3 minute read

Landmótun Á Vesturlandi má finna náttúrufegurð

LANDMÓTUN

Vinningstillögur verða að veruleika

Landmótun er teiknistofa landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga sem hefur veitt alhliða ráðgjöf um skipulag og hönnun síðan 1994. Á meðal nýrra verkefna Landmótunar er endurgerð svæða í miðborg Reykjavíkur. Starfsfólk teiknistofunnar hefur fengið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín og má þar nefna verðlaun í tengslum við skipulag og hönnun ferðamannastaða og útsýnispalla.

Árið 2014 varð stofan hlutskörpust í hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðis. Áhersla var lögð á að líta á hverasvæðið umhverfis Geysi heildstætt og með bættu stígakerfi og áningarstöðum ykist öryggi gesta. Sama ár vann Landmótun ásamt VAarkitektum og Erni Þór Halldórssyni hugmyndasamkeppni um deiliskipulag og hönnun á Landmannalaugasvæðinu og byggðist tillagan meðal annars á að ný gönguleið myndaði samhangandi þráð sem næði frá nýju tjaldsvæði og móttökuhúsi við Sólvang og suður að Grænagili.

Útsýnispallur á Bolafjalli er verðlaunatillaga Landmótunar og Sei Studio frá samkeppni árið 2019, pallurinn er hugsaður sem hluti af klettabeltinu og undirstrikar sérstöðu staðarins þar sem hann svífur í 600m hæð. Nú árið 2021 urðu Landmótun og Sei Studio aftur hlutskörpust í samkeppni um útivistarsvæði og nú á Langasandi á Akranesi.

Landmótun hefur einnig unnið við hönnun á nýjum palli og gönguleiðum við Dettifoss, Svartafoss og Hundafoss í Skaftafelli og svo var það pallur við Brimketil, stóran skessuketil sem lítur út eins og laug í sjávarborðinu í Staðarbergi skammt frá Grindavík.

Áslaug Traustadóttir, landslagsarkitekt og einn eigenda Landmótunar, segir að það sem sum þessara verkefna eigi sameiginlegt séu grindur sem henta íslensku veðurfari en þær voru upphaflega hugsaðar fyrir olíuborpalla. Grindurnar eru léttar, festast á einfaldan hátt á stálundirstöður og minka þannig fótspor framkvæmda eins og hægt er. Starfsmenn Landmótunar leggja almennt áherslu á útfærslu og efni sem falla vel inn í náttúruna og má þar nefna timbur og ryðgaða áferð á stáli.

BREYTT ÁSÝND MIÐBORGAR

Landmótun hefur að undanförnu unnið fyrir Reykjavíkurborg að nýrri ásýnd á hluta miðborgar, þar á meðal austasta hluta Hafnarstrætis sem Áslaug segir að hafi verið áhugavert meðal annars vegna þess að krafa hafi verið um að það væri göngugata sem þó yrði að vera hægt að aka. Til að undirstrika göngugötuna voru gróðursett götutré með undirgróðri og bekkir sérhannaðir. Sérstaklega var unnið með litablöndur í hellulögnum til að fá dýpt og hreyfingu í yfirborðið.

Ásýnd Tryggvagötu frá Kalkofnsvegi og alveg út að Gróf hefur verið á teikniborði stofunnar í nokkurn tíma en fyrsta áfanga framkvæmdar lauk 2019. „Það tók svolítið lengri tíma en gert var ráð fyrir þar sem gamla steinbryggjan kom í ljós í miðjum klíðum og var ákveðið að hafa hana sýnilega og gera þar torg. Það var flókið að gera torg sem liggur neðar en sökkullinn á Tollhúsinu.“ Hugað var að skemmtilegri lýsingu í því verkefni og fékk Steinbryggjan Íslensku lýsingarverðlaunin 2020. Nú árið 2021 er verið að klára næsta áfanga Tryggvagötu og þar með talið torg fyrir framan mósaíkverkið á Tollhúsinu. Torgið er um 800 m2 stórt, steypt úr sérblandaðri steypu og síðan pússað og yfirborðsmeðhöndlað. Á torginu verður þokulistaverk, sérstök lýsing og línur úr ljóði eftir Sigurð Pálsson skáld, en það er hluti af Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.

Meðal annarra verkefna má nefna vinnu Landmótunar við nýja, litríka ásýnd á torgsvæðum í Mjódd, Káratorg og yfirborð og ásýnd nýja Hlíðarendahverfisins. „Þetta er nýtt hverfi sem setur alveg nýjan tón og er í rauninni unnið eins og miðborg. Göturnar eru þannig; breiðar gangstéttir og sérstaklega steyptir kantsteinar, sérgerðir fyrir þetta hverfi sem fær þannig svolítið eigið yfirbragð. Við eina götuna er gert ráð fyrir verslunum og þjónustu og trúlega kemur borgarlínan þar í gegn.“ -SJ

This article is from: