2 minute read

Af kattasamsæri

„Ég er sannfærð um að það sé einhver búinn að skipta út kettinum mínum. Hann lítur alveg eins út og er með ólina hans Brands – en þetta er ekki hann. Það hefur einhver skipt honum út fyrir annan kött“. Svona hljómaði byrjunin á símtali sem barst til Neyðarlínunnar í síðustu viku. Konan sem hringdi inn lýsti í öngum sínum viðamiklu samsæri sem hún taldi að væri í gangi í hverfinu sínu. Eftir skilningsríkt spjall var henni bent á að kíkja með Brand til dýralæknis til þess að láta athuga örmerkinguna hans. Konan í Vesturbænum var aðeins rórri eftir símtalið og sátt þrátt fyrir að neyðarvörðurinn þyrfti að enda símtalið snögglega enda blikkuðu nú ljós um alla Varðstofuna sem gáfu til kynna að símtal væri á bið. Næsta símtal er eins og löðrungur og brosið sem hafði myndast út af spjallinu um Brand er horfið. Ungt par hringir inn með lífvana ungabarn. Í gegnum geðshræringaröskur boðar neyðarvörðurinn sjúkrabíl á F1, gefur leiðbeiningar um endurlífgun og reynir að sannfæra foreldrana um að hjálpin sé á leiðinni á mesta forgangi - sem þau trúa ekki vegna þess að tveimur mínútum inn í símtalið finnst þeim eins og hálftími sé liðinn. Svona símtöl eru kaótísk og skelfileg og þá má ekkert út af bregða til þess að allt gangi upp og gangi hratt fyrir sig. Símtalið endar síðan þegar sjúkraflutningamenn mæta á staðinn og taka við. Línan er aftur laus, neyðarvörðurinn gefur frá sér eitt „úff“ og lætur sig síga niður í sætið. Það byrjar aftur að blikka og það er ekki laust við að smá kvíðahnútur hafi hreiðrað um sig áður en svarað er „112“. Neyðarlínan er eining sem fólk almennt hugsar ekki mikið út í fyrr en sá dagur rennur upp að það þarf að stimpla 112 á símann sinn og óska eftir aðstoð. Beiðnirnar sem okkur berast eru jafn misjafnar og þær eru margar og innhringjendurnir eru að sama skapi ólíkir, úr öllum stéttum og stöðum. Á síðasta ári komu yfir 260.000 símtöl inn til okkar og það þarf engan sérfræðing í tölfræði til þess að sjá að varðstofa Neyðarlínu, sem er mönnuð með 2-4 neyðarvörðum á hverjum tíma, er yfirleitt undir miklu álagi. Hjá okkur gerast hlutirnir hratt og öll tilfelli sem koma sem boðun til viðbragðsaðila byrja hjá okkur. Við þurfum að reiða okkur á upplýsingar frá fólki sem hringir af vettvangi og það getur verið mikil kúnst að ná haldbærum upplýsingum um vettvang og tilfelli frá fólki sem er í mjög miklu áfalli,

Kamilla Guðmundsdóttir

Advertisement

talar hvorki ensku né íslensku, er undir miklu áhrifum vímuefna eða er mjög ósamvinnuþýtt. En þrátt fyrir álagið, erfiðu málin og kattasamsæri í Vesturbænum þá er þetta virkilega gefandi og spennandi starf. Á Neyðarlínu vinnur fjölbreyttur hópur fagfólks sem reynir í sífellu að bæta eigin vinnuferla og samskipti við viðbragðsaðila en eftir erfiðar vaktir þar sem málin eru óvenjumörg og erfið sárnar okkur að heyra talað um okkur sem „skiptiborðið“. Það er engum innan þessa geira til hagsbóta að tala niður hina hlekkina í keðjunni og aðeins með bættum samskipum, samvinnu og gagnkvæmri virðingu verðum við öll betri, faglegri og sem ein heild. Við á Neyðarlínunni lumum á gnótt frásagna á borð við söguna um Brand og hingað eru allir viðbragðsaðilar velkomnir þó ekki nema til þess að fá að sjá andlitin bak við raddirnar í fjarskiptum eða til þess að gæða sér á besta kaffinu í Skógarhlíð 14.

This article is from: