Project - Laugarnes, Concept panel

Page 1

Perlufestin við Sund

Umsk IV - 2010

Kennarar: Auður Sveins og Birkir Einarsson

-afþreying og skemmtun fyrir alla

Vitinn

Klettahverfið -Bíllaust og grænt

Vitinn er endapunktur perlufestarinnar. Hann mun verða sterkt kennileiti fyrir svæðið. Frá vitanum er hægt að halda förinni áfram til Viðeyjar. Þeir sem hafa leigt sér sjókajak við Kirkjusand geta skilað honum hér við ströndina.

Veitingarstaðir Hér mun verða nokkurnskonar bryggjustemming með rómantískri kvöldlýsingu og litlum veitingarhúsum og smáverslunum. Hér geta þeir sem gengið hafa frá Kirkjusandi tyllt sér eða þeir sem koma frá Viðey ásamt erlendum gestum af skemmtiferðaskipum gætt sér á veitingum eða verslað sér íslenska minjagripi.

Leikskólinn

Á þessu svæði verður náttúruleikskóli. Svæðið er tilvalið vegna nálægðar sinnar við óspillta náttúruna á Laugarnesinu. Í næsta námunda verður stórverslun og munu foreldrar í hverfinu því geta gengið í verslunina og sótt börn sín í sömu ferð.

Ósnortin strandlengja er það dýrmætasta sem Laugarnesið hefur að bjóða, því er henni haldið í óbreyttri mynd. Á nesinu verður gerð ferskvatnstjörn sem mun með tíð og tíma auðga fuglalíf svæðisins.

Fornminjar verða grafnar upp og endurbyggðar að hluta eða hafðar til sýnis á einhvern nýstárlegan máta.

Nýlistagarðurinn

Sædýrasafnið

Í Klettahverfinu er lögð áhersla grænt íbúahverfi laust við vélknúna umferð. Hverfið hentar fólki af öllum stigum þjóðfélagsins þar sem íbúðir verða af öllum stærðum og gerðum. Hverfið mun tengjast hafnarsvæðinu með grænumgöngum yfir og á milli þakgarða fyrirtækjanna. Mitt á meðal hefðbundins iðnaðar- og hafnarstarfsemi mun vera gert ráð fyrir verslun og þjónustu fyrir íbúa hverfisins. Bílaumferð inn í hverfið verður beint í bílakjallara vestan og austan megin. Megin kosturinn við þennan byggðarkjarna auk bílleysisins mun vera staðsetningin sem tengist höfninni beint og um leið Viðey, auk þess sem hverfið teygir sig inn á óspillta náttúru og strandlengu Laugarnessins.

Ströndin N

Fornminjar

Við Listaháskólann mun komið á fót skapandi garði fyrir nútímalist með sýningarrýmum sem hentug eru til tímabundna sýninga eða tilraunastarfsemi hinna upprennandi listamanna. Þar er einnig að finna aðstöðu til útitónleika, dans- og leiksýninga. Garðurinn mun teygja anga sína upp á þak skólans og þar væri hægt að hafa útisvæði fyrir mötuneyti skólans. Raðhús með undirgöngum

Þakgarðar á iðnaðarhúsnæði

Yfirbragð þakgarða

Við Kirkjusand hefur verið stunduð fiskvinnsla frá byrjun 20 aldar. Undir klæðningu hússins, sem nú hýsir Glitni, leynist frystihús SÍS sem var á sínum tíma það stærsta sinnar tegundar. Til að virða þessa miklu sögu verður reist sædýrasafn á svæðinu og mun gamla frystihúsið þar gegna meginhlutverki, Djúpsjávarfiskar á neðstu hæðinni og grunnvatnsfiskar og smádýrin efst. Á útisvæðinu verða laugar fyrir stærri dýr og hver veit hvort að borgarstjórinn okkar fái þarna drauminn um ísbjörninn uppfylltan. 3ja - 4ra hæða byggingar

Kirkjusandur

Hugsanlegt yfirbragð raðhúsa

Yfirbragð byggðar séð frá norðri

Rýmin milli húsanna

Klifurplöntur á húsum

Hér á gamla strætóplaninu verður fjölnota-svæði. Hér verður hægt að leggja bílnum sínum þegar að heimsækja á perlurnar við sjávarsíðuna. Svæðið mun einnig nýtast vel sem bílabíó eða þegar halda á stórtónleika. Einnig nýtist svæðið þegar að það kemur tívolí eða sirkus til landsins. Svæðið afmarkast af grænum göngum og á þessum hluta verður Sæbrautin sett í stokk til að auvelda fólki aðgengið að strandsvæðinu og kajakleigunni sem er staðsett við nýjan lendingarstað við ströndina. 5-6 hæða hús

Grænt flæði

Yfirbragð græna flæðissins

Séð til vesturs

Edda, Davíð og Hulda


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.