MARC INBANE VÖRULÍNAN HEFUR UNNIÐ TIL VERÐLAUNA UM ALLAN HEIM
UM MARC INBANE MARC INBANE er hollenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í lúxus snyrtivörum er leiðandi aðili á sviði brúnkusnyrtivara. Stjörnurnar nota línuna til að fá sitt náttúrulega útlit og það kemur oft við sögu á tískusýningum stóru húsanna. Merkið hefur nú þegar unnið til nokkurra mikils metinna verðlauna og vörurnar eru seldar í yfir 40 löndum. Hárgreiðslufólk, förðunarfræðingar og húðsjúkdómalæknar mæla með og nota vörurnar daglega. SAGAN Eftir að hafa misst af flugi frá Amsterdam sátu Ingo, Bart og Nele saman, biðu eftir næstu vél og fylgdust með öðrum farþegum ganga um. Þau tóku fljótt eftir ólík fasi og líkamsburði farþeganna sem voru á heimleið og þerra sem voru að fara út. Farþegar á heimleið voru geislandi, sólbrúnir og heilbrigðir sem hafði augljós jákvæð áhrif á göngulag og líkamsburð þeirra. Önnum kafnir Íslendingar hafa takmarkaðan aðgang að sólarljósi og því er erfitt að viðhalda sólbrúnku sumarfrísins auk þess sem sólargeislarnir innihalda skaðlega útfjólubláa geisla. Það var við þessar aðstæður sem hugmyndin að náttúrulegu brúnkuspreyi fæddist; Heilbrigð leið til að viðhalda sólbrúnku allan ársins hring. INgo, BArt og NEle blönduðu saman nöfnunum sínum og MARC INBANE varð til! Fæðingardagur: 21 April 2012
HAUTE COUTURE TANNING
NÝSKÖPUN & VERKKUNNÁTTA RANNSÓKNIR VERÐA AÐ BYLTINGU ÞEGAR VARA KEMST Í UPPÁHALD MARC INBANE hefur einstaka skynjun á hvernig er hægt að umbylta markaði brúnkumeðferða. Þróun vörunnar byggir á nýjustu kröfum notandans og með sérþekkingu rannsóknarteymisins er leiðandi staða MARC INBANE tryggð. Þessi stöðuga tilraun til að vera fremst í flokki og þor til að vinna að nýjungum færir MARC INBANE tækifæri til að vera fyrsta fyrirtækið til að kynna nýjustu uppfinningarnar á sviði rannsókna á brúnkuvörum. Afraksturinn er breiðvirk lína af margverðlaunuð vörum.
SNYRTIVÖRUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI MARC INBANE VÖRURNAR: • • • • • • •
eru ólíklegar til að valda ofnæmi eru prófaðar af húðlæknum eru alfarið gerðar úr hreinum og náttúrulegum innihaldsefnum innihalda engin rotvarnarefni innihalda engar öreindir úr plasti eru framleiddar út frá dýraverndunarsjónarmiðum eru 100% vegan
MARC INBANE UM ALLAN HEIM 43 LÖND Á INNAN VIÐ 6 ÁRUM MARC INBANE hefur fest sig í sessi sem virt snyrtivörumerki og er framsækið á sviði brúnkuvara með gott alþjóðlegt orðspor. Á innan við 6 árum hefur MARC INBANE sýnt aðdáunarverða hæfni í markaðssetningu með því að færa 43 löndum um allan heim gæða brúnkuvörur.
THE COLLECTION
THE ORIGINAL NÁTTÚRULEGT BRÚNKUSPREY FYRIR KONUR & KARLA
HANSKI & BURSTAR
KORNAMASKI & LE PETIT FERÐASETT
UNAÐSLEG HANDGERÐ ILMKERTI
LÚXUS FERÐASETT
NÝTT
PERLE DE SOLEIL
MARC INBANE BRÚNKUDROPAR - PERLE DE SOLEIL Perle de Soleil brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru fullkomin lausn til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma sem er sérsniðinn að óskum hvers og eins. Brúnkudroparnir leyfa þér að halda þinni venjulegu húðumhirðu. Þú einfaldlega blandar þeim saman við þinn eftirlætis rakagjafa til að öðlast sérsniðinn og náttúrulegan lit.
Kostir Perle de Soleil • • • • • • •
Ferns konar brúnkutækni: Dihydroxycatone, Erythrulose, Dimethyl Isosorbide og Caramel. Brúnka sem miðast við þarfir hvers og eins. Virkar með uppáhalds rakagjafanum þínum. Upprunaleg, notendavæn tækni sem gerir útkomuna nákvæma. Fullkomin stjórn á stærð skammta. Vörurnar hafa verið rannsakaðar af húðlæknum, eru vegan og innihalda engin paraben. Lofttæmdar umbúðir. Það þýðir að engin þörf er á tilbúnum rotvarnarefnum til að auka endingartimann. Með lofttæmdum umbúðum er tryggt að blandan inni í flöskunni klárast alveg og engin þörf er á að opna stútinn. Þess vegna verður blandan eins í hvert sinn sem hún er notuð. Auk þess tryggir einstök hönnunin að sóunin verður nær engin því þú færð fullkomið magn í hvert skipti sem þú ýtir á takkann.
NÝTT
LA HYDRATAN
MARC INBANE - LA HYDRATAN MARC INBANE la hydratan er rakagefandi gæða andlitskrem. Það er ætlað til daglegra nota og ver húðina fyrir áreiti umhverfisins. Virka innihaldsefnið Bronzyl® örvar framleiðslu melaníns og virkjar eðlilegt brúnkuferli. Á þennan hátt stuðlar kremið að jöfnum lit og aukinni framleiðslu húðarinnar á náttúrulegri vörn gegn útfjólubláum geislum. Innihaldsefni svo sem Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Moisturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. La Hydratan inniheldur háþróaða UV vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar og ótímabærri öldrun. Náttúrulegri lakkrísrót hefur verið bætt við kremið vegna mýkjandi og róandi eiginleika hennar og þá verður áferðin enn fallegri og öðlast silkimýkt. Þetta olíulausa rakakrem hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
RÁÐ
Notaðu La Hydratan fyrstu tvo dagana eftir að þú berð það á líkamann. Frá og með þriðja degi geturðu notað Le Teint til að öðlast fullkominn ljóma.
NÝTT
LE TEINT
MARC INBANE - LE TEINT MARC INBANE Le Teint er gæða rakakrem með lit sem hentar til daglegrar notkunar, veitir samstundis fullkomna áferð, styrkir náttúrulegt yfirbragð og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins. Virka innihaldsefnið Bronzyl® örvar framleiðslu melaníns og virkjar eðlilegt brúnkuferli. Á þennan hátt stuðlar kremið að jöfnum lit og aukinni framleiðslu húðarinnar á náttúrulegri vörn gegn útfjólubláum geislum. Innihaldsefni svo sem Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Moisturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. Le Teint inniheldur háþróaða UV vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar og ótímabærri öldrun. Náttúrulegri lakkrísrót hefur verið bætt við kremið vegna mýkjandi og róandi eiginleika hennar og þá verður áferðin enn fallegri og öðlast silkimýkt. Þetta olíulausa, bætiefnaríka rakakrem hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.
RÁÐ
Má nota eitt og sér fyrir meðal þekju, eða með hyljara og púðri. Le Teint er einnig kjörin lausn fyrir fólk sem líður ekki vel í sólbaði en vill samt fá sólargyllt yfirbragð í einn dag.
bpro heildverslun Ögurhvarfi 4, 203 Kópavogur Sími: 552-5252 bpro@bpro.is
MARCINBANE.IS MARCINBANEICELAND
/MARCINBANEICELAND/