1 minute read

Orlofssjóður LSS

Orlofssjóður hefur fimm íbúðir/sumarhús til umráða. Tvær íbúðir eru á Akureyri, ein í Reykjavík og tveir sumarbústaðir í Munaðarnesi. Sumarúthlutun er lokið en félagsmenn geta farið inn á orlofsvef LSS www.orlof.is/lsos og bókað þær vikur/daga sem eru lausir, óháð starfshlutfalli. Í ár var ákveðið að taka íbúð á leigu á Spáni, Torrevieja frá maí – september og er það gert í tilraunaskyni til kanna eftirspurn félagsmanna eftir íbúðum á þessu svæði. Búið er að taka til hendinni í Munaðarnesi, bílastæði löguð og einnig aðgengi að bústöðunum, hitagrindur og pottastýringar endurnýjaðar ofl. Stefnt er að því að laga bústaðina í Munaðarnesi enn frekar á næstunni. Búið er að endurnýja rúm í öllum íbúðum og stefnt er að því að setja pall fyrir neðri hæðina á Akureyri. Orlofssjóður hefur lagt reglulega inn á lánið sem var tekið vegna íbúðarinnar á Grandaveginum og gengur vel að greiða það niður.

Sérstaða LSS

Advertisement

Orlofsnefnd LSS leggur sig fram að við hafa íbúðirnar í lagi og tryggja að dvöl félagsmanna verði góð upplifun fyrir alla fjölskylduna. Þess vegna fylgja íbúðunum auka fríðindi. Í orlofsíbúðunum á Akureyri fylgja sund- og skíðakort fyrir tvo fullorðna og skíðakort fyrir tvö börn. Í orlofshúsunum í Munaðarnesi fylgir aðgangur í sund í sveitarfélaginu Borgarbyggð fyrir tvo fullorðna og tvö börn (þrjár sundlaugar). Einnig er frítt að spila golf á golfvellinum Glanna við Bifröst.

Munaðarnes. Akureyri.

Torrevieja á Spáni.

Önnur þjónusta

LSS hvetur félagsmenn að skoða orlofssíðu félagsins en þar eru hótelmiðar, veiðikort og útilegukortið niðurgreidd. Nú býður orlofsnefndin upp á að kaupa flugafsláttarkort fyrir tvo fyrir 1.000 sem jafngildir 6.000 króna afslætti hjá Icelandair og íslenskum ferðaskrifstofum, gegn framvísum flugmiða. Á heimasíðunni má einnig finna yfirlit yfir hin ýmsu fyrirtæki sem veita félagsmönnum okkar afslætti. Nýting orlofsíbúða LSS á síðasta ári var góð og fengu flestir úthlutað sem vildu. PANTONE 560C

PANTONE 130C

C80 M0 Y63 K75

C0 M30 Y100 K0

This article is from: