2 minute read

19. aðalþing LSS

Þann 22.-23. apríl sl. var 19. aðalþing LSS haldið að nýju í raunheimum eftir Covid-19 lokanir. Þingið var haldið á Fosshóteli í Þórunnartúni í Reykjavík og var vel sótt. Einnig var þinginu streymt í gegnum fjarfundabúnað báða dagana og má áætla að um 80 manns hafi þá sótt þingið, þar af um 60 í sal. Gerð var breytingatillaga um að nefndastörf færu fram í sal og tók því nefndanefnd ekki til starfa á þessu þingi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og Anna Guðmunda Ingvarsdóttir ávörpuðu þingið. Þingforseti var Höskuldur Einarsson og varaþingforseti var Óli Ragnar Gunnarsson.

Helstu niðurstöður þingsins:

Advertisement

Magnús Smári Smárason slökkviliðsmaður, bráðatæknir hjá SA og lögfræðingur var sjálfkjörinn sem formaður félagsins. Hann hefur gegnt embætti formanns frá árinu 2018 og er búinn að sitja í stjórn frá árinu 2016. Bjarni Ingimarsson slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá SHS var sjálfkjörinn sem varaformaður félagsins. Hann hefur gegnt embætti varaformanns frá árinu 2020. Hann hafði ekki setið í stjórn áður en gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið árin þar á undan.

Aðrir í stjórn eru:

Arnar Páll Gíslason formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna Ásgeir Þórisson meðstjórnandi, var gjaldkeri á síðasta tímabili Jón Kristinn Valsson formaður fagdeildar slökkviliðsmanna Maron Pétursson meðstjórnandi Ólafur Stefánsson formaður fagdeildar stjórnenda

Varamenn í stjórn eru:

Árni Snorri Valsson HSU og Hlynur Kristjánsson Öryggismiðstöðinni

Þeir sem fóru úr stjórn voru:

Anton Berg Carrasco meðstjórnandi og ritari Birkir Árnason formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna Stjórn þakkar þeim fyrir vel unnin störf í þágu LSS.

Lagabreytingar

Þingið samþykkti allar lagabreytingar sem lágu fyrir þinginu einróma með smávægilegum breytingum. Flestar lagabreytingar snéru að því að laga ákveðnar lagagreinar og reglugerðir að breytingum sem voru gerðar á síðasta þingi. Kosið var sérstaklega um formann og varaformann fulltrúaráðs og verður það virkt ef vantrauststillaga kemur á formann eða stjórn LSS.

Kjaramál

Umræður voru um styttingu vinnuvikunnar og kjaramál almennt. Farið var yfir helstu áherslur fyrir komandi kjarasamninga.

Ályktanir

Á þinginu voru eftirtaldar ályktanir samþykktar: Ályktanir um eflingu Styrktarsjóðs, stuðningur við slökkviliðsmenn í Úkraínu og ályktun um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga. Einnig var samþykkt að stofna fagdeild neyðarvarða.

Önnur mál

Stjórn upplýsti um kaup á húsnæði félagsins á Norðurbrún í Reykjavík og stefnt að því að flytja þangað síðar á árinu. Umræður voru um að kaupa orlofsíbúð fyrir austan fjall og umræður voru um hvort starfsheitið sjúkraflutningamaður væri lýsandi fyrir starfið. Að loknu þingi var haldin þinggleði sem tókst vel.

Hermann Sigurðsson framkvæmdastjóri LSS

This article is from: