3 minute read
Á vakt fyrir Ísland 2019
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna heldur námstefnuna „Á vakt fyrir Ísland 2019“ dagana 18. og 19. október á þessu ári á Icelandair Hotel Reykjavik Natura. Þetta er í annað sinn sem námstefna með þessari yfirskrift er haldin en sú fyrsta var árið 2017. Ætlunin er að námstefnan „Á vakt fyrir Ísland“ verði haldin á tveggja ára fresti. Stefnt er að því að fá hverju sinni innlenda og erlenda sérfræðinga með þekkingu á brýnum viðfangsefnum sem tengjast aðallega störfum og öryggismálum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, neyðarvarða og þeirra sem að björgunarmálum og aðhlynningu sjúkra og slasaðra koma. Markmið námstefnunnar er að efla þekkingu og færni félagsmanna í starfi, efla og hlúa að samstarfi björgunaraðila sem og að efla samkennd
Jón Pétursson, Doktor Bruni slf. Námstefnustjóri „Á vakt fyrir Ísland 2019“, fyrrum slökkviliðsmaður/ neyðarflutningsmaður - Firefighter/ EMT-I
Advertisement
annarra björgunaraðila. „Á vakt fyrir Ísland“ er einnig kjörinn vettvangur fyrir innflytjendur, sölu- og þjónustuaðila sem að björgunar- og öryggismálum koma til að kynna þar vörur sínar og þjónustu. Viðbragðsaðilum er lífsnauðsynlegt að kynnast nýjungum sem auka þekkingu þeirra og hæfni. Þannig verða þeir betur í stakk búnir til þess að takast á við þau krefjandi verkefni sem fyrr eða síðar munu þarfnast úrlausnar. Mikill metnaður er til þess að vanda vel til verka þannig að sómi sé að. Undirbúningi námstefnunnar í ár miðar vel áfram og dagskráin er nánast fullmótuð. Umfjöllunarefni skortir hvorki né fyrirlesara. Ef allt gengur upp verða fyrirlesarar frá Svíþjóð, Englandi, Noregi og Íslandi.
og tengsl á meðal félagsmanna og Öll vinna vegna námstefnunnar er ólaunuð. Námstefnan er aðallega fjármögnuð með styrkjum og sölu auglýsinga í bækling námstefnunnar.
Skemmtileikar
2019
Í fyrra voru haldnir í fyrsta skipti Skemmtileikar slökkviliðsog sjúkraflutningamanna á Íslandi. Svo vel tókst til að ákveðið var að halda skemmtileikana árlega, á svipuðum tíma og útskrift Sjúkraflutningaskólans sem útskrifar hvert ár nýmenntaða sjúkraflutningamenn. Leikarnir 2018 voru vel sóttir, um 150 manns allsstaðar að af landinu skráðu sig til leiks. Haldin var hljómsveitarkeppnin „Battle of the bands“ þar sem þrjár hljómsveitir kepptu. Selfyssingar stóðu uppi sem sigurvegarar og mæta í ár sem ríkjandi rokkmeistarar. Baráttan í ár verður hörð þar sem von er á fleiri hljómsveitum. Einnig fór fram fótboltamót í Boganum fyrr um daginn og endað var á hljómsveitarkeppninni og annarri skemmtidagskrá um kvöldið í Sjallanum. Þetta var virkilega skemmtilegur dagur og verður gaman að fylgjast með þróun leikanna næstu árin. Fyrirkomulag leikanna í ár verður með breyttu sniði því nú verður keppt í strandblaki, fjallahjólreiðum ásamt hljómsveitarkeppninni í Sjallanum laugardagskvöldið 1. júní. Kjarnaskógur verður miðdepill dagsins þar sem grillaðar verða pylsur og keppnir fara fram. Stjórn Skemmtileikanna hlakkar til að sjá sem flesta í ár og mikill undirbúningur hefur verið í gangi til þess að gera leikana í ár sem eftirminnilegasta. Sjáumst hress á Akureyri 1. júní 2019 Fyrir hönd nefndarinnar, Valur Freyr Halldórsson Hvanndal skemmtileikar@gmail.com
YFIRLAGSPLATA
Steinullareinangrun sem ætluð er til notkunar í þök þar sem einangrunin er hulin með þakdúk eða pappa.
UNDIRLAGSPLATA
Steinullareinangrun sem ætluð er til notkunar í þök undir yrlagsplötu þar sem einangrunin er hulin með þakdúk eða pappa.
LOFTSTOKKAPLATA
Bruna- og hljóðeinangrun á loftstokka.
Innlend framlei›sla - betri einangrun
STOKKAEINANGRUN
Steinullareinangrun með álímdri netstyrktri állmu. Einangrun ætluð til notkunar utan á sívala loftræstistokka sem bruna-, hita- og hljóðeinangrun.
ÍMÚR
Steinullareinangrun sem ætluð er fyrir íslenska múrkerð ÍMÚR. Til notkunar á steypta eða hlaðna veggi utanhúss eða að innanverðu. Þ AKULL Þ ÉTTULL M/ VINDPAPPA
Steinullareinangrun með áföstum vindpappa sem ætluð er í þök.
ÞÉTTULL
Steinullareinangrun í veggi og gólf þar sem einangrunin verður ekki fyrir álagi.
VEGGPLATA
Steinullareinangrun sem ætluð er undir loftræstar klæðningar, utan á þétt burðarvirki.
ÞÉTTULL ÞÉTTULL PLÚS
Steinullareinangrun sem ætluð er til notkunar í milliveggi eða grindur útveggja að innan úr tré eða stáli.
SÖKKULPLATA
Steinullareinangrun sem ætluð er utan á sökkla og undir botnplötu á fyllingu.