2 minute read
Ný slökkvistöð í Vestmannaeyjum
Ný slökkvistöð
í Vestmannaeyjum
Advertisement
Þann 9. apríl sl. flutti Slökkvilið Vestmannaeyja formlega starfsemi sína í nýja og glæsilega slökkvistöð að Heiðarvegi 14 en daginn áður, þann 8. apríl, fór fram táknræn verktakavígsla á húsnæðinu. Formleg vígsla og opið hús er svo ráðgert að verði á Goslokahátíðinni í sumar. Nýja stöðin sem jafnframt er fyrsta eiginlega slökkvistöðin sem byggð er í Vestmannaeyjum er staðsteypt bygging, byggð við og tengd Þjónustumiðstöð Vestmannaeyjabæjar og er starfsmannaaðstaða s.s. móttaka, búningsaðstaða karla og kvenna, kaffistofa og skrifstofurými sameiginleg hjá þessum tveimur stofnunum. Starfsmannahlutinn er allur í austasta hluta eldra hússins og var sá hluti allur tekinn í gegn og endurbyggður á byggingartímanum og er í dag hinn glæsilegasti. Slökkvistöðin sjálf er svo rétt tæplega 600 m² að gólfflatarmáli og rúmar vel alla bíla og búnað liðsins en að auki eru þar líka fimm herbergi þar sem eru m.a. verkstæði, þvottaherbergi, geymsla, varaaflsrými og aðstaða fyrir sjúkraflutningamenn. Fyrir ofan herbergin er svo u.þ.b. 100 m² hæð með loftræstiherbergi, setustofu og nýrri aðstöðu fyrir Aðgerðastjórn almannavarna í Vestmannaeyjum. Í stöðinni er einnig fullkomið reyksogskerfi sem sér um að fjarlægja allan útblástur úr bifreiðunum þegar þær eru settar í gang innandyra. Skóflustunga var tekin þann 14. mars 2020 og hófust framkvæmdir strax í kjölfarið. Á sama tíma hófst Covid-19 faraldurinn á Íslandi fyrir alvöru og hefur fylgt okkur nánast allan verktímann. Áhrifin á verkið urðu þó sem betur fer ekki mikil en þó einhver og þá helst á seinni stigum þegar vöruskortur og seinkun á afhendingu efnis frá birgjum fór að láta á sér kræla. Í hönnun og framkvæmd verksins var reynt eftir fremsta megni að hugsa fyrir öllum þeim þáttum sem þurfa að vera á svona vinnustað í dag, vera ekki að finna upp hjólið heldur nýta það sem við þekkjum og vitum að virkar auk þess sem sótt var í viskubrunna hjá öðrum slökkviliðsstjórum og eitt af því sem lögð var áhersla á var m.a. aukin vitund um hreinleika, þvottaaðstöðu (bæði fyrir menn og búnað) og aðskilnað milli hreinna og óhreinna rýma. Til samanburðar má nefna það að gamla stöðin sem við fluttum inn í árið 1964 var u.þ.b. 400 m² þar sem var einungis eitt salerni, ein handlaug og engar sturtur fyrir 30 manna lið. Starfsmannaaðstaðan var ein lítil kaffistofa, útkeyrsluhurðir voru þröngar og tækjasalurinn rúmaði ekki einu sinni öll tækin okkar, en körfubíllinn sem keyptur var 2018 var búinn að vera í geymslu á tveimur stöðum áður en hann fékk loksins sitt pláss á nýju stöðinni. Í dag er bara tækjasalurinn u.þ.b. 400 m² fyrir utan herbergi og alla starfsmannaaðstöðu svo að nú er heildaraðstaðan okkar með sameiginlegum rýmum rúmlega 1000 m².
Útkoman að mati undirritaðs er að gríðarlega vel hafi tekist til og byggingin og aðstaðan öll sé til fyrirmyndar og að núna loksins séum við komnir inn í nútímann.
Friðrik Páll Arnfinnsson
Slökkviliðsstjóri