01 tbl 2015

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

www.lyfja.is

Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17

16%

12%

af lyfjum utan greiðsluþátttöku

af lausasölulyfjum og öðrum vörum

afsláttur

Sími: 421 0000

Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.

Auglýsingasíminn er 421 0001 Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565

afsláttur

Við stefnum að vellíðan.

Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16

vf.is

F IMMTUDAGUR INN 8. JANÚAR 2 0 15 • 1. TÖ LUBLA Ð • 36. Á RGA NGU R

Allir í

Njarðvík-ÍR

Ljónagryfjuna í kvöld

KL. 19:15 Beðið eftir þrjúþúsundasta Grindvíkingnum XXÞann 1. janúar klukkan 07:44 kom annar Íslendingur ársins í heiminn og fyrsti Suðurnbesjamaðurinn, en foreldrar hans eru þau Arna Guðmundsdóttir og Ólafur Daði Hermannsson úr Grindavík. Drengurinn sem mældist 3.620 grömm og 52 cm er einnig fyrsti Grindvíkingur ársins

Grindvíkingum fjölgaði hratt á síðasta ári en samkvæmt nýjustu tölum eru Grindvíkingar 2.999 talsins og stefnir í að 3.000 íbúamúrinn verði rofinn á allra næstu dögum eða vikum. Myndin er af nýfædda Grindvíkingnum.

Kvenþjóðin á toppnum í íþróttum og námi á Suðurnesjum Ungar konur voru í sviðsljósinu um jól og áramót þegar greint var frá kjöri á íþróttafólki og rýnt í námsárangur við útskrift haustannar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sara Lind Ingvarsdóttir varð dúx annarinnar, Nýárstilboð er eitt sjónarmun á undan Alexíu Rós Viktorsdóttur en þrír nemendur voru með meðaleinkunn yfir níu og árangur mjög góður í heildina. Ástrós Brynjarsdóttir gerði sér síðan lítið fyrir ogorð var kjörin Íþróttamaður Reykjanesbæjar annað árið í röð. Fréttir frá útskrift og kjöri íþróttafólks er inni í blaðinu.

lítið f í fyrir skólafólk taka kommu út á eftir FRÍTT*

XXVeðurguðirnir trufluðu þrettándabrennustand í Reykjanesbæ og í Grindavík en halda á flugeldasýningar þar á laugardag. Garðmenn buðu hins vegar í blússandi flotta áramótabrennu á Gamlársdag. Mikill mannfjöldi kíkti í Garðinn og fylgdist með áramótaglæðum í lok árs 2014.

FÍTON / SÍA

1 mánuður á kr. 7.900.3 mánuðir á kr. 16.500.6 mánuðir á kr. 26.900.Árskort á kr. 44.900.-

Lífsstíls Klúbburinn, 3 FYRSTU MÁNUÐURNIR FRÍTT* 4.400 kr. á mán.

(3.800 kr. fyrir skólafólk) *(miðað við 18 mánaða binditíma)

Tilboðin að ofan gilda til 12. jan.

Myndarleg áramótabrenna í Garði

einföld reiknivél á ebox.is

NÝÁRSTILBOÐ LÍFSSTÍLS 2015

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457


2

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

HÚSALEIGUBÆTUR 2015 Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur vegna ársins 2015 fyrir 16. janúar nk. Sótt er um á Mitt Reykjanes (www.mittreykjanes.is). Þar er einnig hægt að sækja um lykilorð og hægt að velja um að fá lykilorðið sent í pósti eða netbanka. Með umsókninni þarf að skila inn: • Staðgreiðsluyfirliti þar sem fram koma heildartekjur ársins 2014. • Yfirliti frá Tryggingastofnun, lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun eða öðrum launagreiðendum og öðrum gögnum er varða laun. • Skattframtali fyrir árið 2014 hafi því ekki þegar verið skilað inn. • Endurnýjuðum húsaleigusamningi sé hann ekki í fullu gildi. Umsókn inn á www.mittreykjanes.is þarf að hafa borist eigi síðar en 16. janúar 2015. Sigurbjörg Gísladóttir húsnæðisfulltrúi

ATVINNA Hæfingarstöðin, dagþjónusta fyrir fólk með fatlanir, óskar eftir starfsmanni. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og hentar jafnt konum sem körlum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Sækja þarf um starfið rafrænt á www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf/ Umsóknarfrestur er til 22. janúar. Laun samkvæmt kjarasamningum. Upplýsingar gefur forstöðumaður Fanney St. Sigurðardóttir í síma 420-3250 fanney.st.sigurdardottir@reykjanesbaer.is Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar

FLUGELDASÝNING

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Sögulegur atburður í bæjarstjórn

B

æjarstjórn Reykjanesbæjar afgreiddi fjárhagsáætlun 2015-2018 á fundi sínum 29. desember. Sá sögulegi atburður gerðist að allir bæjarfulltrúar samþykktu fjárhagsáætlunina, enginn sat hjá og enginn greiddi atkvæði á móti. Það hefur ekki gerst áður í sögu Reykjanesbæjar. „Í áætlunarvinnunni hefur ríkt góð samstaða innan bæjarstjórnar um helstu markmið og leiðir þótt auð-

vitað hafi orðið einhver ágreiningur um einstaka mál. Hann var þó ekki meiri en svo að allir bæjarfulltrúarnir sáu sér fært að samþykkja lokaútgáfu áætlunarinnar. Þetta er því afar ánægjuleg niðurstaða sem styrkir okkur í þeirri vinnu sem framundan er í Sókninni en markmið þeirrar vinnu er að ná skuldaviðmiði sveitarfélagsins undir 150% árið 2022“, segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Reykjanesbær aftur á rétta braut – segir í bókun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar

B

æjarfulltrúa Beinnar leiðar, Frjáls afls og Samfylkingar og óháðra í bæjarstjórn bókuðu á fundi bæjarstjórnar 30. desember 2014 um fjárhagsáætlun bæjarins, sem samþykkt var samhljóða á fundinum um fjárhagsáætlun bæjarins. Bókunin er eftirfarandi: „Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árið 2015 endurspeglar íþyngjandi skuldastöðu bæjarfélagsins. Brýn nauðsyn er að ná utan um stöðuna þar sem reksturinn hefur ekki verið að skila nægilegri framlegð til að standa við skuldbindingar bæjarins. Fjárhagsáætlunin er byggð á úttekt fagaðila, unnin í samráði við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og staðfest í samkomulagi bæjarins við innanríkisráðherra. Lögð er áhersla á hagræðingu í rekstri bæjarfélagsins og B-hluta fyrirtækja en einnig er gert ráð fyrir auknum skatttekjum með hærri álagningu í útsvari og fasteignasköttum. Hagræðingin í rekstrinum snýr í fyrsta lagi að þeim launaliðum sem tilheyra ekki föstum launum. Þar er um að ræða greiðslur fyrir notkun

bifreiða starfsmanna en framvegis verður einungis greitt fyrir akstur sem starfsmenn aka sannarlega fyrir bæjarfélagið skv. skráningu í akstursbók. Þá verður dregið úr greiðslum fyrir yfirvinnu. Varðandi hagræðingu í öðrum rekstrarútgjöldum þá er sjónum fyrst og fremst beint að þeim verkefnum sem ekki eru lögbundin en þó er reynt að verja þjónustu sem snýr að barnafjölskyldum. Þannig eru leikskólagjöld óbreytt, hvatagreiðslur auknar og aukin framlög til foreldra sem nýta sér þjónustu dagmæðra meðan umönnunargreiðslur til foreldra eru felldar niður. Með því er reynt að ýta undir framboð á þjónustu dagmæðra þannig að þær fjölskyldur sem hafa nýtt sér umönnunargreiðslur geti nýtt sér þá þjónustu. Áfram verður unnið að því að fjölga fjölbreyttum atvinnutækifærum m.a. með áframhaldandi upp-

byggingu í Helguvík. Þá verður unnið að því að koma í not öllum þeim íbúðum sem standa auðar, svo og öllum þeim lóðum sem er búið að gera klárar fyrir byggingar bæði fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Markmið fjárhagsáætlunarinnar er að rekstur sveitarfélagsins skili afgangi sem nýtist til niðurgreiðslu uppsafnaðra skulda og aukinnar þjónustu við íbúa þegar fram líða stundir. Hér kveður við ábyrgari tón í rekstri bæjarins en áður sem mun verða til þess að gera rekstur sveitarfélagsins sjálfbæran og koma Reykjanesbæ á rétta braut á nýjan leik“. Guðný Birna Guðmundsdóttir Eysteinn Eyjólfsson Guðbrandur Einarsson Anna Lóa Ólafsdóttir Gunnar Þórarinsson Elín Rós Bjarnadóttir

Spáði vitlaust og þarf að hlaupa til Hofsóss

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes, sem fara átti fram á þrettándanum en var frestað vegna veðurs, verður haldin laugardaginn 10. janúar kl. 18.00 ef veður leyfir. Skotið verður upp af Berginu, líkt og á Ljósanótt, og því um að gera að safnast saman á hátíðarsvæðinu á Bakkalág til að njóta.

VIÐTALSTÍMI BÆJARFULLTRÚA Anna Lóa Ólafsdóttir, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar býður upp á viðtalstíma í Ráðhúsinu á miðvikudögum í vetur frá kl. 16:00 - 18:00. Viðtalstímarnir eru hluti af auknu aðgengi að bæjarfulltrúum sem boðað var fyrir kosningar. Skráning fer fram hjá Þjónustuveri Reykjanesbæjar í s. 421-6700.

Ástdís Björg Stefánsdóttir tekur við vinningnum í happdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur.

Ástdís fékk Spark frá Lions

D

regið var í happ dr ætti Lionsklúbbs Njarðvíkur á Þorláksmessu. Aðalvinningurinn, Chevrolet Spark, kom á miða nr. 1212. Það var Ástdís Björg Stefánsdóttir sem vann bifreiðina og fékk afhenta seint á Þorláksmessukvöld. Vinningstölurnar í ár voru: 1.vinningur: (Chevrolet Spark Bifreið) fór á miða nr. 1212 2.-17. vinningur: (Lenovo Ideapad spjaldtölvur) vinningar komu á eftirtalin númer: 717, 31, 1209, 1790, 1146, 1037, 479, 1840, 1077, 855, 1998, 664, 316, 873, 539, 609.

S

igvaldi Arnar Lárusson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, gerðist kokhraustur og spáði því að Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn íþróttamaður ársins 2014. „Hafi ég rangt fyrir mér skal ég hlaupa til Hofsóss næsta sumar,“ sagði Sigvaldi á fésbókinni skömmu fyrir kjörið. Sigvaldi Arnar Lárusson Sigvaldi bætti svo um betur og verðandi göngugarpur og Ari sagði: „Engin trú á karlinum? Elíasson frá Sporthúsinu í Ég mun hlaupa frá Keflavík að Reykjanesbæ. sjálfsögðu“. Spá Sigvalda var kolröng og framundan er hlaup frá Keflavík til Hofsóss. „Til að byrja með var ekki mikil meining á bakvið þetta. Ég get aldrei hlaupið þetta en ætla að reyna að koma mér á tveimur jafnfljótum bæði með göngu og hlaupum. Er ekki málið að gera bara eitthvað gott úr þessu fyrst maður getur aldrei haldið kjafti,“ sagði Sigvaldi í samtali við Víkurfréttir. Hann hefur nú ákveðið að láta verða að ferð á tveimur jafnfljótum á milli Keflavíkur og Hofsóss og er brottför áætluð í júní í sumar. Hann ætlar að nota ferðina til að safna fyrir góðum málstað. Hann ætlar að safna áheitum til stuðnings Umhyggju, sem er félag til stuðnings langveikum börnum. Sigvaldi fékk í vikunni stuðning frá Sporthúsinu í Reykjanesbæ sem hefur ákveðið að taka hann í þjálfun fyrir gönguna og hefur gefið honum árskort í líkamsræktina. Fleiri leggja Sigvalda lið eins og t.a.m. ÍAK einkaþjálfarinn Kristinn Ingi og þá er 66 Norður komið í hóp stuðningsaðila.


Sumarstörf 2015 Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtileg störf í alþjóðlegu starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða hluta- og heilsdagsstörf þar sem unnið er á vöktum. Ráðningartímabil eru misjöfn allt frá apríl – október. Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum að sækja undirbúningsnámskeið áður en til starfa kemur. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, hafi ríka þjónustulund, séu stundvísir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir. Reynsla á sviði flugafgreiðslu er kostur. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Sótt er um störfin rafrænt á www.airportassociates.com. Umsóknarfrestur er til 30. janúar 2015.

Eftirtalin störf eru í boði: Farþega- og farangursþjónusta Í starfinu felst m.a. innritun, byrðing og ýmis þjónusta við farþega. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg, tölvukunnátta og góð tungumálakunnátta. Lágmarksaldur 20 ár.

Flugvéla- og húsnæðisræsting Ökuréttindi, enskukunnátta. Lágmarksaldur 18 ár.

Fraktvöruhús Ökuréttindi, tölvukunnátta,enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár.

Frílager Tölvukunnátta, enskukunnátta, lyftararéttindi kostur. Lágmarksaldur 20 ár.

Hlaðdeild Ökuréttindi, enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár.

Hleðslueftirlit Í starfinu felst m.a. gerð hleðsluskráa, þjónusta við áhafnir og samræming gagna frá öðrum deildum. Stúdentspróf æskilegt, tölvukunnátta og góð enskukunnátta. Lágmarksaldur 20 ár. Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu. Meðal viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon, MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.


4

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

TEK AÐ MÉR ALLA ALMENNAR SMÍÐAR t.d. sólpallasmíði, húsaklæðningar, þök, uppsetningar á milliveggjum, innréttingum og inni- og útihurðum, parketlögn og fleira bæði stór og smá verk. Upplýsingar í síma 821 3185

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Minnisvarði um látna á Miðnesheiði

Sigurður Eiríksson og Guðmundur Sigurbergsson við hina nýju Grímsvörðu. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

- mannskæðasta heiði landsins

ATVINNA ÖRYGGISVÖRÐUR Í GAGNAVERI VERNE GLOBAL SECURITY GUARD AT VERNE GLOBAL DATA CENTER More informations at our website www.securitas.rada.is

Helstu verkefni: Hæfniskröfur: • Öryggisgæsla í gagnaveri • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Verne Global að Ásbrú. • Eftirlit með umferð manna og • Mjög góð enskukunnátta. bíla inn og út af svæðinu. • Góð almenn tölvukunnátta. • Eftirlitsferðir, vöktun • 25 ára aldurstakmark. eftirlitsmyndavéla og annarra kerfa. • Viðbrögð við frávikum. Nánari lýsingu er að finna á heimasíðunni www.securitas.rada.is og þar skal einnig sækja um starfið fyrir 15. janúar 2015. Allir umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði, prófskírteinum og gildum ökuréttindum í umsóknarferlinu, verði þess óskað. Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega og vera tilbúnir til þess að læra nýja og spennandi hluti.

G

rímsvarða hefur verið endurreist og er nú minnisvarði um þá sem látist hafa á Miðnesheiði. Varðan var afhjúpuð á Þorláksmessu en það var fyrir tilstuðlan þeirra Guðmundar Sigurbergssonar og Sigurðar Eiríkssonar að varðan var endurreist. Þeir Guðmundur og Sigurður eru áhugamenn um sögu Miðnesheiðar og hafa m.a. endurhlaðið vörður á þjóðleiðinni yfir heiðina. Miðnesheiði er mannskæðasta heiði landsins og í kirkjubókum á Útskálum eru nafngreindir næstum 60 einstaklingar sem orðið hafa úti á heiðinni í aldanna rás. Talið er að þeir séu mun fleiri. Nú er Miðnesheiði sakleysisleg

á að horfa en ástæða þess að svo margir hafa orðið úti þar er að heiðin veitir lítið skjól og þar eru fá kennileiti og því var auðvelt að villast þar á árum áður þegar hvergi sást til ljósa. Ekki er nema rétt einn og hálfur mánuður síðan rúmlega fertugur karlmaður varð úti á Miðnesheiði.

Mynd: Skúli Sigurðsson.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Guðmundsson, þjónustustjóri; skarphedinng@securitas.is

Securitas Reykjanesi

Hafnargötu 60, 230 Reykjanesbæ, s. 580 7000

GETUM BÆTT VIÐ OKKUR NÝJUM SUNDMÖNNUM Prufuæfingar fara fram laugardagana 10. og 17. janúar kl. 12:15 - 12:45 í Vatnaveröld.

Taka þarf með sér sundföt og handklæði. Þjálfari er á staðnum sem metur í hvaða hóp þú passar best. Allar upplýsingar eru á heimasíðunum undir „Vertu með“. keflavik.is/sund og umfn.is/sund Eftir prufuæfingu fer svo skráning fram á sömu síðum. Æfingar fara fram í sundlaugunum í Akurskóla, Njarðvíkurskóla, Vatnaveröld og Heiðarskóla.

VERTU Í BESTA ALDURSFLOKKALIÐI LANDSINS

Fjórir nýir slökkvibílar á Keflavíkurflugvöll

F

lugþjónustudeild Keflavíkurflugvallar hefur fengið fjóra nýja slökkvibifreiðar. Nýju slökkvibílarnir eru smíðaðir hjá pólska fyrirtækinu Wawrzaszek ISS í Bielsko-Biala. Grindurnar eru af gerðinni Scania en þeir eru af tveimur stærðum, sex hjóla og fjögurra hjóla, báðar með með 450 ha vél. Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia segir í samtali við Víkurfréttir að þetta sé ný kynslóð slökkvibíla með margvíslegum, nýstárlegum og tölvustýrðum búnaði. Nú stendur yfir þjálfun í meðferð og viðhaldi en bílarnir verða teknir í notkun í janúar.

Ísak tekur sæti Bjarkar B

æjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á þriðjudag að veita Björk Þorsteinsdóttur varabæjarfulltrúa lausn frá störfum í bæjarstjórn að eigin ósk út kjörtímabilið og mun Ísak Ernir Kristinsson sem er 9. maður á lista Sjálfstæðisflokksins taka sæti sem varabæjarfulltrúi og mun honum verða veitt kjörbréf. Hanna Björg Konráðsdóttir tekur sæti sem aðalmaður í atvinnuog hafnarráði í stað Bjarkar Þorsteins d óttur og var hún sjálfkjörin á fundinum. Þá kom tillaga um Jóhann Snorra Sigurbergsson sem aðalmann í umhverfis- og skipulagsráð í stað Guðmundar Péturssonar og var hann sjálfkjörinn.

„Þarf einhver að deyja?“ - spyr Ásmundur Friðriksson þingmaður í Garði vegna fasteignar í slæmu ástandi

LAGNAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA EHF Óskar eftir að ráða pípulagningarmeistara, svein eða mann vanan pípulögnum sem fyrst. Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið: lagnaths@simnet.is

„ Ég eins og margir íbúar í Garðinum og gestir veltum fyrir okkur hvort ekkert verði gert við til að varna stórslysi frá húsinu Vík. Þar hefur þakið verið í henglum í 3 ár. Ég var bæjarstjóri þegar þessi ósköp gerðust og málið var komið í farveg,“ segir Ásmundur Friðriksson alþingismaður og íbúi í Garði í færslu á Fésbókarsíðu sinni. Þar vekur hann athygli á slæmu ástandi íbúðarhúss í Garði. „Íbúar og gestir skilja ekkert í þeim seinagangi í þessu máli og hvernig íbúinn sem býr í húsinu getur búið samborgurum sínum upp á slíka hættu. Ábyrgð hans er algjör en sveitarfélagið hlýtur að taka til sinna ráða. Þarf einhver að deyja áður en lagfæringar verða gerðar á þaki hússins Vík, spyrja margir. Ég spyr líka,“ segir Ásmundur að endingu.


www.peugeot.is

peugeot

SENDIBÍLASÝNING LAUGARDAG MILLI KL. 12:00 OG 16:00

FRUMSÝNUM NÝJAN PEUGEOT BOXER PEUGEOT SENDIBÍLAR kosta frá kr.

2.048.387án VSK

Peugeot sendibílar eru með hleðslurými frá 2,5m3 - 13m3

Þú finnur okkur á

Bernhard Reykjanesbæ • Njarðarbraut 15 • 260 Reykjanesbæ, sími 421 7800

facebook.com/PeugeotIceland


6

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-ritstjórnarbréf

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

Páll Ketilsson skrifar

F

Tölum okkur upp

Í

Þrátt fyrir að Suðurnesjamenn hafi víða verið í framlínunni og staðið sig vel á mörgum sviðum í gegnum tíðina hefur mörgum, bæði heimamönnum sjálfum og öðrum, fundist neikvæður tónn vera mun háværari á undanförnum árum. Þessu þarf að breyta. Keflvíkingurinn Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra kemur inn á þetta í fyrsta þætti ársins hjá Sjónvarpi Víkurfrétta. Undir þetta tóku hinir viðmælendur þáttarins, þeir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri hjá Grindavíkurbæ.

Við á Víkurfréttum gerðum nærri fjörutíu hálftíma sjónvarpsþætti á síðasta ári en þar var eingöngu fjallað um góð málefni á Suðurnesjum. Stefnt er að því að halda framleiðslu þáttanna áfram en eitt af markmiðum okkar í þeim var að vekja athygli á svo mörgu jákvæðu og spennandi á Suðurnesjum, hér heima en einnig út fyrir svæðið og þar kom sjónvarpsstöðin ÍNN sterk inn. Þar eru þættirnir sýndir en einnig á vf.is og í Kapalsjónvarpinu í Reykjanesbæ. Við gáfum líka út fimmtíu tölublöð af Víkurfréttum, samtals á annað þúsund blaðsíður og birtum fimmþúsund fréttir á Víkurfréttavefnum, vf.is. Allt á árinu 2014. Við ætlum að nota þetta fréttafjör okkur til hvatningar um að halda áfram að segja frá fólki og fjöri á Suðurnesjum. Tala svæðið upp. Það er engin ástæða til annars.

Sólskálar Svalaskjól Gluggar og hurðir

hf Smiðsbúð 10 | 210 Garðabær Sími: 554 4300 | www.solskalar.is vf.is

SÍMI 421 0000

■■Hljóðfærasmiðurinn Þorkell virkjar leynda hæfileika sína í skúr við heimili sitt:

„Lesblindan hjálpar mér“ Þ

orkell Jósef Óskarsson, rúmlega fertugur Njarðvíkingur, tók upp á því fyrir tveimur árum að smíða hljóðfæri í skúrnum heima hjá sér. Í smíðarnar notar hann m.a. vindlakassa, hjólkoppa og göngustafi. Þorkell hefur þegar selt nokkur stykki en segist þó aðallega vera að þessu sér til ánægju. Hann segist þó vel getað hugsað sér að kenna börnum hljóðfærasmíði. „Það sem skiptir mestu máli í svona dútli er gítarhálsinn, bilið á milli haussins og kassans. Það á að vera svipað langt og á venjulegum gítar. Það er samt ekkert heilagt í þessu. Ég nota bara það sem er til,“ segir Þorkell, sem hefur komið sér vel fyrir í skúr við heimili sitt í Reykjanesbæ. Þar má m.a. finna stórt safn af vínylplötum, plötuspilara, hljóðkerfi og ýmsa muni og tól sem notuð eru við smíðarnar. Greinilegt er að Þorkell unir sér vel þarna við sköpun og gjarnan með blústónlist undir nálinni. Guðmundur Rúnar keypti tvo gítara Sumir gítaranna eru verðmerktir því þeir voru um tíma til sölu í verslun. Spurður um hvort fólk sé ekki að sækjast í hljófærin hjá honum segist Þorkell vera búinn að selja nokkra og gefa tvo. En um það hvort einhverjir þekktir tónlistarmenn hafi sýnt hljófærunum áhuga svarar hann kíminn: „Já alveg rosalega frægir!“ Hann vill þó ekki gefa út hvort slíkir hafi heldur komið í aðstöðuna til að prófa. „Ég hef farið til listamannsins Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar og hann hefur keypt af mér tvo gítara. Krummi vinur hans hefur líka keypt einn. Guðmundur Rúnar keypti Löduhjólkoppa-gítar, tveggja strengja og eins strengja úr göngustaf. Þeir ætla að nota gítarana og ætla líka að koma til mín aftur seinna og kaupa meira. Guðmundur Rúnar

vill endilega fá fleiri koppagítara,“ segir Þorkell. Langar að kenna börnum að smíða hljóðfæri Þorkell segist einnig hafa áhuga á að miðla þessari þekkingu sinni til barna. „Þetta er bara einn strengur og 'pick-up', þetta er ekkert flókið. Það yrði örugglega skemmtilegt að kenna krökkum að smíða svona. Sjálfur smíðaði hann fyrsta hljóðfærið 2012 og hefur smíðað þrettán. „Ég hef líka smíðað trommukassa, svokallað stompbox. Þá set ég 'pickup' í harðviðarkassa. Magnús, trommuleikarinn í ADHD, keypti trommukassann af mér. Hægt er að stompa á honum, lemja í hann og gera alls kyns hljóð. Svo setti ég líka gamlan gítarmagnara í eldgamlan búning - ferðatösku. Félagi minn, Ingvar í plötubúðinni Lucky Records, á hann núna. Þeir nota hana þar þegar spiluð er tónlist í búðinni.“ Vann lengst af sem smiður Þorkell á tíu einingar eftir til að klára nám í húsasmíði en hefir meira og minna alla tíð unnið sem smiður. Hann starfar núna sem öryggisvörður. „Ég er ekkert að spá í einhverja framtíð í þessum hljóðfærasmíðum. Ég hef aðallega gaman af þessu.“ Spurður um hvaðan þessir hæfileikar komi er Þorkell fljótur að svara: „Ég held

Ég er ekkert að spá í einhverja framtíð í þessum hljóðfærasmíðum. Ég hef aðallega gaman af þessu að það sé bara lesblindan, ég sé allt í þrívídd. Þess vegna á ég svona auðvelt með þetta. Ég sé hlutina á borðinu áður en ég smíða þá. Þekking á hljóðfærum þarf ekkert endilega að vera til staðar. Ég hef aldrei spáð í það, ég geri bara hlutina.“ Hann á enn töluvert af hráefni til að smíða í viðbót og kaupir það sem hann þarf m.a. á nytjamörkuðum. „Ég smíða líka kassa sjálfur og á töluvert af hjólkoppum,“ segir Þorkell og tekur einn þeirra upp. „Þessi er af gömlum Benz. Þetta verður einhvern tímann gítar.“

ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 72365 01/15

„Það er engin ástæða til að vera með neikvæðni. Það er svo margt jákvætt í gangi á Suðurnesjum,“ sagði Suðurnesja-ráðherrann og taldi svo upp mörg dæmi um ný atvinnuverkefni sem hafa farið í gang að undanförnu. Kjartan og Þorsteinn nefndu í uppbyggingu svæðisins eftir bankahrun hafi styrking menntakerfis haft mikið að segja sem og betri námsárangur almennt, m.a. í grunnskólum. Háskólasamfélag á Ásbrú sé svæðinu mjög mikilvægt sem og Fjölbrautaskóli og Fisktækniskóli í Grindavík. Með þungri sókn í ferðaþjónustu og fleiri tækifæra tengdum Helguvík og víðar sé framtíðin björt á Suðurnesjum. Atvinnuleysi er nú með því minnsta á svæðinu og nær allir sem vilja og geta unnið stendur til boða störf í hinum ýmsu greinum. Laun hafa farið hækkandi og starfsánægja einnig samkvæmt nýlegri könnun verkalýðsfélaganna.

S a

G

3

G

L

T v L T

K

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

*


FARSÆLT SAMBAND Í HÁLFA ÖLD

ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 72365 01/15

Stórsýning hjá Toyota Reykjanesbæ í tilefni af 50 ára afmæli Toyota á Íslandi

Glæsileg Land Cruiser 150 afmælisútgáfa 33" afmælisbreytingarpakki að verðmæti 750.000 kr. fylgir

Gjafabréf frá Icelandair til Evrópu með öllum nýjum Toyotum* LAUGARDAGINN 10. JANÚAR MILLI KL . 12 OG 16 HJÁ TOYOTA REYKJANESBÆ.

5 ÁRA ÁBYRGÐ

Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbæ Sími: 420-6600

*Gildir ekki með öðrum tilboðum. **Gildir ekki með öðrum tilboðum. Viðkomandi þarf að vera meðlimur í Icelandair Saga Club.

50

Komdu og fagnaðu með okkur farsælu sambandi í hálfa öld á laugardag.

0. ve 00 rð 0 V ný u r i l d j a d re a r To g pu yo i n n n tu ú k t a af r h a he óp f m nt i þ æ a ei lis í j rr v an a i n úa s e n i r* m f ng * á ur

Toyota-eigendur hafa í 25 ár gert Toyota að söluhæsta bíl landsins. Þeir eru betri helmingurinn í farsælu sambandi Toyota við landsmenn í hálfa öld. Til að fagna því hefjum við afmælisárið með stórsýningu sem skartar sérstakri afmælisútgáfu af Land Cruiser 150 ásamt veglegum 33" breytingarpakka. Auk þess fylgir gjafabréf frá Icelandair til Evrópu með öllum nýjum Toyotum og 500.000 Vildarpunktar frá Icelandair verða dregnir út meðal þeirra sem fá nýja Toyotu afhenta í janúar.


8

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR Milla Medic í Nettó og Páll Orri Pálsson frá VF drógu út hina heppnu á aðfangadag.

Starfsmaður í orkureikningagerð HS Veitur hf vantar nýjan liðsfélaga á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjanesbæ Helstu þættir starfsins eru: - Orkureikninga- og vatnsgjalda reiknisfærslur ásamt ýmsum leiðréttingum og breytingum. - Eftirlit með álestrum og viðeigandi aðgerðir eftir þörfum. - Svörun fyrirspurna notenda hvað varðar aflreikninga og tímamældar veitur. - Samskipti við boðgreiðslufyrirtæki. Sending og móttaka boðgreiðslu krafna. Hæfniskröfur: - Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, háskólamenntun æskileg. - Mjög góð reynsla í notkun tölvukerfa. - Stundvísi. - Skipulagshæfni og hæfni til að vinna undir álagi. - Samskiptahæfni og frumkvæði. HS Veitur hf varð til 1. desember 2008 þegar Hitaveitu Suðurnesja hf var skipt í HS Veitur hf og HS Orku hf. HS Veitur hf annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum og í Árborg. HS Veitur hf annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á Suðurnesjum og í Vestmanneyjum. Starfsstöðvar HS Veitna hf eru fjórar þ.e. í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og í Árborg. Hjá HS Veitum hf starfa 84 starfsmenn en auk þess eru ákveðnir starfsþættir keyptir af HS Orku hf. Sótt er um starfið á heimasíðu HS Veitna, www.hsveitur.is. Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2015.

HS VEITUR HF www.hsveitur.is

Laufey Sigfúsdóttir og Garðar Ingi Róbertsson unnu ferðavinninga með Icelandair frá VF. Miðana fengu þau í Nettó og Veiðikofanum.

Bryndís María fékk 100 þús. kr. Nettó vinninginn -Á sjötta þúsund vinningar runnu út í JÓLALUKKU VF í desember Keflavíkurmærin Bryndís María Kjartansdóttir vann stærsta vinninginn í úrdrætti Jólalukku Víkurfrétta, hundrað þúsund króna gjafabréf í Nettó en lokaúrdrátturinn var á aðfangadag. Um fimmtán þúsund miðar bárust í þrjár Samkaupsverslanir, Nettó í Njarðvík og Grindavík og í Kaskó. Þrír stærstu vinningarnir voru dregnir út auk á þriðja tug annarra vinninga. Heiðrún Rós Þórðardóttir, önnur Keflavíkurmær fékk árskort í Sporthúsinu á Ásbrú og Garðmaðurinn Sverrir Karlsson fékk Icelandair flugmiða frá Víkurfréttum en alls voru ellefu slíkir vinningar í Jólalukkunni. Átján aðilar voru með Jólalukku VF að þessu sinni og um fjörutíu aðrir gáfu vinninga. Heildarfjöldi vinninga var 5300 auk á fjórða tug úrdráttarvinninga. Af þessum rúmlega fimm þúsund vinningum voru m.a. 50 tommu sjónvarp frá Nettó auk margra annarra glæsilegra vinninga frá fjörutíu aðilum á Suðurnesjum. Víkurfréttir þakka samstarfsaðilum þátttökuna en þetta er í fjórtánda sinn sem Jólalukka VF er í gangi. Vinningshafar í þriðja úrdrætti:

80% - 93% ORKUSPARNAÐUR 50.000 TÍMA ENDING með Ledljósum frá okkur.

100 þús. kr. gjafabréf í Nettó: Bryndís María Kjartansdóttir, Hrauntúni 14, Keflavík. Árskort í Sporthúsinu: Heiðrún Rós Þórðardóttir, Reykjanesvegi 12, Njarðvík. Icelandair ferðavinningur frá Víkurfréttum: Sverrir Karlsson, Skagabraut 16, Garði. 10 þús. gjafabréf í Nettó Grindavík: Þórkatla Albertsdóttir, Suðurhópi 1, Grindavík Ólafur Þór Unnarsson, Hraunbraut, Grindavík

30w-300w Tunnuljós

30w-100w Útiljós

30w-150w Útiljós Frá kr. 29.568.-

Frá kr. 1.623.-

LED

Gangstíga-

Loftljós

Allar tegundir af perum.

Frá kr. 18.400.-

gróðurhúsaljós í öllum stærðum

Frá kr. 45.306.-

útiljós.

Perur fylgja með öllum ljósum.

Margar tegundir Frá kr. 1.211.-

Konfektkassi frá Nettó: Ólöf Björgvinsdóttir, Ásabraut 11, Sandgerði Gústav J. Daníelsson, Kjarrmói 8, Njarðvík Einar E. Ragnarsson, Bogabraut 5023, Ásbrú Andrzej Jurczak, Vesturbraut 3, Keflavík Svava G. Hólmbergsdóttir, Silfurtún 8, Garði Signý Ósk Marinósdóttir, Norðurvöllum 50, Keflavík Hrönn Ágústsdóttir, Hæðargötu 15, Njarðvík Dagga Lís Kjærnested, Kirkjuvegi 5, Keflavík Anita Liv Taylor, Mávatjörn 18, Njarðvík Ása Skúladóttir, Háaleiti 33, Keflavík Dagbjört Þórey, Akurbraut 20, Njarðvík Arnbjörn Eiríksson, Nýlenda 2, Sandgerði Ásdís Erla Guðjónsdóttir, Bragavellir 17, Keflavík Alda Sveinsdóttir, Skógarbraut 1113, Ásbrú Anna María Júníusdóttir, Austurgötu 7, Sandgerði Helga Birkisdóttir, Faxabraut 72, Keflavík Hans Helgason, Heiðarbraut 20, Keflavík Magnús Haraldsson, Suðurgötu 16, Keflavík Gréta Ingólfsdóttir, Sjafnarvöllum 9, Keflavík Anna Helga Gylfadóttir, Framnesvegi 70, Keflavík

Erla Valgeirsdóttir aðstoðarverslunarstjóri afhenti Bryndísi Kjartansdóttur 100 þús. kr. gjafabréfið.

9w-25w Flurljós

Verðdæmi 3w pera kr. 484.5w pera kr. 557.-

Jólaverslunin gekk ágætlega í Reykjanesbæ og voru lang flestir verslunareigendur ánægir með jólasöluna. Jólasveinar Betri bæjar og jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar settu svip sinn á jólafjörið síðustu dagana fyrir jól. www.flugvirkjun.is

Atvinnutækifæri um allan heim

6w-18w Loftljós

Frá kr. 1.288.-

5w-18w Úti-inniljós Frá kr. 1.717.-

3w Kertaperur Frá kr. 677.-

28w E40/E27

Flugvirkjanám Keilis hefst í janúar

Frá kr. 10.540.-

TILBOÐ Á LEDKÖSTURUM

20W Led kastari 10.391.-kr m/skinjara

30W Led kastari 11.546.-KR

60W Led kastari 32.200.-KR

100W Led kastari 29.760.-KR

Pó sts en du m Heildsala - Ludviksson ehf - Ledljós Hikið ekki við að gera verðsamanburð.

Njarðarbraut 3i - Njarðvík - Reykjanesbær S: 867 8911* 565 8911 - www.ledljos.com

KEILIR

ÁSBRÚ

578 4000

keilir.net


H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A — 1 4 - 2 8 3 0

Spennandi sumarstörf í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Við leitum að einstaklega þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. Óskað er eftir starfsfólki bæði í hluta- og heilsdagsstörf. Um vaktavinnu er að ræða.

Flugvernd

KEF-Parking

Þjónustuliðar

Starfið felst m.a. í vopna- og öryggisleit, ásamt eftirliti í flugstöðinni og á flughlöðum Keflavíkurflugvallar. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í maí og nýir umsækjendur þurfa að geta sótt átta daga námskeið áður en þeir hefja störf.

Starfið felst í almennri þjónustu og aðstoð við viðskiptavini á bílastæðum flugstöðvarinnar, auk umsjónar með farangurskerrum í og við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Starfið felst í þjónustu við farþega í brottfarar- og komusal flugstöðvarinnar, auk umsjónar og eftirlits með þjónustuborði.

Hæfniskröfur: • 20 ára aldurstakmark • Gott vald á íslenskri og enskri tungu, bæði rituðu

Hæfniskröfur: Hæfniskröfur:

• 20 ára aldurstakmark

• 18 ára aldurstakmark

• Gott vald á íslenskri og

• Gott vald á íslenskri og enskri tungu, bæði rituðu og mæltu máli

enskri tungu, bæði rituðu og mæltu máli • Góð þjónustulund

• Góð þjónustulund

Farþegaakstur á Keflavíkurflugvelli Starfið felst í akstri með flugfarþega, umsjón og umhirðu með svæðum við flugstöðina, auk umhirðu rútu og bíla. Hæfniskröfur: • Próf á hópferðabifreið er skilyrði • Vandvirkni og skipulagni nauðsynleg • Gott vald á íslenskri og enskri tungu • Góð þjónustulund

og mæltu máli • Rétt litaskynjun • Lágmark tveggja ára framhaldsnám eða sambærilegt nám • Góð þjónustulund

Vegna kröfu um reglugerð um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu. Nánari upplýsinga er að finna á heimasíðu Isavia, www.isavia.is. Auk þess þurfa allir umsækjendur að vera með hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar. Umsóknum skal skila inn rafrænt á heimasíðu Isavia, www.isavia.is/atvinna

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.


10

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

■■Kvaddi samstarfsfólk eftir 50 ár í húsnæði gamla Apóteks Keflavíkur:

Hreinsaði flöskur og taldi töflur S

íðasti vinnudagur Þórdísar Herbertsdóttur hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ var 30. desember síðastliðinn. Þá hafði hún starfað í sama húsinu, sem áður hýsti Apótek Keflavíkur, í 50 ár. Sama dag varð Þórdís 67 ára. Víkurfréttir mættu á staðinn og ræddu við Þórdísi og samstarfsfólk hennar, sem sagði hana mikinn prakkara og vildi með öllu móti hafa hana lengur.

fylla á mixtúrur og ýmislegt áður. Það var mjög mikil vinna. Nú kemur þetta allt tilbúið og það þarf ekkert að pæla í því,“ segir Þórdís og tekur fram að tímarnir hafi verið afar skemmtilegir. „Ég veit ýmislegt um heilsu

„Það er voðalega skrýtið að vera að hætta og þetta er skrýtinn dagur. Ég var búin að ákveða að hætta 67 ára og ætla ekki að breyta því þótt þau vilji hafa mig áfram til sjötugs,“ segir Þórdís og hlær. Hún segir að henni hafi fundist yndislegt að vinna í sama húsinu og ganga inn um sömu dyrnar í fimmtíu ár. „Hér er mjög gott fólk og fínir yfirmenn. Viðskiptavinirnir þekkja mig orðið svo vel líka. En svona er þetta líf. Nú taka við rólegheit og að lifa lífinu.“

fólks og er að sjálfsögðu bundin trúnaði gagnvart því. Þegar ég geng hér inn fer ég í annan gír og svo aftur þegar ég geng út. Ég skil vinnuna algjörlega eftir þar, það er mikilvægt að geta það.“

Byrjaði 13 ára Þegar Þórdís rifjar upp árin í vinnunni segir hún breytingarnar hafa orðið mjög miklar. „Í gamla daga var allt öðruvísi. Ég byrjaði á því að skola og þrífa lyfjaflöskur og önnur ílát þrettán ára með skóla. Svo vann ég mig upp í að sjá um vörurnar og endaði í versluninni. Við vorum að telja hérna töflur og

Samtals 211 ára Einnig segir Þórdís mikla breytingu hafa orðið þegar starfsmenn lærðu á afgreiðslukassana frammi í búð sem urðu æ tæknivæddari eftir því sem árin liðu. „Á tímabili slógum við inn allar upplýsingar á lyfjaglösin á límmiða með ritvélum. Núna er bara ýtt á takka og miðarnir eru tilbúnir.“ Auk

Þórdís við afgreiðsluborðið eins og margir þekkja hana.

Þórdísar hafa tvær konur starfað í 50 ár eða lengur hjá gamla apótekinu, þær Unnur Þorsteinsdóttir og Sólveig Guðmunda Sigfúsdóttir. Þær voru mættar í kveðjuhóf sem samstarfsfólk Þórdísar efndi til á síðasta starfsdegi hennar og hlógu mikið þegar þær rifjuðu upp skondin atvik frá gömlum tímum. Þær komust líka að því að samtals væri þríeykið 211 ára og fylgdi þeirri uppgötvun mikil hlátrasköll. Er mikill prakkari Blaðamaður bað nokkra samstarfsmenn um að lýsa Þórdísi í orðum. Það stóð ekki á svörum og voru þeir fyrst og fremst sammála um að hún hafi alla tíð verið mikill prakkari. „Ekki bara hér heldur líka utan vinnunnar. Hún stundaði það hér áður fyrr að hringja og þykjast vera læknir og láta óreynda lyfjafræðinga taka niður lyfseðla.“ Þórdís bætti hlæjandi við að eitt sinn hafði hún látið einn hlaupa apríl og hann hafi orðið svo reiður að hann elti hana um allt hús. Annar samstarfsmaður vildi meina að nauðsynlegt væri fyrir hvern vinnustað að hafa slíkan gleðigjafa innan borðs. „Þess vegna hef ég lagt mikið að henni að bæta við tíu árum hér. Hún er svo skemmtilegur samstarfsmaður, enda kornung manneskja. Hún lítur ekkert út fyrir að vera að fara á eftirlaun.“

25 þúsund gestir í Hljómahöll

S

amtals hafa 25.000 gestir heimsótt Hljómahöll þá mánuði sem húsið hefur verið opið. Hljómahöll og Rokksafn Íslands opnuðu formlega þann 5. apríl sl. „Opnunarhátíðin var glæsileg og hér var margt um manninn en um 2000 gestir heimsóttu Hljómahöll yfir opnunarhelgina. Margir listamenn komu fram og er það okkar einlæga ósk að bæjarbúar og allir aðrir gestir hafi skemmt sér vel, rétt eins og við. Þessi glæsilega opnunarhátíð setti svo tóninn fyrir næstu mánuði en um 25 þúsund manns hafa heimsótt Hljómahöll frá opnun. Þar af hafa tæplega 5000 manns heimsótt og greitt aðgangseyri á Rokksafn Íslands,“ segir Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar, í tilkynningu frá Hljómahöll. „Hingað koma ferðamenn hvaðanæva úr heiminum sem geta vart orða bundist yfir hinu glæsilega Rokksafni og okkar glæsilegu Hljómahöll. Það er gaman að segja frá því að safnið trónir nú efst á lista yfir viðkomustaði í Reykjanesbæ á ferðasíðunni TripAdvisor.com. Hingað koma einnig tónleikagestir en meðal þeirra listamanna sem hér hafa komið fram eru Snorri Helgason, hljómsveitin Ylja, KK, hljómsveitin Mammút, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben,

Júníus Meyvant, strengjakvartettinn Stilltur svo eitthvað sé nefnt. Uppselt hefur verið á fjölda viðburða og er óhætt að segja að viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum. Við munum að sjálfsögðu halda ótrauð áfram í að fá hingað listamenn sem gleðja og næra anda okkar Reykjanesbúa sem og annarra tónleikagesta,“ segir í tilkynningunni.

211 ára saman. Þórdís ásamt Unni Þorsteinsdóttur, Sólveigu Guðmundu Sigfúsdóttur og Sigurði Gestssyni apótekara.

Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30

Horft fram á veginn í Sjónvarpi Víkurfrétta

Þau Kjartan Már Kjartansson bæjarstóri Reykjanesbæjar, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar eru gestir Páls Ketilssonar í fyrsta þætti Sjónvarps Víkurfrétta 2015. Þar er horft fram á veginn og eins horft yfir farinn veg á Suðurnesjum. Þátturinn er á dagskrá ÍNN í kvöld kl. 21:30 Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta? Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á pket@vf.is


STÖRF HJÁ IGS 2015 Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins. IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf hjá fyrirtækinu. Um er að ræða störf í flugeldhúsi, cateringu, frílager, frakt, farþegaafgreiðslu, hlaðdeild, hleðslueftirliti, ræstideild og Saga biðstofa. Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveiganleika og árvekni. Unnið er á vöktum. Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið og standast próf, áður en til ráðningar kemur. Ráðningartími er breytilegur allt frá mars til nóvember 2015 og jafnvel lengur.

Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur: CATERING Starfið felst m.a. útkeyrslu og annarri tengdri þjónustu sem fer um borð í flugvélar. Aldurstakmark er 20 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunátta.

FARÞEGAAFGREIÐSLA Starfið felst m.a. í innritun farþega og annarri tengdri þjónustu við þá. Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði, góð tungumála- og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið.

FRÍLAGER Lágmarksaldur 20 ár, tölvu- og enskukunnátta.

HLAÐDEILD Lágmarksaldur 19 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunnátta.

ELDHÚS Lágmarksaldur 18 ár, íslensku- og/eða enskukunnátta.

RÆSTING FLUGVÉLA Lágmarksaldur 18 ár, almenn ökuréttindi, enskukunnátta.

SAGA BIÐSTOFA Lágmarksaldur 20 ár, góð tungumálakunnátta.

HLEÐSLUEFTIRLIT Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt, góð tungumálakunnátta og tölvukunnátta. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið.

FRAKTMIÐSTÖÐ Lágmarksaldur 19 ár, tölvukunnátta, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunnátta.

Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS sjá www.igs.is fyrir 15. febrúar 2015


12

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Krúttlegir bangsar í alla sjúkrabíla Á

ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR? SUNDÞJÁLFARI ÓSKAST!

Þróttur Vogum auglýsir eftir sundþjálfara fyrir yngri hópa. Við leitum eftir faglegum einstaklingi sem er tilbúin að vinna með okkur í uppbyggilegu starfi í Vogunum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið felst í almennri þjálfun, ásamt því að fara á mót. Reynsla af sundþjálfun og/eða menntun í íþróttafræðum er kostur. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2015 Frekari upplýsingar fást hjá framkvæmdastjóra félagsins í síma 868-5508 eða á netfangið throttur@throttur.net Umsóknir sendast á throttur@throttur.net

gamlársdag afhentu Keilismenn nýjar birgðir af böngsum til Brunavarna Suðurnesja en bangsarnir eru ætlaðir til huggunar fyrir þau börn sem þurfa á sjúkraflutningum að halda. Hefð er fyrir því að Kiwanisklúbburinn Keilir gefi bangsa til Brunavarna Suðurnesja, við síðustu afhendingu var tekin sú ákvörðun að gefa þá framvegis í nafni Ævars Guðmundssonar, fyrrverandi Keilismanns, sem lést árið 2008. Við það tækifæri var bangsi nefndur Ævar. Fjölskyldan hans styrkti verkefnið „Kiwanisklukkan“ á hringtorginu á gatnamótum Hafnargötu og Aðalgötu og síðan þá hefur verið afhentur styrkur í nafni hans. Eiður Ævarsson, forseti Keilis, sá um að afhenda bangsana en hann er einmitt sonur Ævars heitins.

Á meðfylgjandi mynd eru þeir Eiður og Bjarni Rúnar Rafnsson frá Brunavörnum Suðurnesja með bangsana góðu.

Greiða 20.000 króna frístundastyrk í Garði S

veitarfélagið Garður greiðir 20.000 króna frístundastyrk á ári til að auðvelda foreldrum að standa straum af kostnaði vegna þátttöku barna í frístundastarfi. Styrkurinn er til foreldra barna 4 16 ára, þ.e. þeirra barna sem verða 16 ára á árinu og eiga lögheimili í Garði. Greint er frá fyrirkomulagi styrkveitingarinnar á vef Sveitarfélagsins Garðs en þar segir m.a. að foreldri greiðir kostnaðinn og fær endurgreitt á bæjarskrifstofu Garðs gegn afhendingu frumrits kvittunar, allt að kr. 20.000 á árinu. Greitt er fyrir þátttöku í starfi

á vegum íþróttasamtaka, skóla eða annarra viðurkenndra aðila. Ef íþrótt, listgrein eða námskeið er í boði í Sveitarfélaginu Garði er frístundastyrkur greiddur fyrir kostnaði vegna þess, en styrkur er ekki greiddur ef iðkun á sér stað utan sveitarfélagsins. Ef íþrótt, listgrein eða námskeið er ekki í boði í Sveitarfélaginu Garði, er frístundastyrkur greiddur vegna þess, þótt svo iðkun fari fram utan sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um styrkinn er að finna á vef Sveitarfélagsins Garðs.

Fríar sjónmælingar með öllum seldum gleraugum Fá ekki bætt tjón á hafnarmannvirkjum XXErindi úrskurðarnefndar í vátryggingamálum vegna tjóns á hafnarmannvirkjum vegna bruna í báti í Sandgerðishöfn þann 13. júní sl. var tekið fyrir í bæjarráði Sandgerðis á dögnum. Samkvæmt áliti úrskurðarnefndar fellur viðkomandi atvik ekki undir vátryggingarskilmála og þegar af þeirri ástæðu nái gildissvið vátryggingarinnar ekki til tjóns Sandgerðishafnar. Málinu hefur verið vísað til hafnarráðs.

Hafna grófri vinnslu á jarðvegsúrgangi – á jarðvegstippnum ofan Byggðavegar í Sandgerði

Jóna Birna Ragnarsdóttir sjóntækjafræðingur

20% afsláttur af

umgjörðum og sólgleraugum

SÍMI 421 3811 –

XXBæjarráð Sandgerðisbæjar telur ekki rétt að samningur við Steintak ehf. um rekstur á jarðvegstippnum ofan Byggðavegar verði staðfestur. Rökin fyrir því eru af tvennum toga. Annars vegar telur bæjarráð hættu á að starfsemin myndi valda íbúum í nærliggjandi hverfi ónæði vegna hávaða, umferðar þungavinnutækja og rykmengunar. Hins vegar fellur starfsemin sem þar færi fram ekki vel að verkefninu Yndisgróður sem unnið hefur verið að undanfarin ár í samvinnu við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Bæjarráð Sandgerðis segir að með þessi sé ekki að leggja til að jarðvegstippurinn ofan Byggðavegar verði lagður af heldur er því hafnað að þar fari fram gróf vinnsla á jarðvegsúrgangi.


R E G LAEINSUN HR

& Sprengi

ÚTSALA okkar mesta úrval frá upphafi!

ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR

HANDVERKFÆRI 20-40% • VERKFÆRATÖSKUR 20-40% FLÍSAR 25% • VINNUFATNAÐUR MASCOT 25% • BÚSÁHÖLD 25% RAFMAGNSVERKFÆRI BLACK & DECKER OG WORX 20-30% ÚTIVISTARFATNAÐUR 30-70% • MASCOT VINNUFATNAÐUR 25% BARNABÍLSTÓLAR OG -ÖRYGGISVÖRUR 25% • JÓLAVÖRUR 40-70% POTTAPLÖNTUR 20-50% • VALDAR GJAFAVÖRUR 20-50% HREINLÆTISTÆKI 20-30% • SMÁRAFTÆKI RUSSELL HOBBS 30% SMÁRAFTÆKI BOMANN 25% • HEIMILISTÆKI 20% PARKET 20-25% • MOTTUR OG DREGLAR 25-35% MÁLNING 20-30% • INNIHURÐIR 20% LOFTA- OG VEGGJAÞILJUR 25% og margt fleira... LÆG S LÁGA TA VER Ð HÚSA SM IÐJU NNAR

*Afsláttur gildir eingöngu af útsöluvörum. Gildir ekki af vörum merktum „Lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“. Vöruúrval getur verið misjafnt milli verslana

D L Ö J G U VÖR

N I M U AFN RIR

Y F M U M RÝ ! M U R Ö V M NÝJU

HLUTI AF BYGMA

ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI SÍÐAN 1956


14

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Vistvænn Þór borar eftir orku á Reykjanesi Strætó ekur um Suður- HS Orka og Jarðboranir hafa undirritað verksamning vegna gufuöflunar

H

S Orka hf. og Jarðboranir hf. hafa undirritað verksamning um boranir vegna gufuöflunar fyrir jarðvarmavirkjanir HS Orku á Reykjanesi. Samningurinn teku til borunar á þremur borholum með möguleika á fimm holum til viðbótar. Að undangenginni verðkönnun sem HS Orka réðst í reyndist tilboð Jarðborana hagstæðast, því var ákveðið að ganga til samninga við fyrirtækið um verkið. Það er sérstaklega ánægjulegt við samstarfið að borinn Þór sem notaður verður við borverkefnið er alfarið knúinn með raforku sem framleidd er á vistvænan hátt í orkuverum HS Orku. Við þetta sparast vel á annað hundrað þúsund lítrar af jarðefnaeldsneyti á hverja borholu, sem er gríðarlega mikilvægt í umhverfislegu og efnahagslegu tilliti, segir í tilkynningu frá HS Orku. Framkvæmdir við verkið munu hefjast nú í desember. „Með þessu verkefni er markað mikilvægt skref í framtíðarrekstri orkuveranna og annarra fyrirtækja í Auðlindagarðinum í Svartsengi og á Reykjanesi, með sína fjölþættu starfsemi við margháttaða nýtingu jarðvarmaauðlindarinnar,“ segir

nes og til Reykjavíkur

S

Jarðborinn Þór á Reykjanesi.

trætó er byrjaður með akstur á milli þéttbýliskjarna á Suðurnesjum ásamt akstri til og frá höfuðborgarsvæðinu. Vagnarnir munu keyra til Reykjanesbæjar, Vogaafleggjara, Grindavíkur, Garðs, Sandgerðis og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Hægt er að kynna sér tímaáætlanir fyrir allar leiðir á strætó.is Farmiðar verða seldir á völdum stöðum í þéttbýliskjörnum á svæðinu. Einnig er hægt að greiða með debet- eða kreditkorti og reiðufé í vögnunum sjálfum. Á strætó.is (undir gjaldskrá) er reiknivél sem

hjálpar farþegum að finna út fjölda gjaldsvæða og reiknar út verð miðað við mismunandi greiðsluleiðir. Mismunandi gjaldsvæði eru á Suðurnesjum en sem dæmi má nefna eru 4 gjaldsvæði á milli Reykjavíkur og Reykjanesbæjar og kostar farið því 1400 kr. Markmið þjónustunnar er að bæta samgöngur íbúa á Suðurnesjum, bæði við höfuðborgarsvæðið og innan Suðurnesja. Nánari upplýsingar er hægt að finna á www. strætó.is eða hjá þjónustuveri Strætó í síma 540 2700.​​​

RAFVIRKJAR Óskum eftir rafvirkjum vegna aukinna verkefna, þurfa að geta unnið sjálfstætt.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku. „Jarðboranir eru afar ánægðar með að HS Orka hafi gengið að tilboði okkar um boranir á Reykjanesi. Félögin hafa átt í áratugalöngu samstarfi og verðmæt verkþekking orðið til hjá báðum félögum sem nú er hægt að halda áfram að

byggja upp. Við erum stolt að geta boðið félaginu rafmagnsborinn Þór sem fellur óneitanleg vel að hugmyndafræði HS Orku og Auðlindagarðsins um alhliða nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum“ segir Baldvin Þorsteinsson forstjóri Jarðborana.

Skattadagur Deloitte í Reykjanesbæ Morgunverðarfundur miðvikudaginn 14. janúar kl. 8.30-10.00 á Icelandair Hótel í Keflavík ...

Áhugaverður morgunverðarfundur um skattamál og helstu breytingar á nýju ári. Léttar veitingar í boði. Skráning á fundinn er á netfanginu sob@deloitte.is

...

Opnunarávarp Guðmundur Pétursson, formaður Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi Skattabreytingar Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte Nýsköpun, nýfjárfesting og gjaldeyrishöft Haraldur I. Birgisson, skatta- og lögfræðisvið Deloitte KSK og dótturfélög Skúli Þ. Skúlason, formaður KSK og stjórnarformaður Samkaupa hf. Fundarstjóri Anna Birgitta Geirfinnsdóttir, forstöðumaður Deloitte í Reykjanesbæ

Upplýsingar gefa: Hjörleifur S: 8939065, hjolli@nesraf.is Jón Ragnar S: 8979592, jon@nesraf.is


Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is

Fólk kemst í sitt besta líkamlega og andlega form:

CROSSFIT HENTAR ÖLLUM Þegar Sara Sigmundsdóttir, Crossfitþjálfari hjá Sporthúsinu í Reykjanesbæ, byrjaði í Crossfit hafði hún ekki mikinn bakgrunn í greininni. Þegar hún var yngri prófaði hún allar íþróttir en fann sig ekki í neinni en náði að tolla lengst í sundi (samanlagt 1-2 ár). Svo byrjaði hún 17 ára á Bootcamp námskeiði árið 2009 með það að markmiði að grennast en hugsaði ekkert um að komast í gott form. En svo kom í ljós að hún var eina stelpan sem gat gert armbeygjur á tánum (heilar þrjár) og fann að þar byrjaði keppnisskapið. Sara tók þátt í sínu fyrsta þrekmóti mars 2010 og var í næstsíðasta sæti. „Eftir það var ekki aftur snúið og ég ákvað ég að gefa allt í þetta og keppti á fleiri þrekmótum ásamt því að keppa í fitness. Árið 2012 kynntist ég Crossfit þar sem það var fyrsta mót þrekmótaraðarinnar á því ári. Ég vissi ekki mikið um Crossfit og gerði bara æfingarnar sem voru gefnar út fyrir mótið. Ég keppti og endaði í 2. sæti,“ segir Sara. Í kjölfar þess vildi Sara kynnast þessu betur og var boðið að taka þátt í undankeppni fyrir Evrópuleika í Crossfit-stöð í Reykjavík. Þessi undankeppni stóð yfir í fimm vikur. „Ég þurfti því miður að víkja frá keppni á 2. viku þar sem ég úlnliðsbrotnaði. Til þess að halda mér í formi og góðu mataræði ákvað ég að taka þátt í módelfitness. Ég fann þó að það var ekki minn farvegur og ákvað að halda áfram í Crossfit um leið og ég gæti. Ég byrjaði að stunda það einu sinni í viku í september 2012 en af krafti og daglega í janúar 2013. Komst síðan inn á Evrópuleika 2013 en datt út á fyrsta degi af þremur vegna reynsluleysis og meiðsla. Þá ákvað ég að reyna að keppa eins mikið og ég gæti til að safna reynslu og komast ennþá lengra og hef hreinlega ekki hætt að keppa síðan þá.“

6:05-6:50 6:05-6:50 9:05-10:00 9:05-10:00 10:05-10:35 12:05-13:00 12.05-13:00 17:00-18:00 17:30-18:30 17:30-18:30 17:30-18:30 18:10-19:10 18:30-19:30

10:00-11:00 11:00-12:00 11:05-12:05 12:10-13:10

Fullkomin aðstaða í Sporthúsinu Sara segir þegar hún byrjaði hjá Crossfit Suðurnes hafi hún loksins komist í fullkomna aðstöðu til að æfa og gera allar æfingar. „Það hefur það haft gífurleg áhrif en áður fyrr þurfti ég að keyra í bæinn til að geta tekið æfingar í góðri aðstöðu. Ekki nóg með að aðstaðan hjá okkur sé góð heldur hefur CrossFit Suðurnes fjölskyldan verið mér ómetanlegur stuðningur.“ Spurð um markmiðin í framtíðinni segist Sara vera að fara keppa á tveimur stórum mótum í janúar, annað mótið í Manchester og hitt í Boston. „Markmiðin þar eru bara að gera eins vel og ég get og fá meiri reynslu og komast á heimsleikana í Crossfit í júlí sem eru haldnir í Kaliforníu.“

Þátttakendur frá 17 ára og yfir fimmtugt C ro s s F it Su ð u r n e s hefur vaxið jafnt og þétt og iðkendafjöldi aukist samhliða því. Þegar það hófst voru um 50 manns með samning og í kringum 30 manns virkir að mæta á æfingar dags daglega. „Fjöldi iðkenda er í kringum 80-90 á hverjum degi. Flestir mæta þrisvar sinnum og alveg upp í sex sinnum í viku. Meiri aukning kallar á fleiri tíma í töflunni og komið hefur verið til móts við það.“ Einnig segir Sara að mjög vel hafi tekist að skapa gott andrúmsloft meðal fólks enda sé hópurinn mjög skemmtilegur. „Það er

Mánudagur Opið 5:50 - 22:00 Spinning Ásdís

Pilates Kristín Tabata Ásta Mjöll

Extreme Spinn Tinna/Maggi Foam Flex Ásta Mjöll

Spinning Freyja Hrund Bitt Lift Anna Karen

Body Fit Jónas Zumba Fitness Aneta Laugardagur Opið 8:00 - 18:00 Super Spinning Unnar og Kalli

Pallafjör Anna Karen Spinning Ásdís

Þriðjudagur Opið 5:50 - 22:00 Spinning Freyja Hrund Hot Toning Anna Karen Focus Fit Þrek Ásta Mjöll

Foam Flex Ásta Mjöll Extreme Spinn Kalli/Sigga

Fit Camp - Maggi Spinning Tinna Zumba Toning Aneta Foam Flex Maja Olsen Perfect Mix Sigga Fit Pilates Kristín Sunnudagur Opið 10:00 - 17:00

Foam Flex Maja Olsen

einfaldlega þannig að Crossfit hentar öllum. Ef manneskja sem kemur til okkar og hefur ekki verið í neinni þjálfun þá skölum við æfingarnar niður fyrir hana þannig að hún geti einnig tekið þátt. Viðkomandi gæti þá gert armbeygjur á hnjám eða með kassa undir höndunum í stað þess að gera þær á tánum.“ Markhópurinn sé því breiður en þáttakendur eru frá 17 ára aldri og alveg upp í 50+. Komast í besta form lífs síns „Þeir sem stunda Crossfit geta komist í besta form lífs síns en þá erum við ekki bara að tala um að auka þol og styrk heldur einnig að verða liðugri, ná betra jafnvægi, meiri sner pu, b etr i s amhæf ingu og jaf nvel orðið sterkari andlega þegar það kemur að æfingum ásamt mörgu fleira.“ Áherslur fólks og hvernig það lítur á hreyfingu geti líka breyst. „Hún fer þá úr því að vera sífellt að spá í hvernig maður lítur út yfir í að spá hvað maður getur og hvernig maður getur bætt getu sína,“ segir Sara. Crossfit er hægt að stunda á tvenna vegu, annars vegar sem líkamsrækt og hins vegar sem keppni. Keppnisgreinin Crossfit er mun erfiðari og ekki fyrir hvern sem er. Þeir sem hins vegar stunda líkamsræktina Crossfit gera ekki nærri því jafn erfiðar æfingar.

Félagsskapurinn og andinn ávallt góður „Ferillinn hjá okkur er þannig að allir fara á grunnnámskeið til þess að læra grunnatriðin í æfingunum og eftir það er hægt að stunda Crossfit æfingar. Þetta fyrirkomulag hefur reynst mjög vel. Til að skrá niður árangur fólks úr æfingunum sjálfum notum við kerfið Wodify sem er aðgengilegt í gegnum tvo skjái sem við höfum í salnum og hægt er að skrá árangurinn strax (en einnig fylgir app í símann). Wodify kerfið lætur mann svo vita hvort maður hafi bætt sig í æfingunum sem við gerum og mikil ánægja hefur skapast með kerfið. Það besta sem fólk fær út úr því að stunda Crossfit er þó án efa félagsskapurinn en andinn og mórallinn á æfingum er ávallt góður og þeim sem finnst gaman að stunda líkamsrækt í hóp munu finnast gaman í Crossfit,“ segir Sara að endingu.

Árangur Söru á mótum hingað til:

Árið 2014 Crossfit mót í London – 6. sæti

Norðurlandarmót í ólympískum lyftingum – 3. sæti

Undankeppni fyrir Evrópuleika – 6. sæti

Crossfit mót í Frakklandi – 1. sæti

Evrópuleikar í Crossfit haldnir í Danmörku – 12. sæti Crossfit mót á Kýpur – 2. sæti

Crossfit mót á Lanzarote spáni – 1. sæti Íslandsmeistaramót í Crossfit – 2. -3. sæti Crossfit mót á Ítaliu – 1.sæti

Miðvikudagur Opið 5:50 - 22:00 Spinning Kalli

Fimmtudagur Opið 5:50 - 22:00 Spinning Freyja Hrund

Föstudagur Opið 5:50 - 21:00 Spinning Ásdís

Fit Pilates Kristín Tabata Ásta Mjöll

Focus Fit Þrek Ásta Mjöll

Pilates Kristín Bosu Fit Ásta Mjöll

Extreme Spinn Maggi Bosu Fit Ásta Mjöll

Foam Flex Ásta Mjöll Extreme Spinn Ásdís

Spinning Tinna Pallafjör Anna Karen

Spinning Unnar/Maggi Shape Up Anna Karen

Pump Jónas Foam Flex Maja Olsen

Body Mix Sigga Foam Flex Maja Olsen

Mánudaga – föstudaga 8:45 – 13:15 og 16:00 – 20:00 Laugardaga 9:15 – 13:15 Sunnudaga Lokað

Extreme Spinn - Tinna Tabata Ásta Mjöll

Partý Spinning Freyja Hrund Zumba Fitness Aneta Foam Flex Maja Olsen


Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is

ÉG ER MJÖG STOLTUR ÞJÁLFARI Þitt Form með Freyju Sig. byrjaði í janúar 2013 sem hádegisnámskeið og fór rólega af stað. Það var fljótt að spyrjast út og bættust þá við morgun- og seinnipartsnámskeið. Freyja segist ótrúlega ánægð með þátttökuna á námskeiðunum og að hún sé hvatning til að halda áfram þessari braut og gera enn betur. „Núna hóf ég 15. námskeiðið sem byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skömmum tíma. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa allan líkamann. Um er að ræða gömlu, góðu stöðvaþjálfunina í bland við skemmtilegar nýjungar og skorpuþjálfun.“ Þitt Form er 6 vikna námskeið og æfingar eru þrisvar í viku. Freyja segir mestu ánægjuna meðal þeirra kvenna sem hafa sótt námskeiðið vera fjölbreytnina í hverjum tíma. „Enginn tími er eins og alltaf kemur eitthvað skemmtilegt á óvart sem í senn er krefjandi og skemmtilegt. Það gerir tímana ómissandi.“

Fyrir 16 til 60 ára Aldursbil þátttakenda er 16 og upp í 60 ára. Allar konurnar taka vel á því því og hver og ein fer í gegnum æfingar á sínum hraða með sínar þyngdir á lóðum o.s. frv. „Þannig fá allar sitt út úr hverjum einasta tíma og allar labba út með bros á vör,“ segir Freyja. Þrjú námskeið eru í boði, morgunnámskeið kl. 6, hádegisnámskeið kl.12:05 og seinnipartsnámskeið kl. 17. Það komast 45 komast á hvert námskeið, sem öll námskeið hafa verið full frá apríl 2013. Á Þ i t t Fo r m eru mælingar í byrjun og lok hvers námskeiðs fyrir þær sem vilja, mat ar prógrömm og ýmis annar fróðleikur um heilbrigt og gott mataræði og góða hreyfingu.

Fylgist vel með mætingu „Það hefur verið nóg að gera í þjálfun og núna síðastliðin tvö ár hefur Þitt Form átt allan minn áhuga, skipulag og tíma. Auk þess að vera gift fótboltamanni, sem þarf sinn tíma fyrir æfingar, á ég þrjá stráka, 11 ára, 7 ára og 5 ára, sem allir eru á fullu í fótbolta. Þannig að ekki er mikill tími aflögu til að stunda aukaæfingar,“ segir Freyja og brosir. Hún nýtir alla sína kunnáttu og reynslu frá fimleikum til fitnessþjálfunar, frá margra ár a e i n k a þjálfun/hópþjálfun í þjálfuninni á námskeiðinu. Hún hefur verið að vinna sem einkaþjálfari hér á landi frá árinu 2000 og einnig erlendis þegar ég bjó í

Noregi. Þar náði hún þeim frábæra árangri að verða fyrsti einkaþjálfarinn í Aalesund. „Þetta er alltaf jafn gaman og það er alltaf að koma eithvað nýtt inní þjálfunina sem ég er að nota. Ég hvet alla þátttakendur á námskeiðinu að mæta í alla tíma, ég er með mætingalista og fylgist vel með að stelpurnar séu að nýta sína tíma og eru að standa sig. Ég verðlauna síðan allar þær sem ná 100% mætingu í þessar 6 vikur og það er alveg magnað að sjá hvað þessar skvísur leggja sig 100% fram við að mæta á æfingu, leggja sig 100% fram á hverri æfingu og árangurinn er líka eftir því. Ég er mjög stoltur þjálfari.“ Góðir hlutir gerast hægt Freyja mælir með því að fara skynsamlega af stað í ræktina, taka eitt skref í einu og setja mörg lítil markmið. „Þá nærðu mun meiri árangri og árangurinn helst. Megrunarkúrar og aðrar skyndilausnir virka ekki, það er margsannað. Góð og skemmtileg hreyfing og að breyta mataræðinu hægt og rólega eru lykillinn að góðum árangri.“

„Enginn tími er eins og alltaf kemur eitthvað skemmtilegt á óvart sem í senn er krefjandi og skemmtilegt“

Um Freyju Freyja hefur verið í íþróttum frá því hún var lítil stelpa. Byrjaði í fimleikum og náði frábærum árangri þar, var m.a. í landsliði Íslands. Eftir fimleikaferilinn fór hún strax að keppa í fitnesskeppnum árið 1999 og byrjaði á því að vinna Íslandsmeistaratitil í fyrstu keppni, þá 17ára gömul. Freyja á 8 Íslandsmeistaratitla, 5 bikarmeistaratitla og vann silfurverðlaun á Norðurlandamóti 2008, silfur á evrópumeistara móti í fitness 2012 og fleiri verðlaun í Norðurlandakeppnum. Einnig hefur Freyja tekið þátt á heimsmeistaramóti og fleiri mótum. Frá árinu 2012 hefur hægt á þáttöku Freyju í keppnum hjá Freyju, en þá vann hún síðast Íslandsmeistaratitil og sama ár annað sæti á Evrópumeistaramóti. Bréf frá ánægðum viðskiptavini „Sæl Freyja. Ég hef verið að lesa umsagnirnar af námskeiðinu þínu Þitt form og er alveg heilluð. Ég bý í Reykjavík og var búin að ákveða að keyra í þessar 6 vikur til Keflavíkur og vera með í tímanum kl 06:00. Áhuginn er það mikill en þar sem það námskeið er orðið fullt langar mig að athuga hvort þú gætir sent mér línu þegar næsta námskeið byrjar svo ég missi nú ekki af því.“ Freyja segir ekki slæmt að skvísur frá höfuðborgarsvæðinu séu farnar að bruna brautina til að mæta á námskeiðið. Þessi var svo heppin að ein hætti við svo hún komst að.

Heilsustoð:

STUÐNINGUR TIL AUKINNA LÍFSGÆÐA Heilsustoð var stofnað í febrúar 2013 og er samstarfsverkefni Sporthússins, Sjúkraþjálfunarinnar Sporthúsinu í Kópavogi og Kírópraktorstofu Íslands. Markmið Heilsustoðar er að veita þjónustu á sviði líkamsþjálfunar fyrir einstaklinga og hópa sem þurfa á stuðningi fagfólks að halda eða vilja bæta líkamlega getu sína með stuðningi háskólamenntaðs fagfólks. Þjónustan hentar því vel þeim sem eru að ljúka meðferðum, hvort sem er hjá sjúkraþjálfara á stofu eða á stofnunum s.s. Reykjalundi, Grensás, Hveragerði o.s.frv. Heilsustoð ehf. býður upp á námskeið sem miða að því að efla almenna heilsu og hreyfigetu þeirra sem þurfa á endurhæfingu eða sérstökum stuðningi fagfólks að halda, eða vilja stuðning við að breyta um lífsstíl. Í boði eru fjölbreytt námskeið sem henta vel bæði

einstaklingum og hópum sem vilja auka líkamlegan styrk og virkni. Öll kennsla er í höndum fagfólks og eru gerðar ríkar kröfur til kennara félagsins hvað varðar gæði og ábyrgð. Þann 19.janúar nk. hefst námskeið hjá Heilsuklúbbnum sem er sex vikna námskeið fyrir þá sem ekki eiga við stoðkerfisvanda að stríða en vilja halda áfram uppbyggingu sinni úr öðrum úrræðum. Frábært tækifæri fyrir fólk að koma sér af stað undir leiðsögn Önnu Pálu Magnúsdóttur sjúkraþjálfara. Kennt er þrisvar í viku á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl.8:30 Heilsustoð er með starfsemi í Sporthúsinu í Reykjanesbæ og Kópavogi. Nánari upplýsingar og skráningar á netfangið heilsustod@ heilsustod.is

Líkami og Boost:

TILBÚNIR PRÓTEIN, SKYR OG BOOST DRYKKIR

Líkami og boost ehf. Tók til starfa í febrúar 2014. Verslunina rekur Ægir Þór og Ágústa Árna. Líkami og Boost selur tilbúna prótein og skyr boost drykki og eru það alls 15 drykkir sem fólk getur valið sér um svo allir ættu að geta fundð eitthvað við sitt hæfi á matseðlinum okkar. Einnig seljum við hágæða fæðubótaefni SciMX og leggjum við mikla áherslu á góða þjónustu og vinnu í að allir sem kaupa af

okkur fá ráðgjöf og efni sem sniðið er að þeirra markmiðum. Einnig seljum við allskyns auka dót sem tengist líkamsrækt nuddrúllur, nuddbolta, strappa, úlnliðsbönd, yoga dýnur, foamflex rúllur, promixx blandara og margt fleira. Líkami og boost er staðsett í Sporthúsinu Ásbrú. Líkami&Boost Í hraustum líkama.


SUPERFORM ÁSKORUN 2015 HEFST MÁNUDAGINN 12. JANÚAR Áskorun sem skilar árangri. Opinn kynningarfundur í kvöld, fimmtudaginn 8. janúar kl. 20:00 í Sporthúsinu. Allir velkomnir.

HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA YFIR EIN MILLJÓN KRÓNA KORT 2X ÁRS FORM Í SUPER THÚSIÐ R O P S OG

0.000, KR. 20 ÖRÐUM H N I E B Í UM PENING

.000,0 0 2 . KR FRÁ ÚTTEKT NIKE

ÖLDA AUK FJ A ANNAR GA VINNIN

Á

NÁNARI AR UPPLÝSING SID.IS U H T R O P S WWW.

Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is


Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is

„STÖÐUGT VERIÐ AÐ BÆTA ÞJÓNUSTUNA“

Sporthúsið í Reykjanesbæ hefur nú sitt þriðja starfsár en stöðin opnaði með pompi og prakt þann 15. september 2012. Allt frá opnun hefur Sporthúsið iðað af lífi og greinilegt er að Suðurnesjamenn og -konur kunna vel að meta það sem við bjóðum upp á. Við erum kannski ekki brautryðjendur í líkamsrækt en þó má segja að á Suðurnesjum hafi orðið talsverð vitundarvakning í líkamsrækt með tilkomu Sporthússins. Margt fólk sem stundaði líkamsrækt áður fyrr fór aftur af stað og jafnframt tók gríðarlegur fjöldi fólks sín fyrstu skref hjá okkur frá því að við opnuðum haustið 2012. Frá opnun höfum við stöðugt verið að bæta þjónustuna með enn betri og breyttri aðstöðu til iðkunnar líkamsræktar. Haustið 2013 tókum við til notkunar splunkunýja tækjalínu frá Technogym á Ítalíu, langstærsta og jafnframt þekktasta framleiðanda líkamsræktartækja í heiminum. Einnig bættum við þá inn miklum búnaði í Crossfit þegar við keyptum fyrri rekstraraðila út.

Hóptímataflan okkar hefur mælst einstaklega vel fyrir hjá viðskiptavinum okkar sem geta valið um allt að 50 tíma í hverri viku þegar mest lætur. Þá eru námskeiðin okkar, svo sem Crossfit, Superform, Þitt Form og HotYoga, mjög vinsæl og sífellt fjölgar í þeim. Barnagæslan Krílabær er hefur notið mikilla vinsælda hjá krökkunum en hún er opin á morgnana og fram yfir hádegi, og síðan aftur seinni partinn. Helsti styrkur Sporthússins felst þó í því frábæra starfsfólki sem við erum svo lánsöm að hafa. Það er fólkið sem skapar þá stemningu og andrúmsloft sem er að finna innan veggja okkar og leiðir þannig af sér ánægða viðskiptavini. Í dag starfa yfir 50 manns í Sporthúsinu, ýmist í aðalstarfi, hlutastarfi eða við þjálfun. Samstarf okkar við Íþróttaskóla Keilis hefur gengið vonum framar og fer öll verkleg kennsla fram í Sporthúsinu. Í dag starfa margir þjálfarar hjá okkur sem lokið hafa ÍAK þjálfunargráðu frá Keili og fer þeim fjölgandi.

Markið Sporthússins er að bjóða upp á framúrskarandi aðstöðu fyrir þá sem vilja ná árangri með æfingum og líkamsrækt. Okkar áhersla er á jákvætt og gott viðmót starfsfólks, góðan tækjabúnað, hreinlæti og regluleg þrif, jákvæða upplifun viðskiptavina og árangur. Einnig er sérstaklega gaman að taka á móti fólki sem æfði hér áður fyrr í „gamla“ íþróttahúsinu á Vellinum og sýna því þær vel heppnuðu breytingar sem gerðar voru á húsnæðinu. Fólk er oft agndofa yfir þessu, sérstaklega Bandaríkjamenn sem hafa komið við í heimsókn sinni til landsins og skoðað sinn gamla vinnustað sem nú nefnist Ásbrú. Þeir eru orðlausir með vel heppnað verkefni sem hér hefur átt sér stað með gamla herstöð. Við hvetjum alla til þess að koma og skoða hjá okkur aðstöðuna og mun starfsfólk okkar taka vel á móti gestum. Í Sporthúsinu geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. F.h. Sporthússins, Ari Elíasson.

Superform er í senn einkaþjálfun og hópaþjálfun:

Metnaður þjálfara smitast til þátttakenda Sævar Ingi Borgarson er með Superform námskeið í Sporthúsinu í Reykjanebæ og segir það sannarlega vera fyrir alla. Honum fannst á sínum tíma vera þörf á hópatímum sem legðu meira upp úr styrktarþjálfun og mótun. Einnig hefur Sævar verið að einkaþjálfa síðastliðin 14 ár og langaði að setja upp tíma þar sem fólki liði eins og það væri í einkaþjálfun þrátt fyrir að vera í hópaþjálfun. „Ég vil að fólk finni fyrir því að ég sem þjálfari sé að leiðbeina fólki hvernig á að gera æfingarnar með mjög góðu formi og að það finni að ég setji kröfur á að þau gera æfingarnar vel og leggi á sig vinnu. Því þegar fólk finnur fyrir metnaði þjálfarans þá smitar það fólkið sem er hjá honum og það fer að setja kröfur á sjálft sig,“ segir Sævar, sem er með mikla fjölbreytni í æfingum og uppsetningin sé gerð þannig að allir geti verið saman. „Við stillum allar æfingar þannig að það er hægt að gera þær í lágu erfiðleikastigi upp í hátt erfiðleikastig.“ Þegar Sævar byrjaði að setja upp Superform námskeiðið setti hann nokkur markmið á blað sem honum fannst mikilvæg fyrir gæði Superformsins: 1. Gaman, það endist engin/n í líkamsrækt sem er leiðinleg og ef það er gaman þá hlakka allir til að koma til þín. 2. Fjölbreytni í æfingum og uppsetningu á tímunum. Ef fólk hefur á tilfinningunni að það viti aldrei hvað það er að fara að gera og hlakkar til, þá verður alltaf gaman. 3. Leiðbeina öllum að gera æfingarnar mjög vel. Þannig minnkar áhætta á meiðslum, fleiri geta stundað Superform og þannig komið í einkaþjálfun í hópaþjálfun.

4. Búa til stóran og samheldinn hóp sem finnst gaman að æfa og vera saman. Superform námskeiðin sem hófust núna eftir áramótin byggjast á 12 tímum á viku, 3 á morgnana, 4 í hádeginu, 4 seinnipartinn og 1 tíma á laugardögum þar sem meira er sprellað. Hentar vel vaktavinnufólki „Þú getur valið að mæta hvenær sem er og eins oft eins og þú vilt. Þetta hentar öllum og sérstaklega vaktavinnufólki. Við byrjum alltaf á virkri upphitun sem gengur út á að auka liðleika, virkja vöðva og fyrir æfingar tímans. Mjaðmirnar eru mjög oft í lykilhlutverki hvað þetta varðar,“ segir Sævar. Eftir upphitun eru útskýrðar æfingar dagsins og uppsetning á tímanum. „Í æfingunum eru sýndar nokkrar útfærslur af sömu æfingunni þannig að allir geti verið með. Þaðan er farið í æfingar dagsins. Í lokin er farið í smá core eða finish þjálfun og teygt lokin.“ Áskorendakeppni og mætingakeppni Þegar Sævar er spurður um hvernig árið sé planað hjá Superform segir hann að byrjað verði á áskorendakeppni næsta mánudag sem standi yfir í 12 vikur og endi með stóru partýi. Í framhaldinu verður einhver fyrstur í 50 mætinga keppni. „Svo erum við að skoða að vera með Superform keppni, fyrir þá sem vilja og hafa metnað til að keppa. Það verður alveg sjálfstæð keppni og þeir sem vilja ekki keppa halda bara sínu striki í tímunum okkar og þeir sem vilja gera meira einbeita sér að því. Ef af verður þá náum við að þjónusta okkar mjög breiða hóp og aldrei að vita nema að við sjáum kannski kannski eitthvað af okkar fólki í þrekmótaröðinni,“ segir Sævar.

„Þegar fólk finnur fyrir metnaði þjálfarans þá smitar það fólkið sem er hjá honum og það fer að setja kröfur á sjálft sig“

KAUPAUKI FYLGIR ÖLLUM 12 MÁNAÐA SAMNINGUM Reykjanesbæ & Kópavogi

Tveir 3ja daga gestapassar

1 tími í Collagen

1 tími í ljós

Heilsubaka eða naanwich

Tími í tennis

Réttur dagsins

Lasertag fyrir tvo

Kjúklingasalat og Toppur

Heilsuréttur

Sportþrenna frá LÝSI

Heimalöguð súpa með brauði

Hádegisverður

Reykjanesbæ & Kópavogi

Brúsi og tími með einkaþjálfara

Hleðsla frá MS

Réttur 65 Gildir frá 1 sept 2014 til 31 maí 2015

Höfðatorgi

Kjúklingasalat & Kristall

Kjúklingasalat

Smoothie

Lítill skyrdrykkur

Rúlla vikunnar

Boost vikunnar

Reykjanesbæ & Kópavogi


VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. janúar 2015

Skráning er hafin á ný námskeið hjá Gargandi snilld. Byrjum miðvikudaginn 21. janúar.

Leikur, söngur, glens og gleði. Byrjenda- og framhaldsnámskeið

(einnig eru námskeið í boði fyrir lengra komna).

Kennt verður á miðvikudögum, klukkutíma í senn í 8 vikur.

Takmarkaður fjöldi í hvern hóp. Allar nánari upplýsingar í síma 869 1006. - Guðný Kristjánsdóttir.

Skráning á www.gargandisnilld.is.

JÓLADAGAR Í REYKJANESBÆ

ÞAKKA FYRIR SIG! Samtökin Betri bær óska Suðurnesjamönnum öllum farsældar á nýju ári. Þökkum jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Skyrgámi samstarfið í desember. Færum öllum aðilum sem studdu verkefnið „Jóladagar í Reykjanesbæ“ bestu þakkir.

19


20

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu hilmar@vf.is

Sara Lind með fjölskyldu sinni eftir útskriftarhátíðina í FS.

■■Fjölbrautaskóli Suðurnesja:

SARA LIND DÚX S

ara Lind Ingvarsdóttir var dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja á haustönn 2014 en útskrift var á sal FS fyrir jól. Mjótt var á mununum hjá efstu nemendunum því Alexía Rós Viktorsdóttir var með aðeins þremur hundruðustu lægri meðaleinkunn en Sara. Stærstur hluti stúdenta í þessum hópi var að ljúka stúdentsprófi á þremur og hálfu ári og árangur var afar góður. Að þessu sinni útskrifaðist 61 nemandi; 53 stúdentar, einn af starfsbraut, fimm úr verknámi og fjórir úr starfsnámi. Nokkrir útskrifuðust af tveimur brautum. Konur voru 36 og karlar 25. Alls komu 47 úr Reykjanesbæ, 8 úr Grindavík, 3 úr Sandgerði, tveir úr Vogum og einn úr Garði. Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Arna Lind Kristinsdóttir og Haraldur Jónsson fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda, Erla Sigurjónsdóttir og Hafdís Birta Johansson fyrir ensku, Jón Ágúst Guðmundsson fyrir efnafræði, Guðrún Eva Níelsdóttir fyrir sálar- og uppeldisfræði og Elín Sara Færseth fyrir bókfærslu. Sigurlaug Herdís Friðriksdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði hjá nemanda á félagsfræðibraut og Domínika Wróblewska fékk gjöf frá þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku. Hera Ketilsdóttir fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn í sálar- og uppeldisfræði og spænsku og Thelma Hrund Tryggvadóttir fyrir bókfærslu og góðan árangur í viðskipta- og hagfræðigreinum. Kristófer Sigurðsson fékk verðlaun fyrir spænsku og stærðfræði og hann fékk einnig gjafir frá Verkfræðistofu Suðurnesja og Íslenska stærðfræðifélaginu fyrir árangur sinn í stærðfræði. Skapti Benjamín Jónsson fékk viðurkenningar fyrir stærðfræði, ensku og spænsku. Þá fékk Andrea Björt Ólafsdóttir sex viðurkenningar fyrir námsárangur sinn, fyrir ensku, spænsku, líffæra- og lífeðlisfræði, efnafræði og stærðfærði og frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir árangur sinn í líffræði. Sara Lind Ingvarsdóttir hlaut viðurkenningar fyrir árangur sinn í efnafræði, stærðfræði, ensku og spænsku. Þá fékk hún gjafir frá Verkfræðistofu Suðurnesja og Íslenska stærðfræðifélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði og frá Danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku. Sara Lind fékk einnig gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í erlendum tungu-

málum. Alexía Rós Viktorsdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan námsárangur í efnafræði, stærðfræði, ensku og spænsku. Alexía fékk gjafir frá Verkfræðistofu Suðurnesja og Íslenska stærðfræðifélaginu fyrir árangur í stærðfræði og frá Danska sendiráðinu fyrir góðan árangur í dönsku. Hún fékk síðan verðlaun frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í erlendum tungumálum og einnig fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur til þess nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Sara Lind Ingvarsdóttir styrkinn. Sara Lind fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum. Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktar-

sjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita útskriftarnemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þær Elín Pálsdóttir, Katrín Lóa Sigurðardóttir, Selma Rut Ómarsdóttir og Karen Ýr Eysteinsdóttir fengu allar 20.000 kr. styrk fyrir góða frammistöðu í lífsleikni og ræðumennsku. Við lok athafnarinnar veitti skólameistari Birni Sturlaugssyni gullmerki FS en hann hefur starfað við skólann í 25 ár.

Þær Elín Pálsdóttir, Katrín Lóa Sigurðardóttir, Selma Rut Ómarsdóttir og Karen Ýr Eysteinsdóttir fengu allar 20.000 kr. styrk fyrir góða frammistöðu í lífsleikni og ræðumennsku úr styrktarsjóði FS. Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti styrkina.

Árangur var mjög góður og verðlaunahópurinn því stór.

Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu fiskeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða sandhverfu, flúru og styrju. Stolt Sea Farm rekur fiskeldií 6 löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi. Stolt Sea Farm á Íslandi hefur þegar hafið uppbyggingu á 2000 tonna eldi á senegalflúru á Reykjanesi og er uppbygging þess vel á veg komin. Áætlað er að fyrsti fiskurinn verði seldur í febrúar 2015 og að uppbyggingu verði endanlega lokið 2018.

Stolt Sea Farm leitar að áhugasömu almennu starfsfólki í fiskeldisstöð fyrirtækisins á Reykjanesi. Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum, duglegum og útsjónarsömum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu á nýju fyrirtæki. Starfsreynsla í fiskeldi, fiskvinnslu og/eða sjómennsku er góður grunnur. Öllum umsóknum verður svarað. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á ssficeland@stolt.com


Kræsingar & kostakjör

sætar kartöflur Kílóverð Verð áður 413-

207,-

-45%

grísahakk frá stjörnugrís Kílóverð Verð áður 1.347,-

741,-

-50%

bleikjuflök m/roði og beini frystivara Kílóverð Verð áður 2.398,-

1.990,-31%

great taste jarðarber 1kg Kílóverð

kjúklingalundir 700gr dansKar poKaverð Verð áður 1.761,-

Þorskhnakkar roð & beinlausir, frystivara Kílóverð Verð áður 1.858-

ýsuflök, roð & beinlaus frystivara Kílóverð Verð áður 1.761,-

grandiosa Pizzur 480-575 gr Kjöt+lauK/nacho/pep styKKjaverð Verð áður 789,-

-40%

399,-

1.057,-

rauðsPrettuflök ódýrt f. heimlið, frystivara Kílóverð Verð áður 1.035,-

797,-

1.282,-

1.391,-

698,1,36kg

1,36kg

1,81kg

1,36kg Wyman’s frystivara berjablanda+grænkál /bláber

earth’s Pride frystivara berjablanda/brokkolí

AmerísKir risapokar

cooP sPínat heilt 450g poKi

199,-

Tilboðin gilda 08. - 11. janúar 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.


22

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

ANNO 2014 FYRRI HLUTI

Í sturtu undir húsvegg Frístundahús á Suðurnesjum komst í fréttirnar á árinu þegar fréttist að húsráðandi væri með steypibað utandyra. Þar tíðkast sem sagt að skola af sér ferðarykið úti undir berum himni eins og sést á mynd sem fylgdi með umfjölluninni.

Tugþúsundir skoða norðurljós á Suðurnesjum Skipulegar norðurljósaferðir eru farnar til Suðurnesja sem tugþúsundir ferðamanna sækja í. Ferðamenn frá Asíu eru einnig áberandi hér á landi yfir dimmustu mánuðina til að verða vitni af því sjónarspili þegar norðurljósin dansa um himinhvolfið. Ljósmyndari Víkurfrétta náði þessari mögnuðu norðurljósamynd yfir byggðinni í Reykjanesbæ.

Þörungar í fæðubót Líftæknifyrirtækið Algalíf opnaði á árinu. Fyrirtækið framleiðir örþörunga á Ásbrú en framleiðslan er notuð í fæðubótarefni sem skortur er á í heiminum.

Hélt á brú milli heimsálfa „Það er frábært að fá svona hugmyndir frá íbúum og koma þeim í framkvæmd,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri Reykjanes Geopark. Daniel Alexandersson, 13 ára nemi í 8. bekk Akurskóla fékk þá hugmynd að „halda á Brú milli heimsálfa“ og lét hann föður sinn taka af sér mynd þar sem hann hélt á brúnni. Hugmyndin sló í gegn og hafa margir látið taka mynd af sér eins og Daníel þegar hann stillti sér upp fyrir föður sinn.

Féll í miklu óveðri

Kílóum fargað á Ásbrú Eyþór Árni Úlfarsson var eini Suðurnesjamaðurinn í þáttunum Biggest Looser Ísland sem framleiddir voru á Ásbrú. Eyþór var í viðtali við Víkurfréttir í ársbyrjun. Hann náði langt í keppninni um kílóin þó svo hann kæmist ekki í úrslit. Hann losaði sig við tugi kílóa. Framleiðendur þáttanna voru ánægðir með þá aðstöðu sem þeir fengu á Ásbrú til framleiðslu þáttanna en atriði voru einnig tekin upp víðar um Suðurnes. Önnur þáttaröð Biggest Looser en í framleiðslu um þessar mundir og aftur eru Suðurnes heimavöllur keppninnar.

Vond veður voru áberandi á árinu. Það blés oft hraustlega og björgunarsveitir höfðu í nógu að snúast. Í einu veðrinu fauk fjarskipamastur á Ásbrú um koll þannig að þjónusta við GSM síma var skert um stund. Nýtt mastur hefur verið reist á rústum þess sem féll og Suðurnesjamenn geta haldið áfram að tala í gemsana sína.

Ferskir vindar í heimspressunni Listaverkefnið Ferskir vindar var haldið í Garðinum á árinu en Ferskir vindar hafa verið haldnir þar reglulega síðustu ár. Verkefnið vakti heimsathygli og endaði m.a. í heimspressunni þar sem sjá mátti græna konu í fjörunni á Garðskaga.

Tómlegt á Garðvangi

Enn brennur Fernanda

Garðmenn voru ósáttir á árinu þegar hjúkrunarheimilinu Garðvangi var lokað og vistmenn fluttir til Reykjanesbæjar í nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu að Nesvöllum. Á myndinni má sjá Finnboga Björnsson, framkvæmdastjóra Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum, þar sem hann er einn og yfirgefinn á Garðvangi með fjölda tómra stóla á samkomusal heimilisins.

Flutningaskipið Fernanda endaði lífdaga sína á Suðurnesjum á árinu. Eftir að hafa orðið eldi að bráð á leið til landsins var skipið dregið til Helguvíkur þar sem það var rifið í brotajárn. Menn voru langt komnir með að rífa skipið þegar enn og aftur kom upp eldur í skipinu. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja réðu niðurlögum eldsins.

Ungmennagarður í Reykjanesbæ Klemenz maður ársins Klemenz Sæmundsson var valinn maður ársins 2013 og var valið tilkynnt í ársbyrjun. Klemmi tókst á við mikla þrekraun þegar hann hjólaði hringinn í krinum Ísland á örfáum dögum og hljóp svo „Klemmann“, 23 km. hring frá Keflavík um Sandgerði og Garð með endastöð í Keflavík. Með þessu uppátæki safnaði hann fé fyrir gott málefni.

Að Hafnargötu 88 í Reykjanesbæ opnaði nýr og skemmtilegur ungmennagarður í vor. Garðurinn er skipulagður eftir hugmyndum ungmenna í Reykjanesbæ.

Engir pungar, bara vöfflur Flugvirkjar og annað starfsfólk í viðhaldsstöð ITS við Keflavíkurflugvöll fékk ekki súra punga á bóndadaginn. Þess í stað voru bakaðar vöfflur og boðið upp á sultu og rjóma í tilefni bóndadagsins.

Tóku Miðtúnsróló í fóstur Nemendur Myllubakkaskóla tóku Miðtúnsróló í Keflavík í fóstur á árinu. Þar er hugmyndin að Myllubakkaskóli verði með sitt útikennslustæði.

Risa Fender á Rokkasafni Rokksafn Íslands opnaði í Hjómahöll á árinu. Meðal sýningarmuna er risastór sex strengja Fendergítar. Aðeins þurfti að hressa upp á gripinn áður en hann var hengdur upp og hér má sjá Ólaf Júlíusson málara með pensilinn á lofti.

40 ára afmæli í Grindavík Grindavík fagnaði 40 ára kaupstaðarafmæli í vor. M.a. var haldinn hátíðarfundur í bæjarstjórn Grindavíkur þar sem forseti Íslands var heiðursgestur. Á myndinni má sjá hvar Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri, er undirbúinn fyrir fundinn.


L&H-Nicotinell Fruit-20%-Vikurfrettir copy.pdf

1

29/12/14

10:51

Lyfjaauglýsing

20% afsláttur

Allar stærðir og styrkleikar Gildir til 31. janúar


GJALDSKRÁ REYKJ Gjaldskrá Reykjanesbæjar

2015

Útsvar

15.05%

Matargjald leikskólabarna

8,120

Gjaldið skiptist eftirfarandi:

Fasteignaskattur, hlutfall af heildarfasteignamati: Íbúðarhúsnæði, A-stofn

0.50%

Opinberar byggingar, B-stofn

1.32%

Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði, C-stofn

1.65%

Hesthús

0.50%

Lóðarleiga: Hlutfall af lóðarmati

Leikskólar frh:

2.00%

- 35% afsláttur til þeirra sem greiða 2%

- Morgunhressing, kr. / mán

2,050

- Hádegismatur, kr. / mán

4,020

- Síðdegishressing, kr. / mán

2,050

Skýringar á forgangi og / eða niðurgreiðslum: Forgangur og/eða niðurgreiðslur leikskólagjalda fyrir eitt og / eða öll eftirtalin atriði: - Börn einstæðra foreldra - Börn þar sem annað foreldri er í fullu dagnámi (15/30 ein á önn) - Börn sem búa við félagslega erfiðleika eða erfiðar heimilisaðstæður

Vatnsgjald: HS Veitur ehf sjá um álagningu og innheimtu

- Foreldrar sem eiga barn undir leikskólaaldri og annað á leikskóla eiga rétt á systkinaafslætti að loknu fæðingarorlofi

Fráveitugjald / Holræsagjald, hlutfall af heildarfasteignamati : Íbúðarhúsnæði

0.17%

Atvinnuhúsnæði

0.36%

Beiðnir eru afgreiddar hjá leikskólafulltrúa á fræðsluskrifstofu og skal umóknin endurnýjuð fyrir 31. ágúst árlega. Leikskólarýmum er úthlutað eftir aldri barna

Sorpgjöld, kr. pr. fasteignanúmer á íbúðir: Sorphirðugjald

14,225

Frístundaskóli:

Sorpeyðingargjald

23,210

Mánaðargjald (innifalin síðdegishressing)

Lækkun fasteignaskatts: Elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Reykjanesbæ er veittur tekjutengdur afsláttur af fasteignaskatti. Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Reykjanesbæ sem búa í eigin íbúð og eru 67 ára á árinu eða eldri og/eða hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2015. Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í. Til þess að njóta þessa réttar verður viðkomandi að eiga lögheimili í Reykjanesbæ og vera þinglýstur eigandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar. Reglur um viðmiðunartekjur eru birtar sérstaklega

16,000

Síðdegishressing kr. pr. dag

120

Tímagjald kr. klst.

355

Grunnskóli: Skólamáltíð í áskrift

350

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar skólaárið 2015 - 2016: Hljóðfæradeildir, grunn og miðnám. Öll hljóðfæri:

Gjalddagar fasteignagjalda eru 10, 25. janúar til og með 25. október og eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga

Heilt nám, kr. / árið

80,000

Hálft nám, kr. / árið

52,000

Fjölskyldu og félagsþjónusta

Heilt nám, (með undirleik 15 mín./v) kr. / árið

105,000

Hálft nám, (með undirleik 15 mín./v) kr. / árið

73,000

Heimaþjónusta / Heimilishjálp:

Hljóðfæradeildir, framhaldsnám. Gítar og píanó:

Félagsleg heimaþjónusta fylgir hækkunum sem ákvarðaðar eru af Tryggingastofnun ríkisins.

Heilt nám, kr. / árið

90,000

Hálft nám, kr. / árið

64,000

Dagdvöl aldraðra:

Söngdeild, kr. / árið:

Hljóðfæradeildir, framhaldsnám. Öll hljóðfæri nema gítar og píanó:

Gjald skv. reglugerð um dagvistun aldraðra

Félagsstarf athvarfs aldraðra: Þjónustukort

2,300

- Þátttakendur greiða sjálfir efnisgjald

Heilt nám án undirleiks

92,000

Hálft nám án undirleiks

65,000

Heilt nám með undirleik (20 mín./v)

112,000

Heilt nám með undirleik (30 mín./v)

122,000

Hálft nám með undirleik (20 mín./v)

77,000

Hálft nám með undirleik (30 mín./v)

85,000

Fræðslu- og uppeldismál

Valgreinar, kr. / árið:

Leikskólar:

Aukahljóðfæri, heilt nám

49,000

Aukahljóðfæri, hálft nám

31,600

Tímagjald, kr. / klst

3,150

Aukahljóðfæri, söngur heilt nám

55,000

Tímagjald (milli 16 og 17)

4,750

Aukahljóðfæri, söngur hálft nám

35,600

Forgangshópar tímagjald, kr. / klst

2,375

Tónfræðagreinar eingöngu

35,000

Lágmarkstími

4

Tónsmíðar eða tónver

20,000

Hámarkstími

9

Undirleikur, hljóðfæradeildir í grunn- og miðnámi (15 mín./v)

22,500

Fjölskylduafsláttur (er eingöngu af tímagjaldi) - fyrir annað barnið er greitt

50%

Hljóðfæraleiga, kr. / árið

- fyrir þriðja barnið er greitt

Frítt

Fjölskylduafsláttur:

- fyrir fjórða barnið er greitt

Frítt

Fyrir 2 börn er 10% afsláttur af heildargjöldum beggja

10%

Fyrir 3 börn er 20% afsláttur af heildargjöldum allra

20%

Fyrir 4 börn og fleiri er 30% afsláttur af heildargjöldum allra

30%

Við samninga um 6 mánaða greiðsludreifingu á korti bætist við 5% umsýslugjald

11,300


KJANESBÆJAR 2015 Íþrótta - og tómstundamál

Sundstaðir:

Félagsmiðstöðvar:

Fullorðnir, stakur miði

Þátttökugjald sumarnámskeiða í samvinnu við Vinnuskóla

5,500

8,700

Fullorðnir, 10 miða kort

3,600

Börn 10 ára til 15 ára, stakur miði Íþróttaakademían: Ráðstefnusalur pr. klst

3,000

Ráðstefnusalur allur dagurinn

30,000

3,000

Börn 10 ára til 15 ára, 10 miða kort

1,000

67 ára og eldri og öryrkjar 67 ára og eldri og öryrkjar, 10 miða kort

Reykjaneshöllin: Allur salurinn, pr. 50 mínútur, alla daga

26,000

1/2 salurinn, pr. 50 mínútur, alla daga

13,000

Daggjald, allur salurinn

200,000

Sunnubraut 34, A-salur: Allur salurinn, pr. klst

7,300

Sunnubraut 34, B-salur: Allur salurinn, pr. klst

5,700

Íþróttamiðstöð Akurskóla, Heiðarskóla og Njarðvíkur Allur salurinn, pr. klst Myllubakkaskóli, íþróttasalur: Allur salurinn, pr. klst

3,400

Sundmiðstöð, kjallari: Allur salurinn, pr. klst

Árskort

3,400

Sundlaugar: 12,5 x 8 m Akurskóla-, Njarðvíkur- og Heiðarskólalaug, pr. klst

5,700

25 x 12,5 m Sundmiðstöð við Sunnubraut, pr. klst

6,600

150 3,000 1,000 25,000

Árskort, börn 10 ára til 15 ára

7,500

Árskort, 67 ár og eldri og öryrkjar

7,500

Leiga á sundfatnaði og handklæðum

450

Bleyjugjald fyrir ungabörn

100

Menningarmál Bókasafn Reykjanesbæjar: Árgjald fyrir 18 ára og eldri

5,700

150

Börn 10 ára til 15 ára, 30 miða kort

67 ára og eldri og öryrkjar, 30 miða kort

Íþróttahús:

550

Fullorðnir, 30 miða kort

1,750

Árgjald fyrirtækja

3,000

Tryggingargjald sem utanbæjarmenn greiða

3,000

DVD - kvikmyndir

500

Internetaðgangur pr. skipti, hámark 1 klst. í einu

350

Dagsektir á bókum pr dag

20

Dagsektir á nýsigögn

60

Ellilífeyrisþegar, atvinnulausir, öryrkjar, börn og unglingar 18 ára og yngri fá frí skírteini en sömu útlánareglur gilda að öðru leyti fyrir þessa hópa.

Listaskóli barna: Þátttökugjald

Fyrir hönd starfsmanna, stofnanna og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, óska ég íbúum gleðilegs nýs árs með þökkum fyrir ánægjuleg samskipti á nýliðnu ári. Kær kveðja, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.

10,000


26

-

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

smáauglýsingar TIL LEIGU

ÓSKAST

4-5 herbergja ibúð til leigu í Reykjanesbæ, 109 ferm. Sanngjörn húsaleiga. Laus strax. s: 6926688.

Fjölskylda óskar eftir íbúð, 4 hrb sem allra fyst einhverstaðar á Suðurnesjum uppl, í síma 780-6923 og 421-2106.

Til leigu mjög góð tveggja herbergja íbúð 55 + Laus. Göngufæri. í alla þjónustu. Vinsamlega sendið póst á valborgfs@gmail.com

ÞJÓNUSTA Rafvirki getur bætt við sig verkum, bæði stórum sem smáum traust og vönduð vinnubrögð 772-2482

Til leigu er 3-4 herbergja 100 fm íbúð á fyrstu hæð á Þórustíg í Njarðvík. Laus strax. Leiguverð er 95.000 kr á mánuði + hiti og rafmagn. 2 mánaða trygging. 1 mánuðurinn greiðist fyrirfram. Upplýsingar í síma 820-0099 eða 822-3858. Til leigu er 3 herbergja, 87 fm íbúð á fyrstu hæð á Þórustíg í Njarðvík. Laus strax. Leiguverð er 85.000 kr á mánuði + hiti og rafmagn. 2 mánaða trygging. 1 mánuðurinn greiðist fyrirfram. Upplýsingar í síma 820-0099 eða 822-3858.

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

-ung

Skólasund það leiðinlegasta Hanna Björg Sveinsdóttir er nemandi í 10. bekk í Heiðarskóla. Hún væri til í að geta lesið allt einu sinni og muna það að eilífu. Hana langar að verða tannlæknir í framtíðinni og segir að Instagram sé uppáhalds appið. Hvað gerirðu eftir skóla? Ég læri heimavinnuna og fer á fótboltaæfingu eða hitti vini mina.

Ég væri alveg til í að geta bara lesið allt einu sinni en muna það að eilífu.

Hver eru áhugamál þín? Mín helstu áhugamál eru að standa mig vel í skóla og fótbolta. Svo finnst mér gaman að eyða tíma með vinum og fjölskyldu.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Mig hefur lengi dreymt um að verða tannlæknir.

Uppáhalds fag í skólanum? Stærðfræði tímarnir eru uppáhalds.

NÝTT

WWW.VF.IS

Forvarnir með næringu

Opið alla daga fram á kvöld

STAPAFELL

Hafnargötu 50, Keflavík

lýsa fatastílnum þínum? Fatastíllinn minn er í raun mjög einfaldur. Ég vil hafa fötin mín þægileg og klæðist yfirleitt svörtu og hvítu. Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Ég er starfsmaður í þjálfun á KFC.

Hver er frægastur í símanum þínum? Viktor Guðberg.

En leiðinlegasta? Skólasund er það leiðinlegasta.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Pabbi minn. Hann er lögga.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Það er erfitt að gera upp á milli en ætli ég myndi ekki tapa mér ef ég myndi loksins hitta Justin Bieber.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag? Vera viðstödd dag í lífi Beyoncé. Svo myndi ég adda mér á instagram í símanum hennar.

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?

Hvað er uppáhalds appið þitt? Instagram er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla? Mér finnst Heiðarskóli mjög skemmtilegur og góður skóli. En það skemmtilegasta við skólann er auðvitað félagslífið. Hvaða lag myndi lýsa þér best? Ljúft að vera til – Jón Jónsson. Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Hmm.. Kannski bara Keeping Up With The Kardashians. Þar sem ég get stundum verið smá dramaqueen.

Hvernig myndirðu

Besta: Drykkur?

Sprite.

Leikari/Leikkona?

Zac Efron.

+ www.vf.is

Fatabúð?

Vila.

83% LESTUR

Vefsíða?

Facebook. Bók? Bíómynd?

Rökkurhæðir.

One Direction myndin, Where We Are. Sjónvarpsþáttur? Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,

Einhildur Þóra Pálmadóttir Aðalgötu 5, Keflavík,

lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, sunnudaginn 1. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 12. janúar kl. 13:00. Þór Pálmi Magnússon, Hulda Guðmundsdóttir, Oddný Magnúsdóttir, Þórhallur Steinarsson, Jón Kr. Magnússon, Linda Gunnarsdóttir, Halldóra Magnúsdóttir, Ívar Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

Vampire Diaries.

Tónlistarmaður/Hljómsveit?

Beyoncé. Matur?

Kjúklingur.

-uppboð Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 Einnig birt á www.naudungarsolur.is.

Marteinn Brynjólfur Sigurðsson, Vélstjóri, Klapparstíg 4, Njarðvík,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 14. desember síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jón Haraldsson, Rúnar Marteinsson, Björn Marteinsson, Sigurður Geir Marteinsson, Guðbjörg S. Marteinsdóttir, og afkomendur. Þökkum auðsýnda samúð.

Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Káradóttir, Guðfinna Eyjólfsdóttir, Hermann Jakobsson,

Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Aðalgata 1 fnr. 224-1791, Keflavík, þingl. eig. Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 09:10. Framnesvegur 16 fnr. 208-7664, Keflavík, þingl. eig. Jaime Enrique Buenano Fuentes, gerðarbeiðandi Lánasjóður íslenskra námsmanna, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 09:00.

Hafnargata 6 fnr. 209-1724, Grindavík, þingl. eig. Bergbúar ehf, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 10:30. Heiðarholt 28 fnr. 208-8832, Keflavík, þingl. eig. Linda Kristín Pálsdóttir, gerðarbeiðendur Heiðarholt 28,húsfélag, Reykjanesbær og Sýslumaðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 09:20. Mánagerði 7 fnr. 209-2116, Grindavík, þingl. eig. Streftur ehf., gerðarbeiðendur Grindavíkurbær, Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 10:00. Miðgarður 2 fnr. 209-2145, Grindavík, þingl. eig. Eyri ehf, gerðarbeið-

endur Grindavíkurbær og Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 10:20. Víkurbraut 24 fnr. 209-2511, Grindavík, þingl. eig. Mikael Tamar Elíasson, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 14. janúar 2015 kl. 10:10. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 6. janúar 2015. Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.


Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum farsældar á komandi ári

Virkjunarsaga sem hefur fært fólki birtu og yl úr orkuauðlindum á Reykjanesi Allt frá stofnun hefur starfsfólk HS Orku umgengist náttúruauðlindirnar af virðingu og varkárni og nýtt þær á sem sjálfbærastan hátt – samfélaginu til heilla. Starfsfólk HS Orku óskar ykkur gleðilegs nýs árs og hlakkar til samstarfsins á 40 ára afmæli fyrirtækisins sem nú er gengið í garð. www.hsorka.is


TÍMAMÓTA ÚTSALA

Ríflegur afsláttur af M

Flísar 80 tegundir

20-50% AFSLÁTTUR

30%

Djús/ávaxtablandari með glerkönnu 40w 1,3l.

Töfrasproti – Blandari

3.942

1.867

1.400

2.957

Rafmagnshitablásari 2Kw

Lavor háþrýstidæla STM 160 Made by Lavor • • • • • • • •

160 bar Max 8,5 lítrar/mín. 2500W Pallabursti 8 metra slanga Turbo stútur Slanga fyrir stíflulosun Þvottabursti

28.642

2.164

20.050

1.623 Drive 12V Li Ion rafhlöðuborvél

Strekkibönd og Casters hjól

G b

5.918

1

4.734

30%

GMC 14,4V 1,2Ah með aukarafhlöðu, stiglaus hraði, BMC taska

1

5.990

AFSLÁTTUR

3.894

Lokað slönguhjól 20m 1/2”

9.780

LFD105TA Stáltrappa 2 þrep

7.335

4.690

3.752

G tæ

1

1

Drive toppasett 17 stk 1/4”

743

990

25% San-SM-RLB01 stubbastækkari

2.290

1.718

einnig 2 þrepa 3.590,-

Límbyssa í tösku

1.571 1.178

Ryk/blautsuga Drive ZD10-50L 1000W, 50 lítrar

Drive útdraganlegt rafmagnskefli 20 metra

21.340

9.626

26.677

5.921 Drive Fjölnotatæki 300W

5.921 7.894

Drive160 L steypurhrærivél

7.894

Kapalkefli 25 metrar

Járnbúkkar sett=2 stykki

25% Drive LG3-70A 1800W flísasög 86x57cm borð

139.900

96.256

N e y t e n d u r

Búkki – Vinnuborð stillanlegt (E)

39.510

Hraðastilltur slípi& bónrokkur 1100W

4.930

12.834

5.790

31.608

3.698 4.632

3.942

2.957

2

Drive DIY 500mm flísaskeri

8.990

6.743

a t h u g i ð !

M ú r b ú ð i n

s e l u r

a l l a r

v ö r u r

s í n a r

á

l á g m a r k


LA Í MÚRBÚÐINNI!

af MÚRBÚÐARVERÐI – það er gott verð Rafhlöðuborvél með höggi, HDA2544 18V

la

Handlaugar 20-50%

17.685

Handlaugartæki 25% Vitra 15-40%

14.148

avor

Sturtuklefar og sturtuhorn 15-40% Hitastýrð blöndunartæki 25% Sturtusett m/hitastýrðu tæki 25%

Drive hornalaser 90 gráður

12.450

Baðherbergisflísar 20-50%

9.960

Náttúrusteinsvaskar 30-50%

0

Stálvaskar 20-30% Skolvaskar 20% Guoren 1L Hitastýrt baðtæki standard

17.685

13.264

25%2.243

25%

Úrval af WC fylgihlutum. Króm og burstað stál.

2.990,-

3.190,-

1.268

Guoren TLY Sturtusett

14.810

11.108

47.414

1.590,1.590,-

2.290,-

35.561

1.718

1.868

2.841

2.393 Guoren-BO Hitastýrt tæki með niðurstút

3.790,-

1.690,-

2.490,5 lítrar

1.193

30% S805-4L 170CM ál snjóskafa

1.990

1.393

1.118 1.490,- 1.193

T38 Vinnuljós

5.590

4.193

15%

W&M PF209D sturtuhorn 90 cm

öryggisgler

54.990

38.493

AFSLÁTTUR

30%

borð

25% FC 504 Sturtuhorn 80x80 cm

34.690

Ryco LDL-MD418A lampi m. grind 4x18W T8 62x60x8 cm með perum

7.894

6 mm Hert

26.018

5.131 4cm SMC botn

7

20%

Gua-543-1 vegghengdur,

1mm stál 18.673

14.938

m a r k s v e r ð i

f y r i r

BOZZ sturtuklefi 80x80cm

43.372

36.866

Einnig eru til rúnnaðir klefar 90x90 á kr. 38.547 með 15% afslætti

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjanesbær

a l l a ,

a l l t a f .

G e r i ð

v e r ð -

o g

Fuglavík 18

Opið virka daga kl. 8 -18

g æ ð a s a m a n b u r ð !


30

fimmtudagurinn 8. janúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir

pósturu eythor@vf.is

■■Íþróttaannáll 2014

Rýr uppskera í boltagreinum en aðrar greinar blómstra Það er óhætt að segja að Suðurnesjamenn séu afbragðs íþróttamenn upp til hópa. Mikill áhugi er á fjölbreyttum íþróttum á svæðinu og mikill metnaður lagður í að ná árangri. Á árinu sem var að líða unnust fjölmargir sigrar í hinum ýmsu greinum. Hinar svokölluðu stóru greinar, fótbolti og körfubolti, mega muna sinn fífil fegurri, en árangur var ekki til að hrópa húrra fyrir í boltagreinunum. Aðrar íþróttagreinar blómstruðu hins vegar. Það verður að teljast af hinu góða, að Suðurnesin séu ekki einungis þekkt fyrir körfubolta og fótbolta. Hér að neðan er stiklað á stóru á því markverðasta sem gerðist í íþróttum á Suðurnesjum á árinu 2014. Taekwondo komið rækilega á kortið Sá íþróttamaður sem líklega átti hvað bestu gengi að fagna á árinu er Ástrós Brynjarsdóttir, sem kjörin var íþróttamaður Reykjanesbæjar annað árið í röð, auk þess að vera valin taekwondokona ársins á Íslandi þriðja sinn í röð. Ástrós var sigursæl á árinu. Hún vann til 13 gullverðlauna og tvennra silfurverðlauna og varð Norðurlandameistari í bardaga. Ástrós vann fimm Íslandsmeistaratitla, fimm bikarmeistaratitla, hún fékk þrisvar sinnum viðurkenningu sem keppandi mótsins og keppti á tveimur heimsmeistaramótum. Taekwondo deild Keflvíkinga nældi sér í enn eina rósina í hnappagatið á árinu þegar liðið fagnaði sjötta Íslandsmeistaratitli í liðakeppni í röð í greininni. Keflavík sigraði einnig á Íslandsmótinu í taekwondo tækni. Keflvíkingar urðu svo einnig bikarmeistar á árinu en þeim titli hefur liðið haldið allt frá árinu 2007. Magnaður árangur. Sóley Þrastardóttir var valin efnilegasta júdókona Íslands af Júdósambandi Íslands á árinu. Júdódeild Sleipnis/UMFN vann 10 stóra titla á árinu. Þrír Íslandsmeistarar í júdó, þrír Íslandsmeistarar í Brasilian jiu jitsu, þrír Íslandsmeistarar í glímu og einn hálandameistari í keltneskum fangbrögðum. Birkir Freyr Guðbjartsson var valinn Júdómaður Reykjanesbæjar. Birkir varð Íslandsmeistari í U21-100 kg flokki. Hann vann til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu í -100 kg flokki. Hinn tæplega sjötugi Gunnar Örn Guðmundsson varð svo Njarðvíkurmeistari í júdó á árinu í opnum flokki. Algjör goðsögn þar á ferð. Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson varð Íslandsmeistari í júdó í -81 kg, U21 og einnig Íslandsmeistari í taekwondó tækni í fullorðinsflokki. Grindvíkingar áttu frábært á í júdóinu eins og svo oft áður. Brons hjá Arnari Helga á EM Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson vann bronsverðlaun í flokki T53 á Evrópumeistaramóti fatlaðra í hjólastólakappakstri í Sviss á árinu. Arnar kom fimmti í mark við erfiðar aðstæður, talsverða rigningu og mótvind, en þegar öll kurl voru komin til grafar höfðu tveir keppendur verið d æ mdi r ú r l e i k fyrir línubrot. Frábært ár hjá NES Íþróttafélagið NES frá Suðurnesjum átti sjö keppendur á Evrópuleikum Special Olympics sem fram fóru í Antwerpen í Belgíu sumar. Það voru þau Ingibjörg Margeirsdóttir sem keppti í sundi, Ari Ægisson og Thelma Gunnlaugsdóttir sem kepptu í frjálsum íþróttum, Eðvarð Sigurjónsson sem keppti í boccia og Sigurður Guðmundsson, Ragnar Ólafsson og Halldór Finnson sem kepptu í knattspyrnu. Þeim gekk öllum vel og komust flestir á verðlaunapall. Már Gunnarsson var Íþróttamaður fatlaðra í Reykjanesbæ árið 2014. Már varð fimmfaldur Íslandsmeistari í sundi fatlaðra og hefur sett tvö Íslandsmet á í sundi í flokki S12 á sínum stutta keppnisferli. Már tók þátt í alþjóðlegu sundmóti Í Svíþjóð í febrúar og vann til 5 gullverðlauna. Stórveldi í sundinu Sundfélag ÍRB vann til 45 verðlauna á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug á árinu. ÍRB varð bikar­meist­ari kvenna í sundi

annað árið í röð. Í karlaflokki varð sveit Reykjanesbæjar í öðru sæti. Samtals unnu sundmenn ÍRB 35 verðlaun á ÍM50 mótinu sem fram fór snemma árs. Liðið eignaðist fjóra Íslandsmeistara á mótinu. Sunneva Dögg Friðriksdóttir var með besta árangur ÍRB kvenna á mótinu og Kristófer Sigurðsson var með besta árangur ÍRB karla, en bæði áttu þau frábært ár. Þau Kristófer og Sunneva Dögg kepptu fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti í 25m laug í Doha, Quatar, seint á árinu. Kristófer vann til samtals 11 Íslandsmeistaratitla á árinu og var valinn sundmaður Reykjanesbæjar. Kristófer og félagar hans í landsliði Íslands settu tvö Íslandsmet, í 4x100m skriðsundi boðsundi á HM í Doha. Kristófer á gildandi Íslandsmet í sex greinum.

Teitur og Friðrik aftur í Ljónagryfjuna Njarðvíkingar endurheimtu týnda syni aftur heim, en þeir Friðrik Ingi Rúnarsson og Teitur Örlygsson sneru aftur í Ljónagryfjuna. Friðrik er þaulreyndur og sigursæll þjálfari sem hafði ekki þjálfað um árabil. Teitur hefur síðustu ár alið manninn í Garðabæ við góðan orðstír og m.a. stýrt Stjörnunni í tvígang inn í lokaúrslit og tvívegis gert liðið að bikarmeisturum.

Einn bikar í körfuboltanum og goðsagnir sneru aftur Í körfuboltanum hafa Suðurnesjaliðin oft gert betur en í ár. Eini titilinn sem kom í hús var bikartitill hjá karlaliði Grindavíkur. Þeir gulklæddu léku einnig til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn, en urðu þar að lúta í lægra haldi gegn KR. Í kvennaboltanum unnust engir titlar þetta árið og þykir það nokkuð fréttnæmt. Síðustu þrjú ár hafa Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitlarnir dvalið á Suðurnesjum í kvennaboltanum. Það er þó óþarfi að örvænta þar sem yngri flokkarnir sáu um að sækja titlana heim þetta árið. Grindvíkingar, Njarðvíkingar og Keflvíkingar eignuðust öll fjölda Íslands- og bikarmeistara á árinu 2014 í yngri flokkum.

Fátt um fína drætti í fótboltanum Það var fátt um fína drætti í fótboltanum á Suðurnesjum þetta árið. Keflvíkingar byrjuðu vel í Pepsi-deild karla, en halla fór undan fæti þegar leið á sumarið. Annað var uppi á teningnum í bikarnum, en þar fóru Keflvíkingar alla leið í úrslit. Þeir þurftu þó að sætta sig v ið g rát legt 2-1 tap gegn KR á Laugardalsvelli, eftir að hafa náð forystu snemma leiks. Keflvíkingar höfnuðu í 8. sæti Pepsideildarinnar eftir sigra í þremur síðustu umferðunum.

Það er varla hægt að minnast á körfuboltann án þess að fjalla um magnaðan árangur landsliðs karla sem vann sér inn þátttökurétt á lokakeppni Evrópumótsins. Þar áttu Suðurnesjamenn sína fulltrúa, en Logi Gunnarsson, Elvar Már Friðriksson og Ólafur Ólafsson leika með liðinu. Njarðvíkingurinn Logi skoraði flest stig leikmanna liðsins á árinu 2014, eða 77 stig alls í sex leikjum. Það gera 12,8 stig í leik en Logi skoraði einnig flestar þriggja stiga körfur liðsins. Logi lék sinn 100. landsleik á árinu. Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson lagði land undir fót og hreiðraði um sig í Brooklyn, þar sem hann leikur með LIU skólanum í háskólaboltanum. Elvar hefur þar náð að festa sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins strax á fyrstu leiktíð. Eins hefur annar Njarðvíkingur verið að gera það gott erlendis, en hinn ungi Kristinn Pálsson hefur leikið frábærlega með unglingaliðinu Stella Azzura á Ítalíu. Helgi Jónas hættir þjálfun Eftir að hafa tekið við liði Keflvíkinga í Domino’s deild karla, þá neyddist Helgi Jónas Guðfinnsson til þess að hætta þjálfun sökum hjartsláttartruflana.

Damon kom aftur heim - Gunnar byrjaði aftur Damon Johnson sneri aftur í íslenska boltann eftir að hafa spilað síðast sem atvinnumaður árið 2010. Damon hefur staðið sig frábærlega það sem af er tímabili og sýnt gamalkunna takta. Keflvíkingar endurheimtu aðra gamla kempu, en bakvörðurinn Gunnar Einarsson tók fram skóna að nýju.

Í kvennaboltanum bar til tíðinda um mitt sumar þegar Keflvíkingar unnu sinn fyrsta deildarleik síðan í ágústmánuði árið 2012. Sigurinn dugðu þó skammt til en Keflvíkingar höfnuðu í neðsta sæti A-riðils 1. deildar. Þar gekk Grindvíkingum ívið betur og höfnuðu í þriðja sæti. Grindvíkingar léku illa framan af sumri í 1. deild karla og á tímabili voru þeir hreinlega í fallbaráttu. Þeir höfnuðu í fimmta sæti þegar uppi var staðið. Í neðri deildum karla gekk hvorki né rak hjá Suðurnesjaliðunum. Þróttarar í Vogum áttu reyndar frábært sumar og voru hársbreidd frá því að komast upp í þriðju deild. Í 2. deild léku Njarðvíkingar og Reynismenn. Bæði lið áttu í basli allt frá upphafi sumars og voru iðulega á botninum. Örlög liðanna réðust ekki fyrr en í síðustu umferð, en það urðu Reynismenn sem þurftu að sætta sig við fall í 3. deild. Það munu þeir leika með grönnum sínum í Víði, sem höfnuðu í fjórða sæti deildarinnar í ár. Það verður svo ekki hjá því komist að minnast á árangur Njarðvíkingsins Ingvars Jónssonar, sem valinn var besti leikmaður Íslandsmóts karla í fótboltanum. Ing var, sem stóð á milli stangana í marki Stjörnumanna, átti frábært ár, en hann fagnaði Íslandsmeistaratitli með Garðbæingum, átti frábæra leiki í Evrópukeppni með liðinu,


31

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 8. janúar 2015 var valinn í landsliðið og nældi sér í atvinnumannasamning í Noregi. Atvinnumennirnir okkar Suðurnesin státa af fleiri atvinnumönnum í fótbolta en Ingvari, en þeir Arnór Ingvi Traustason og Samúel Kári Friðjónsson eru báðir að gera góða hluti í boltanum. Arnór lék sitt fyrsta tímabil með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni, á meðan Samúel Kári elur manninn í Reading á Englandi. Í lok árs bárust fréttir af því að Njarðvíkingurinn Óskar Örn Hauksson hygðist halda til Kanada frá KR, þar sem hann mun leika í næstefstu deild bandaríska boltans. Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson samdi við norska úrvalsdeildarliðið Aalesund, en hann átti frábært sumar og var m.a. kjörinn íþróttamaður Grindavíkur. Hilmar yngstur í efstu deild Hinn 15 ára gamli leikmaður Keflvíkinga, Hilmar Andrew McShane, varð í sumar yngstur leikmanna frá upphafi til þess að leika í efstu deild í knattspyrnu karla. Hilmar sem er fæddur árið 1999 sló þar með met Keflvíkingsins Sigurbergs Elissonar sem hafði staðið óhreyft frá árinu 2007. Elías efnilegastur Elías Már Ómarsson leikmaður Keflvíkinga í Pepsideildinni var verðlaunaður sem efnilegasti leikmaður Pepsi-deildar karla í knattspyrnu. Elías lék 23 leiki með Ke f l v í k i n g u m í sumar og skoraði 6 mörk en hann vakti verðskuldaða athygli fyrir beinskeittan leik sinn. Svo vel lék Elías að hann vann sér inn sæti í U21 liði Íslands og vakti um leið athygli erlendra liða.

Massað mót í Njarðvík Njarðvíkingar héldu stærsta og glæsilegasta kraftlyftingamót sem haldið hefur verið á Íslandi á árinu, þegar Norðurlandamótið fór fram í sumar. Njarðvíkingurinn Sindri Freyr Arnarsson varð Kraftlyftingamaður Reykjanesbæjar 2014. Sindri Freyr vann samtals 4 Íslandsmeistaratitla á árinu og var bikarmeistari karla í kraftlyftingum 2014. Hann er e i n n i g Norð u rlandameistari í kraftlyftingum í -74kg flokki. Sunneva fánaberi Íslands á Ólympíuleikum æskunnar Sunneva Dögg Friðriksdóttir sundkona úr ÍRB var valin til þess að bera fána Íslands á opnunarhátíð Ólympíuleikum æskunnar sem fram fóru í Kína. Keflvíkingurinn Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla í knattspyrnu, kom liðinu á Ólympíuleika æskunnar. Þangað tók hann með sér tvo leikmenn frá Keflavík, þá Sigurberg Bjarnason og Hilmar Andrew McShane. Yfirburðir Suðurnesja í Skólahreysti Heiðarskóli úr Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í Skólahreysti árið 2014 eftir æsispennandi úrslitakeppni. Holtaskóli úr Reykjanesbæ tryggði sér annað sætið með góðum endaspretti en tólf bestu skólar landsins mættust í Laugardalshöll. Heiðarskóli endurheimti þar með titilinn sem skólinn vann árið 2010, en Holtaskóli vann keppnina síðustu þrjú ár. Svanur akstursíþróttamaður Reykjanesbæjar Svanur Vilhjálmsson varð Íslandsmeistari í True street flokki í kvartmílu og náði góðum árangri í öðrum keppnum. Hann var akstursíþróttamaður Reykjanesbæjar á árinu.

Karen stigameistari Golfsambands Íslands Kylfingurinn Karen Guðnadóttir hjá GS, vann Eimskipsmótaröð Golfsambands Íslands í Meistaraflokki. Hún varð svo einnig stigameistari Golfsambands Íslands. Karen toppaði þar með góðan árangur frá því í fyrra. Theodór Kjartansson með mjög góðan árangur Skotmaðurinn Theodór Kjartansson varð Íslandsmeistari í 300 metra riffil liggjandi og 2. sæti í liðakeppni á íslandsmótinu með 300 metra riffill liggjandi og náði mjög góðum árangri í fleiri mótum. Jóhanna fékk Fjöðrina Jóhanna Margrét Snorradóttir hjá hestamannafélaginu Mána, náði góðum árangri á öllum þeim mótum sem hún tók þátt í sl. ár. Hún náði 1. sæti í fjórgangi á Framhaldsskóla-, Reykjavíkurmeistara-, Íþróttamóti Mána og Suðurlandamóti. Hún náði 2. sæti í slaktaumatölti á Íslandsmóti og 2.-4 sæti í fjórgangi á sama móti. Á Íslandsmóti fékk Jóhanna Margrét Fjöðrina, sem eru sérstök verðlaun veitt þeim sem sýna mjög góða reiðmennsku og prúðmannlega framkomu. Ragnheiður Sara sigraði á sterku alþjóðlegu Crossfit móti Njarðvíkingurinn Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði á sterku alþjóðlegu Crossfit móti sem haldið var á Ítalíu í lok árs. Sara átti góðu gengi að fagna á árinu en hún sigraði einnig á móti í Frakklandi í sumar ásamt því að hafna í 2.-3. sæti á Íslandsmótinu fyrir skömmu. Góður árangur hjá fimleikakonum Fimleikakonan Lilja Björk Ólafsdóttir náði mjög góðum árangri á árinu bæði hérlendis og erlendis. Hún varð Innanfélagsmeistari Fimleikadeildar Keflavíkur og Íslandsmeistari 14 ára og eldri í 1. þrepi. Þar sem hún sigraði á öllum áhöldum og í öðru sæti á Íslandsmóti unglinga í áhaldafimleikum. Lilja Björk keppti á Evrópumóti unglinga og Norðurlandamóti unglinga með landsliði Íslands og er í úrvalshópi fimleikasambands Íslands. Ingunn Eva Júlíusdóttir úr Keflavík náði 1.sæti á þrepamóti í flokki 15 ára og eldri og er búin að vera í úrvalshóp Fimleikasambands Íslands. Hún náði mjög góðum árangri á árinu og er eini keppandi Fimleikadeildar Keflavíkur í alþjóðlegum reglum.


SUMARSTÖRF Í FRÍHÖFNINNI LANGAR ÞIG AÐ VINNA Í BESTU FRÍHÖFN EVRÓPU?

Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingar Um er að ræða störf á lager, skrifstofu og í verslunum Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Leitað er að þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, eiga auðvelt með að nálgast fólk, hafa lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir, geta unnið undir álagi og sýnt frumkvæði í starfi. Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára.

Verslun

Skrifstofa

Vöruhús

Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins og áfyllingum í verslun. Unnið er í vaktavinnu.

Um er að ræða starf í móttöku félagsins sem felst í símsvörun, umsjón með fundaaðstöðu félagsins og almennum skrifstofustörfum. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8 til 16.

Starfið felst í almennum lagerstörfum. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 7 til 16 og annan hvern laugardag frá kl. 7 til 11.

Hæfniskröfur:

Hæfniskröfur:

Hæfniskröfur:

• • • •

• • • • • •

• Meirapróf og/eða lyftarapróf er æskilegt • Góð tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum

Góður sölumaður með ríka þjónustulund Reynsla af verslunarstörfum Hæfni í mannlegum samskiptum Gott vald á íslenskri og enskri tungu

Stúdentspróf er skilyrði Reynsla af skrifstofustörfum er skilyrði Hæfni í mannlegum samskiptum Reynsla af Navision Financial er æskileg Góð tölvukunnátta Gott vald á íslenskri og enskri tungu

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 4 - 2 8 2 7

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í maí. Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar. Umsóknum skal skila inn rafrænt á www.dutyfree.is/atvinna. Helstu upplýsingar um starfið veitir Sóley Ragnarsdóttir mannauðsstjóri, soley.ragnarsdottir@dutyfree.is.

Fríhöfnin er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera besta fríhöfn í Evrópu og fjölskylduvænt fyrirtæki. Stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak, snyrtivörur og sælgæti. Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum og leggur áherslu á góðan starfsanda.

www.dutyfree.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.