1 minute read
1100 börn á vel heppnuðu Nettómóti í körfuknattleik
Það voru u.þ.b. 1100 ungir og efnilegir körfuknattleikskrakkar, sem létu gamminn geysa í öllum íþróttahúsum Reykjanesbæjar um síðustu helgi en þá var Nettómótið haldið.
„Ég held að það sé hægt að halda því fram að mótið hafi gengið vel og allir krakkarnir voru ánægðir held ég og vona. Þetta mót hófst má segja í kringum 1990, hét þá Kókó mjólkur-mótið, svo óx það jafnt og þétt og breyttist í Samkaupsmótið. Þegar Samkaup fór svo að leggja meiri áherslu á Nettó-vöru merkið í kringum 2010 breyttist nafn mótsins í Nettómótið. Það er mikið fjör hjá krökkunum en nokkuð stíf dagskrá er frá morgni til kvölds, ekki bara inni á körfu boltavellinum. Krakkarnir fara t.d.
flottum hoppukastala fyrir í Nettóhöllinni og ég er nokkuð viss um að það var ekki mikið bensín eftir á tanki krakkanna þegar lagst var á koddann um níuleytið á kvöldin.
Þetta mót er fyrir 1.-5. bekk og allir eru sigurvegarar. Það er oft gaman að fylgjast með krökkunum, þau eru mismiklir keppnismenn og sumir segjast hafa talið stigin og halda því fram að sitt lið hafi unnið,“ segir Jón Ben Einarsson, mótsstjóri Nettómótsins.
Það eru grannafélögin Keflavík og Njarðvík sem halda mótið sameiginlega. Jón Ben tók þátt í stofnun félags sem heldur utan um mótið, Karfan, hagsmunafélag en
Kristinn að gera það gott í Hollandi
„Takmarkið lokin úrslitakeppni allra liðanna. Okkur var spáð í sjöunda sæti og hefðum þá farið í Silfurdeildina en við náðum fjórða sætinu og erum ánægðir með það. Þessi deild er ansi sterk, það voru fjögur lið úr hollensku deildinni í Champions league eða Eurocup í fyrra og fimm lið frá Belgíu, það segir nokkuð. Belgíska deildin var metin sameina deildirnar. Það eru engin takmörk á útlendingum og í mínu liði er Ástrali, Kanadamaður og tveir Bandaríkjamenn. Ég er eini Evrópumaðurinn utan Hollands. Þessi deild er sterkari en sú íslenska en allt öðruvísi, hér er lítið um að einhver einn leikmaður sé að skora mjög mikið og menn eru í mesta lagi að spila rúmar tuttugu félaganna.
„Félögin hafa alltaf haldið þetta mót saman en við stofnuðum sérstakt félag utan um mótið árið 2011, það er betra að halda utan um það þannig. Það er mjög gaman að taka þátt í þessu og þarna snúa erkifjendurnir bökum saman má segja þessa helgi. Ég vil koma á framfæri kærum þökkum til allra á plóg um helgina,“ sagði Jón Ben í lokin.
Rekstraraðilar hinna ýmsu fyrirtækja, bakaría, veitingastaða og verslana njóta góðs af því þegar þúsundir ungmenna og foreldra mæta í Reykjanesbæ. Iðulega var fullt úr úr dyrum á mörgum stöðum.