1 minute read

Tilraunir með þvagefni sem niturgjafa GÞ, ÞS

Tilraunir með þvagefni sem niturgjafa Gerðar voru tilraunir til að kanna áhrif þvagefnis sem niturgjafa. Tilraunirnar voru lagðar út á tveimur stöðum, Korpu í Reykjavík og Möðruvöllum í Hörgárdal. Í tilraununum voru bornar saman tvær gerðir af blönduðum áburði þar sem niturgjafinn var þvagefni annars vegar en ammoníum nítrat hins vegar í blöndu með Ca (CAN). Blöndurnar voru eftirfarandi: 25-12-12 (N í þvagefni). Auk N, P og K var 2,5% S 20-10-10 (N í CAN). Auk N, P og K var 2,5% S, 1% Mg og 2,2% Ca Tegundirnar voru bornar saman við þrjá mismunandi áburðarskammta, 50N, 100N og 150N. Endurtekningar voru 3. Nitur var mælt í grassýnum (Kjeldahl aðferð) á rannsóknarstofunni á Hvanneyri. Á Korpu var allur áburður borinn á að vori, 12. maí, og sleginn einn sláttur, 30. júlí. Á Möðruvöllum var tvíslegið, 4. júlí og 1. september, og áburður ýmist borinn á allur að vori, 19. maí, eða skipt á vor og eftir fyrri slátt. Auk þess var liður sem fékk engan áburð. Niðurstöður eru sýndar í eftirfarandi tveimur töflum. Korpa. Þurrefnisuppskera, niturprósenta og uppskera niturs. Reitirnir fengu annars vegar blandaðan áburð þar sem þvagefni var niturgjafi og hins vegar hefðbundinn nituráburð. Uppskera þe. kg/ha Nitur % Uppskera N kg/ha N kg/ha Þvagefni Viðmið Þvagefni Viðmið Þvagefni Viðmið 50 3912 3571 0,95 1,06 37 38 100 6648 5572 1,11 1,01 74 56 150 7665 7077 1,32 1,24 100 87 Meðaltal 6075 5407 1,13 1,10 70 60 Staðalfrávik 581 0,14 9,8 CV 10,1 12,4 14,9 P fyrir tegund N 0,031 0,714 0,058

Möðruvellir. Heildaruppskera þurrefnis og niturs. Reitirnir fengu annars vegar áburð þar sem þvagefni var niturgjafi og hins vegar hefðbundinn nituráburð. Uppskera þe. kg/ha Nitur % Uppskera N kg/ha N kg/ha Þvagefni Viðmið Þvagefni Viðmið Þvagefni Viðmið 50 + 100 6364 6874 1,78 1,67 113 115 100 + 50 6533 6388 1,90 1,91 124 122 150 + 0 5085 5286 2,14 2,20 109 116 Meðaltal 5994 6183 1,94 1,93 115 118 Staðalfrávik 471 13,0

CV 7,7

11,1 P fyrir tegund N 0,412 0,803 Uppskera af óábornu 2579 1,20 31

This article is from: