8 minute read
Velkomin á Aðaltorg!
Verslun og þjónusta eflist til framtíðar
Courtyard by Marriott og The Bridge
Nýtt 150 herbergja hótel og nýr veitingastaður opnuðu á Aðaltorgi 2020 og 2021
Á hótelinu eru 150 deluxe herbergi og tvö fundarherbergi. Bæði hótelið og veitingastaðurinn hafa fengið mjög góðar mótttökur þrátt fyrir miklar áskoranir í heimsfaraldri. Courtyard by Marriott hefur þegar fengið viðurkenningar frá World Travel Awards sem leiðandi viðskiptahótel og Græna lykilinn sem er viðurkennt umhverfisvottunarkerfi fyrir ferðaþjónustuna.
Við trúum á framtíð Suðurnesja
Það verður að teljast í hæsta máta óeðlileg vinnubrögð ríkisstofnunar að yfirbjóða leigu á almennum markaði með þeim afleiðingum að fjölskyldur missa húsnæði sitt. Fjölskyldur sem hér hafa sest að, lagt sitt af mörkum til samfélagsins og séð fram á bjarta framtíð í Reykjanesbæ lenda á götunni. Þetta kemur fram í bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ um stöðu í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 4. apríl.
„Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hörmum þá stöðu sem upp er komin í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og leggjum því fram þessa bókun. Í upphafi skal þess getið að gera verður greinarmun á umsækjendum um alþjóðlega vernd annars vegar og flóttafólki, sem fellur undir samning Reykjanesbæjar við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks hins vegar. Reykjanesbær hefur gert samning um samræmda móttöku flóttafólks. Sá samningur tekur til um 350 manns sem við tökum á móti, styðjum við aðlögun að samfélaginu og er markmiðið að minnka umfang samningsins á samningstímanum. Reykjanesbær gerði fyrst samning um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd árið 2004. Sá samningur hefur þróast í áranna rás og þeim sem þar falla undir fjölgað jafnt og þétt. Þróun undanfarinna ára er þó í engum takti við þann fjölda sem nú hefur fengið húsnæði í sveitarfélaginu og telur yfir 1.000 manns og fer hratt fjölgandi. Þessi fjölmenni hópur fólks er í umsjá Vinnumálastofnunnar og er okkur í Reykjanesbæ gert að hlíta einhliða ákvörðun stofnunarinnar um að útvega þessum fjölmenna hópi húsnæði í Reykjanesbæ með tilheyrandi áhrifum á innviði okkar og mannlíf.
Ekki hefur verið gerður samningur um þjónustu við þennan gífurlega fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd en um leið og Vinnumálastofnun hefur útvegað þeim hópi húsnæði, ber okkur skylda til að veita þeim ýmis konar þjónustu og aðgengi að innviðum sveitarfélagsins. Enginn fyrirvari hefur verið gefinn um áform Vinnumálastofnunar um að setja hér í hús hátt í 1.000 manns og því erum við ávallt að bregðast við því að efla þjónustu okkar og innviði til að mæta þessari fjölgun, eftir á.
Áhrifin á íbúa sveitarfélagsins eru þegar orðin víðtæk. Nú síðast berast fréttir af því að leigusalar kjósa að leigja Vinnumálastofnun húsnæði frekar en íbúum sveitarfélagsins.
Jafnvel virðist hagkvæmara að leggja niður rekstur hótels, segja öllu starfsfólki upp vinnunni og leigja ríkinu herbergin. Á fundi með bæjarfulltrúum Reykjanesbæjar þann 21. mars sl. var Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra spurður spurningarinnar „hvers vegna setur Vinnumálastofnun allt þetta fólk í húsnæði í Reykjanesbæ?”
Ráðherra svaraði því til að „það er svo mikið laust húsnæði í Reykjanesbæ”.
Við erum ekki viss um að það sé upplifun íbúa Reykjanesbæjar sem eru á leigumarkaði að hér sé allt fullt af lausu húsnæði. Sjálfsagt skal engan undra að húsnæði losni hratt og örugglega ef betra leiguverð býðst frá ríkinu. Þrátt fyrir stöðuga og mjög hraða fjölgun, er eina loforð ráðherra að byggt verði húsnæði fyrir þennan hóp og að það húsnæði verði ekki byggt í Reykjanesbæ. Það er nokkuð ljóst að ríkisvaldið hefur engin úrræði
Aðalfundur
önnur en að þiggja allt húsnæði sem býðst. Það verður þó að teljast í hæsta máta óeðlileg vinnubrögð ríkisstofnunar að yfirbjóða leigu á almennum markaði með þeim afleiðingum að fjölskyldur missa húsnæði sitt. Fjölskyldur sem hér hafa sest að, lagt sitt af mörkum til samfélagsins og séð fram á bjarta framtíð í Reykjanesbæ lenda á götunni. Hvar endar þetta?
Vantraust til ríkisins og Vinnumálastofnunar í þessum efnum er réttilega ríkjandi á meðal íbúa sveitarfélagsins í ljósi þess hvernig mál hafa þróast og þess samráðsleysis sem einkennt hefur aðgerðir Vinnumálastofnunar.
Reykjanesbær er komin langt yfir þolmörk hvað varðar fjölda því er það skýlaus krafa okkar að ekki verði um frekari fjölgun á húsnæði og fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ. Við förum einnig fram á að okkur og íbúum sveitarfélagsins verði kynnt, hvernig Vinnumálastofnun hyggst standast freistinguna að þiggja enn fleiri leigurými þegar þau standa til boða. Það er ljóst að á meðan eftirspurn er frá ríkinu, traustum greiðanda sem gerir leigusamninga til langs tíma og á hærra leiguverði, verður framboðið til staðar. Ábyrgðin á að tryggja jafnari dreifingu umsækjenda um alþjóðlega vernd á milli sveitarfélaga er ríkisins og við hana verður það að standa.“ Undir bókunina skrifa þau Helga Jóhanna Oddsdóttir, Alexander Ragnarsson og Birgitta Rún Birgisdóttir.
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis 2023 verður haldinn í Krossmóa 4, 5. hæð, þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar.
Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs. Önnur mál.
Kaffiveitingar verða á fundinum.
Við hvetjum félaga til að fjölmenna.
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfullrúi
Umbótar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur að félags- og vinnumarkasðráðherra geri sér enga grein fyrir því hve staðan er alvarleg hér vegna mikils fjölda hælisleitenda. „Hann lofaði að fækka þeim en hefur ekki staðið við það heldur þvert á móti þá fjölgar þeim. Í dag eru um 1000 manns í úrræðum ríkisins á Ásbrú sem samsvarar rúmlega 20% allra umsækjenda um alþjóðlega vernd á síðasta ári,“ segir Margrét í bókun sem hún lagði fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í síðustu viku. Í bókuninni segir hún einnig:
„Við höfum séð að ráðuneytið hefur verið að taka blokk eftir blokk til leigu til að leigja undir hælisleitendur og þeir sem eru að missa leigusamninga sína á þessu ári fá ekki endurnýjun á samningi og eru sendir á götuna.“
Bókun Margrétar í heild sinni er hér að neðan:
„Síðastliðinn föstudag sat ég Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem málefni flóttafólks og hælisleitenda var á dagskrá. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra var með framsögu og svaraði spurningum úr sal. Eftirfarandi spurningar lagði ég fyrir ráðherra.
1. Frumvarpið sem var kynnt á vef Stjórnarráðsins um að heimila leigu á iðnaðar og skrifstofuhúsnæði fyrir hælisleitendur. Hvers vegna var farið af stað án nokkurs samráðs við sveitarfélögin.
2. Nú hefur verið unnið að því að koma í veg fyrir að erlendir verkamenn séu hýstir í ólöglegu iðnaðarhúsnæði. Er þetta frumvarp ekki alveg þvert á það. Mun það ekki setja slæmt fordæmi.
3. Ef sveitarfélögin munu leggjast gegn frumvarpinu. Sem ég tel að þau muni gera. Mun þá ríkisstjórnin draga það til baka. Með þessu frumvarpi er ríkisstjórnin að taka skipulagsvaldið af sveitarfélögum. Finnst ráðherra það eðlilegt.
Ráðherra brást illa við réttmætum spurningum mínum og athugasemdum sem íbúar hafa komið á framfæri við mig.
Við höfum séð að ráðuneytið hefur verið að taka blokk eftir blokk til leigu til að leigja undir hælisleitendur og þeir sem eru að missa leigusamninga sína á þessu ári fá ekki endurnýjun á samningi og eru sendir á götuna.
Mín skoðun er sú að ráðuneytið verður að falla frá þessum gjörningi sínum að reka fólk úr íbúðum sínum svo leigja megi hælisleitendum. Við sem samfélag getum ekki samþykkt slík vinnubrögð og verðum að standa fastar gegn stjórnvöldum.
Ég tel að ráðherra geri sér enga grein fyrir því hve staðan er alvarleg hér vegna mikils fjölda hælisleitenda. Hann lofaði að fækka þeim en hefur ekki staðið við það heldur þvert á móti þá fjölgar þeim. Í dag eru um 1000 manns í úrræðum ríkisins á Ásbrú sem samsvarar rúmlega 20% allra umsækjenda um alþjóðlega vernd á síðasta ári. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt hér og fjölmargir sem til þekkja hafa bent á að Reykjanesbær er löngu komin að þolmörkum við móttöku flóttafólks. Við hér í Reykjanesbæ höfum svo sannarlega staðið okkur vel í móttöku flóttafólks. Við vorum frumkvöðlar og boðin og búin að aðstoða flóttafólk. Ríkisvaldið þakkar hins vegar fyrir sig með því að senda enn fleira flóttafólk til okkar án nokkurs samráðs. Þrátt fyrir að sveitarfélagið sé komið langt yfir þolmörk. Ef þetta frumvarp sem mun heimila leigu á iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði mun ganga í gegn þá er samfélagið okkar komið í ógöngur og við búið að missa tökin á þeim fjölda sem kemur hingað,“ segir í bókun Margrétar Þórarinsdóttur.
Vegna leigu búsetuúrræðis fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ
Stjórnin
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Í fjölmiðlaumfjöllun undanfarna daga hefur meðal annars komið fram að Vinnumálastofnun hafi yfirboðið leiguíbúðir í Reykjanesbæ í því skyni að nýta þær sem búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í ljósi þess vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri: Vinnumálastofnun er meðvituð um þann fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem stofnunin veitir þjónustu í Reykjanesbæ og það álag sem fjöldinn hefur í för með sér á innviði sveitarfélagsins. Vegna þessa hefur stofnunin ásamt öðrum aðilum átt í góðu og nánu samstarfi við Reykjanesbæ þar sem meðal annars er verið að leggja mat á þær áskoranir sem upp hafa komið auk þess sem unnið er að lausnum. Hvað varðar leigu á búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur Vinnumálastofnun falið Framkvæmdasýslunni/Ríkiseignum að finna slíkt úrræði fyrir hönd stofnunarinnar. Í þessu sambandi tók Framkvæmdasýslan/ Ríkiseignir fyrir skemmstu á leigu húsnæði í Reykjanesbæ þar sem fyrir eru leigjendur en í því tiltekna tilviki hefur eigandi húsnæðisins staðfest við Framkvæmdasýslu ríkisins/ Ríkiseignir að öllum leigjendum verði boðið annað húsnæði sem er í eigu húseiganda þegar gildistími núverandi leigusamninga rennur út. Þá hefur Framkvæmdasýslan/ Ríkiseignir staðfest við Vinnumálastofnun að leigan sem greidd er fyrir það búsetuúrræði sem hér um ræðir sé sú sama og núverandi leigjendur greiða.
Er það von Vinnumálastofnunar að samtal og samstarf við Reykjanesbæ undanfarna mánuði og afrakstur þess verði grundvöllur fyrir áframhaldandi gott samstarf við Reykjanesbæ vegna málefna umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks.
Eins og undanfarin ár er hrygningarstopp í apríl en það hófst 1. apríl og stóð til 12. apríl og miðast við u.þ.b. 4 mílur út frá landi. Stoppið er á nokkuð stóru svæði, eða frá Dyrhólaey að Reykjanesi, inn í Faxaflóa meðfram Snæfellsnesinu, inn í Breiðafjörð og að Látrabjargi. Þeir bátar sem réru á þessum tíma fyrir páskastopp, fóru því út fyrir þessa línu og gekk nokkuð vel.
Sömuleiðis núna í apríl eru smábátasjómenn að koma sínum bátum á flot og gera þá klára, því 1. maí næstkomandi byrjar strandveiðitímabilið. Strandveiðitímabilið 2022 gekk mjög vel hjá bátunum og þeir voru nokkuð margir á þessu svæði. Svæðið sem Suðurnesin eru á kallast svæði D, og reyndar er það nokkuð langt en það byrjar á Hornafirði og nær að Akranesi, ansi sérstakt að Hornafjörður sé á svæði D, en ekki svæði C. Svæði C er frá Raufarhöfn og að Djúpavogi.
Fyrir páskastoppið voru nokkrir bátar sem réru og ef við lítum á netabátana þá var Erling KE með 56 tonn í þremur róðrum.
Grímsnes GK var með 35 tonn í fimm róðrum og Maron GK var með 16 tonn í þremur róðrum. Hjá dragnótabátunum hafa aðeins tveir bátar róið og eru það
Aðalbjörg RE sem er með 19,3 tonn í þremur og Maggý VE með 6,2 tonn í einum róðri en báðir lönduðu í Sandgerði.
Hjá togurunum er Áskell ÞH með 91 tonn í einum túr. Hann var reyndar að missa veiðileyfi vegna brottkasts. Þetta er þriðji stóri
Bílaviðgerðir Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is báturinn sem landar á Suðurnesjunum sem missir veiðileyfið vegna brottkasts. Áskell ÞH mun þurfa að stoppa 1. maí næstkomandi og vera stopp í fjórtán daga út af brottkasti á 74 fiskum. Sturla GK var svo með 72 tonn í einni löndun, landað í Grindavík.
Hjá línubátunum heldur góða veiðin áfram. Hjá stóru bátunum var Sighvatur GK með 109 tonn, Páll Jónsson GK með 103 tonn, Valdimar GK með 101 tonn og Fjölnir GK 95 tonn. Allir eftir eina löndun í Grindavík.
Af minni bátunum er Kristján
HF með 49 tonn í þremur löndunum, Indriði Kristins BA með 46 tonn í fjórum, Tryggvi Eðvarðs SH með 38 tonn í þremur og Margrét
GK 16 tonn, allir lönduðu í Sandgerði.
Auður Vésteins SU 27 var með 27 tonn í þremur, Gísli Súrsson
GK með 26 tonn í þremur, Dúddi
Gísla GK með 25 tonn í tveimur, Hópsnes GK með 15 tonn í þremur, Særif SH með 14 tonn í einum, Geirfugl GK með 10 tonn í þremur og Gulltoppur GK með 10 tonn í tveimur róðrum, allir lönduðu í Grindavík.
Í mars var Addi Afi GK eini báturinn á Suðurnesjunum sem var á grásleppuveiðum en núna hefur Garpur RE líka hafið grásleppuveiðar og rær hann frá Grindavík. Grásleppubátunum mun eitthvað fjölga núna í apríl.