VEGVÍSIR Skapandi vandamálalausnir fyrir frumkvöðlun, CDTMOOC

Page 21

VEGVÍSIR - SKAPANDI VANDAMÁLASAUSNIR FYRIR FRUMKVÖÐLUN

4. KAFLI – Sköpun og frumkvöðlanám í Evrópu Dæmi tekin saman af þátttakendum Háskólinn í Turku – Finnlandi Dæmi 1 í frumkvöðlun Titill

Hugmyndasöfnun fyrir svæðisbundna viðskiptaþróun

Staður

Turku í Finnlandi

Stofnun

Bastu Turku

Lýsing

Hvað Tilgangur Bastu® viðskiptaþróunarinnar er að kynna hringlaga hagkerfið og móta sjöttu, bylgju viðskipta á Turku-svæðinu. Bastu er verkefni sem rannsakar, þjálfar, reynir og gerir. Bastu-teymið samanstendur af dugmiklum talsmönnum sem vilja ekki aðeins þróa eigin fyrirtæki heldur líka efla lífskraft svæðisins. Skortur á tilföngum er helsti drifkraftur sjöttu bylgjunnar og knýr hann þátttakendur til að rýna í viðteknar venjur á algerlega nýjan hátt. Verkefninu var hrundið af stað síðla sumars 2015 að frumkvæði frumkvöðla á Turku-svæðinu. Frá 2015-2017 var Bastu fjármagnað úr sjóði Finnsku sjálfstæðishátíðarinnar Sitra og Turkuborg. Af hverju Að efla viðskiptageirann þar sem heimsmarkaðurinn fer stækkandi er frumskilyrði fyrir samkeppnishæfni Turkusvæðisins. Skynsamleg nýting efna og orku er mikilvægust á þessum viðskiptasvæðum. Athyglin er á sérhæfni suðvesturhluta Finnlands. Frumkvöðlastofnunin og Rannsóknamiðstöð framtíðarmála byrjuðu á því að hafa samband við frumkvöðla á Turku-svæðinu með það fyrir augum að þróa nýja grein viðskipta. Markmið framtaksins er að beita framsýnisupplýsingum ásamt sérhæfingu hópsins með því að finna nýjar leiðir til að skapa sjálfbært módel sem virðir auðlindina. Sameining óáþreifanlegra og stafrænna gildisþátta sem og áþreifanlegra gildisþátta gera mögulegt að framleiða algerlega nýjar og þýðingarmiklar uppfinningar. Á áþreifanlegan hátt táknar Bastu® því skapandi sameiningu og nýtingu grunnfærni þátttakenda svo svo að áþreifanlegar lausnir finnist til að efla hringhagkerfi og sjöttu bylgju frumkvöðlunar, viðskiptanýjungar, aðlögun fyrirtækja sem fyrir eru að hringhagkerfi og þróun núverandi formgerða og ferla. Hvernig Um það bil einu sinni í mánuði skipuleggur Bastu gagnlegar átakssmiðjur og nettengsl þar sem gagnleg sjöttu bylgju hugtök eru í forgrunni. Leitast er við að finna lausnir með nálgun sem eru utan við hefðbundin stýrimódel og iðnaðarramma. Bastusamfélagið leitar hugmynda og slípir þær til, tengir sérþekkingu, býður upp á leiðsögn og þjálfun.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.