Jólablað Nettó 2020

Page 46

Sörur Botnar: 120 g ljóst möndlumjöl (eða 80 g möndlumjöl og 40 g hakkaðar möndlur) 120 g Sukrin Melis

Sykurlaus jól

með Maríu Kristu Jólin, jólin, já þau koma víst á hverju ári og fyrir þá sem eiga erfitt með að standast freistingar þá eru jólin ansi krefjandi tími. Ég ákvað fyrir um það bil sjö árum að taka út allan sykur í mínu mataræði en fylgja lágkolvetna mataræði í staðinn og þegar sykurinn var horfinn úr lífi mínu þá einfölduðust svona tímabil mikið. Ég hætti að líta á páska og jól sem afsökun til að dýfa mér í sykurinn og nú næ ég algjörlega að halda mér frá sykruðum freistingum sem fylla allar hillur fyrir hátíðarnar. Já, það er kannski pirrandi að heyra þetta og eflaust efast einhverjir um staðfestu mína en ég get alveg lofað því að ef sykurinn er ekki til staðar þá fær maður ekki þessa löngun enda stórefast ég um að mér myndi líka bragðið af sykruðum konfektmola í dag. Ég vona að ég geti sannfært einhverja um að sykurlaust líferni sé alls ekki svo ómögulegt og sérstaklega ekki um jólin, ég elska mest af öllu sörur og kryddkökur og mig langar til að láta tvær dásamlegar uppskriftir fylgja þessum pistli. Ég vona að þið sláið til og hver veit nema ykkur líði betur og þið njótið jólanna án þess að vera afvelta í sykurvímu og öðlist aukaorku til að fara út að leika í snjókasti í staðinn. Með kærri jólakveðju, María Krista Hreiðarsdóttir #kristaketo www.mariakrista.com 46

kristaketo

4 eggjahvítur 1/4 tsk salt 1/2 tsk möndludropar Krem: 240 g mjúkt smjör 4 eggjarauður 80 g Sukrin Melis 2 tsk kakó 1 msk skyndikaffiduft Hjúpur: 100 g sykurlaust súkkulaði Aðferð: Stífþeytið hvítur og salt. Mæli með að skola skál með borðediki og þurrka fyrir hvern marengsbakstur. Blandið fínmalaðri sætunni saman við í pörtum og þeytið þar til hægt er að snúa skál á hvolf. Setjið möndludropana saman við. Veltið möndlumjölinu og möndlum út í hvíturnar með sleif. Setjið blönduna síðan í sprautupoka og sprautið um 40 sörubotnum á smjörpappír. Bakið á 140° hita í um það til 15-20 mín. Látið þær kólna alveg áður en þær eru losaðar af pappír. Krem: Þeytið eggjarauður þar til ljósar, bætið við sætunni, kaffidufti og kakó og þeytið áfram. Bætið svo mjúku smjörinu saman við og þeytið áfram þar til kremið er létt og ljóst. Smyrjið hvern kökubotn og myndið lítið fjall. Það má líka sprauta kreminu með fallegum stút og láta það duga. Frystið kökurnar í að minnsta kosti 30 mín. Súkkulaðihúðið hverja köku, annaðhvort dýfið í súkkulaði eða sprautið súkkulaðitaum yfir hverja köku.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.