ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA MARGRÉTJÓNSDÓTTIR_listmálari

Page 1

ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA MARGRÉTJÓNSDÓTTIR_listmálari

GRAFÍKSALURINN 16.9 til 2.10. 2022 Hafnarhúsið/hafnarmegin Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Opið alla daga frá 14 –18.


ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA Ég vinn út frá því sem ég nem í umhverfi mínu en ég hef lengi unnið út frá hugleiðingum um lífsævina og baráttuna sem því fylgir að stunda list sína með öllum þeim uppákomum sem því fylgir. Þegar hugmyndir koma þá eru þær í myndum en skilningurinn á myndmálinu kemur ef til vill mörgum árum síðar. Veggfóðrið ásótti mig þegar mér var sagt frá formóður minni í hreinan kvenlegg og hvað DNA er sterkt í kvenleggnum þrátt fyrir marga ættliði, en grein um hana birtist í lesbók Morgunblaðsins árið 1998. Þessi uppgötvun útskýrði margt í fari mínu og fann ég fyrir tengingum við formæður mínar. Veggfóður tengist heimili, feminisma, einhverju duldu, földu, hannyrðum, kerfi, munstri og endurtekningu, keðju. Hönnun og hátækni hefur verið áberandi í listinni og yfirtekur oftast frumaflið og getur því gert tilveruna flata og þreytandi, því vinn ég með eitthvað sem hefur verið hannað í fjöldaframleiðslu eins og franska veggfóðrið eða myndröðin IN MEMORIAM sem ég hef unnið að yfir 20 ár, lag ofan á lag þar sem ég reyni á einhvern hátt að brjóta upp eða eins og máttvana einstaklingur sem reynir að lifa lífi sínu eftir eigin draumum. Málverkin á þessari sýningu eru máluð með náttúrulegum efnum, vatnslit, te og eggtemperu á pappír og eru tilraunir og rannsóknir eins og öll mín verk og unnin síðastliðinn 3 ár. Yfirleitt nota ég efni og áhöld sem tilheyra skreytilist og læt síðan eyðilegginguna og rotnunina vinna á myndfletinum með hjálp frumaflanna. Lífið heldur stöðugt áfram, við fæðumst og hverfum, allt fjarar út, eyðist og verður að engu, alveg eins og munstrið í verkunum og verkin sjálf sem hverfa einnig að lokum. Verkin eru hugleiðing um forgengileikann, græðgina, hrokann þar sem lífsstarf einstaklingsins er lítilsvirt. Með því að eldast og hrörna þá áttar maður sig á því að allt puðið var til einskis, lífsstarfið verður að engu í samfélagi þar sem peningar skipta öllu og amatörismi, græðgi og stuldur stjórna.



Sýningar á árinu 2022: Einkasýningin ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA Grafíksalurinn frá 16. september til 2. október. Einkasýningin ÓBÆRILEGUR LÉTTLEIKI TILVERUNNAR. Sumarsýning Gallerí Gróttu Eiðistorgi. 10. júní til 19. ágúst. Samsýningin Landes'Art 2022 í Notre Dame des Landes, Loire Atlantique, Frakklandi Norræn vefsýning, Nordic watercolor site, the history of Nordic watercolor, contemporary artists and open exhibition. Sjá: watercolornordic.com

Nánari upplýsingar: Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík 1953 og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur unnið sem myndlistarmaður í tæp 50 ár og stundað kennslu í 28 ár bæði við framhaldsskóla, grunnskóla og Myndlistarskóla Kópavogs, unnið við grafíska hönnun og rekið auglýsingastofu. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diploma í frjálsri myndlist og síðar diploma í grafískri hönnun, mastersnám við Central Saint Martins College of Art í London og diploma frá Kennaraháskólanum. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Einn af stofnendum Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM. Verk eftir hana eru í eigu helstu listasafna landsins. Hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Félagi í FÍM, Íslensk Grafík, SÍM, Nýlistasafninu.

Instagram: mjons_artist Netpóstur: margret_jons@hotmail.com Sími: 8478634


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.