3 minute read

Slökkvilið Norðurþings

Sveitarfélagið Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps. Á þessum tíma voru rekin þrjú slökkvilið á svæðinu undir stjórn þriggja slökkviliðsstjóra; á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Sá rekstur hélst óbreyttur til ársins 2014 en þá voru slökkviliðin formlega sameinuð sem slökkvilið Norðurþings undir einum slökkviliðsstjóra. Í dag rekur Slökkvilið Norðurþings þrjár slökkvistöðvar, átta bíla og mannauður liðsins telur um 60 manns. Launaðri bakvakt er sinnt á öllum starfsstöðvum liðsins allt árið um kring. Árið 2015 tók slökkviliðið að sér að stofna tíu manna vettvangsliðahóp fyrir Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Húsavík þegar hætt var með sjúkrabílinn á Kópaskeri. Slökkvilið keypti gamla sjúkrabílinn, breytti honum í vettvangsliðabíl fyrir hópinn og er hann útbúinn öllum þeim búnaði sem hópnum er heimilt að nota í störfum sínum. Hópurinn hefur starfað óslitið frá stofnun og sinnir að meðaltali um 17 F1 & F2 útköllum á ári á sínu svæði til aðstoðar við lækna og sjúkraflutningafólk frá Húsavík, Raufarhöfn og Þórshöfn. Rekstur slökkviliðsins hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og starfsemi þess aukist til mikilla muna. Ákvörðun var tekin um byggingu kísilvers PCC á Bakka við Húsavík árið 2015. Með þeirri ákvörðun varð til langstærsta einstaka áhættan í sveitarfélaginu en heildarflatarmál bygginga verksmiðjunnar er um 38.000 m2 auk gas geymslusvæða og 10.000 m2 hráefnalagers á útisvæðum. Gengið var frá samningi á milli Norðurþings og PCC BakkiSilicon ehf. um að slökkvilið sveitarfélagsins yrði eflt og tæki að sér að sinna viðbragðsþjónustu fyrir fyrirtækið og leysti það þar með undan þeirri kröfu að byggja upp eigið slökkvilið á athafnasvæði sínu á Bakka. Föstum 100 % stöðugildum í slökkviliðinu var fjölgað í þrjú á dagtíma auk tveggja bakvaktarmanna um nætur og helgar. Að auki var hlutastarfandi hópurinn stækkaður. Mikið af búnaði liðsins var endurnýjaður og keyptur var nýr bíll í samstarfi við PCC BakkiSilicon ehf. Í bílnum er One Seven slökkvibúnaður, klippur og björgunarbúnaður. Á bílnum er öflug hitamyndavél og skjár fyrir hana í mannskapsrými. Bíllinn getur borið fimm manna áhöfn, þar af þrjá reykkafara. Haustið 2018 hófst vinna við byggingu nýrrar 1.040 m 2 slökkvistöðvar sem staðsett verður á nýrri fyllingu við Norðurgarð og áætluð verklok eru haustið 2019. Staðsetning stöðvarinnar var valin m.a. út frá þeim skuldbindingum sem sveitarfélagið tók að sér gagnvart viðbragðsþjónustu á Bakka þar sem jarðgöng sem tengja hafnarsvæði og iðnaðarlóðina eru hugsuð sem aðal aðkomuleið að svæðinu. Árið 2017 var gerður samningur við Heilbrigðisstofnun Norðurlands til eins árs um mönnun slökkviliðsins á öðrum sjúkrabílnum sem gerður er út á Húsavík og gekk samstarfið afar vel og hefur sá samningur verið endurnýjaður til næstu þriggja ára. Samningurinn tryggir slökkviliðinu aðgang að þeim einstaklingum sem sinna vakt á hinum sjúkrabílnum sem hluta af útkallsbærum hópi liðsins þ.e. tveimur á dagtíma og tveimur á nætur- og helgarbakvakt og eru þeir einstaklingar í grunnnámi slökkviliðsmanna um þessar mundir og munu ljúka því námi haustið 2019. Með þessu fyrirkomulagi uppfyllir sveitarfélagið nánast að fullu mönnunarákvæði nýrrar reglugerðar nr. 747/ 2018 um starfsemi slökkviliða. Menntunarstig liðsins er gott og eru 18 einstaklingar þess með löggildingu sem slökkviliðsmenn og þó nokkrir sem eru að nálgast þann áfanga. Allir aðrir meðlimir liðsins hafa lokið grunnmenntun slökkviliðsmanns eða eru í námi. Slökkviliðið hefur einnig innan sinna raða níu sjúkraflutningamenntaða

Advertisement

einstaklinga og unnið er markvisst að stækkun þess hóps og nú eru þrír einstaklingar á vegum slökkviliðsins í slíku námi. Eldvarnareftirliti er sinnt í fullu starfi hjá liðinu og hefur verið gert frá 2014. Skoðanaskyldir staðir á starfssvæði liðsins eru rúmlega 300 talsins auk skoðana vegna útgáfu tækifæris- og rekstrarleyfa. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að stofnun vettvangsliðahóps á Raufarhöfn fyrir HSN á Húsavík. Þar er verið að mennta tíu manna hóp til þessara starfa og sá hópur verður útskrifaður í maí á þessu ári og mun hann sinna viðbragðsþjónustu á svæðinu með sama hætti og gert er á Kópaskeri þegar samningur um rekstur sjúkrabílsins rennur út í lok apríl. Slökkvilið Norðurþings sinnti 110 útkallsverkefnum á árinu 2018.

This article is from: