1 minute read
MÆLD LOSUN KOLEFNISJÖFNUÐ 4.4
from Samfélagsskýrsla ELKO 2022
by ELKO
Mæld losun frá starfsemi ELKO fyrir árið 2022, bein og óbein, úr aðgerðasviðum 1, 2 og 3 er kolefnisjöfnuð í gegnum móðurfélagið Festi hf. Fram að þessu hafa á hverju ári verið keyptar óvottaðar kolefniseiningar frá Kolvið til að mæta mældri losun gróðurhúsalofttegunda frá samstæðunni. Í ár keypti
Festi vottaðar kolefniseiningar í Gold Standard úr verkefni í Búlgaríu. Verkefnið snýst um að draga úr losun metans og framleiða raforku.
Keyptar voru 2.127 einingar, árgerð 2020 af Greensteps GMbh í verkefni nr. GS4238. Verkefnið styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 6, 11 og 13. Ekki er öll kolefnislosun frá rekstri og virðiskeðju ELKO mæld. Öll losun sem fellur undir umfang 1 og 2 er mæld en þeir þættir sem eru mældir í umfangi 3 eru flugferðir og úrgangur.
Aðgerðasvið 1: Bein losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi og eldsneytisnotkun farartækja.
Aðgerðasvið 2: Óbein losun gróðurhúsalofttegunda sem tengd er raforkunotkun og notkun á heitu vatni í fasteignum og á lóðum ELKO.
Aðgerðasvið 3: Óbein losun gróðurhúsalofttegunda virðiskeðju ELKO, úrgangur frá rekstri og viðskiptaferðir.