Allan veturinn eru þeir að dansa

Page 1

JÓN var gleðimaður mikill og veitingasamur og Metta að Ifkindum glaðsinna, söngvin og dansfús. Hún þekkti að sjálfsögðu til skemmtanahalds eins og það tíðkaðist í Danmörku, hafði bæði kynnst því þarlendis og á kóngsgarðinum á Bessastöðum, og hefur kennt börnum sínum og grönnum dansa og aðra gleðileiki. Myndlýsing: Freydís Kristjánsdóttir.

METTA HANSDOTTIR I VIK - SIÐARI HLUTI

„ALLAN VETURINN ERU ÞEIR AD DANSA"

Þ

Framgiarn Hjaltdælingur

AÐ andar köldu frá flestum sagnariturum til Jóns Oddssonar Hjaltalíns, enda var hann boðflenna í íslenska höfðingjahópnum, óskólagenginn bóndasonur sem hófst af sjálfum sér og átti í þokkabót danska konu. Ekki bætti um fyrir Jóni að þau Metta voru gleðifólk á gleðifirrtum tímum píetismans, þegar þjóðin var svo upptekin við að vera guðhrædd og mædd að hún glutraði niður danskunnáttu sinni. Jón var af alþýðuættum, Þorgerðarson í HJaltadal Jónsdóttur og Odds bónda hennar Önundarsonar. Hann var 16 ára vinnupiltur hjá Gísla móðurbróður sínum á Reykjum í Hjaltadal árið 1703 og hefur því verið fæddur um 1687. Fjórtán ár líða þar til honum skýtur aftur upp í heimildum, 1717, og hefur vegur hans þá heldur aukist því að þá er hann nefndur á alþingi sem lögréttumaður úr Kjalarnesþingi. Jón varð síðan lögsagnari Níelsar Kjærs í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1728, var settur yfir báðar sýslurnar við andlát Kjærs 1730 og fékk veitingu fyrir þeim 1732. Gullbringusýslu sagði hann af sér 1743 en var að

4

EFTIR HALLDÓR ÁRMANN SIGURDSSON

Jón Hjaltalín, eiginmaður Meftu Hansdóttur, tólc við sýslumannsembætti Kjærs 1730 og fluttist líklegg sama ár úr Effersey inn í Vík. A orði var haft ao heimilislífið í Vík væri með gáskafyllsta móti. „Þar er ekkert utan gleði, ævinleg á sunnudags kvöld" segir í vikivakakvæði. sögn Hannesar Þorsteinssonar settur frá Kjósarsýslu 1750 vegna skulda og drykkjuskapar. Jón var landseti konungs í Effersey (Örfirisey) 1720 og sjálfsagt bæði fyrr og síðar og í Reykjavík bjó hann sennilega frá 1730 allt til þess að hann missti ábúðina árið 1752. Alþingisbækur íslands bera það með sér að Jón gegndi trúnaðar- og embættisstörfum sínum af samviskusemi, að minnsta kosti framan af ferli sínum, og þær sýna

einnig að hann var einhver snjallasti og eftirsóttasti málafærslumaður landsins frá því um 1720 og fram yfir 1730. Hann var vissulega harðskeyttur en hann undirbjó mál sin af kostgæfhi og virðist hafa verið manna best að sér í norsku lögum Kristjáns fimmta sem æ oftar var dæmt eftir þegar leið á 18. öld. Oft var hann saksóknari eða verjandi konungsvaldsins og stundum erindismaður amtmanns á alþingi en hann tók líka margsinnis að sér að rétta hlut

LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. FEBRÚAR 1998>K-!JNBtAÐSINS *- MENNfl

17

smælingja gagnvart yfírgangi innlendra höfðingja. Hannes Þorsteinsson gerir mikið úr því að hann hafi verið óheppinn í dómum sínum eftir að hann varð sýslumaður sjálfur og hlotið sektir „fyrir of harða dóma eða lögleysur" sem stafað hafi af miklum drykkjuskap hans. Athugun á alþingisbókunum 1730-1750 leiðir hins vegar í Ijós að þarna er aðeins um tvo dóma að ræða og sýnir reyndar að Jón hefur verið friðsamt og aðgerðalítið yfirvald. Það sópaði að Jóni á alþingi á meðan hann sinnti þar málafærslustörfum en eftir að hann varð valdsmaður sjálfur kom hann lítt við sögur. Áðurnefnda eyðu í heimildum um Jón, árin 1703 til 1717, fyllir Bogi Benediktsson svo: „Jón Hjaltalín vandist í æsku með dönskum, og var að náttúru mjög glaðsinna og orðhvatur, ekki lærður á latínu, en skýr og fljót-skarpur og lagði sig eptir íslenzkum lögum." Orðalagið „vandist í æsku með dönskum" bendir til þess að Jón hafi ungur byrjað innanbúðar á Hofsósi en um það verður þó ekkert fullyrt. Engu að síður er unnt að komast nokkru nær um það hvenær og hvernig þau Metta og Jón kynntust. Líkur benda til að það hafi með nokkrum hætti og þó óforvarandis orðið


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.