5 minute read

Neyðarljósmyndun

Neyðarljósmyndun Neyðarljósmyndun

„Ég byrjaði í þessu björgunarsveitabrölti þegar ég var 16 ára, fyrir 31 ári síðan. Fyrst sem sjálfboðaliði í björgunarsveit og svo nokkrum árum síðar sem starfsmaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það var svo þegar ég lærði ljósmyndun árið 2011 og skipti um starfsvettvang að ég fór markvisst að ljósmynda leit og björgun og önnur neyðarstörf.“

Advertisement

Sigurður Ólafur Sigurðsson er betur þekktur innan neyðargeirans sem Siggi Sig eða jafnvel sigósig, sem er skammstöfum á nafni hans sem varð til af því að hann nennti ekki að skrifa fullt nafn á ávísanir. Á seinni hluta síðustu aldar þurfti að skrifa margar svoleiðis fyrir filmum og ferðabúnaði. Í dag er hann atvinnuljósmyndari sem sinnir alls kyns ljósmyndaverkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir en hans ær og kýr eru það sem hann kallar neyðarljósmyndun. „Neyðarljósmyndun er eftir því sem ég best veit, starfsheiti sem ég bjó til vegna bakgrunns míns í neyðargeiranum og núverandi starfs sem ljósmyndari. Ég hef nefnilega ekki bara mikinn áhuga á mínum gamla starfsvettvangi heldur líka brennandi áhuga á því að skrásetja og sýna störf þeirra sem helga starfs sitt og jafnvel líf sitt því að passa upp á og koma samborgurum sínum til hjálpar. Almenningur hefur mjög takmarkaða sýn inn í störf þessa fólks og jafnvel mjög skakka sýn. Þetta langar mig að laga. Mig langar að gefa meiri og betri innsýn í störf þessa fólks og um leið skrásetja sögu neyðargeirans og tíðarandann hverju sinni. Ég brenn fyrir þessu verkefni.”

Síðastliðinn vetur gaf Siggi út bókina „Shooting rescue - Tíu ár að ljósmynda leit og björgun á Íslandi” sem gefur innsýn í störf hans við að ljósmynda íslenskar björgunarsveitir að störfum sl. 10 ár. En á þeim tíma hefur hann einnig ljósmyndað aðra neyðaraðila og önnur og minni bók um neyðaraðilana á bakvið Neyðarlínuna kom út á vegum Neyðarlínunnar fyrir nokkrum árum. „Rauði þráðurinn í ljósmyndun neyðargeirans hefur verið í tengslum við Slysavarnafélagið Landsbjörg þar sem ég hef gegnt hlutverki einskonar hirðljósmyndara undanfarin ár. Ég hef hinsvegar einnig unnið mismikið fyrir ýmsa aðra neyðaraðila eins og Rauða krossinn, slökkvilið, Neyðarlínuna, Almannavarnadeild og fleiri tengda aðila. Vinna fyrir þessa aðila hefur svo auðvitað leitt fyrir framan linsuna fjölmarga aðra neyðaraðila í tengslum við útköll og æfingar og aðrar myndatökur og þar af leiðandi inniheldur safnið æ fjölbreyttari flóru neyðaraðila. Svo eru neyðaraðilar, hvort sem um er að ræða sjálfboðaliða eða opinbera aðila, alltaf að gera sér betur ljóst hversu mikilvægt er að starf þeirra sé sýnilegt. Það eru ekki bara sjálfboðaliðarnir sem þurfa að kynna starf sitt fyrir almenningi heldur er líka mikilvægt fyrir opinbera aðila eins og t.d. slökkvilið að kynna sitt starf í sýnu nærumhverfi.”

Þó að markmið hans sé fyrst og fremst að skrásetja störf neyðargeirans hérlendis þá hafa slæðst með verkefni utan landsteinanna tengd þessarri sérhæfingu eins og að ljósmynda starf Nethope samtakanna í flóttamannabúðum í Grikklandi og persónulega verkefnið SAR Europe sem snýst um að ljósmynda björgunarstörf í Evrópu. „Svo detta alltaf inn verkefni fyrir fyrirtæki og aðila sem tengjast neyðargeiranum með óbeinum hætti eins og nýleg og eldri verkefni fyrir Goretex, Taiga, Luminox og fleiri aðila, innlenda og erlenda, eru dæmi um.“

Þegar flett er í gegnum neyðarmyndasöfnin á sigosig.is eða instagram síðu Sigga er nokkuð ljóst að safnið er að verða

nokkuð fjölbreytt þó að rauði litur Landsbjargar sé nokkuð áberandi. En hvernig verður þetta safn til og hvernig er hægt að hafa atvinnu af því á Íslandi, eða hvar sem er ef út í það er farið, að ljósmynda störf neyðaraðila? „Þetta er nú til að byrja með ekki það eina sem ég geri. Uppistaðan í mínu starfi er raunar almenn auglýsinga- og iðnaðarljósmyndun fyrir fyrirtæki og stofnanir ótengdar björgunarstörfum þannig að ég lifi ekki á þessu eingöngu. En þessi þáttur fer stækkandi hægt og bítandi eftir því sem fleiri gera sér grein fyrir gildi þess að eiga gott myndefni af sínu starfi. Eftir því sem heildarsafnið stækkar verður jafnframt algengara að neyðaraðilar og þeim tengdir leiti í að kaupa stakar myndir eða söfn til notkunar í t.d. ýmiskonar útgáfu, kennsluefni og svo framvegis. Þannig styður þetta allt hvað annað. Ég get til dæmis boðið litlu slökkviliði gott verð á myndatöku gegn því að myndirnar fari í safnið og aðrir aðilar geta fundið þær þar og nýtt í sitt starf.”

En neyðargeirinn fæst við viðkvæm mál og oft eru miklar tilfinningar, sorg og jafnvel örvænting í spilinu og oft um að ræða einhverjar erfiðustu stundir í lífi fólks. Þá vaknar spurningin um það hvort að ekki sé vafasamt að mæta með myndavél á slíkum stundum. „Jú auðvitað er það viðkvæmt og ofsalega mikill línudans. En markmiðið er svo sannarlega aldrei að særa eða valda meiri skaða. Skjólstæðingarnir eru heldur ekki myndefnið heldur atburðirnir og björgunarfólkið og ég er orðið nokkuð lunkinn við að ljósmynda atburði og sýna björgunarstarfið án þess að skjólstæðingarnir sjáist eða þekkist. En auðvitað getur nærvera mín ein og sér valdið álagi á þolendur og jafnvel björgunarfólk og í þau fáu skipti sem ég hef orðið þess áskynja þá hef ég haldið mig til hlés eða jafnvel dregið mig alveg út úr atburðunum. Oft má líka einfaldlega útskýra hvað maður er að gera og hvert markmiðið er. Ég er ekki fréttaljósmyndari í þeim skilningi, ég er ekki að leita að næstu forsíðu. Ég er fyrst og síðast að documentera björgunarstörf fyrir þá sem þau vinna. En þau skipti þar sem mér hefur fundist ég vera að þræða línuna við gráa svæðið eru afar fá og þau eru mér ekki léttbær. En á sama tíma eru það oft þær myndir sem lýsa atvikum og aðstæðum best og eru dýrmæt heimild sem verður bara dýrmætari þegar fram líða stundir. Að þessu sögðu er rétt að taka fram að yfirgnæfandi meirihluti minna verkefna í þessum geira eru á æfingum og uppstilltum myndatökum. En við megum ekki sleppa alvörunni. Þau augnablik eru raunveruleikinn. Þau eru það sem starf neyðaraðila snúast um. Þar liggur sagan og tilgangurinn með öllu okkar starfi.”

Sigurður er með vefina www.sigosig.is og www.sosfotos.com og er á Instagram sem sosfotos_sigosig og Facebook sem SIGÓSIG Ljósmyndari.

Sigurður Ólafur Sigurðsson - sigósig Ljósmyndari | Photographer

This article is from: