Kæru Verzlingar! Loksins er komið að því sem margir hafa beðið eftir með eftirvæntingu; lagasmíðakeppninni Demó. Á henni fá nemendur tækifæri til að koma lagasmíð sinni á framfæri og sýna nemendum skólans verk sín. Í ár bjóðum við uppá níu tónlistaratriði og eru þau hvert öðru glæsilegra enda hafa keppendur lagt blóð, svita, tár, ást og umhyggju í lagasmíðina. Demó er síður en svo nýtt af nálinni því keppnin hóf göngu sína árið 2003 og er þetta því í tólfta skipti sem hún er haldin. Keppnin hefur tekið stakkaskiptum síðan þá og fer stækkandi með hverju ári. Við getum lofað því að hún hefur aldrei verið jafn glæsileg og nú. Demóvikan sjálf er stútfull af bráðskemmtilegum og fjölbreyttum uppákomum og ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ég vil þakka yndislegu nefndinni minni, keppendum og öðrum sem komu að keppninni á einn eða annan hátt, þetta hefði aldrei gengið upp án þeirra. Kæri lesandi: hlustaðu, elskaðu, njóttu. Hér kemur Demó.
Karítas Líf Valdimarsdóttir Formaður Demó 2013-2014
Sérstakar þakkir: Laufey Rut Guðmundsdóttir Daníel Freyr Snorrason Andri Páll Alfreðsson Kristín Hulda Gísladóttir
2
Stjórn NFVÍ Prentun.is Lovísa Þrastardóttir Stefán Atli Útgefandi: NFVÍ Hönnun og umbrot: Laufey Rut Guðmundsdóttir Ljósmyndir : Theodóra Róbertsdóttir
3
Hulda Viktorsdóttir
Júlía Brekkan
Karen Jónasdóttir
Kristín Karen
Hrafnhildur Atladóttir
Harpa Hjartardóttir
Dómnefnd
Valgeir Magnússon er einn hæfileikaríkur maður. Hann er ekki bara framkvæmdastjóri, fjölmiðlamaður, laga- og textahöfundur, plötusnúður, rithöfundur og plötuútgefandi heldur, er hann, líka einn þekktasti umboðsmaður íslenska tónlistarbransans og Íslandsmeistari í badminton. Hann hefur meðal annars verið umboðsmaður Haffa Haff, Heru Bjarkar og Eyþórs Inga. Á föstudaginn ætlar hann að bæta enn einu afreki á ferilskrána og dæma í lagasmíðakeppninni Demó. Sigurður Hlöðversson betur þekktur sem Siggi Hlö er útvarpsmaður sem allir þekkja. Þátturinn hans „Veistu hver ég var?“ er einn vinsælasti útvarpsþáttur Íslands. Hann hefur einnig stjórnað stórskemmtilegum sjónvarpsþáttum á Stöð 2 sem líkt og útvarpsþættirnir snúast aðallega um 80‘s tónlist. Siggi Hlö hefur gefið út nokkra safndiska með bestu 80‘s lögunum og er alveg ótrúlega vinsæll plötusnúður. Hann er vel kunnugur tónlist og sviðsframkomu og mun því vera frábær dómari á Demó. Eyþór Ingi hefur náð gífurlegum árangri í íslenska tónlistarbransanum. Hann byrjaði ungur að syngja og vann Söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2007. Hann keppti í Bandinu hans Bubba ári síðar og sigraði það líka. Árið 2013 vann hann síðan söngvakeppni Sjónvarpsins og keppti í Eurovision fyrir Íslands hönd þar sem hann stóð sig með prýði. Þessi mikla reynsla hans af keppnum gerir hann að tilvöldum fyrir Demó.
4
Salurinn Kýs Í ár bjóðum við í fyrsta sinn uppá áhorfendakosningu þar sem að salurinn kýs sitt uppáhalds atriði. Á Demó verða settir upp níu atkvæðakassar með nafni hvers og eins keppanda. Á endanum á aðgöngumiðanum þínum er síðan hægt að rífa af bút af miðanum sem er í raun atkvæðið þitt. Á keppninni setur þú síðan atkvæðið þitt (bútur) ofan í kassa þess atriðis sem þér fannst vera með bestu lagasmíðina. Þegar atkvæðagreiðslunni lýkur verða atkvæðin talin og hefur salurinn 40% vægi á móti dómurunum.
Vinningar Tíu stúdíótímar með hljóðmanni og eftirvinnslu hjá Stúdío Paradís Midi hljómborð frá Hljóðfærahúsinu – Tónabúðinni Sérsmíðað hálsmen frá Sign Gjafabréf frá Valdís Gjafabréf frá SuZushi Gjafabréf frá Bakarameistaranum Gjafabréf frá Geysi Bistro Restaurant Gjafabréf frá Góu Gjafabréf frá Dominos Mánaðarkort í byrjendabox eða fitnessbox frá Hnefaleikastöðinni 4 vikna námskeið í bootcamp eða crossfit frá Bootcamp
5
Dagskrá
6
Mánudagur Þriðjudagur
Unnur Eggerts
Miðvikudagur
Jóhanna Guðrún
NYXO DJ-sett
Harpa Stefánsdóttir hörpuleikari
Eyþór Ingi og Atómskáldin
Fimmtudagur
Hádeigi
Steinar
Frikki Dór
Föstudagur
Korter
12:00
Herbert Guðmundsson
og pizzu+gos sala!
Snorri Helgason
(Sprengjuhöllin)
Keppendur Demó Verzlinga skortir aldrei hæfileika og er Demó því tilvalin keppni fyrir þá sem vilja spreyta sig og koma tónlist sinni á framfæri. Lagasmíðakeppnina skortir heldur aldrei hæfileikaríka keppendur og er þá að finna á hverju strái innan veggja skólans. Keppendur í ár eru ekki af verri endanum en atriðin eru samtals níu. Dómarar eiga erfitt starf fyrir höndum þar sem þeir þurfa að skera úr um hvert þessara níu atriða á skilið sigur. Það atriði sem mun bera sigur úr bítum í ár mun taka við keflinu af hljómsveitinni Elgar sem sigraði árið 2013 en hana skipa Ívar Hannes, Oddur Már, Dagur Leó og Danival Heide.
Gluggaveður
Kristján, Gísli, Björn Áki/Jabba the Hut Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? Kristján: Ég var neyddur til þess að læra á píanó Gísli: Með blokkflautunámi Bjössi: Með fuglasöng Ef þú værir matur, hvað værir þú? Kristján: Pekingönd Gísli: Banani Bjössi: Slátur Hver er ykkar fyrirmynd í tónlist? Allir: Pitbull Ef mynd yrði gerð um ykkur hverjir myndu fá þann heiður að leika ykkur? Kristján: Jim Carrey Bjölli: Morgan Freeman Gísli: Það er enginn leikari líkur mér Hverju eru þið að leita að? Valla Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Minnir á flugeldasýningu
7
Leyndó Rjóminn
Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? Eftir fyrsta kossinn Ef þið væruð matur, hvað væru þið? Pulsa Hver er ykkar fyrirmynd í tónlist? Bee Gees Hvar er Valli? Heima hjá Heimi Bjarna örugglega Hverju eru þið að leita að? „Sannri ást.. Djók bara næstu píu“ – Gunnar Kolbeinsson Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Myndum hliðarlýsa með tveimur 2K HMI ljósum og frontlýsa með LED panelum. Jafnvel baklýsa með einum Fresnel.
Not going
Elísabet Ósk, Sandra Mjöll og Sóley Lind Ef þú værir matur, hvað væruð þið? Heitur matur :P Hver er ykkar fyrirmynd í tónlist? Michael Jackson, Christina Aguilera, Avril Lavigne, Taylor Swift, Kurt Cobain (áttum okkur þó á því að við erum ekki að fara að verða rokksöngkonur) og endalaust fleiri tónlistarmenn. Eruð þið The next big thing? Nú að sjálfsögðu! Hvernig spyrðu? Af hverju eruð þið að leita? Valla... Hvað kveikir í ykkur? Nú, eldur væntanlega. Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Við viljum nú ekki vera að gera of mikið úr okkur eða atriðinu en við myndum nú lýsa þessu best sem svipuðu atriði og Beyonce í hálfleik Super Bowl :)
8
Algjör skita
Arnór Rafn Gíslason og Guðmar Rögnvaldsson Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? Urðum ástfangnir af listinni þegar við lærðum að spila áblokkflautur í grunnskóla Ef þið væruð matur, hvað væru þið? Arnór: Þistilhjarta, því að það er hart að utan og mjúkt að innan Guðmar: Ég væri Súkkulaði, því að allir elska súkkulaði og ég elska að vera elskaður. Hver er þín fyrirmynd í tónlist? Guðmar: Minn hárbróðir Ed Sheeran Arnór: Icy Spicy Leoncie Hvar er Valli? Erum enn að leita af honum Hvað kveikir í ykkur? Þriðja geirvartan Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Algjör skita Ef þið mynduð taka ykkur upp listamannsnafn, hvað væri það? Nóri Styles og Lucky Charm
Into my arms...babybaby Gunnar Birgisson
Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? Ég fékk gítar í afmælisgjöf þegar ég var 14 ára en ég notaði hann eiginlega ekki neitt. Svo fór ég að spila meira þegar ég var c.a. 17 ára og byrjaði þá að semja nokkur stef en ekkert að viti. Svo samdi ég mitt fyrsta lag um jólin 2012 og þá fór ég að taka þetta meira alvarlega og fór að semja fleiri lög. Núna rúmlega ári seinna hef ég samið 11 fullkláruð lög þannig þetta hefur gengið ágætleeeega. Ef þú værir matur, hvað værir þú? Gúrka. 95% vatn og 5% swag Stefniru á að leggja tónlistina fyrir þig í framtíðinni? Neeei ég ætla að verða eins og Jordan Belfort í Wolf of Wall Street. Hummhummhummhummmmhummmm hummmm Ef þú myndir taka þér upp listamannsnafn, hvað væri það? Gönnör Börgörsun Hvernig myndir þú lýsa atriðinu þínu? Búast má við ljúfum tónum með alls konar skemmtilegu ívafi. Gítarinn verður á sínum stað og hver veit nema að leynigestur mæti á sviðið. Ef þú gerir engar væntingar til atriðisins, þá verður þetta bara stemming.
9
Bergmál
Sveinbjörn og Hulda Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? Hulda: Ég byrjaði á píanó og Sveinbjörn á trompet. Svo sáum við ljósið og skiptum en æðsta markmiðið hefur alltaf verið Demó keppnin og hefur allur tónlistarlegur undirbúningur gengið út á þetta kvöld. Ef þið væruð matur, hvað væruð þið? Sveinbjörn: Við erum dálítið eins og nautasteik og grænar baunir. Hulda: Ha? Ok, ef ég er nautasteikin. Eruð þið The next big thing? Sveinbjörn: Sigur okkar í Demó mun örugglega vekja heimsathygli þannig að það er mjög líklegt. Hulda: Já einmitt, við munum nýta okkur sigurinn sem stökkpall inn á heimsmarkað. Ef mynd yrði gerð um ykkur, hverjir myndu fá þann heiður að leika ykkur? Sveinbjörn: Örugglega Jamie Foxx og Melissa McCarthy. Hulda: Er það feita gellan í Bridesmaids? Ég var nú meira að hugsa um Cameron Díaz og Michael Cera. Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Sveinbjörn: Atriðið okkar er svona svipuð upplifun og ef sumarfríið kæmi í beinu framhaldi af jólafríinu. Hulda: Gleðilegt sumar!
The end
Spútnik (Borgar Þórisson og Þórunn Soffía Snæhólm) Hvenær byrjaði tónlistaráhuginn? Frá blautu barnsbeini Hvað kveikir í ykkur? Nicolas Cage að leika við kisurnar sínar Ef þið væruð matur, hvað væru þið? Karamella og kebab Hver er ykkar fyrirmynd í tónlist? Adele og Dash Berlin Hvernig kom nafn hljómsveitarinnar til? Þórunn gerði ritgerð um Spútnik Hverju eru þið að leita að? Lífshamingju og bláum varalit Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Söngatriði með meiru… ef þú veist hvað ég meina ;)
10
On my own
Elísabet Ósk Sverrisdóttir Hvernig byrjaði tónlistaráhuginn? - Byrjaði aðallega þegar ég var um 10 ára. Þá lærði ég í Söng- og leiklistarskólanum í Borgarleikhúsinu og síðan þá hefur hann verið brennandi en gítaráhuginn byrjaði kannski í kringum fermingu, en aldrei neitt af alvöru. Hef bara kennt mér þetta sjálf Stefnir þú á að leggja tónlistina fyrir þig í framtíðinni? - Þetta er klárlega eitt af mínum aðal áhugamálum, svo það gæti vel verið :) Hvar er Valli? - Er hann aftur týndur!? Ef mynd yrði gerð um þig hver fengi þann heiður að leika þig? - Queen Latifah, Naya Rivera eða Lea Michele Ef þú myndir taka þér upp listamannsnafn, hvað væri það? - Ætli það væri ekki bara Elizabeth Wish Hvað kveikir í þér? - Eitthvað sem er sjúklega rómantískt en ekki of cheesy í fari fólks og svo magavöðvar,, en hver elskar það ekki ?
Þvalir lófar
Sigurbjörn, Pétur, Guðlaugur, Jónas, Sveinn, Ólafur, Gunnar, Gauti og Benedikt Ef þið væruð matur, hvað væru þið? Léttsteikt foi gras á rauðlaukssultubeði toppað með myntu og gojiberi. Hver er ykkar fyrirmynd í tónlist? Egill Ploder fuckmachine Ef mynd yrði gerð um ykkur hverjir myndu fá þann heiður að leika ykkur? Pétur Geir: Drew Carey, Gauti: Jason Seagal, Sveinn: Young JT, Óli: Neil Patrick Harris, Gulli: Dylan O’Brien , Jónas: Harrison Ford í Star Wars, Benedikt: Bruce Willis, Sigurbjörn: Paul Walker, Gunnar: Draco Malfoy Hverju eru þið að leita að? Allavega ekki swaginu mínu bits Hvað kveikir í ykkur? MR Hvernig mynduð þið lýsa atriðinu ykkar? Fierce, touching and very moisturizing
11
Síðumúla 20 . Reykjavík . s.: 5915340 Síðumúla 20 . Reykjavík . s.: 5915340 www.hljodfaerahusid.is www.hljodfaerahusid.is
12
Glerárgötu 7. Akureyri. s.: 4621415 Glerárgötu 7. Akureyri. s.: 4621415 www.tonabudin.is www.tonabudin.is