Óróleikinn nær til Íslands

Page 1

Óróleikinn nær til Íslands


Sýning á völdum verkum úr safneign Arion banka Borgartúni 19. 18. febrúar - 30. mars 2012.

Arion - art 09105 Jón Engilberts 1908 - 1972 Vorgleði 192 x 478 1949 -1951 Olíulitir á striga Arion - art 09384 Jón Engilberts 1908 - 1972 Vorgleði - skissa 65 x 165 ca 1949 - 1951 Blönduð tækni Arion - art 09128 Jón Engilberts 1908 - 1972 Blik af lífi 70 x 145 1948 Blönduð tækni Arion - art 09775 Jón Engilberts 1908 - 1972 Án titils 26 x 35 1952 Trérista Arion - art 09106 Jón Engilberts 1908 - 1972 Án titils 68 x 98 ca 1962 - 1965 Vatnslitamynd Arion - art 09037 Jón Engilberts 1908 - 1972 Vorleikur 90 x 117 ca 1948 - 1952 Blönduð tækni


Arion - art 09332 Jón Engilberts 1908 - 1972 Án titils 95 x 75 1940 Olíulitir á striga

Arion - art 09715 Þorvaldur Skúlason 1906 - 1984 Án titils 65 x 50 1939 Blönduð tækni

Arion - art 09042 Snorri Arinbjarnar 1901 - 1958 Sjómenn og net 30 x 22 ca 1942 - 1944 Vatnslitamynd

Arion - art 09020 Snorri Arinbjarnar 1901 - 1958 Gata í Reykjavík 40 x 35 ca 1930 Vatnslitamynd

Arion - art 09181 Snorri Arinbjarnar 1901 - 1958 Sjómenn 33 x 40 ca 1942 - 1944 Vatnslitamynd


Arion - art 09934 Jóhann Briem 1907 - 1991 Kona við glugga 80 x 120 1943 Olíulitir á striga

Arion - art 09835 Svavar Guðnason 1909 - 1988 Gríma 100 x 80 1939 Olíulitir á striga

Arion - art 09240 Gunnlaugur Scheving 1904 - 1972 Í sólmánuði 1939 38 x 34 1939 Vatnslitamynd

Arion - art 09447 Gunnlaugur Scheving 1904 - 1972 Gamall maður með barn 28 x 34 Vatnslitamynd

Arion - art 09651 Svavar Guðnason 1909 - 1988 Fabeldýr 45 x 59 1945 Blönduð tækni


Arion - art 09947 Þorvaldur Skúlason 1906 - 1984 Þorp 75 x 80 1947 Olíulitir á striga

Arion - art 09188 Þorvaldur Skúlason 1906 - 1984 Bátar 65 x 86 1944 Olíulitir á striga

Arion - art 09946 Nína Tryggvadóttir 1913 - 1968 Ægisgarður í Reykjavík 78 x 64 1946 Olíulitir á spónaplötu

Arion - art 09236 Jón Stefánsson 1881 - 1962 Án titils 56 x 54 ca 1922 Olíulitir á striga

Arion - art 09146 Jóhannes Kjarval 1885 - 1972 Blátt hraun 90 x 70 ca 1938 Olíulitir á striga


Óróleikinn nær til Íslands – umbrotin í íslenskri myndlist um miðja 20. öld. Úr safneign Arion banka. Íslandi var kippt snarlega inn í nútímann. Samfélagið tók andköf þegar að nokkur bresk herskip birtust á sundunum úti fyrir Reykjavík einn vormorgun árið 1940. Árin og áratugina á undan hafði vissulega kvarnast upp úr heimsmynd gamla íslenska bændasamfélagsins en með stríðinu breyttist allt. Nýir tímar voru líka á næsta leiti í myndlistarlífi landsmanna sem hafði áratugina á undan komist á veikburða legg. Vegna átakanna í Evrópu komu ungir myndlistarmenn heim með áhrif evrópskrar myndlistar í farteskinu. Þau áhrif mæltust misvel fyrir í Reykjavík. Kreppuárin á fjórða áratugnum höfðu haft það í för með sér að myndlistarmenn létu sér ekki nægja að mála landslag, heldur fóru þeir einnig að veita verkalýðsbaráttu, örbirgð og stéttaskiptingu athygli í verkum sínum. Ekki líkaði öllum þessi nýju efnistök og það var heldur ekki alltaf vinsælt að menn eltust við tísku utan úr heimi. Undir lok þriðja áratugarins átti stjórnmálamaðurinn Jónas Jónsson frá Hriflu stóran þátt í uppbyggingu stoðkerfis fyrir íslenska listamenn í formi Menningarsjóðs og Menntamálaráðs. Fimmti áratugurinn bar hins vegar með sér deilur um hvert stefndi í íslenskri myndlist. Jónas taldi ekki sjálfgefið að íslenskir myndlistarmenn tækju mið af erlendum straumum í myndlist samtímans og var honum tíðrætt um þreytu í myndlistinni. Jónas dró upp tvo kosti: afturhvarf til myndlistar frumkvöðlanna, sem komu fram upp úr aldamótunum 1900, eða erlenda innrásarlist, sem hann setti í samhengi við heimskommúnismann, og bauð ýmist upp á uppbrotna, útflatta, klossaða eða klessta myndlist. Sjónarmið sín setti hann fram með skýrum og áhrifaríkum hætti. Hann stóð fyrir sýningum á því sem hann áleit góða og vonda íslenska myndlist. Sýningarnar vöktu mikla athygli. Önnur var kölluð Háðungarsýningin en á hinni, sem ekki var ekki gefið sérstakt nafn, voru verk sem voru Jónasi að skapi. Sýningarstaðirnir voru Alþingishúsið við Austurvöll, þar sem þingmenn gátu kynnt sér ástandið, útstillingargluggar í miðbænum, sem einnig voru notaðir í þessum tilgangi og loks náði þessi sérstæða kynning á íslenskri myndlist inn á forsíðu Tímans, en þar ritaði Jónas langar greinar um horfur í listum og menningu.


Deila Jónasar frá Hriflu og myndlistarmanna árið 1942 var flóknari en ætla mætti við fyrstu sýn. Málið teygði anga sína út fyrir landsteinanna enda sá stjórnmálamaðurinn nýstárlegar áherslur í myndlist í samhengi við átök stórvelda og hugmyndakerfa úti í heimi. Sjálfstæði landsins var mikið rætt og mat margra að listirnar ættu að styðja sjálfstæðisbaráttuna. Í fjölmiðlum og umræðum á Alþingi var aðferðum Jónasar við að draga listamenn í dilka líkt við ófrægingarherferð menningaryfirvalda þriðja ríkisins á hendur listamönnum. Enda þótt Listasafn Íslands væri vart til nema að nafninu var deilt um stefnu ríkisins þegar kom að listaverkakaupum fyrir þjóðina og einnig um yfirráð yfir útgáfu Íslendingasagnanna. Rimman í fjölmiðlum var hörð og frá sjónarhóli dagsins í dag voru deilurnar oft ótrúlega persónulegar. Jónas ásakaði listamenn um að upphefja ljótleikann í verkum sínum og vildi frekar að áherslan væri á fegurð landsins og að sýna mæta menn í íslensku þjóðlífi í sínu rétta ljósi. Á móti vildu framsæknir myndlistarmenn stunda form- og litatilraunir í friði og færa íslenska myndlist í nánara samspil við það sem hafði gerjast í Evrópu áratugina á undan. Á þessari sýningu, sem byggð er á verkum úr eigu Arion banka, gefur að líta verk sem ríma við forskriftir Jónasar frá Hriflu um hvert íslensk myndlist átti að stefna, en einkum hvert hún átti ekki að stefna. Þróunin í íslenskri myndlist varð heldur ekki eftir höfði stjórnmálamannsins, enda efldist samtakamáttur listamanna mjög við deilurnar. Í framhaldinu var haldið listamannaþing í fyrsta sinn og Listamannaskálinn var reistur í miðbæ Reykjavíkur. Nokkrum árum síðar hafði óhlutbundin málaralist fest rætur sínar í höfuðstaðnum. Í samtíma okkar, á 21. öld, má spyrja hvort að þessi eyþjóð í Atlantshafi sé öðrum þjóðum uppteknari við að velta fyrir sér eigin sérkennum þegar kemur að menningarlífi. Kannski eimir enn rækilega eftir af þeirri hugsun að við séum einstaklega „íslensk“ í allri okkar menningarframleiðslu og það sem við leggjum umheiminum til á sviði menningar sé á einhvern hátt sprottið úr íslenskri náttúru, veðurfari og sérkennum þjóðarinnar. Hver veit? Það má hins vegar ekki gleyma því að íslensk menning er ekki, og hefur aldrei verið, lokað mengi, heldur nærist hún á samskiptum og víðsýni landsmanna. Guðni Tómasson listsagnfræðingur Erindi tengt fyrirlestri Guðna, 18. febrúar í Arion banka.


Lj贸smyndir Gu冒mundur Ing贸lfsson


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.