10.11.2001. Morgunblaðið

Page 1

MORGUNBLAÐIÐ

LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001

35

LISTIR

Morð á markaðnum SJÓNVARP Sakamálamynd 20/20 Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

Eva Dögg Þorsteinsdóttir með eina af myndum sínum.

Eva Dögg sýnir í „Unique“ Fagradal. Morgunblaðið.

EVA Dögg Þorsteinsdóttir opnar málverkasýningu í Hár- og sýningarhúsinu „Unique“, Laugavegi 168, (Brautarholtsmegin) í kvöld kl. 20. Þetta er önnur málverkasýning Evu en fyrsta sýning hennar var í Halldórskaffi í Vík í Mýrdal sumarið 2000. Eva Dögg er fædd og uppalin á Vatnskarðshólum í Mýrdal en býr nú í Vík. Eftir að Eva lauk barnaskólanámi frá Ketilsstaðaskóla og síðar Vík fór hún í Menntaskólann á Laugarvatni. Fór þar á námskeið hjá Helgu Árnadóttur myndmenntakennara. Eftir að hafa lokið stúdentsprófi þaðan hóf hún nám í fornámsdeild Myndlistaog handíðaskólans og var þar einn vetur. Þá lá leið hennar í Þroskaþjálfaskólann en þaðan útskrifaðist hún 2001. Jafnframt námi þar hefur hún verið í myndlistarnámi hjá Bjarna Jónssyni listmálara. Myndirnar sem Eva sýnir núna eru unnar á síðastliðnum tveimur árum. Sýningin er sölusýning og mun standa fram í desember.

Fyrirlestur og námskeið í LHÍ MAGNÚS Diðrik Baldursson heimspekingur flytur fyrirlestur í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91, kl. 12.30 á mánudag. Fyrirlesturinn ber heitið „Dvöl. Hugleiðingar um fagurfræðilega reynslu, tíma og hamingju“. Jóhannes Þórðarson arkitekt flytur fyrirlestur á miðvikudag kl. 12.30 sem hann nefnir „Svona gerum við“. Námskeið í vefsíðugerð hefst í Skipholti 1 á mánudag. Kennari er Katrín Sigurðardóttir myndlistarmaður. Þá verður námskeið ætlað byrjendum sem vilja kynna sér eiginleika efnis, lita og pappírs og hefst það 27. nóvember. Kennari er Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarmaður. Þá hefst námskeið í búningahönnun 27. nóvember. Námskeið er samvinnuverkefni Þjóðleikhússins og Listaháskólans. Kennari er Þórunn María Jónsdóttir búningahönnuður.

Listsýning í þremur þáttum BIRGIR Sigurðsson myndlistarmaður opnar sýningu í Listamiðstöðinni Straumi, sunnan Álversins, í dag kl. 16. Sýningin ber yfirskriftina Ástin og lífið og samanstendur af þremur þáttum: Ljósmyndum, ljósverki og póstkortum. Verkið er tilraun höfundar til að dýpka skilning sinn og annarra á ástinni og lífinu. „Verkið byrjaði sem lítil hugmynd fyrir fjórum árum. Það hefur verið að vaxa og þróast síðan og mun endanlega öðlast sjálfstætt líf þegar sýning mín verður opnuð,“ segir Birgir. Sýningin stendur til 25. nóvember. Við opnuna mun Skrokkabandið leika lög af óútgefnum geisladiski. Bandið skipa þeir Kristján Pétur Sigurðsson og Haraldur Davíðsson.

Hátíðarbíó HÁTÍÐARSÝNING á kvikmynd Ágústs Guðmundssonar Mávahlátri verður í Bæjarbíói í Hafnarfirði í dag kl. 15, en kvikmyndin var öll tekin upp í Hafnarfirði.

Leikstjóri: Óskar Jónasson. Handrit: Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson. Kvikmyndataka: Karl R. Lilliendahl. Hljóðupptaka: Einar Sigurðsson. Leikmynd og munir: Gunnar Baldursson, Atli Geir Grétarsson. Tónlist: Barði Jóhannsson og KK. Aðalleikendur: Sigurður Skúlason, Júlíus Brjánsson, Margrét Ólafsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Védís Hervör Árnadóttir, Harald G. Haralds, Ragnheiður Steindórsdóttir, Hafdís Huld Þrastardóttir, Ingvi Mng Van Le, Lára Thuan Hansdóttir, Edda Thu Thi Nguyen, Jóhann Hauksson, Halldór Gylfason, Linda Sif Þorláksdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Sigurveig Jónsdóttir, Guðrún Stephensen, Jón Sigurbjörnsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Sjónvarpið, okt.– nóv. 2001 LEIKNAR, íslenskar þáttaraðir í sjónvarpi, hafa oft valdið vonbrigðum, þó ljós sé að finna í myrkrinu, sbr. Heilsubælið á sínum tíma. Af og til dregur ský frá sólu og þremenningunum, leikstjóranum Óskari Jónassyni og handritshöfundunum Árna Þórarinssyni og Páli Kristni Pálssyni, tekst laglega upp í sakamálamyndaröðinni 20/20, sem flutt var sunnudagskvöldin 14., 21., 28., okt., og lau. 4. nóv. U.þ.b. 4 x 20 mín., og slagaði því hátt upp í styttri kvikmyndasýningartíma. Árni og Páll sviðsetja morð í tætingslegri mannlífsflóru Kolaportsins þar sem ekki síst ægir saman fólki sem búið er að missa af farseðlinum á fyrsta farrými lífsins, tekið að snjást og lýjast líkt og varningurinn sem þar er á boðstólum. Persónurnar tengjast flestar mannhrakinu sem endar auma ævi sína með rýting í hjartastað. Þó svo þær þekkist, og sumar vel, sjá flestar persónurnar hver aðra í nýju ljósi undir framvindunni; lengi má manninn reyna. Í fyrstu þremur þáttunum sáum við atburðarásina frá jafnmörgum sjónarhornum, persónurnar rokka úr aðal- í aukahlutverk, og öfugt. Þetta er sundurleitur hópur úr hversdagsleikanum; hafa misstigið sig margir hverjir, horfið á náðir skransölu og flóamarkaðshyggju, ekki allir með hreint mjöl í pokahorninu. Þarna er lögreglumaður (Sigurður Skúlason) og vafasamur kaupsýslumaður, bróðir hans (Júlíus Brjánsson), ásamt

móður þeirra (Margrét Ólafsdóttir). Þeir eru að leita að sjónvarpi handa gömlu konunni. Auk þess þarf hún á nýjum gleraugum að halda, þaðan fá þættirnir nafn sitt (20/20 = fullkomin sjón), sem höfðar einnig til þess að ekki er allt sem sýnist í þessum heimi. Dóttir nýbúa, (Lára Thuan Hansdóttir), er að undirbúa giftingu sína og ungs manns (Halldór Gylfason), móðir hennar átelur stúlkuna fyrir að þekkja ekki manninn nógu vel til að bindast honum, sem kemur á daginn. Þarna eru nýuppþurrkaðir dópistar og brennivínsfólk í baráttu við fíknina, kvensemina, afbrýði og öfund. Dópsalinn X (Jóhann Hauksson), birtist á svæðinu og kemur róti á mannskapinn, hann er hættulegri lífs en liðinn; því fer sem fer. Óskar heldur vel utanum morðgátuna, mannræfillinn er myrtur í fyrsta þætti og grunurinn beinist að velflestum aðalpersónunum. Höfundunum tekst mæta vel að leyna þvíhver er morðinginn uns málið skýrist á lokamínútunum. Sá sem einn veit lausnina er Lilli (Hjalti Rúnar Jónsson), ungur strákur sem hefur verið að væflast með fimmþúsundkall á milli handanna út alla þættina; skýring fæst einnig á því í lokin. Gátan leysist um leið og þetta lokaða rými, sjúskað og marsipan-, hákarls-, kleinuhringja-, rikklingsþefjandi Kolaportið, opnast út í sólskinið. Gátan er í sjálfu sér ekkert yfirmáta flókin en dugar vel til síns brúks; heldur áhuga áhorfandans vakandi, auk þess sem hún minnir á að ekki er allt sem sýnist í grámósku hversdagsins. Sú tilraun Árna og Páls að fjölga sjónarhornum, víkka sjónarsviðið á breiddina frekar en lengdina, er nýstárleg, kröfuhörð og gengur í alla staði vel upp. Persónurnar vakna til lífsins í óaðfinnanlegum leikhóp, sá sem stjórnaði honum og valdi saman á sannkallaðan heiður skilinn. Haddi G. og Jón Sigurbjörnsson eru kannski fremstir meðal jafningja, en í rauninni er ekki veikan punkt að finna í leiknum. Á sama máta er umhverfið, Kolaportið, skemmtilega nýtt sem rammi utan um válega atburðarásina. Kolaportið er hálfgert einskismannsland, að vissu leyti utan laga og réttar viðskiptalífsins og normsins í mannlífinu. Óskar samhæfir kjaftinn skelinni. Myndavélin dregur upp vel við eigandi hliðar og portrett úr þessu galleríi almúgans og KK slær undir hárréttu tónana. Farið er með okkur í skoðunarferð inní áreitna, framandi veröld, sem þó er í hjarta borgarinnar. S æ b jör n Va ldi ma r s s on

Margrét Jónsdóttir í Listasafni ASÍ.

Hugleiðingar um lífið MARGRÉT Jónsdóttir listmálari opnar einkasýningu í Listasafni ASÍ í dag kl. 16. Hún sýnir í báðum sölum safnsins, Ámundarsal og Gryfjunni. Sýningin nefnist In memoriam og er tileinkuð nýlátnum ættingjum Margrétar sem höfðu áhrif á hana sem listamann, þeim Jóhönnu Hannesdóttur móður hennar og Guðmundi Benediktssyni myndhöggvara, föðurbróður hennar. Margrét hefur verið afkastamikil á sýningarvettvangi og haldið margar einkasýningar og fjölda samsýninga bæði hér og erlendis í þau 27 ár sem hún hefur starfað sem listamaður. Margrét sýndi síðast árið 1999 og var þá með tvær stórar einkasýningar í Gerðarsafni og Hafnarborg á sama árinu. Sagt er að verk hennar séu mikil umfangs, víðfeðmir flekar sem jaðri við yfirstærðir og að hún fari ekki troðnar slóðir í listsköpun sinni né hlaupi á eftir tískustraumum, heldur þrói persónulega tjáningu og glími við einfaldleikann. Undanfarin fjögur sumur hefur hún dvalist í París við listsköpun. Verkin sem hún sýnir að þessu sinni eru afrakstur Parísardvalar hennar. Verkin eru unnin út frá hugleiðingu um lífið og verðmætamat okkar og eru unnin með eggtemperu og olíulit á pappír. Sýningin stendur til 25. nóv. frá kl. 14–20. Lokað mánudaga.

Kaldal á Höfn Í PAKKHÚSINU á Höfn stendur nú yfir ljósmyndasýning. Sýningin nefnist Kaldal – aldarminning en þar eru um 60 ljósmyndir eftir Jón Kaldal. Sýningin kemur frá Þjóðminjasafni Íslands. Hún er opin laugardag og sunnudag kl. 14–18.

Vetrarsýning í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar VETRARSÝNING Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, sem opnuð er í dag er tvískipt. Annars vegar eru tímamótaverk Sigurjóns Ólafssonar frá ýmsum skeiðum á listferli hans og hins vegar frjáls verk þar sem listamaðurinn gaf ímyndunaraflinu lausan tauminn. „Í neðri sal safnsins eru sýnd þekkt öndvegisverk sem veita sýningargestunum góða innsýn í hin fjölbreyttu viðfangsefni listamannsins, svo og ólík vinnubrögð, sem réðust af þeim efniviði sem notaður var í hvert skipti. Þannig vann Sigurjón af sömu snilld hvort sem hann mótaði andlitsmynd í leir, hjó í stein eða tálgaði í tré,“ segir Birgitta Spur, forstöðumaður listasafnsins. „Síðustu tíu ár ævinnar vann Sigurjón fjölda verka í tré, bæði í rekavið, límtré og harðvið. Mörg þessara verka eru talin meðal lykilverka hans, og hafa oft verið á sýningum,

Sigurjón Ólafsson: Ellin, tré, 139 x 60 x 58.

bæði hér á landi og erlendis. Aðrar trémyndir mætti flokka sem skemmtilegar hugmyndir og hugdettur, sem listamaðurinn útfærði í efni sem hendi var næst: trjáboli, greinar, rekavið. Það eru slíkar myndir sem nú má sjá á efri hæð safnsins undir heitinu Kynlegir kvistir. Hið prímitíviska myndmál er áberandi og má rekja það til fyrstu formtilrauna Sigurjóns á fjórða áratugnum sem var liður í leit framúrstefnulistamanna að nýju myndmáli. Það má eflaust flokka efniviðinn í mörgum myndanna undir heitinu objet trouvé eða fundinn hlutur, en þó bera þessi verk sterk höfundareinkenni listamannsins.“ Fram til 25. nóvember er safnið opið um helgar milli kl. 14 og 17. Safnið er lokað í desember og janúar. Tekið er á móti hópum utan þess tíma sem opið er samkvæmt beiðni.

Orð handa Megasi í Nýló ORÐ handa Megasi í Nýló er yfirskrift málþings í Nýlistasafninu í dag kl. 14. Viðburðurinn er liður í listþinginu Omdúrman: Margmiðlaður Megas í Nýló, samstarfsverkefni Kistunnar (kistan.is) og Nýlistasafnsins. Þeir sem leggja til orð eru: Birna Þórðardóttir, Gunnar Hersveinn, Jón Proppé, Óttar Guðmundsson, Kristín Ómarsdóttir, Þórunn Valdimarsdóttir, Skafti Þ. Halldórsson, Vigdís Grímsdóttir og Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. Í fyrirlestrum verður m.a. fjallað um tengsl Megasar við aðra höfunda, íslenskar viðtökur á verki Megasar, ljóðagerð Megasar og ýmislegt fleira.

Leiðsögn um sýninguna Geir Svansson, annar tveggja sýningastjóra sýningarinnar, verður með leiðsögn um sýninguna á morgun, sunnudag, kl. 15. Safnið er opið frá 12-17 og er aðgangur ókeypis.

Smámyndir hjá Íslenskri grafík SIGRÚN Ögmundsdóttir opnar sýningu í sal félagsins Íslenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, í dag kl. 16. Sýningu sína nefnir hún Verndarenglar 20x20. Þetta er önnur einkasýning Sigrúnar en á henni eru 50 smámyndir, unnar með blandaðri tækni. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14–18 og stendur til 3. desember.

Söngkvöld í Vesturporti ALÞÝÐUSPILARARNIR Menn frá Kleifum halda söngkvöld í Vesturporti v/Vesturgötu í kvöld kl. 23. Menn frá Kleifum eru sjö frændur ættaðir frá Kleifum í Ólafsfirði. Þeir halda uppi áralangri söng- og tónlistarhefð, sem þaðan er runnin. Flutt verða íslensk alþýðulög og nokkur eftir þá félaga.

Sýningarlok og leiðsögn Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Leiðsögn verður um sýningu Kristjáns Guðmundssonar í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum á morgun, sunnudag, kl. 15., en það er jafnframt lokadagur sýningarinnar. Á sýningunni eru verk eftir Kristján sem spanna allan feril hans, allt frá upphafi Súm-tímabilsins til dagsins í dag.

Listasalurinn Man, Skólavörðustíg Málverkasýningu Guggu, Guðbjargar Hákonardóttur, í Listasal Man, Skólavörðustíg 14, lýkur á morgun. Sýningin er opin á opnunartíma verslunarinnar Man, og laugardaga og sunnudaga frá 14-18.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.