleðslubrúninni, sem er til í tveimur gerðum. Svarti listinn er sportlegur, sem er undirstrikað enn frekar með grófum rifflum.
Glansandi svarta skrautröndin á vindskeiðinni að framan undirstrikar láréttu línuna á vindskeiðinu og kröftugt útlit bílsins.
Ef þú vilt frekar að bíllinn sé fágaðri í útliti getur þú valið krómuðu skrautröndina á vindskeiðina að framan í stíl við krómið á afturhurðinni (sjá mynd fyrir neðan). Varnarlisti á hleðslubrúninni með álskreytingu undirstrikar fáguðu hliðina á bílnum.
Sílsahlífarnar, sem verja hurðarlistana fyrir skemmdum þegar stigið er inn í og út úr bílnum, eru til í tveimur gerðum: Hlífar með innfellingum úr ryðfríu stáli og Octavia-áletrun og hlífar með glæsilegri svartri hönnun. 18" Turini-álfelgur í fallegum möttum og dökkum lit undirstrika einstaka eiginleika bílsins. Felgurnar fást líka silfraðar eða hvítar. Þessar vörur eru fáanlegar hjá ŠKODA aukahlutum.
ISOFIX DUO plus Top Tether barnabílstóllinn tryggir hámarksöryggi og þægindi smærri farþega. Auk Isofix-belta er stóllinn festur að aftan með Top Tether kerfinu. Sætið má stilla á þrenna vegu (sitjandi, hvíldarstaða og liggjandi) og er ætlað börnum sem vega 9 til 18 kg.
Fatahengið getur komið sér afar vel, einkum fyrir þá sem fara í jakkafötum í vinnuna. 15 lítra rafmagns kæliboxið heldur matnum ferskum og góðum. Kæliboxið getur geymt matvörur við allt að 20°C undir útihitastiginu. Ef þú skiptir yfir í hitabox getur hitinn farið upp í 65°C.
Aurhlífar að framan og aftan vernda bílinn fyrir leðju og grjóti.
Þegar þú ferð í ferðalög að vetrarlagi getur þú lent í aðstæðum þar sem snjókeðjur eru eina svarið. Við bjóðum líka upp á 17" Crystal-álfelgur sem eru sérhannaðar fyrir snjókeðjur. Þessar vörur eru fáanlegar hjá ŠKODA aukahlutum. Einnig er hægt að fá upplýsingar um heildarúrval aukahluta hjá næsta viðurkennda þjónustuaðila ŠKODA.
Gírkassalæsing fyrir beinog sjálfskiptingu er einföld en mjög áhrifarík þjófavörn.
Annars konar festingarbúnaði frá ŠKODA aukahlutum (t.d. reiðhjólafestingu, kassa fyrir skíði eða snjóbretti) er hægt að koma tryggilega fyrir á toppgrindinni*.
Plastbreiðan fyrir skottið í farangursrýminu kemur sér vel þegar þú flytur hluti sem gætu óhreinkað áklæðið.
Á meðal annarra aukahluta sem koma að góðum notum í farangursrýminu má nefna fjölnýtanlega kassann undir undir hlífinni fyrir farangursrýmið.
Reiðhjólafestingarnar fyrir dráttarkrókinn gera þér kleift að flytja tvö reiðhjól.
Textílefna- eða gúmmí- (sjá mynd að ofan) gólfmotturnar eru með upphækkaðri brún og hlífa innanrými bílsins við vætu og óhreinindum. Stærð þeirra og lögun fellur fullkomlega að gólfinu og það er ekki bara auðvelt að þrífa þær, heldur eru þær líka einkar endingargóðar.
Færanlegi farangursbakkinn er ílát sem má nota til að flytja létta hluti og afferma í hvelli. * Verður fáanlegt á öðrum ársfjórðungi 2013.
Elegance búnaðarútfærslan er fáanleg í tveimur litagerðum fyrir innanrými. Fyrri samsetningin er svart sætisáklæði og mælaborð og hurðarklæðning, einnig í svart-svartri samsetningu. Seinni samsetningin er ljósbrúnt sætisáklæði og mælaborð og hurðarklæðning í svartri/ljósbrúnni litasamsetningu. Innanrýmið er skreytt með Eleganceskrautlistum á fram- og afturdyrum og ýmiss konar krómskrauti á stýrinu, í kringum loftræsisop, á gírstönginni og fleiri stöðum. Einnig er hægt að fá útlitspakka með viðarútliti fyrir Elegance-útfærsluna.
Ambition búnaðarútfærslan er fáanleg í þessum tveimur gerðum: Svart sætisáklæði og mælaborð og hurðalistar í svart/svartri samsetningu, eða svart/grátt sætisáklæði og mælaborð og hurðarklæðning, einnig í svartri/grárri litasamsetningu*. Innanrýmið er skreytt með Ambitionskrautlistum á fram- og afturdyrum og ýmiss konar krómskrauti á stýrinu, í kringum loftræsisop, á gírstönginni og fleiri stöðum.
* Fáanlegt árið 2013.
Active búnaðarútfærslan býðst með svörtu sætisáklæði og mælaborði og hurðalistum í svart/svartri samsetningu. Innanrýmið er skreytt með Active-skrautlistum á framog afturhurðum og annarskonar skrauti, t.d. krómuðum hurðarhúnum, gljáfægðum umgjörðum um loftræsisop og fleiru.
7.5J x 18" Golus álfelgur fyrir 225/40 R18 dekk
7.5J x 18" Alaris álfelgur fyrir 225/40 R18 dekk
7.0J x 17" Teron álfelgur fyrir 225/45 R17 dekk
7.0J x 17" Denom álfelgur fyrir 225/45 R17 dekk
6.5J x 16" Minoris álfelgur fyrir 205/55 R16 dekk
6.5J x 16" Velorum álfelgur fyrir 205/55 R16 dekk
6.5J x 16" stálfelgur fyrir 205/55 R16 dekk með Tecton nafarhlífum.
6.0J x 15" stálfelgur fyrir 195/65 R15 dekk með Sidus nafarhlífum.
6.5J x 16" Ilias álfelgur fyrir 205/55 R16 dekk
Active-innanrými Svart tauáklæði
Ambition-innanrými Svart tauáklæði
Ambition-innanrými grátt tauáklæði (Fæst árið 2013.)
Ambition, Elegance-innanrými* Svart tauáklæði/leður/gervileður
Ambition-innanrými* grátt tauáklæði/leður/gervileður (Fæst árið 2013.)
Elegance-innanrými Svart tauáklæði
Elegance-innanrými Ljósbrúnt efni
Elegance-innanrými* Svart leður/gervileður
Elegance-innanrými* Ljósbrúnt leður/gervileður
Elegance-innanrými* Svart Alcantara/leður/gervileður
Elegance-innanrými* Ljóst Alcantara/leður/gervileður
Elegance-innanrými* Ljósbrúnt tauáklæði/leður /gervileður
* Aukabúnaður.
Tæknilýsingar – Octavia Vél
Strokkar/rúmtak vélar (cc)
1,2 TSI/63 kW
1,2 TSI/77 kW Green tec
1,4 TSI/103 kW Green tec
1,8 TSI/132 kW Green tec
1,6 TDI CR DPF/77 kW Green tec
2,0 TDI CR DPF/110 kW Green tec
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbódísilvél, samrása háþrýstikerfi samrása innsprautun
Túrbódísilvél, samrása háþrýstikerfi samrása innsprautun
4/1.197
4/1.197
4/1.395
4/1.798
4/1.598
4/1.968
Hámarks afköst/sn. (kW/mín-1)
63/4.300–5.300
77/4.500–5.500
103/4.500–6.000
132/5.100–6.200
77/3.000–4.000
110/3.500–4.000
Hámarkstog/sn. (Nm/mín.-1)
160/1.400–3.500
175/1.400–4.000
250/1.500–3.500
250/1.250–5.000
250/1.500–2.750
320/1.750–3.000
EU5
EU5
EU5
EU5
EU5
EU5
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, RON 95/91*
Dísil
Dísil
Reglugerð um loftmengunarvarnir Eldsneyti
Afköst Hámarkshraði (km/klst.)
181
196
215
231
194
218 (215)
Hröðun 0-100 km/klst. (s)
12,0
10,3
8,4 (8,5)
7,3 (7,4)
10,8 (10,9)
8,5 (8,6)
Eldsneytisnotkun 99/100 (l/100 km) – innanbæjarakstur
6,5
5,9
6,5/6,4** (6,5)
7,8 (7,1)
4,6
5,0 (5,4)
– utanbæjarakstur
4,4
4,4
4,6/4,5** (4,9)
5,1 (4,8)
3,3 (3,5)
3,6 (4,1)
– blandaður akstur
5,2
4,9
5,3/5,2** (5,4)
6,1 (5,7)
3,8 (3,9)
4,1 (4,5)
CO2 útblástur (g/km)
119
114
121/119** (124)
141 (131)
99 (102)
106 (119)
Þvermál beygjuhrings (m)
10,4
10,4
10,4
10,4
10,4
10,4
Aflflutningur Gerð Kúpling
Gírskipting
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Vökvastýrð þurrkúpling með einum diski
Vökvastýrð þurrkúpling með einum diski
Vökvastýrð þurrkúpling á einum diski (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, rafvökvastýrð)
Vökvastýrð þurrkúpling á einum diski (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, rafvökvastýrð)
Vökvastýrð þurrkúpling á einum diski (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, rafvökvastýrð)
Vökvastýrð þurrkúpling á einum diski (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, rafvökvastýrð)
5 gíra beinskipting
6 gíra beinskipting
6 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
6 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
5 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
6 gíra beinskipting (6 gíra DSG-sjálfskipting)
1.225
1.230
1.255 (1.265)
1.320 (1.335)
1.305 (1.320)
1.330 (1.350)
Þyngd Eigin þyngd – venjulegrar útgáfu með 75 kg ökumanni (kg) Farmþungi – með ökumanni og aukabúnaði (kg)
625
625
625
585
625
625
Heildarþyngd (kg)
1.775
1.780
1.805 (1.815)
1.830 (1.845)
1.855 (1.870)
1.880 (1.900)
Kerruþungi án bremsa (hám. kg)
610
610
620 (630)
650 (660)
650
660 (670)
Kerruþungi með bremsum – 12% (hám. kg)
1.100
1.300
1.500
1.600
1.500
1.600
Yfirbygging
Ytri mál
5 sæta, 5 dyra, 2ja rýma 0,29/0,30 samkvæmt vélarútfærslu
Loftviðnámsstuðull Cw
Undirvagn McPherson fjöðrun með þríhyrndum neðri tengjum og jafnvægisstöng
Afturöxull
Sveifaröxull með samsettum örmum/1,8 TSI: Samsettur öxull með einum tengli þversum og þremur langsum og jafnvægisstöng
– frambremsur
4.659
Breidd (mm)
1.814
Hæð (mm)
Framöxull Bremsukerfi
Lengd (mm)
Tvöfalt skáskipt vökvahemlakerfi með undirþrýstingi og mismunandi hreyfingum
Hjólhaf (mm) - samkvæmt vélarútfærslu Sporvídd að framan/aftan (mm) - samkvæmt vélarútfærslu Hæð frá jörðu (mm)
1.461 2.686; 2.680 1.549; 1.543/1.520; 1.514; 1.512 140
Diskabremsur með innri kælingu og lausum eins stimpla kaliper
– afturbremsur
Innri mál
Diskabremsur
Stýring
Bein tannstangarstýring með rafvélrænu aflstýrikerfi
Hliðarrými að framan/aftan (mm)
1.454/1.449
Felgur
6.0J x 15"; 6.5J x 16"
Höfuðrými að framan/aftan (mm)
983/980
Dekk
195/65 R15; 205/55 R16
Farangursgeymsla (hám. l) – án varadekks, með aftursæti upprétt/niðurfelld
Rúmmál tanks (l) * Notkun eldsneytis með lágri oktantölu getur haft áhrif á vélarafköst. ** Á við útgáfur með Green Pack, sem fást frá júní 2013
50
– með varadekkjum lækka gildin um 22 l ( ) Á við um útfærslur með sjálfskiptingu. 1.6 TDI CR DPF/66kW vélin fæst frá júní 2013.
590/1.580
Tæknilýsingar – Octavia Combi Vél
Strokkar/rúmtak vélar (cc)
1,2 TSI/63 kW
1,2 TSI/77 kW Green tec
1,4 TSI/103 kW Green tec
1,8 TSI/132 kW Green tec
1,6 TDI CR DPF/77 kW Green tec
2,0 TDI CR DPF/110 kW Green tec
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbóbensínvél, háþrýstikerfi með beinni innsprautun
Túrbódísilvél, samrása háþrýstikerfi samrása innsprautun
Túrbódísilvél, samrása háþrýstikerfi samrása innsprautun
4/1.197
4/1.197
4/1.395
4/1.798
4/1.598
4/1.968
Hámarks afköst/sn. (kW/mín-1)
63/4.300–5.300
77/4.500–5.500
103/4.500–6.000
132/5.100–6.200
77/3.000–4.000
110/3.500–4.000
Hámarkstog/sn. (Nm/mín.-1)
160/1.400–3.500
175/1.400–4.000
250/1.500–3.500
250/1.250–5.000
250/1.500–2.750
320/1.750–3.000
EU5
EU5
EU5
EU5
EU5
EU5
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, min. RON 95
Blýlaust bensín, RON 95/91*
Dísil
Dísil
Reglugerð um loftmengunarvarnir Eldsneyti
Afköst Hámarkshraði (km/klst.)
178
193
212
229
191
216 (213)
Hröðun 0-100 km/klst. (s)
12,2
10,5
8,5 (8,6)
7,4 (7,5)
11,0 (11,1)
8,6 (8,7)
– innanbæjarakstur
6,6
6,0
6,5
7,9 (7,1)
4,6 (4,8)
5,1 (5,4)
– utanbæjarakstur
4,5
4,5
4,6 (4,9)
5,1 (4,8)
3,3 (3,6)
3,7 (4,1)
– blandaður akstur
5,3
5,1
5,3 (5,4)
6,1 (5,7)
3,8 (4,0)
4,2 (4,5)
Eldsneytisnotkun 99/100 (l/100 km)
CO2 útblástur (g/km)
122
117
121 (124)
141 (132)
99 (104)
110 (119)
Þvermál beygjuhrings (m)
10,4
10,4
10,4
10,4
10,4
10,4
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Aflflutningur Gerð Kúpling
Gírskipting
Framhjóladrif
Framhjóladrif
Vökvastýrð þurrkúpling með einum diski
Vökvastýrð þurrkúpling með einum diski
5 gíra beinskipting
6 gíra beinskipting
6 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
6 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
5 gíra beinskipting (7 gíra DSG-sjálfskipting)
6 gíra beinskipting (6 gíra DSG-sjálfskipting)
1,242
1,247
1,272 (1,282)
1,337 (1,352)
1,322 (1,337)
1,347 (1,367)
Vökvastýrð þurrkúpling á einum Vökvastýrð þurrkúpling á einum Vökvastýrð þurrkúpling á einum Vökvastýrð þurrkúpling á einum diski diski diski diski (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, (tvöföld, samása fjöldiska kúpling, rafvökvastýrð) rafvökvastýrð rafvökvastýrð rafvökvastýrð)
Þyngd Eigin þyngd – venjulegrar útgáfu með 75 kg ökumanni (kg) Farmþungi – með ökumanni og aukabúnaði (kg)
645
645
645
585
645
645
Heildarþyngd (kg)
1.812
1.817
1.842 (1,852)
1,847 (1,862)
1,892 (1,907)
1,917 (1,937)
Kerruþungi án bremsa (hám. kg)
620
620
630 (640)
660 (670)
660
670 (680)
Kerruþungi með bremsum – 12% (hám. kg)
1.100
1.300
1.500
1,600
1,500
1,600
Yfirbygging Loftviðnámsstuðull Cw
Ytri mál
5 sæta, 5 dyra, 2ja rýma 0,30/0,31 samkvæmt vélarútfærslu
Lengd (mm)
Undirvagn Framöxull
McPherson-fjöðrun með þríhyrndum neðri tengjum og jafnvægisstöng
Afturöxull
Sveifaröxull með samsettum örmum/1,8 TSI: Samsettur öxull með einum tengli þversum og þremur langsum og jafnvægisstöng
Bremsukerfi - frambremsur
Tvöfalt skáskipt vökvahemlakerfi með undirþrýstingi og mismunandi hreyfingum
4.659
Breidd (mm)
1.814
Hæð (mm)
1.465
Hjólhaf (mm) - samkvæmt vélarútfærslu Sporvídd að framan/aftan (mm) - samkvæmt vélarútfærslu Hæð frá jörðu (mm)
2.686; 2.680 1.549; 1.543/1.520; 1.514; 1.512 140
Diskabremsur með innri kælingu og lausum eins stimpla kaliper
– afturbremsur
Diskabremsur
Innri mál
Stýring
Bein tannstangarstýring með rafvélrænu aflstýrikerfi
Hliðarrými að framan/aftan (mm)
1.454/1.449
Felgur
6,0J x 15"; 6,5J x 16"
Höfuðrými að framan/aftan (mm)
983/995
Dekk
195/65 R15; 205/55 R16
Farangursgeymsla (hám. l) – án varadekks, með aftursæti upprétt/niðurfelld
Rúmmál tanks (l) * Notkun eldsneytis með lágri oktantölu getur haft áhrif á vélarafköst. ( ) Á við um útfærslur með sjálfskiptingu.
50
– með varadekkjum lækka gildin um 22 l 1.6 TDI CR DPF/66kW vélin fæst frá júní 2013.
610/1.740
Candy White uni
Corrida Red uni
Pacific Blue uni
Lava Blue metallic
Brilliant Silver metallic
Platin Grey metallic
Race Blue metallic
Rosso Brunello metallic
Cappuccino Beige metallic
Denim Blue metallic
Topaz Brown metallic
Black Magic pearl effect
Litur
Litakóði
Innanrými Svart
Grátt
Ljósbrúnt
Candy White uni
9P9P
Corrida Red uni
8T8T
Pacific Blue uni
Z5Z5
Lava Blue metallic
0F0F
Brilliant Silver metallic
8E8E
Platin Grey metallic
2G2G
Race Blue metallic
8X8X
Rosso Brunello metallic
X7X7
Cappuccino Beige metallic
4K4K
Denim Blue metallic
G0G0
Topaz Brown metallic
4L4L
Black Magic pearl effect
1Z1Z
Samsetning á á lakki yfirbyggingar og innanrýmis
mjög góð
....
góð
Almennar upplýsingar Skoda viðhaldsþjónusta
SKODA aukahlutir
Settu bílinn þinn í góðar hendur. Það er bílnum þínum fyrir bestu að þú látir viðurkenndan SKODA þjónustuaðila annast bílinn þinn.
SKODA aukahlutir bjóða upp á barnabílstóla, þakboga, álfelgur, sólhlífar og fleira. Frekari upplýsingar um SKODA aukahluti er að finna í vörulista SKODA fyrir einstakar gerðir SKODA bíla.
Hjá okkur færðu aðeins það besta Bíllinn þinn þarf háþróaðar tæknilausnir. Þess vegna hafa allir viðurkenndir þjónustuaðilar SKODA öll nauðsynleg verkfæri og ástandsgreiningakerfi til taks, sem ásamt tæknilegum ferlum frá framleiðanda, tryggja fulla virkni og áreiðanleika bílsins. Við tryggjum starfsfólki okkar faglega þjálfun Með stöðugri þróun tæknilausna í bílnum aukast samsvarandi hæfniskröfur til starfsfólksins. Til að mæta þessum kröfum stöndum við fyrir reglulegri þjálfun fyrir starfsfólk viðurkenndra þjónustuaðila þar sem það fær allar þær leiðbeiningar sem það þarf til að geta sinnt starfi sínu á fullnægjandi hátt. Einkunnarorð okkar eru: Verum sanngjörn og heiðarleg við okkar viðskiptavini Við leggjum áherslu á varkára, faglega og vinsamlega ráðgjöf til viðskiptavina við afgreiðslu fyrirspurna og ennfremur gerum við kröfur um áreiðanleika og nákvæmni hvað varðar viðgerðir og viðhaldsvinnu. Allir þessir þættir eru undir stöðugu eftirliti innri gæðastjórnunar. Alhliða þjónusta: › Viðhaldsskoðun Ef þú vilt að bíllinn þinn sé í góðu ástandi og endist lengi og ef þú vilt ekki tapa ábyrgðinni er nauðsynlegt að viðurkenndur þjónustuaðili SKODA framkvæmi reglulega viðhaldskoðun á bílnum. Viðhaldssáætlunin segir til um hvenær framkvæma þarf viðhaldsskoðunina og umfang hennar. › Réttingar og sprautun Hægt er að láta laga skemmdir á yfirbyggingu og lökkuðum svæðum í kjölfar óhapps hjá viðurkenndum þjónustuaðila SKODA, þar sem slíkar viðgerðir eru meðhöndlaðar af kunnáttu, í samræmi við fyrirmæli framleiðanda, með SKODA varahlutum. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir öryggi þitt og þinna heldur einnig fyrir notagildi bílsins og til að halda uppi verðgildi hans. › Skiptibíll Viðurkenndur þjónustuaðili SKODA getur útvegað þér skiptibíl á meðan gert er við bílinn eða á meðan hann er í viðhaldsskoðun. › Við sækjum og sendum fyrir þig Ef þú kemst ekki með bílinn til þjónustuaðila SKODA mun hann finna tíma, í samráði við þig, til að sækja hann. Bílnum þínum verður skilað aftur þegar viðhaldsskoðun er lokið. Þjónustan sem hér er nefnd er aðeins hluti þeirrar þjónustu sem SKODA býður upp á og hún getur verið ólík milli landa. Hafðu samband við þjónustuaðila SKODA til að fá frekari upplýsingar um það sem í boði er og um sérstök skilyrði þeirra þjónustuþátta sem eru í boði.
SKODA varahlutir Öryggi SKODA varahlutir eru þeir sömu og notaðir eru við uppruna lega samsetningu ökutækja SKODA. Hágæðaefni og tækni lausnir tryggja öruggan og áhyggjulausan akstur. Framboð SKODA AUTO býður upp á úrval varahluta og búnaðar sem notaður er við framleiðslu ökutækjanna; úrvalið einskorðast ekki aðeins við algengustu varahluti. SKODA tryggir framboð upprunalegra varahluta jafnvel eftir að hætt er að framleiða viðkomandi tegund. Langur endingartími Hágæðaefni og framleiðslutækni sem notuð er við framleiðslu SKODA tryggja áreiðanleika og langan endingartíma. Umhverfisvernd Á meðal SKODA varahluta eru skiptihlutir sem framleiddir eru með lágmarks umhverfisáhrifum hvað varðar úrgang, umframhita og vatnsmengun.
Upplýsingar á netinu Á www.skoda.is færðu upplýsingar sem auðvelda þér að velja þá tegund sem uppfyllir þínar þarfir með hjálp nákvæmra tæknilýsinga og ljósmynda af öllum gerðum SKODA.
Eitt helsta markmið ŠKODA AUTO er að framleiða bíla sem hafa lágmarksáhrif á umhverfið, allt frá framleiðslu til urðunar, og því er lögð sérstök áhersla á endurvinnanlegt hráefni. ŠKODA bifreiðarnar eru framleiddar með háþróaðri tækni í nútímalegum verksmiðjum sem standast ströngustu kröfur. Ryðvörnin á lökkuðum hlutum bílsins er alfarið gerð með blýlausu KTL og vatnsleysanlegri málningu. Stefna okkar er að lágmarka eldsneytiseyðslu og útblástur. Vélarnar okkar standast því alla nýjustu mengunarstaðla. Allar vörur frá ŠKODA fara í gegnum framleiðsluferli sem er í samræmi við lög og reglugerðir hvað varðar verndun vatns og jarðvegs. Afrakstur þessarar stefnu er sá að ŠKODA bílarnir standast tækni-, öryggis-, gæða- og umhverfiskröfur. ŠKODA AUTO leggur sitt af mörkum við að halda umhverfinu hreinu og veitir jafnframt viðskiptavinum sínum þægilegan ferðamáta.
Umhverfismerkið er til marks um vitund og umhverfislega ábyrgð ŠKODA AUTO og viðleitni fyrirtækisins til að stuðla að sjálfbærri þróun og tillitsemi við líf og náttúru.
Sumar gerðir í þessum bæklingi eru sýndar með valfrjálsum búnaði eða aukabúnaði sem tilheyrir ekki endilega staðalbúnaðinum. Allar tæknilýsingar og upplýsingar um hönnun, búnað, efni, ábyrgðir og útlit voru réttar þegar þessi bæklingur fór í prentun. Aftur á móti áskilur framleiðandi sér rétt til breytinga án fyrirvara. Upplýsingarnar í þessum bæklingi eiga aðeins að vera leiðbeinandi. Vegna þeirra takmarkana sem fylgja prentuninni geta litir á bílum í þessum bæklingi verið öðruvísi en í veruleikanum. Vinsamlega hafðu samband við löggiltan þjónustuaðila ŠKODA til að fá nýjustu upplýsingar um staðal- og valfrjálsan búnað, verð og afhendingarskilmála. Bæklingurinn var prentaður á sellulósapappír sem bleiktur var án klórs. Pappírinn er 100% endurvinnanlegur.
www.skoda.is SKODA sölu- og þjónustuaðilinn þinn: