1 minute read

Úlfareynir (Sorbus x hostii) Aria-deild

Stórvaxinn runni eða lágvaxið tré, 3-8 metra hár, sem hefur reynst ótrúlega harðger eftir að plöntur komast á legg. Hefur reynst mjög hefur reynst mjög viðkvæmur fyrst eftir útplöntun eins og getið er um í umfjöllun um silfurreyni og á þá til að kala nokkuð og verða margstofna. Þolir klippingu vel eins og flestar tegundir af Aria-deild, og eru til dæmi um falleg klippt limgerði en getur þó fengið svæsna reyniátu í eina og eina grein sérstaklega í köldum og rökum sumrum. Er afar blómfagur (bleik blóm) og blómstrar fyrstur allra reynitegunda hérlendis vanalega 1-2 vikum á undan reynivið, í fyrstu eða annarri viku júnímánaðar á höfuðborgarsvæðinu. Þroskar stór og fallega rauð ber sem eru mjög eftirsótt af fuglum síðla hausts. Nokkuð djúpstætt rótarkerfi. Í uppeldi þarf að gæta að klippa og mynda einstofna tré því annars vex hann fremur sem margstofna runni. Allur undirbúningur og umhirða þarf einnig að vera góð til að hindra það að nýgróðursettar plöntur fái ekki áfall og „stagneri“. Tímasetning útplöntunar skiptir miklu máli í þessu samhengi, ekki ætti að gróðursetja á vaxtartíma.

Úlfareynir er dæmi um tegund sem gæti þrifist betur við þurrar og heitar aðstæður sem geta myndast sólarmegin við skjólsælar götur eins og Laugarveg, við slíkar aðstæður gæti verið auðveldara að fá hann til að mynda einstofna tré.

Yrki: Úlfareynir hefur verið í ræktun hérlendis frá því um aldarmótin 1900 og virðist allur vera af sama uppruna. Talið hefur verið að úlfareynir fjölgi sér með geldæxlun, en vísbendingar eru um að það sé ekki fullkomin geldæxlun þar sem alltaf koma upp einstaklingar sem eru frábrugðnir. Val á móðurplöntum og strangt val í uppeldi skiptir því máli. Bergreynir (Sorbus x erubensis) sem er í ræktun hérlendis líkist úlfareyni mjög en er lágvaxnari. Kanna þyrfti hvort að hann hafi eiginleika sem gerir hann ákjósanlegri en úlfareyni eða nýta hann til að auka fjölbreytni og öryggi.

Myndir 33 og 34. Úlfareynir í við Borgartún í Reykjavík.

44

This article is from: