Tónlis T
Ensími í Reykjavík og á Akureyri
Hljómsveitin Ensími gaf út nýverið fimmtu breiðskífu sína og ber hún heitið Herðubreið. Hljómsveitin hefur aðallega komið fram á hátíðum á borð við Secret Solstice og Bræðslunni í sumar en nú er komið að því að sveitin haldi tónleika. Fyrri tónleikarnir verða á föstudagskvöldið á Húrra en svo fer hljómsveitin norður og leikur á Græna Hattinum á laugardagskvöldið. Ensími ætlar að leika ný lög af plötunni Herðubreið í bland við eldri slagara og lög sem sjaldan fá að heyrast á tónleikum. Hægt verður að kaupa Herðubreið á tónleikunum og fá hana áritaða af meðlimum Ensími. Breiðskífan Herðubreið er sú fimmta sem rennur undan rifjum hljómsveitarinnar. Hún var unnin í nokkrum lotum af liðsmönnum sveitarinnar undir dyggri stjórn Hrafn Thoroddsen, forsprakka Ensími. Herðubreið var hljóðblönduð af Arnari Guðjónssyni hjá Aeronaut Studios og tónjöfnuð af Mandy Parnell hjá Black Saloon í Bretlandi. -hf
Myndlis T s ýning Margré Tar Jónsdó TT ur í i ðnó
List á tímum firringar
Listmálarinn Margrét
Jónsdóttir opnaði í gær, fimmtudag, sýningu sína
In Memoriam í menningarhúsinu Iðnó við Vonarstræti. Margrét er menntuð við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, með diplóma í frjálsri myndlist og síðar diplóma í grafískri hönnun. Hún stundaði mastersnám við Central Saint Martins Collage of Art í London og hefur haldið á fimmta tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Hún segir sýninguna byggja á hugleiðingum um list og listframleiðslu á tímum firringar, þar sem markaðshyggja er allsráðandi.
guðrún Erla Geirsdóttir skipuleggur sýningarröðina „Argintætur í myndlist,“ í samvinnu við Gallerí Gest og Menningarhúsið Iðnó í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Sýningin á verkum Margrétar Jónsdóttur er sú fyrsta í haust, en þær sem sýna síðar eru Rúna Þorkelsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir. Listakonurnar eiga það sameiginlegt að vera fæddar í kringum miðja síðustu öld. Þær voru að stíga sín fyrstu skref í myndlistinni er önnur bylgja femínismans var farin að hafa þau áhrif að konur töldu fullvíst að þær kæmust til vegs og virðinga ekki síður en karlarnir.
„Verkin eru úr myndaröðinni IN
MEMORIAM. Þau byggja á hugleiðingum um list og listframleiðslu á tímum firringar, þar sem markaðshyggja er allsráðandi. Er ég dvaldi við Cité Internationale Des Arts í París komst ég að því hverjar formæður mínar í kvenlegg voru,“ segir Margrét. „Mér finnst vel við hæfi að geta þeirra nú. Mettu Hansdóttir í Vík og Gunnhildar yngri „kóngamóður“, sem sögð var hinn mesti svarkur. Metta braut hefðir og venjur enda menntuð og úr öðru menningarsamfélagi. Þar var listakona á ferð,“ segir hún. „Hún söng og kenndi m.a. dans sem var bannað á þessum tíma. Metta var síðasti ábúandinn á landnámsjörð Ingólfs Arnarsonar. Þessar uppgötvanir opnuðu gáttir sem leiddu til þess að ég öðlast skilning á mörgu í lífi
mínu og fór að vinna frönsku veggfóðursverkin út frá tilfinningum sem vöknuðu, ásamt ádeilu,“ segir Margrét. Margrét er ein af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Einnig er hún einn af stofnendum Hagsmunafélags myndlistarmanna sem var undanfari Sambands íslenskra myndlistarmanna sem síðar leiddi að stofnun SÍM. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur segir m.a. um verk Margrétar: „Óhætt er að segja að viðhorf Margrétar Jónsdóttur til myndlistar hafi sjaldan rúmast innan ráðandi sjónarmiða í hérlendu myndlistarumhverfi, til þess er henni einfaldlega of mikið niðri fyrir. Með tjáningu þessara
viðhorfa hefur hún iðulega staðið berskjölduð og fullkomlega tillitslaus og jafnframt fullkomlega heiðarleg – gagnvart sjálfri sér og áhorfendum.“ Verk Margrétar eru í eigu Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Listasafn Kópavogs, Listasafn Reykjaness ásamt, mörgum opinberum stofnunum.
„Í mínum huga getur listamaður aldrei farið út í framleiðslu, það er eitthvað miklu dýpra sem verið er að fást við og því er ekki hægt að leggja listina og hönnun að jöfnu,“ segir Margrét Jónsdóttir myndlistarkona. Sýningin var opnuð í gær, fimmtudag, en hún stendur til 22. október.
Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is
Ragga og Sjana á Rósenberg
Sálarsysturnar Kristjana Stefánsdóttir og Ragnheiður Gröndal blása til tónleika ásamt Kjartani Valdemarssyni píanóleikara á Café Rosenberg á laugardagskvöldið. Þau ætla að leika sér með amerísku söngbókina og þreifa á lendum tón -
listargyðjunnar eins og þeim einum er lagið. Spuni, spjall og dramatík allt í bland.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og standa í um 2 klukkustundir. Miðasala er við innganginn og aðgangseyrir 2.000 krónur.
Margrét Jónsdóttir sýnir í Iðnó.