2 minute read
Brunagátt - nýtt stjórntæki á sviði brunamála
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) kynnir til leiks nýtt stjórntæki á sviði brunamála sem opnað var fyrir slökkvilið landsins haustið 2021. Brunagáttinni er ætlað að auka stuðning við slökkviliðin með aðgangi að stafrænni lausn til utanumhalds á skilaskyldum upplýsingum með áreiðanlegum og öruggum hætti. Gáttin mun því nýtast sem mikilvægt stjórntæki á sviði brunamála og slökkviliða, bæði fyrir ríki og sveitarfélög, þar sem nú fyrst verður hægt að ná fram heildstæðri yfirsýn um stöðu slökkviliða á landsvísu. Í gáttinni verða m.a. upplýsingar um rekstur, tæki og búnað slökkviliða, mannskap, menntun og þjálfun slökkviliðsmanna, útköll ásamt eldvarnaeftirliti með fyrirhugaðri tengingu við Brunavörðinn.
Markmið Brunagáttarinnar:
Advertisement
• aðgangur að rafrænni lausn fyrir starfsemi slökkviliða vegna skila á upplýsingum til HMS • samræmdar og samanburðarhæfar upplýsingar um stöðu slökkviliða fyrir hvert starfssvæði, sem og á landsvísu • upplýsingarnar munu nýtast við gerð stafrænna brunavarnaáætlana, sem verða ekki lengur á skýrsluformi
heldur stafrænu formi með áherslu á tölulegar upplýsingar • yfirsýn yfir stöðu slökkviliða fyrir landið í heild sinni • eitt stjórntæki fyrir allan rekstur slökkviliða
Áfangar og næstu skref
Hönnun og þróun Brunagáttarinnar er umfangsmikið verkefni og verður gáttin því innleidd í áföngum. Í fyrstu var opnað fyrir mælaborð útkallsskýrslna með tengingu á gáttinni við útkallsskýrslugrunn Neyðarlínunnar (Bjargir) og er nú hægt að kalla fram með auðveldum hætti upplýsingar um útkallsstarfsemi slökkviliða eftir tegund og forgangi útkalla, staðsetningu og aðgerðum slökkviliða. Í næsta áfanga var opnað fyrir búnað og tæki slökkviliða og er því hægt að sjá hver afkastageta slökkviliða er, s.s. dælugeta og hvort nægjanlegur tækjabúnaður sé fyrir hendi, hvort heldur er fyrir starfssvæði eða landið í heild. Þá var í apríl sl. opnað fyrir þriðja áfangann sem er í innleiðingarferli hjá slökkviliðunum og varðar slökkviliðsmenn. Þannig verður nú hægt að halda utan um starfsfyrirkomulag slökkviliðsmanna, æfinga- og reykköfunartíma, auk þess sem upplýsingar um menntun verða þar aðgengilegar. Til viðbótar verður slökkviliðsstjóra kleift að skrá inn staðfestingar á læknisskoðun, þol- og styrktarprófum ásamt öðrum réttindum slökkviliðsmanna. Í framtíðinni stendur jafnframt til að veita slökkviliðsmönnum aðgang að Brunagáttinni og geta þeir þá sótt upplýsingar um eigin menntun, prófskírteini, löggildingu, reykköfunarréttindi og annað sem við kemur slökkviliðsmanninum. Þá munu þeir einnig geta staðfest eigin reykköfunartíma á æfingum, haft yfirsýn yfir eigin reykköfun í útköllum ásamt því að geta skoðað þann búnað og tækjakost sem tilheyrir þeirra slökkviliði.
Framtíðarsýn til 2023
Hér má sjá mynd af framtíðarsýn Brunagáttarinnar til 2023 sem er skipt upp í verkefni og niður á ártöl. Myndin er birt með fyrirvara um breytingar enda er verkefnið í stöðugri þróun í samráði við slökkviliðin í landinu.
Brunavarnasvið HMS