Ft 31 03 2017

Page 1

frettatiminn.is ritstjorn@frettatiminn.is auglysingar@frettatiminn.is 25. tölublað 8. árgangur

Föstudagur 31.03.2017

Skotheld ráð við sambandsslitum 40

24

Fagur forréttur Sem enginn vill borða

Íbúfen®

Íbúprófen 20 mg/ml mixtúra Dreifa Actavis 713040

Fann ekki íbúð Flutti í bíl

40

Inn í óvissuna Mynd | Heiða

Ellý Katrín Guðmundsdóttir greindist með Alzheimer aðeins 52 ára.

Ellý Katrín var æðsti embættismaður borgarinnar og staðgengill borgarstjóra en steig til hliðar eftir sjúkdómsgreininguna. Hún lýsir áfallinu við að veikjast og viðbrögðum samferðafólks. Hún gengur á hólm við leyndina sem fylgir sjúkdómnum vegna þess að hún „þolir ekki leyndarmál.“ Bls. 8

Slóð peninganna órannsökuð Skýrslan um aðkomu Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans hefur kallað fram umræðu um heildstæða rannsókn á einkavæðingu ríkisbankanna. Fleiri hliðar einkavæðingarinnar hafa aldrei verið rannsakaðar eins og viðskipti fjölskyldufyrirtækis Halldórs Ásgrímssonar, Skinneyjar-Þinganess, með hlutabréf í VÍS og viðskipti Framsóknarflokksins með fasteign í eigu fyrirtækis Ólafs Ólafssonar. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is

„Ég skrifa sem varaformaður f lokksins undir þessa gjörð en kom annars ekkert að þessu. Það er algjörlega ljóst að formaður f lokksins [Halldór Ásgrímsson] hefur ákveðið þetta með fram-

kvæmdastjóra sínum [Árna Magnússyni],“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og varaformaður Framsóknarflokksins, aðspurður um hvernig það gerðist að Framsóknarflokkurinn eignaðist fasteign á Hverfisgötu 33 sem var í eigu fyrirtækisins Kers hf. í desember 2012. Mánuði síðar varð Ker hf., sem meðal annars var í eigu Ólafs Ólafssonar, einn af kaupendum Búnaðarbankans. Guðni var einn af þeim sem skrifaði undir gögn vegna viðskiptanna með húsið og segist hann aðspurður ekki vita af hverju gengið var frá kaupunum á húsinu á þessum tíma. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum Búnaðarbankans 2002 hefur kallað fram kröfur um að fram fari

heildstæð rannsókn á einkavæðingu Búnaðarbankans og Landsbankans. Samkvæmt skýrslunni var þýski bankinn aldrei raunverulegur kaupandi eða hluthafi í Búnaðarbankanum heldur gerðu Ólafur Ólafsson og Kaupþing baksamning við þýska bankann vegna viðskiptanna sem fól í sér að hann var leppur þeirra í viðskiptunum gegn þóknun. Viðskiptin með húsið eru ekki einu viðskiptin sem teng jast einkavæðingu Búnaðarbankans sem hafa ekki verið rannsökuð. Fjölskyldufyrirtæki Halldórs Ásgrímssonar hagnaðist einnig um að minnsta kosti 2,6 milljarða á viðskiptum með hlutabréf íslenska ríkisins í Vátrygingafélagi Íslands sem voru hluti af einkavæðingu Búnaðarbankans og Landsbankans.

Sérverslun með Apple vörur

islenskt.is

Lítill og snjall dróni fá DJI. Fjarstýring til að tengjast snjallsíma fylgir.

Frá 169.990 kr.

Osmo Mobile 44.990 kr.

Matreitt á gamla mátann án allra aukaefna.

Mavic Pro

iStore Kringlunni er viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili DJI á Íslandi

Snilld fyrir unga kvikmyndaáhugamenn.

Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar um aðkomu Hauck & Aufhäuser að kaupunum á Búnaðarbankanum er fjallað um það hvernig Ríkisendurskoðun taldi ekki tilefni til að rannsaka aðkomu þýska bankans að kaupunum frekar árið 2006. Ríkisendurskoðun gaf út frekari heilbrigðisvottorð um einkavæðingu bankanna. Þrátt fyrir tengsl Halldórs Ásgrímssonar við Skinney-Þinganes, og aðkomu hans að sölu ríkisins á hlutabréfum í VÍS og þeirra tengsla sem voru á milli þessarar sölu og sölu Búnaðarbankans, taldi Ríkisendurskoðun árið 2005 að Halldór Ásgrímsson hefði verið hæfur til að koma að bankasölunni sem stjórnmálamaður.

100% HREIN SNILLD FRÁ ÍSLENSKUM GARÐYRKJUBÆNDUM

Osmo X3

4K, 12 MP myndavél með hristivörn.

79.990 kr.

KRINGLUNNI ISTORE.IS


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.