1 minute read
Þúsund tonn unnin aukalega
Fyrsta almanaksárið eftir að vísir hf. í grindavík, varð dótturfélag Síldarvinnslunnar í Neskaupstað með skiptum á hlutabréfum, er nú bráðum hálfnað. tilkynnt var um viðskiptin sl. haust en samkeppniseftirlitið þurfti að fjalla um málið áður en hægt yrði að hefjast handa við að aðlaga reksturinn nýju umhverfi. vísir hf. var stofnað árið 1965 af Páli H. Pálssyni og eiginkonu hans, Margréti Sighvatsdóttur. börnin hafa flest komið að rekstrinum en Pétur Hafsteinn Pálsson var framkvæmdastjóri þegar viðskiptin voru gerð og verður það áfram, nú undir stjórn nýrra eigenda.
Pétur fór yfir hvernig fyrstu skrefin hafa verið. „Þetta hefur farið mjög vel af stað enda allar forsendur fyrir viðskiptunum augljósar og þær munu ekki breytast en þær eru staðsetning, fjárfesting og fólk. Vð erum staðsett mitt á milli útflutningshafna bæði fyrir sjó og flugflutninga, við erum búin að fjárfesta að stærstum hluta í nútíma fiskvinnslum og hjá okkur er reyndur og frábær stjórnendahópur. Það síðastnefnda er sá þáttur rekstrar sem ég held að allar atvinnugreinar munu finna fyrir á næstu árum, að erfiðast er að koma sér upp góðum stjórnendahópi og fá til vinnu. Aðgangur að almennu vinnuafli er gott á þessu landsvæði en við eins og allir þurfum að huga vel að stjórnendum með fagþekkingu á gólfi, skrifstofum og á sjó.
Stærsta verkefnið
Við höfum verið að vinna sextán til átján þúsund tonn á ári en fiskvinnslunar eru gerðar til að vinna að jafnaði 100 tonn á dag. Í 220 daga myndi þetta gera 22.000 þúsund tonn sem er aukning um 25% og höfum við nú þegar fengið inn í vinnslurnar á annað þúsund tonn af þessari aukningu. Í fram- haldinu liggur fyrir að fara í aðlögun flotans að veiðiheimildum samstæðunnar og samræmdri og jafnri stjórnun veiðanna til að gerlegt sé að fullnýta vinnslugetuna. Sú vinna er í gangi og ætlunin er að vanda þau skref, enda ekkert í rekstrinum sem kallar á neinar bráðaaðgerðir. Við höfum áður gengið í gegnum breytingar og aðlaganir og alltaf haft að leiðarljósi að fólk héldi störfum sínum þó breytingar verði á skipsplássi eða vinnustað.
Öðruvísi boðleiðir
Starf Péturs hefur ekki breyst en boðleiðirnar eru öðruvísi. „Mitt