1 minute read

Deiliskipulagsbreyting

íþróttasvæðis í Grindavík Kynning á vinnslutillögu

Í fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2023 samþykkti bæjarstjórn að halda áfram með vinnu við breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis. Deiliskipulagsvinnan hefur farið fram á vettvangi bæjarráðs, skipulagsnefndar og frístunda- og menningarnefndar. Vinnslutillaga skipulagsins var kynnt á íbúafundi þann 14. febrúar sl. Íbúum hefur verið gefinn kostur á að senda inn ábendingar við vinnslutillöguna í gegnum heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Deiliskipulagssvæðið nær til íþróttasvæðis Grindavíkurbæjar og er unnið með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar í bænum. Stærð svæðisins er 10,8 ha. Markmið með skipulagsbreytingunni er þríþætt: n Endurbæta fótboltavelli og aðstöðu um þá með nýrri lýsingu keppnis- og æfingarvallar og tilfærslu vallanna. Keppnisvöllur er færður austar og æfingarvelli er snúið um 90 gráður, svo hægt sé að samnýta ljósamöstur milli valla. n Endurskipuleggja byggingareiti bygginga á svæðinu, þannig að lögun og hæð þeirra skapi sem minnst skugga á svæðinu og séu aðlagandi í heildarásýnd svæðisins og heimila niðurrif eldri bygginga. n Auka útivistagildi svæðisins með nýjum göngustígum og útivistasvæðum austast á svæðinu.

Þeir sem vilja gera formlegar athugasemdir og/eða ábendingar varðandi vinnslutillögu deiliskipulagsins skulu senda þær skriflega til skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavíkurbæ eða í tölvupósti á atligeir@grindavik.is. Athugasemdir og ábendingar skulu berast í síðasta lagi 19. mars 2023.

Vinnslutillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar á 2. hæð Víkurbrautar 62, 240 Grindavík ásamt því að vera aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.

Atli Geir Júlíusson, skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar

This article is from: