1 minute read

Efni

Leiðari formanns

Hér ber að líta aðra útgáfu af „Á vakt fyrir Ísland”, málgagnið sem áður bar nafnið „Slökkviliðsmaðurinn” en það nafn þótti ekki lengur endurspegla fjölbreytileika félagsmanna og því var ákveðið að nýtt nafn væri ekki bundið einum hópi félagsmanna. Staða LSS er góð, mikil gróska hefur verið undanfarið og mörg verkefni í framkvæmd. Nú á vordögum 2019 eru kjarasamningaviðræður í fullum gangi og tel ég að sá hópur sem vinnur að þeim málum sé búinn að leggja upp góða áætlun og sé með skýrt markmið að ná árangri til að bæta starfskjör og starfsaðstæður félagsmanna. Frá því að ég tók við sem formaður hef ég reynt að halda þeirri vegferð áfram að Landsambandið tengist félagsmönnum sínum betur. Hringferð um landið sem farin var í haust var liður í því og erum við sem stóðum að henni mjög ánægð með hvernig til tókst. Kjarakönnun sem send var út var ætlað að styðja við störf stjórnar sem og kjararáðs og fengum við verðmætar upplýsingar úr þeirri könnun. Fyrsta fréttabréfið sem fer út á netföng félagsmanna er þegar farið í loftið og vona ég að það muni nýtast vel í framtíðinni til að miðla upplýsingum. Því verkefni að tengjast félagsmanninum betur er ekki lokið og verður í sífelldri mótun, en ég held að við séum að leggja góðan grundvöll til áframhaldandi þróunar á því sviði. Landsambandið verður aldrei betra en félagsmennirnir sem í því eru, árangur og framþróun byggir á þátttöku einstaklinga eða hópa í starfseminni. Núverandi stjórn hefur fundið fyrir miklum áhuga félagsmanna og bæði hvetur það okkur til starfa og heldur okkur við efnið. Ekki hika við að hafa samband á netfangið lsos@lsos.is ef þú hefur áhuga á starfi LSS eða hefur eitthvað til málanna að leggja. Að lokum vil ég þakka þeim sem leggja til efni í blaðið en um leið hvetja þá félagsmenn sem telja sig hafa eitthvað fram að færa að skrifa greinar og senda inn í blaðið, þannig aukum við þekkingu og fræðslu og gerum blaðið áhugavert.

Advertisement

Magnús Smári Smárason, formaður LSS

This article is from: