10 minute read
Gróska
STÚDENTABLAÐIÐ
Gróska: Hús hugmyndanna
Advertisement
Gróska: House of ideas
GREIN ARTICLE Atli Freyr Þorvaldsson
ÞÝÐING TRANSLATION Julie Summers
MYNDIR PHOTOS Sædís Harpa Stefánsdóttir
Nýsköpunarvikan var haldin dagana 30. september – 7. október. Í henni voru haldnir ýmis konar viðburðir, fyrirlestrar og sýningar tengd nýsköpun, allt á netinu! Setningarathöfn hennar var haldin í Grósku, tilkomumikilli og stórri byggingu sunnan við Öskju, sem virðist smá í samanburði.
Orðið gróska merkir „kröftugur vöxtur“ skv. íslenskri nútímamálsorðabók og er það mjög lýsandi nafn, því byggingin er nýjasta viðbótin við Vísindagarða og er hugsuð fyrir frumkvöðla og nýsköpunarstarfsemi. Á Vísindagörðum höfðu áður risið hús Íslenskrar erfðagreiningar og Alvotech/Alvogen, ásamt Mýrargarði, þar sem nýjustu stúdentaíbúðirnar eru. Gróska stendur við Bjargargötu 1, nýja götu í Vatnsmýrinni, en götuheitið er kennt við Björgu C. Þorláksson, fyrstu íslensku konuna sem lauk doktorsprófi, en það var í sálfræði.
EKKI NEIN VENJULEG SKRIFSTOFUBYGGING Gróska er 17.500 m2 að stærð og á fjórum hæðum. Jarðvinna tók sinn tíma en byggingarframkvæmdir hófust í byrjun ársins 2017. Fólk átti að geta hafið störf í húsinu í lok síðasta árs, en eins og oft er með slíkar tímaáætlanir, þá seinkaði þeim. Utan frá er byggingin tilbúin, en framkvæmdir eru enn í gangi innanhúss.
Gróska er fjarska falleg bygging, hvort sem er úr fjarska, eða alveg upp við. Byggingin er steinsteypt með skemmtilegri viðarklæðningu, sem gleður augað og á eftir að taka náttúrulegan lit eftir því sem hún veðrast með tímanum. Einnig vöktu svörtu ljósastaurarnir athygli mína, en þeir standa í röð með fram austur- og suðurhliðum hússins. Húsið er alsett stórum gluggum, sem svipar til þeirra á Fréttablaðshúsinu við Hafnartorg, en forsvarsfólk Grósku gefur sig út fyrir að vera ekki með skrifstofubyggingu á sínum snærum, heldur „gróðrarstöð hugmynda, þar sem öflug fyrirtæki dafna við hlið nýrri sprota“.
MÖGNUÐ AÐ INNAN SEM UTAN Þegar gengið er inn í port af Bjargargötunni fer athyglin um leið á flottan og flennistóran lifandi plöntuvegg sem á að vera helsta auðkennið í húsinu en í honum búa m.a. köngulær! Þessi veggur var kominn upp í byrjun árs og hefur því dafnað á meðan Kófið hefur vofað yfir öllu og í gegnum framkvæmdir innan- sem utanhúss. Þá mætir reglulega maður sem snyrtir hann!
Við inngang hússins að vestanverðu er eins konar torg, þar sem útveggurinn breiðir út faðminn og býður fólk velkomið í Grósku. Í húsinu er gert ráð fyrir hvort tveggja veitingastað og kaffihúsi, auk verslunar- og þjónusturýma. World Class er með líkamsrækt í einu horni hússins og stór fyrirlestrasalur er í miðju þess.
Elísabet Sveinsdóttir starfar fyrir Vísindagarða. Hún sagði mér frá því að Gróska hafi átt að vera auðkennileg frá hvaða sjónarhorni sem er, jafnt í eigin persónu og á myndum. Merki Grósku er myndað út frá stiganum sem liðast upp eins og tommustokkur í miðrýminu. Hann og brýrnar, sem liggja þvert yfir innganginn í vesturendanum, eiga að tákna tengsl en það er lýsandi fyrir þann anda sem vonast er til að myndist í húsinu. Þá hafi verið horft til umhverfismála við hönnun þess.
UPPBYGGING Í MIÐRI COVID-KREPPU Hrólfur Jónsson starfar einnig fyrir Vísindagarða, sem eiga lóðina undir Grósku. Hlutverk félagsins í húsinu er að koma á fót nýsköpunarsetri og stefnt er að opnun þess í byrjun nóvember. „Við vonumst til að um 160 frumkvöðlar verði þar að störfum auk 40 manns hjá ýmsum stofnunum m.a. HÍ og Icelandic Startups,“ segir Hrólfur, en aðrir aðilar sem munu eiga sinn stað í Grósku eru t.a.m. Ferðaklasinn og Auðna tæknitorg.
Það hefur verið sagt, að í kreppu blómstri nýsköpunin. Siðan Kófið hófst hefur uppbygging Grósku miðað nokkuð áfram, en með einstaka hindrunum. Hrólfur segir að staðið hafi á mörgu varðandi innflutning, „t.d. komu útlendingar að setja upp handriðin og það var áskorun að finna út úr því með sóttkví og tilheyrandi“.
FRUMKVÖÐLAR OG FRUMBYGGJAR Stærsti vinnustaðurinn er án efa leikjafyrirtækið CCP sem hefur alla þriðju hæðina á leigu. Fyrirtækið flutti sig af Grandanum í Vatnsmýrina nú í sumar, en upphaflega átti það að gerast í febrúar síðastliðnum. Hrólfur segir að starfsmenn hafi unnið í fjarvinnu á meðan Covid stóð sem hæst og þó einhverjir séu nú farnir að vinna innanhúss, sé lokað á allar heimsóknir. Milli HÍ og Grósku standa nú yfir viðræður um að tölvunarfræðideildin fái aðstöðu á hæðinni og yrði hún þá í tengslum við CCP, sem sýnir fram á annað hlutverk byggingarinnar, þ.e. að tengja háskólann við atvinnulífið með beinni hætti en áður.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs mun sömuleiðis eiga sinn stað í húsinu en hún er hreyfiafl sjálfbærrar verðmætasköpunar sem byggir á hönnun og arkitektúr. Hún vinnur m.a. að eflingu hönnunardrifinnar nýsköpunar, en HönnunarMars er líklega eitt þekktasta verkefnið sem Miðstöðin hefur stofnað til. „Við erum mjög spennt að flytja og erum viss um að flutningurinn muni marka upphafið að nýjum og mjög spenn andi kafla í okkar starfsemi,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdarstjóri Miðstöðvarinnar, en stefnt er að flutningum í Grósku í lok október þegar skrifstofa þeirra verður tilbúin. Halla segir ástæðu flutninganna vera þá að Gróska er spennandi hús, þar sem Miðstöðin verður í sambýli við líflegt umhverfi frumkvöðla og nýsköpunar, „hönnun er tæki til breytinga og nýsköpunar og það er mjög áhugavert fyrir okkur að vera í þeirri hringiðu sem verður í Grósku, þar sem við getum verið í samstarfi við, miðlað og tengt á milli skapandi greina og ólíkra hópa atvinnulífs og háskólaumhverfis“ segir Halla.
Einnig mun hugbúnaðarfyrirtækið Planitor starfa í Grósku, en að því standa þeir Jökull Sólberg og Guðmundur K. Jónsson. Planitor er miðlægur grunnur og miðlun fyrir skipulags- og mannvirkjageirann. Jökull segir að þeir hafi valið Grósku, því það sé ódýrt og flott auk þess sem að það heilli að hafa World Class í sama húsnæði. Hann býst við að það muni verða stemning í húsinu, sem sé mikill kostur.
Á heimasíðunni groska.is má fræðast meira um bygginguna og starfsemina, en þar er einnig hægt spyrjast fyrir um laus athafnapláss.
Innovation Week was held from September 30 to October 7 and involved all sorts of events, lectures, and exhibitions related to innovation – all online! The week began with a ceremony in Gróska, the new large, imposing building south of Askja, which now seems small in comparison.
According to the Dictionary of Modern Icelandic, the word gróska means “powerful growth,” and it’s a fitting name, as Gróska is the latest addition to the Vísindagarðar complex and is intended to be a hub for business growth and innovation. Vísindagarðar also includes the building that houses deCODE Genetics and Alvotech/Alvogen, as well as Mýrargarður, the newest student residence hall. Gróska is located at Bjargargata 1, a new road in Vatnsmýri. The road is named for Björg C. Þorláksson, the first Icelandic woman ever to complete a PhD.
NO ORDINARY OFFICE BUILDING Gróska occupies 17,500 square meters on four floors. Excavating the site took time, and construction began in early 2017. The building was supposed to be ready at the end of last year, but as often happens with such plans, there were delays. From the outside, the building appears complete, but construction is still underway inside.
Whether viewed from afar or up close, Gróska is an incredibly beautiful building. It’s made of concrete, with striking wooden siding that will take on a more natural hue as it weathers over time. The black lampposts lining the east and south sides of the building also caught my eye. The building is covered with large windows, a design reminiscent of the building on Hafnartorg that houses the offices of Fréttablaðið. But the people behind Gróska say it is not an office building, but rather “a greenhouse for ideas, where established companies blossom alongside the latest startups.”
IMPRESSIVE BOTH INSIDE AND OUT When you approach the building from Bjargargata, your attention is immediately drawn to the building’s most identifiable feature: a fantastic, massive wall of live plants that even houses some spiders. The plant wall was erected at the beginning of the year and has been flourishing while COVID has been looming over us and while construction was completed both inside and outside. Someone comes to prune the wall regularly!
By the western entrance of the house is a sort of square, where the external wall stretches out its arms to welcome people to Gróska. The building is equipped for a restaurant and coffee shop, as well as retail and service spaces. World Class operates a gym in one corner of the first floor, and there’s a large conference hall in the center of the building.
Elísabet Sveinsdóttir works for Vísindagarðar. She told me that Gróska is supposed to be recognizable from any angle, whether in person or in photos. Gróska’s logo was inspired by the staircase that meanders upward like a folding ruler in the center of the building. The staircase and the bridges that span the west entrance symbolize connection, which represents the atmosphere that the Gróska team hopes will form in the building. The design also takes environmental factors into consideration.
CONSTRUCTION IN THE MIDST OF THE COVID CRISIS Hrólfur Jónsson also works for Vísindagarðar, which owns the property where Gróska is located. The organization’s role in the building is to establish a center for innovation, and the goal is to open it at the beginning of November. “We hope to have about 160 entrepreneurs working there, along with 40 people from various institutions, including the University of Iceland and Icelandic Startups,” says Hrólfur. Other groups that will occupy spaces at Gróska include the Iceland Tourism Cluster and Technology Transfer Office Iceland.
It’s been said that innovation blossoms in times of crisis. Since the coronavirus pandemic began, construction on Gróska has progressed, though not without some hurdles. Hrólfur says there were challenges related to the import of both materials and workers: “For example, foreign workers came in to set up the handrails, and it was a challenge to figure out how to handle quarantine and everything.”
ENTREPRENEURS AND INNOVATORS Without question, the largest space in the building belongs to the gaming company CCP, which occupies the entire third floor. The company moved from their old location at Grandi to Vatnsmýri this summer. Originally, the plan was to move in February. Hrólfur says employees worked from home during the peak of the pandemic, and although some have returned to the office, no visitors are allowed. The University of Iceland and Gróska are currently discussing the possibility of the school’s computer science department having a space on the third floor in a sort of collaboration with CCP. This is a good example of one of Gróska’s other purposes, to connect the university to the job market more directly than before.
Gróska will also house Iceland Design and Architecture (IDA), which is dedicated to promoting sustainable development built on design and architecture. Among other things, IDA works to strengthen design-driven innovation. DesignMarch is probably IDA’s most well-known project. “We’re very excited to move, and we’re sure that this move will mark the beginning of a new and very exciting chapter for us,” says Halla Helgadóttir, IDA’s managing director. They plan to move at the end of October, once their office is ready. Halla says the reason behind the move is that Gróska is an exciting place, where IDA will be part of a lively community of entrepreneurs and innovators. “Design is a tool for change and innovation, and it’s very interesting for us to be in the whirlpool that Gróska will be, where we can collaborate with and form connections between creative industries and diverse groups from the labor market and the university community,” says Halla.
Software company Planitor, owned by Jökull Sólberg and Guðmundur K. Jónsson, will also operate in Gróska. Planitor develops software for the urban planning and civil engineering sector. Jökull says they chose Gróska because it’s a great space and the rent is affordable, and it doesn’t hurt that there’s a World Class in the same building. He expects there will be a great atmosphere in the building, which is a major plus.
Visit groska.is to learn more about the building or to inquire about available rental spaces.