2 minute read
Krabbamein meðal slökkviliðsmanna
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á tíðni krabbameins meðal slökkviliðsmanna og benda þær allar til þess að tengsl sé á milli starfs slökkviliðsmanna og aukinnar tíðni krabbameins.* Þó svo að flestar rannsóknir séu gerðar erlendis þá má vel heimfæra þær á íslenska slökkviliðsmenn enda vinna þeir við sömu aðstæður og slökkviliðsmenn erlendis. Le Masters-2007 og Nordic study-2010 eru þær rannsóknir sem við horfum hvað mest til, en þær sýna fram á aukna tíðni krabbameins meðal slökkviliðsmanna. Einnig hafa Joha Laitinin, læknir finnska vinnueftirlitsins, og Dr. Jeffrey Burgess, við University of Arizona, gert rannsóknir sem sýna inntöku slökkviliðsmanna á krabbameinsvaldandi efnum við reykköfun, efnum sem eru skilgreind í 1. flokki hjá IARC. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikil vakning hefur orðið meðal slökkviliðsmanna um þessa hættu sem bíður slökkviliðsmanna. Þeir sem hafa
Bjarni Ingimarsson og Borgar Valgeirsson lokið atvinnuslökkviliðsmannsnámi Brunamálaskólans hafa fengið fræðslu og leiðbeiningar um hvernig best sé að haga vinnu eftir reykköfun og hefur sú fræðsla skilað sér. Einnig hafa einstaka slökkvilið óskað eftir fræðslu fyrir sína slökkviliðsmenn og sem dæmi þá var á vordögum haldinn fyrirlestur fyrir starfsmenn Slökkviliðs Akraness en þeir voru að taka inn nýja starfsmenn. Hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hefur náðst gríðarlegur árangur í forvörnum bæði hvað varðar fræðslu og vinnuferla en einnig varðandi að
Advertisement
búnað og leiðir til þess að minnka alla upptöku slökkviliðsmanna á eiturefnum. Einn af stóru þáttunum er uppsetning á nýju æfingasvæði þar sem notast verður við gas í stað þess að kveikja upp eld en þetta nýja æfingasvæði kemur til með að verða bylting í æfingaaðstöðu hér á landi og er hún sambærileg við það sem nágrannar okkar í Evrópu hafa verið að setja upp. Einnig verður Cobra slökkvikerfi í öllum nýjum slökkvibílum hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins en það er kerfi sem kemur í einhverjum tilvikum til með að minnka þátt reykköfunar við slökkvistörf. Dagana 7. og 8. nóvember nk. verður haldin fimmta alþjóðlega ráðstefnan um krabbamein meðal slökkviliðsmanna og mun ráðstefna fara fram í Dusseldorf í Þýskalandi. Systursamtök okkar í Þýskalandi halda ráðstefnuna en uppsetning hennar verður svipuð og ráðstefnan sem haldin var á Íslandi á síðasta ári.
*(Guidotti -2002, Le Masters-2007, Nordic study-2010, Korean study-2012, NIOSH-2014, Australian study-2014)
Selfoss
TRAUSTURBYGGINGARAÐILI SÍÐAN 1998
Kynntu þér byggingaraðilann
Þegar fasteignakaup standa fyrir dyrum hugar þú að ótal atriðum. Þú reynir að velja söluaðila sem er traustsins verður, velur hentuga fjármögnunarleið og veltir fyrir þér kostum og göllum hverrsins, samgöngum, félagsþjónustu, skólaumhverr og ýmsu eiru. Þú vandar þig –enda er ákvörðunin um að kaupa fasteign með allra stærstu ákvörðunum sem einstaklingur tekur í líí nu.
Gæðakerr
Gæðakerr ÞG Verk verndar hagsmuni kaupenda en ávallt er gerð sameiginleg úttekt á hverri fasteign fyrir afhendingu. Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina byggt atvinnuhúsnæði sem hýsir margvíslega starfsemi.
Sá sem byggir skiptir öllu máli –það er á þessum grunni sem ÞG Verk hefur starfað og mun áfram starfa um ókomna tíð. Bryggjuhverr
www.tgverk.is