3 minute read
Trymbiltaktur Play hrífur Íslendinga Fullbúin íbúðarhús erlendis frá bylting
TRYMBILTAKTUR PLAY HRÍFUR ÍSLENDINGA
Um 4.000 hluthafar Play staðfesta trú landsmanna á flugfélaginu þar sem Birgir Jónsson fyrrum trommari Dimmu slær taktinn
Stöðugur hrynjandi Play….Play… Play hefur ómað um Ísland þetta árið og vakið áhuga Íslendinga. Flugfélagið Play hóf vegferð sína um loftin blá í júní og er nú með þrjár 192 sæta Airbus 321neo vélar og eftir áramót er stefnan tekin á flug yfir hafið milli Ameríku og Evrópu um Keflavíkurvöll. Birgir Jónsson, fyrrum trommari þungarokkssveitarinnar Dimmu og nú forstjóri Play, slær taktinn. Hann útskrifaðist með MBA gráðu frá the University of Westminster og BA gráðu frá the University of Arts in London. Einnig hefur hann víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu, meðal annars sem fyrrum framkvæmdarstjóri Iceland Express, aðstoðarforstjóri WOW Air, auk þess að stýra Össuri hf. í Asíu með aðsetur í Hong Kong. Þá hefur Birgir á ferilskrá sinni stjórn einnar stærstu prentsmiðju Austur-Evrópu; Infopress Group og var þá í Rúmeníu, Búlgaríu og Ungverjalandi. Hann hefur tekið þátt í endurskipulagningum og umbreytingum fyrirtækja, þar á meðal Íslandspósts.
Fjögur þúsund hluthafar
Það er ekki hægt að segja annað en Íslendingar hafi trú á flugfélaginu. Fjögur þúsund manns lögðu fram fimm milljarða króna til rekstrar næstu fimm árin. Á íslenskan mælikvarða eru það miklir peningar og í raun ein farsælasta innkoma á hlutabréfamarkað hér á landi. Eftirspurn var áttfalt framboð. Tveimur mánuðum eftir að Play kom sér fyrir á Evrópumarkaði sótti flugfélagið um flugleyfi til Ameríku, en flug vestur um haf gegnir lykilhlutverki í framtíðarááformum félagsins. Play býður upp á 18 þúsund króna fargjald til Lundúna fram og til baka, 30 þúsund til Köben svo dæmi séu tekin. Á næsta ári hefst Ameríkuflugið milli Evrópu og Ameríku um Keflavíkurflugvöll.
Loftleiðir hófu flug yfir Atlantshafið 1948 um Keflavíkurflugvöll og þróðuðu þessa mögnuðu flugleið á sjötta áratugnum, síðar Flugleiðir nú Icelandair. Á sjötta áratugnum voru Loftleiðir fyrsta lággjaldaflugfélag heims í óþökk stærri flugfélaga líkt og SAS. Flugið yfir hafið gefur möguleika á hámarks nýtingu flugflota. Vél fer frá Íslandi snemma morguns og lendir í Evrópu um hádegi. Þá er flogið til baka og lent á Íslandi um nónbil. Síðdegis er farið í loftið til Bandaríkjanna að íslenskum tíma og lent undir kvöld og farið á loftið snemma kvöld áleiðis til Íslands og lent í morgunsárið. Tímamismunur gerir að verkum að flugvélar Play verða í notkun allan sólarhringinn. Atlantshafsflugið myndar tvo hringi, Ísland Ameríka og Ísland Evrópa, saman hina heilögu tölu átta og þoturnar í notkun 24 stundir á sólarhring.
Kjörorð er öryggi
„Okkar einkunnarorð eru öryggi eða Play safe ásamt stundvísi, einfaldleika, velferð, lágu verði og öryggi. Við nefnum öryggi tvisvar enda aðalatriðið,“ segir Birgir í samtali við Icelandic Times. Birgir segir að Play hafi komið á markað á besta tíma. Hann ánægður með viðbrögð fólks fyrstu mánuðina en Play fór í loftið 24. júní. Flogið er til Lundúna, Parísar, Berlínar og Kaupmannahafnar auk árstíðabundinna flugferða til Barcelona, Alicante, Kanaríeyja og Tenerife. Í desember hefst flug til Amsterdam og Salzburg. Á næsta ári hefst Ameríku-flugið ásamt flugi til Gautaborgar, Stavanger og Þrándheims.
Gott að byrja með covid í rénum
„Það var hagfellt að hefja flug í sumar þegar Covid var í rénum. Ég hefði ekki viljað vera í fullum rekstri með Covid í hámarki“, segir Birgir. „Kreppur eru sögulega góður tími til að stofna flugfélag þar sem minna er um hindranir í lok þeirra. Við fengum Airbus vélarnar á hagstæðu verði; leigugjöld í lágmarki; flugvelli í leit að kúnnum ásamt hæfu, góðu fólki á lausu. Áform okkar voru skýr þannig að fjárfestar höfðu trú á okkur og niðurstaða á allan hátt hagfelld. Fjögur þúsund hluthafar endurspegla trú á Play sem hefur handbært fé næstu fimm árin. Við erum nú með um 150 manns í vinnu en að fimm árum liðnum gerum við ráð fyrir um 500 manns í vinnu og tíu neo Airbus320 og 321 þotur.“
Birgir sér ekki fyrir sér samkeppni við risa eins og British Airways eða United Airlines. Play fylli skarð á markaðnum með tengingu milli Bandaríkjanna og Evrópu um Keflavík auk þess auðvitað að bjóða ferðir til valdra áfangastaða. „Við einblínum ekki á stærð heldur hvernig við getum þjónað fólki á besta mögulegan hátt; boðið flug á hagstæðu verði í öruggum flugvélum,“ segir hann. -Eftir Hall Hallsson Ljósmynd: Páll Stefánsson