4 minute read
Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði
Við klæðum slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn með stolti
Advertisement
„Náttúruhamfarirnar á Seyðisfirði í árslok 2020 eru þær verstu sem ég hef lent í á mínum ferli. Þarna voru ólýsanlegar, lífshættulegar aðstæður, þar sem maður óttaðist um eigið líf og annarra, bæði líf bæjarbúa og félaganna sem voru að sinna björgunarstörfunum“. Þetta segir Haraldur Geir Eðvaldsson slökkviðliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi en hann hélt utan um skipulag björgunarstarfsins fyrir austan á dögunum. Hann segir það hafa verið ómetanlegt að fá stuðning fagaðila í kjölfar björgunarstarfsins sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna býður sínu fólki upp á. Íbúar Seyðisfjarðar fóru ekki varhluta af áföllum í árslok 2020 þegar langvarandi úrkoma kom af stað aurflóðum sunnan megin í firðinum og þykk laus jarðlög flutu niður hlíðarnar á ógnarhraða í átt að bænum sem kúrir í botni fjarðarins. Aurflóðið olli gífurlegu eignatjóni. Einn þeirra sem missti heimili sitt er Davíð Kristinsson í Slökkviliði Seyðisfjarðar, björgunarsveitarmaður, hótelrekandi og heimilsfaðir. Húsið sem Davíð og fjölskylda hans bjuggu í stórskemmdist strax í fyrsta flóðinu og varð síðan ítrekað fyrir flóðunum. Húsið þarf að endurgera og er nú varla fokhelt. Talið er að það taki ár að gera það aftur íbúðarhæft. Þar að auki er innbúið sem var á fyrstu hæðinni nær allt ónýtt. Hann segir stóra verkefnið framundan sé að láta endurbyggja húsið og finna aftur persónulega öryggið sem eigið heimili veitir.
Haraldur Geir Eðvaldsson Davíð Kristinsson
Haraldur slökkviliðsstjóri segir mikla mildi að allir hafi komist lífs af en það megi ekki vanmeta eignatjónið sem bæði fjölskyldur og fyrirtæki urðu fyrir. „Það misstu margir allt og stóðu bara uppi með það sem var í vösunum á fötunum þeirra. „Innbúið okkar verður mjög mikilvægt þegar það er ekki lengur til. Þá eru það litlu persónulegu munirnir sem við söknum mest. Litli plattinn með fótsporum nýfæddra barna í fjölskyldunni, myndaalbúmið og annað sem ekki verður bætt með peningum“, segir slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi.
Að setja eigin hagsmuni til hliðar
Davíð segir að það sé krefjandi ákvörðun að setja eigin hagsmuni til hliðar á ögurstundu og oft sé erfitt fyrir maka og börn að setja sig inn í þessar aðstæður. Það sé ekki einföld ákvörðun að setja eigið heimili og fyrirtæki til hliðar vikum saman vegna björgunarstarfa. Svona langt útkall hafi kostað sitt bæði andlega og líkamlega.
Á flótta með barn í fanginu
Haraldur segir að hans menn í slökkviliðinu og aðrir sem unnu að björgunarstörfum á staðnum, menn frá lögreglu, Rauða krossinum og björgunarsveitum, hafi margir horft á stóru aurskriðuna æða niður hlíðina og á bæinn. „Sú tilfinning var ömurleg og lengi vel vissi ég ekki hvort allir mínir menn hefðu sloppið. Félagar í hópnum horfðu upp á eignir sínar hverfa í drullu og við horfðum upp á fólk hlaupa út úr húsunum sínum. Allt í einu var ég kominn með dreng í fangið á flótta undan skriðunni. Við urðum öll að forða okkur út af svæðinu. Það var ekkert sem við gátum gert. Ég man eftir mér sitjandi á gangstéttarbrún með öðrum úr slökkviliðinu, hringjandi í fjölskyldur okkar til þess að láta þær vita að við værum á lífi. Bílar með blá ljós á leið frá Egilsstöðum gefa strax vísbendingu um að eitthvað mikið sé að gerast“.
Haraldur segir það hafa tekið nokkurn tíma að gera liðskönnun og fá fullvissu um að engra væri saknað. Hann lýsir því hvernig slökkviliðsmennirnir frá Seyðisfirði hafi fengið húsaskjól víða og því hafi tekið tíma að ná sambandi við þá alla í kjölfar atburðanna. Það hafi verið undarleg tilfinning að koma heim í öruggt skjól á Egilsstöðum og hann hafi sofnað með vonda samvisku vegna félaganna sem höfðu misst húsin sín og allt innbú. Jólahaldið í kjölfar alls þessa er sem hulið þoku.
Gömlu sárin á sálinni opnast
„Þegar maður lendir í svona aðstæðum er eins og öll gömlu sárin á sálinni frá eldri björgunaraðgerðum opnist“, segir Haraldur. Hann segir að Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafi tekið upp þá nýjung að bjóða upp á áfallahjálp faglærðra sérfræðinga og sé hún ómetanleg. „Það er eins og öll gömlu atvikin brjótist fram eftir áfallið sem við urðum fyrir á Seyðisfirði í árslok. Auðvitað höfum við alltaf talað saman og reynt að styðja hver annan eftir að hafa staðið í ströngu, en það þarf meira til. Við erum ekki úr stáli og þurfum faglega hjálp sem fyrst eftir lífsháska og björgunaraðgerðir af þeirri stærðargráðu sem við lentum í“, segir slökkviðliðsstjórinn.
Davíð tekur í sama streng og Haraldur. Hann segist vera afar þakklátur Landssambandinu fyrir áfallahjálpina. Ef andlega heilsan er ekki til staðar skipti líkamlega heilsan engu máli. „Það er mikið áfall að horfa upp á náttúruna taka völdin og ekki sjálfgefið að allir séu á lífi eftir slíka atburði. Samheldnin á meðan hamfarirnar gengu yfir og áfallahjálpin í kjölfarið eru ómetanlegir þættir fyrir slökkviðliðsmanninn og gerir mig sáttan sem hluta af útkallsteyminu á Seyðisfirði“, segir Davíð. Davíð Kristinsson slökkviliðsmaður bætir því einnig við að hann sé mjög stoltur af því hvernig allir viðbragðsaðilar á Austurlandi unnu saman og hversu mikið traust hafi ríkt milli björgunarfólksins. Samheldnin hafi gert útslagið á þessum erfiða tíma og ráðið úrslitum um hversu vel tókst til. Hann segist líka vera stoltur af íbúum bæjarins sem séu langt í frá að gefast upp.
Við bjóðum upp á
heildarlausn fyrir þig eða þitt fyrirtæki
hpgamar.is