ÞRIDJUDAGUR.2. FEBRÚAR 1988.
18
Menning
Fleiri sýningar, meiri skúlptúr Myndlistarannáll ársins 1987 Nú er komiö að uppgjöri myndlistarársins 1987 en undirritaður hefur árlega haft fyrir siö að taka saman tölur um fjölda og tegundir myndlistarsýninga og sýningarstaði á íslandi og bæta við þær tölur eigin mati á myndlistariðkuninni yfirleitt. Eins og fyrri daginn hefur verið hafður sá háttur á að halda saman upplýsingum um allar sýningar á landinu á tilteknu ári, hvort sem er í Reykjavík eða á Dalatanga, og draga af þeim marktækár ályktanir. Sjálfar tölurnar fara sjaldnast á milli mála en hins vegar má alltaf deila um flokkun sýninga eftir tegundum, sjá töflu 3 hér á eftir. í stórum dráttummá segja að undir „málverk ýmiss konar" séu flokkuð tvívíð myndverk, gerð með olíu-, vatns- eða pastellitum á striga, pappír eða krossvið. Ekki er heldur allsendis ljóst hvað átt er við með „skúlptúr", þar sem myndlistarmenn fara nú hver yfir á yfirráðasvæði annars í æ ríkara mæli, en ég reyni þó að halda mig við myndverk þar sem þrívídd og massi skipta meira máli en litróf. Liðurinn „sögulegar sýningar" á við yfirlitssýningar ýmiss konar eða sýningar þar sem meiri hluti verka er meira en tíu ára gamall. Hugtakið „nýlist" hefur nú ekki sömu merkingu og það hafði fyrir tæpum áratug en þó held ég því til streitu fyrir ýmiss konar tilraunir með samsett verk og hugmyndalegar skírskotanir sem eiga einhverjar ættir að rekja til myndlistarstrauma áttunda áratugarins. Minna úti á la ndi
Önnur hugtök í töflu 3 ættu að skýra sig sjálf. Ef við lítum fyrst á töflu 1 sjáum við að listsýningar á landinu öllu eru næstum þvi jafnmargar og á metárinu 1985. Jafnframt sést að frá árinu 1978 hefur listsýningum á landinu fjölgaö um meira en helming. Þessa fjölgun sýninga, eftir fremur rýrt sýningarár árið 1986, má að hluta rekja til fjölgunar sýningarstaða en þeir hafa aldrei verið fleiri, eða 68 alls, Þar munar mestu um mikla fjölgun
sýninga að Kjarvalsstöðum svo og um framlag nýrra sýningarstaða á borð við Gallerí Svart á hvítu og FÍM-salinn, sjá töflu 2. Hins vegar hefur sýningarstöðum úti á landi fækkað stórlega, hafa ekki verið færri um árabil. Ef til vill eru myndlistarmenn að þreytast á að sýna í óupphituðum og óupplýstum sölum samkomuhúsa víða um land. Ættu yfirvöld á hverjum stað að vinda bráðan bug að því að bæta sýningaraðstöðu hjá sér og gera þannig heimamönnum jafnt sem aðkomumönnum kleift að kynna landsbyggðinni alls kyns myndlist. Síðan kemur í ljós að erlendum sýningum hefur fjölgað lítið eitt tölulega en ekki hlutfallslega.
Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson Eins og á fyrri árum var grafikin uppistaða flestra þessara erlendu sýninga, og þá helst finnsk eða samnorræn grafík. Oft og af smekkvísi Ef litið er á töflu 2 sést að hvergi hafa sýningar verið fleiri en að Kjarvalsstöðum, 34, en Nýlistasafnið er í öðru sæti með 25 sýningar á árinu. Rétt er að minna sérstaklega á frammistöðu Nýlistasafnsins sem nú heldur upp á 10 ára afmæli sitt en sér jafnframt fram á vaxandi rekstrarerfiðleika. Á þessu ári hefur safnið aðeins úr 300.000 krónum að moða. Af minni sýningarstöðum er það helst að frétta að Gallerí Svart á hvítu stóð við flest þau loforð sem gefin voru er það hóf starfsemi, sýndi oft og af smekkvísi. FÍM-salurinn hóf störf seint á árinu en fullnægði þörfum þeirra listamanna sem vildu sýna takmarkaðan fjölda myndverka einhvers staðar nálægt miðbænum. Gallerí Gangskör var með stöðugar sýningar á minni myndverkum og Hafnargallerí við Hafnarstræti
sinnti nýgræðingum í myndlistinni af kostgæfni. Tveir nýir sýningarstaðir utan Reykjavikur, Glugginn á Akureyri og Hafnarborg í Hafnarfirði, fóru myndarlega af stað og lofar það góðu um framtíð þeirra. Því miður varð brátt um annan sýningarstaö, Hlaðvarpann við Vesturgötu, sem hafði þó ýmislegt sér til ágætis. Málverkið heldur sínu Þegar litið er yfir tegundir sýninga í töflu 3 sést gjörlaað málverkið heldur sínu þótt hlutfallslega hafi málverkasýningum fækkað frá því á árinu 1986. Þessi tafla sannar það sem margan hafði grunað að skúlptúr er í mikilli uppsveiflu á íslandi því að sú listgrein er komin í annað sætið. Á þeirri uppsveiflu hef ég ekki einhlíta skýringu. Samruni skúlptúrs og málverks hefur mikið verið til umræðu, málarar hafa reynt fyrir sér á skúlptúrsviði og talsvert hefur verið um samkeppm' um opinbera skúlptúra. Svona hlutir smita út frá sér, búa beinlínis til jákvætt andrúmsloft kringum skúlptúrgerð. Hönnun, það er arkitektúr, keramík, glerlist, textíll o.fl., er svo í þriðja sæti en var í öðru. Örlítil aukning hefur orðið á grafíksýningum en sýningum með nýlistarlegu sniði hefur fjölgað svo um munar. Ekki treysti ég mér til að hafa skoðun á þeirri fjölgun en trúlega er hún einn anginn af ívitnunarog rannsóknarstefnu póstmódernismans. Þá er mál að gera upp á milli sýninga. Ekki er hægt að horfa fram hjá yfiriitssýningu á íslenskri afstraktlist sem haldin var að Kjarvalsstöðum því að á henni var margt verka sem gaman var að sjá í þessu samhengi. Hins vegar leið þessi sýning fyrir allt of skamman undirbúning og óljósar forsendur svo að minna varð úr henni en ætla hefði mátt. Margt í mörgu Hvað aðrar sýningar á íslenskri myndlist varðar þá standa mér fyrir
Sýning Kristjáns Guðmundssona r á nokkrum skúlptúreiningum va r án efa meðal ma rkverðustu listviðburða ársins.
hugskotssjónum sýningar þeirra hjóna, Jóns Gunnars Arnasonar í Norræna húsinu og Rúríar að Kjarvalsstöðum. Af öðrum myndlistaruppákomum vil ég nefna sýningar þeirra Kristins G. Harðarsonar, Sigurðar Guðmundssonar, Grétars Reynissonar, Jóns Axels, Huldu Hákonardóttur, Helga Þorgils, Sigurðar Örlygssonar og Georgs Guðna, allar í Gallerí Svart á hvítu, sýningu Louisu Matthíasdóttur í Gallerí Borg, grafíksýningar Ragnheiðar Jónsdóttur (Norræna húsinu) og Eddu Jónsdóttur (Gallerí Borg), skúlptúrsýningu Kristjáns Guðmundssonar (Ásmundarsal), málverkasýningu Hauks Dór (Kjarvalsstöðum), textílsýningu Ingibjargar Styrgerðar (Kjarvalsstöðum), viðhafnarsýningu Tryggva Ólafssonar (Listasafni ASÍ),
sýningu Bjargar Örvar (Kjarvalsstöðum) og Margrétar Jónsdóttur (FÍM-salnum). Ef litið er til erlendra sýninga er engum blöðum um það að fletta, að grafíksýningin „Graphica Atlantica" var markverðasti myndlistarviðburður ársins 1987. Þar mátti líta blóma vestrænnar grafiklistar í nútíð. í háum gæðaflokki Margar aðrar erlendrar grafíksýningar voru einnig í háum gæðaflokki, þar á meðal sýning Pieters Holstein (Nýlistasafninu), Jacek Sroka (Gallerí Hallgerði), Heikko Arpa & Marjettu N uoreva (Gallerí Gangskör), Outi Heiskanen (N orræna húsinu), Asgers Jörn (Norræna húsInu) og á nýrri sænskri grafík (Norræna húsinu).
Fjöldi listsýninga Tafla 1. 1978 125 23 • 22 39
Listsýningar á landinu alls Fjöldi sýningarstaða Sýningar utan Reykjav. Erlendarsýningar
1979 167 30 24 49
1980 188 45 25 53
1985 272 60 52 47
1986 215 55 48 38
1987 264 68 36 44
1986 22 14 24 15 12 13 12 9
1987 34 17 25 16 9 7 12 4 14 11 8
1986 143 21 19 6 9 8 10
1987 131 27 21 7 30 11 15
Helstu sýninga rsa lir og fjöldi sýninga Tafla 2
' ;
■
-
1978 17 21
Kjarvalsstaðir Norræna húsið Nýlistasafnið GalleríBorg Ásmundarsalur Mokka Listas. ASÍ Slunkaríki ísaf. Galleri Svart á hvitu Gallerí Gangskör FÍM-salur
1979 23 25
1980 21 19
4
13
1985 26 24 21 19 15 13
Tegundir sýninga Tafla 3 ■
1978 56 10 16
Málverk ýmiss konar Hönnun ýmiss konar Grafík Sögul. listsýningar Skúlptúr Ljósmyndir Nýlistir
.
. Á árinu uppgötvuðu Islendinga r a llt i einu ágæta lista konu, Louisu Ma tthía sdóttur.
7 20
1979 58 17 24
1980 76 26 18
10 20
5 20
1985 147 28 25 20 18 13 11
. .