Crossfit 13 03 2015

Page 1

Crossfit Kynningarblað

Helgin 13.-15. mars 2015

Einar Carl íþróttanuddari: „Iðkendur verða að vera tilbúnir fyrir æfingarnar.“

Hvernig er hægt að koma í veg fyrir meiðsli?

 bls. 42

 bls. 48

Við hverju má búast þegar Crossfit iðkun hefst?  bls. 45

Dótabúð íþróttafólksins SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND

SPORTVÖRUR WWW.SPORTVORUR.IS / BÆJARLIND 1–3 / KÓPAVOGI / 544 4140


36

crossfit

Helgin 13.-15. mars 2015

Vertu í lit með NIKE

Reebok CrossFit Nano 4.0 herra

Mikið úrval NIKE fatnaðar á karla og konur í allar tegundir líkamsræktar. Fást í nikeverslun.is, Air Smáralind, Útilíf Kringlunni

Frábærir skór í Crossfit Til í 4 litum. Verð: 24.990 kr. GÁP, Faxafeni 7, 104 Rvk www.gap.is

Fimleikahringir fyrir Crossfit Verð: 7.894 kr. GÁP, Faxafeni 7, 104 Rvk www.gap.is

UA Heatgear Alpha Legging

Náðu árangri með rétta búnaðinum

NIKE Metcon Crossfitskór fyrir herra Heitustu Crossfitskórnir frá NIKE Nike Metcon 1 er hannaður með það í huga að standast allar kröfur einstaklings sem æfir Crossfit. Skórinn er fullkominn í lyftingar, stökk, klifur og spretti og veitir fætinum allan þann stuðning sem hann þarf við mismunandi átök. Fást í nikeverslun.is, Air Smáralind, Útilíf Kringlunni

Nuddrúlla Við reglulega notkun mýkjast vöðvarnir og liðleiki eykst sem minnkar líkur á meiðslum. Til í mörgum gerðum. Verð frá 1.990 í Altis.

Hálfrennd Under Armour peysa Frábær hálfrennd peysa frá Under Armour úr léttu efni sem andar mjög vel Kemur í nokkrum litum

Ketilbjöllur Verð: 700 kr/kg GÁP, Faxafeni 7, 104 Rvk www.gap.is

Magnesium sport Losaðu þig við liðverkina! Eitt mest selda liðbætiefnið á Íslandi.

Reebok One Series buxur á dömur Til í 2 litum stærð XS-L. Verð: 12.990 kr. GÁP, Faxafeni 7, 104 Rvk www.gap.is

Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur stórmarkaða og verslana.

Öflug hitaog kælimeðferð

Nutrilenk

Mælum með fyrir snerpuna, orkuna og úthaldið.

Litríkar Reebok buxur

Stöðugur æfingaskór fyrir konur Lunar Cross Element er sérstaklega hannaður fyrir hámarks ákefð í æfingum og er fullkominn í snöggar og kraftmiklar hreyfingar. Fást í nikeverslun.is, Air Smáralind, Útilíf Kringlunni

FRÁBÆRT FYRIR CROSSFIT

Beetroot

Verð kr. 10.990 í Altis. Fást í öllum betri íþróttaverslunum.

Nike Lunar Cross Element

Frá 4 kg-48 kg

Verð kr. 8.990 í Altis Fæst í öllum betri íþróttaverslunum

Frábærar compression æfingabuxur frá Under Armour. Koma í nokkrum litum og í þessu fallega snake munstri.

Mælum með við harðsperrum, vöðvakrömpum, stirðleika og þreytu.

Sore No More Mælum með við vöðvabólgu, þrálátum verkjum og beinhimnubólgu. Frábært fyrir og eftir æfingar.


ÆFINGAFATNAÐUR

U LAÐ Á NETI N RS

U

VE

& SKÓR FRÁ REEBOK

GAP.IS HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · WWW.GAP.IS

NETTILBOÐ Á HVERJUM DEGI!


ð

38

crossfit

Helgin 13.-15. mars 2015

Láttu lóðið ekki stjórna þér Þó Einar Carl Axelsson íþróttanuddari sérhæfi sig í að vinna með afreksfólki í íþróttum er það allskonar fólk sem leitar til hans, þar á meðal margir sem stunda Crossfit. Hann segir mikilvægt fyrir alla sem stunda Crossfit að leggja áherslu á að gera hlutina vel.

CUBE 2015 REIÐHJÓLIN ERU KOMIN!

CUBE 2015 HAFÐU SAMBAND

35% AFSLÁTTUR AF

CUBE 2014 Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST!

WWW.TRI.IS

Meira en bara blandari!

í

rauninni er ekki margt sem aðgreinir Crossfitfólkið frá öðrum sem leita til mín,“ segir Einar Carl Axelsson íþróttanuddari aðspurður. „Ég er þeirra skoðunar að það sé aldrei æfingakerfið sem er slæmt, frekar að iðkandinn sé ekki tilbúinn fyrir æfingarnar. Ef fólk á ekki inneign fyrir styrk eða liðleika þá skiptir engu máli hver æfingin er eða hvað íþróttin heitir ef farið er fram úr getu líkamans,“ segir Einar Carl. Geta líkamans er jafnvel minni en fólk áttar sig á. „Sem börn sitjum við í skólastofunni og sem fullorðin sitjum við oftast við skrifborðið, og sitjum þegar við keyrum bíl og þegar við borðum. Við sitjum meira og minna allan daginn og hreyfum líkamann lítið. Til dæmis þegar við sitjum á stól förum við aldrei í djúpa hnébeygju og því getur það reynt á líkamann þegar stokkið er á æfingu og teknar margar djúpar hnébeygjur. Ég grínast stundum með það að ef við myndum líma apa í stól átta tíma á dag þá myndi það flokkast undir dýraníð, en það er einmitt það sem við erum að gera við okkur sjálf. Þessvegna er öll hreyfing góð og nauðsynleg en aðalmálið er að gera hlutina rétt.”

Íþróttavöruverslunin Sportvörur í Bæjarlind 1-3, Kópavogi, sérhæfir sig meðal annars í vörum fyrir Crossfit.

S

portvörur er glæsileg íþróttavöruverslun sem sérhæfir sig í æfingatækjum fyrir hagnýtar æfingar (e. functional training), þar með talið þá sem stunda Crossfit. Það eru engar skyndilausnir né „snákaolíur“ í boði, en fyrir þá sem vilja leggja áherslu á liðleika, snerpu, styrk og úthald þá er þetta verslunin sem leita skal til. Sportvörur er í eigu RJR ehf., rótgróins fjölskyldufyrirtækis sem var stofnað árið 1946.

Lífstíðareign! Tilboðsverð kr. 109.698 Með fylgir Vitamix sleif drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 137.122

Allt fyrir Crossfit iðkun

eykjav

ík · S

er líka þeirra að gera vel. Langflestir þjálfarar taka vel í allar fyrirspurnir hjá fólki og það er um að gera að spyrja og fá góða leiðsögn og ef fólk finnur til þá á það að stoppa og skoða hvað er hægt að gera betur. Ég er með marga hjá mér sem hafa farið illa með axlirnar og þá þarf að vinna sérstaklega með það. ” Einar Carl fer með alla sem til hans koma í gegnum ákveðna heildargreiningu sem hann byggir meðferðina á. Stór hluti þeirra sem til hans koma eiga við einhverskonar meiðsl að stríða en aðspurður hvort slík greining geti verið fyrirbyggjandi segir hann það tvímælalaust vera svo.

Dótabúð íþróttafólksins

• Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er • Hnoðar deig • Býr til heita súpu og ís • Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með

R a u ð a g e rð i 2 5 · 1 0 8 R

Hann ráðleggur fólki að hugsa alltaf um gæði hreyfingarinnar, en ekki endurtekninguna eða klukkuna á veggnum. „Er ég að stjórna lóðinu eða er lóðið að stjórna mér, er spurning sem allir þurfa að spyrja sig, því ef lóðið setur þig í vitlausa stöðu skiptir engu máli hvaða tölu þú skrifar á töfluna því þú ert ekki að vinna.” Hann segir fólki jafnframt að hætta að horfa á klukkuna og byrja að gera æfinguna vel. „Íslendingar eru stundum svolítið æstir og vilja taka vel á því í tímanum en benda svo á þjálfarann og kenna honum um þegar upp koma meiðsl. Þess vegna segi ég að iðkendur mega ekki gleyma því að ábyrgðin

ími 4 40 18 00 · ww w.kaelitaekni.is

Okkar þekking nýtist þér

„Við sérhæfum okkur í vörum sem eru meðal annars notaðar við Crossfit iðkun, og erum eina verslunin á Íslandi sem býður upp á allt fyrir þennan hóp. Við erum afskaplega stolt af því úrvali sem við bjóðum upp á, en ekki síður umgjörðina sem við höfum skapað í kringum verslunina,“ segir Árni Friðberg Helgason, sölu- og markaðsstjóri Sportvara, en verslunin hefur einnig fengið á sig nafngiftina dótabúð íþróttafólksins af viðskiptavinum hennar. Helstu viðskiptavinir Sportvara eru líkamsræktarstöðvar, íþróttafélög og sveitarfélög en vaxandi hópur viðskiptavina eru einstaklingar sem eru að útbúa sitt eigið „gym“ eða ná sér í aukahluti til að hafa í íþróttatöskunni. „Vörurnar okkar einkennast því fyrst og fremst af fagmennsku og eru verðin afar samkeppnishæf á Íslandi og þótt víða væri leitað.“

Vörur frá öllum heimshornum

„Við bjóðum aðeins hágæða vörur

Árni Friðberg Helgason, sölu- og markaðsstjóri í verslun Sportvara, Bæjarlind 1-3, Kópavogi. Mynd/Hari Úrva lið í Sport vörum eink enniSt af vörum f yr ir

n Alhliða líkamsrækt n Einkaþjálfun n Hraða- og snerpuþjálfun

n Styrktarþjálfun n Ólympískar lyftingar n Kraftlyftingar

í samstarfi við þekkt vörumerki í Evrópu, Bandaríkjunum og í Asíu ásamt okkar eigin merki, RJR, sem hefur hlotið afar góðar viðtökur, reyndar svo góðar að stór fyrirtæki í þessum geira í Þýskalandi og Bretlandi hafa leitað ráðgjafar hjá okkur við framleiðslu á eigin vörumerkjum,“ segir Árni, en fyrirtækið leggur einnig mikla áherslu á að bjóða upp á æfingavörur og tæki á hagstæðu verði. „Markmið Sportvara er og hefur alltaf verið að vera leiðandi fyrirtæki á íslenskum markaði í sölu á æfingavörum,“ bætir Árni við.

Öflug netverslun og ört vaxandi heildverslun

Verslunin er í Bæjarlind 1-3, Kópavogi. Vaxandi þáttur í starfsem-

n CrossFit

inni er heildverslunin en auk þess halda Sportvörur úti öflugri netverslun, www.sportvorur.is. Þar er hægt að skoða hundruð vara í fimmtán mismunandi vöruflokkum svo úrvalið er sannarlega fjölbreytt. „Markmið okkar er bjóða það nýjasta í æfingavörum hverju sinni. Við erum mjög stoltir af þjónustunni okkar, en það er enginn verðmunur á vörum hvort þú komir við í versluninni okkar eða pantar í netverslun, því við sendum frítt um allt land, alveg sama hversu þung sendingin er. Þetta hefur mælst sérstaklega vel fyrir á landsbyggðinni,“ segir Árni. Unnið í samstarfi við Sportvörur


crossfit 39

Helgin 13.-15. mars 2015

100% náttúrulegt. Bætiefnið er unnið úr túrmerik rót frá Indlandi og er 100% náttúrulegt, inniheldur engin rotvarnarefni og framleitt eftir ströngustu gæðakröfum (GMP vottað).

Ráðlögð notkun: Taktu 2 grænmetishylki með vatnsglasi yfir daginn. Curcumin er tilvalið fyrir þá sem vilja styrkja vöðva og liðamót ásamt því að losna við langvarandi liðverki, bólgur, gigt og magavandamál

Curcumin ómissandi með æfingunum Curcumin frá Natural Health Labs er allt að 50 sinnum áhrifameira en hefðbundið túrmerik.

C

urcumin er tilvalið fyrir þá sem vilja styrkja vöðva og liðamót ásamt því að losna við langvarandi liðverki, bólgur, gigt og magavandamál. Ingunn Lúðvíksdóttir Crossfitmeistari skorar á fólk að prófa Curcumin til að ná betri árangri. Ingunn Lúðvíksdóttir er þriggja barna móðir og Crossfitþjálfari í Sporthúsinu. Ingunn hefur stundað Crossfit af kappi síðan 2009 og er núverandi Íslandsmeistari í aldursflokki 35-39 ára. Hún er jafnframt núverandi Evrópumeistari í liðakeppni, hafnaði í 2. sæti árið 2012 og varð Evrópumeistari með í liðakeppni CrossfitSport árið 2011 ásamt því að hafa keppt á heimsleikunum með liði CrossFitSport þrisvar sinnum. Ingunn þekkir því vel mikið álag á líkamann. Hún mælir eindregið með Curcumin bætiefni og segir það ómissandi í daglegu lífi og á æfingum. „Ég hef tekið inn Curcumin í nokkra mánuði og mér líður mun betur í öllum líkamanum og eftir æfingar. Mér finnst ég vera orkumeiri og eins og ég hafi aldrei verið hraustari.“

Liðirnir aldrei sterkari og bólgurnar farnar

Ingunn kynntist Curcumin fyrir nokkrum mánuðum. „Ég er mjög hrifin af öllu náttúrulegu og finnst gaman að prófa eitthvað nýtt. Nú tek ég Curcumin daglega og ég finn greinilega að liðamótin eru sterkari og ég þoli meira álag en áður. Bólgur sem ég hef fengið eftir æfingar og daglegt amstur eru horfnar. Mér finnst ég betur geta hámarkað mig á æfingum ásamt því að vera fljótari að jafna mig. Ég skora eindregið á fólk að prófa Curcumin.“ Curcumin (gullkryddið) er virka innihaldsefnið í túrmerikrótinni og hefur verið notað til lækninga og til

Ingunn Lúðvíksdóttir, Crossfitkeppandi og Crossfitþjálfari, mælir eindregið með Curcumin.

matargerðar í yfir 2000 ár í Asíu. Hátt í 3.000 rannsóknir hafa verið gerðar á þessari undrarót undanfarna áratugi sem sýna að Curcumin getur unnið kraftaverk gegn hinum ýmsum kvillum líkamans og

sé jafnvel áhrifameira en skráð lyf.

Hreint Curcumin margfalt áhrifameira en túrmerik

Curcumin innihald túrmeriks er ekki mikið, aðeins um 2-5% miðað

af þyngd, og því getur hreint Curcumin orðið allt að 50 sinnum áhrifameira en túrmerik. Curcumin bætiefni eru því kjörin lausn fyrir þá sem vilja fá hámarks ávinning frá túrmerikrótinni á þægilegan máta.

Vissir þú að yfir 3,000 rannsóknir hafa verið framkvæmdar á Curcumin síðustu áratugi? Unnið í samstarfi við Balsam

Sölustaðir Flest apótek, Lyfja, Lyf og Heilsa, Apótekið, Apótekarinn, Heilsuhúsið, Heilsuver, Lifandi Markaður, Fjarðarkaup, Hagkaup, Heimkaup og Heilsutorgið Blómaval, Orkusetrið og Heilsulausn.is


40

crossfit

Helgin 13.-15. mars 2015

Þrír ættliðir stunda Crossfit af kappi Systurnar Birna Dís, Kristín Erla og Íris Ósk Ólafsdætur stunda allar Crossfit hjá Crossfit Hafnarfirði. Nýlega tókst þeim að smita móður sína, Sigríði Einarsdóttur, af Crossfit bakteríunni, auk þess sem Sara Mist, dóttir Írisar, mætir á æfingar hjá Crossfit Kids á sömu stöð.

V

ið byrjuðum allar á sitt hverjum tíma og erum með mismunandi bakgrunn af íþróttaiðkun. Við systurnar prófuðum hinar ýmsu íþróttir á okkar yngri árum en við vorum allar í fimleikum sem hefur reynst okkur mjög vel í Crossfit,“ segir Birna Dís. Íris kynntist Crossfit fyrst en það var vinkona hennar sem dró hana á grunnámskeið svo hún ákvað að slá til. „Ég byrjaði nokkrum mánuðum síðar þar sem ég var komin með leið á að fara alltaf í ræktina og gera bara eitthvað,“ segir Birna Dís. Kristín varð svo fyrir smá pressu frá systrunum og lét undan og ákvað að byrja. En þar var ekki staðar numið. „Í byrjun árs náðum við systurnar að plata mömmu okkar til að byrja í Crossfit eftir margra mánaða tuð í okkur þar sem hún hélt að Crossfit væri ekki fyrir sinn aldursflokk. Hún breytti þó fljótt um skoðun þegar hún byrjaði,“ segir Birna Dís. Þær mæðgur vissu ekki alveg út á hvað Crossfit gekk áður en þær byrjuðu en fannst greinin spennandi og ákváðu því að prófa. „Við sjáum sko ekki eftir því.“

Crossfit Kids fyrir 6-9 ára

Crossfit æðið hefur einnig náð til yngstu fjölskyldumeðlimanna en

Sara Mist, dóttir Írisar, byrjaði að æfa Crossfit fyrir tveimur árum, þá einungis 7 ára gömul. „Hún æfir reyndar ekki með okkur. Það eru sérstakar æfingar fyrir börn og unglinga og æfir Sara Mist með Crossfit Kids tvisvar í viku og byrjaði hún árið 2013. Henni finnst æfingarnar skemmtilegar og þjálfarinn frábær,“ segir Íris.

Félagsskapurinn og bætingar skipta máli

Systurnar segja að félagsskapurinn skipti miklu máli í Crossfit. „Æfingarnar eru einnig fjölbreyttar og skemmtilegar og það er fátt skemmtilegara en að bæta sig í æfingum og maður sér árangur mjög fljótt og getur fylgst marktækt með árangrinum,“ segir Birna Dís. En er Crossfit lífsstíll? „Já, það mætti segja það. Crossfit er svo miklu meira en bara að mæta á æfingu. Félagsskapurinn spilar mjög stóran þátt í þessu öllu saman,“ segir Birna Dís.

Bara pabbinn eftir

Aðspurðar um ástæðu þess hvers vegna bara kvenleggur fjölskyldunnar sé að æfa Crossfit segir Birna: „Það vill þannig til að það eru ekki margir karlmenn í fjölskyldunni. Við erum að reyna að draga

pabba með okkur í Crossfit en það gengur erfiðlega. Við vonumst til að það takist að lokum. Hann er nú samt duglegur að fara í fjallgöngur með mömmu.“ Yngri karlmeðlimir fjölskyldunnar hafa þó sýnt mikinn áhuga. „Sonur minn, sem er 5 ára og æfir fótbolta, getur ekki beðið eftir að byrja í Crossfit en Crossfit Kids er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára svo það styttist í að hann geti byrjað,“ segir Íris.

Crossfit er fyrir alla

Systurnar vilja að lokum benda á að það skiptir engu máli hvort fólk sé í góðu formi eða ekki, hversu gamalt það er eða hvort það hafi verið í íþróttum áður. „Það geta allir byrjað í Crossfit og haft gaman af. Þess má geta að hver og einn aðlagar æfingarnar eftir sinni getu. Fyrsta skrefið er bara að þora að prófa og það mun koma þér á óvart hversu fljótt þú sérð árangur,“ segir Birna Dís. Allar frekari upplýsingar um Crossfit Hafnarfirði má nálgast á heimasíðunni www.cfh.is og fyrirspurnir má senda á netfangið cfh@cfh.is. Næstu grunnnámskeið hefjast strax eftir páska. Unnið í samstarfi við Crossfit Hafnarfirði

Ný kynslóð af liðvernd

Regenovex inniheldur samsetningu tveggja náttúrulegra efna sem draga úr sársauka og byggja upp liði

Fæst í apótekum www.regenovex.is

Systurnar Birna Dís, Kristín Erla og Íris Ósk Ólafsdætur stunda allar Crossfit af kappi. Móðir þeirra, Sigríður Einarsdóttir, er einnig byrjuð að æfa í Crossfit Hafnarfirði, auk þess sem Sara Mist, dóttir Írisar, mætir á sérstakar krakkaæfingar. Mynd/ Hari.


crossfit 41

Helgin 13.-15. mars 2015

Fyrir byrjendur í Crossfit Vænta má ýmissa breytinga á líkama þínum og högum þegar þú byrjar að æfa Crossfit. Hér eru fimm helstu atriðin sem má búast við þegar þú byrjar að æfa Crossfit. Aukin matarlyst. Þú brennir mikið af kaloríum á góðri Crossfit æfingu og mátt því búast við aukinni matarlyst. En þá er mikilvægt að halda sig við holla fæðu og forðast að borða of mikið af kolvetnaríkri fæðu. Ef þú átt erfitt með að átta þig á hvað þú átt að borða þá skaltu leita ráða hjá næringarfræðingi. Harðsperrur. Margar Crossfit

æfingar eru ólíkar hefðbundinni hreyfingu eins og hlaupum eða hjólreiðum, þannig að þú mátt búast við miklum harðsperrum til að byrja með. Til að koma í veg fyrir of miklar harðsperrur er nauðsynlegt að teygja vel eftir æfingu og nota rúllur og bolta til að teygja og nudda vöðva. Nýir vinir. Crossfit samfélagið er vinalegt og opið og fljótlega áttu eftir að eignast nýja vini sem þú hittir á æfingum. Það góða við alla þessa nýju vini er félagsskapur á æfingum og það eykur líkur á að maður mæti vel á æfingar.

Stigið út fyrir þægindahringinn. Þú átt eftir að læra fullt af nýjum æfingum og gera hluti sem þú hefur aldrei gert áður. Gerðu ráð fyrir að sumt af þessu muni vera óþægilegt í fyrstu en það er hluti af ferlinu og áður en þú veist er þetta ekkert mál. Þú ert ekki best/ur. Það er mikilvægt að átta sig á því að þegar maður er byrjandi þá líður manni eins og allir hinir séu miklu betri. Þá er best að hugsa um að maður sé að keppa við sjálfan sig en ekki hina, auk þess sem markmiðið er að klára æfinguna ekki til að sigra í einhverri keppni.

Hver var Murph? Crossfit æfingin Murph heitir í höfuðið á bandaríska yfirliðsforingjanum Michael Murphy sem lést í Afganistan 28. júní 2005. Æf i ng i n va r í uppáhaldi hjá yfirliðsforingjanum en hann gaf henni heitið líkamsbrynjan. Eftir að hann lést vildi Crossfit samfé lagið votta honum virðingu sína með því að gefa henni nafnið Murph. Árið 2013 kom út heimildarmynd um Michael Murphy sem hét Murph: The Protector.

The world’s finest Muesli and Porridge The world’s finest Muesli and Porridge The The world’s world’s finest finest Muesli Muesli and and Porridge Porridge

Heimsins besti Hafragrautur og The world’s finest Muesli and Porridge Heimsins besti Hafragrautur og The world’s finest Muesli and Porridge Heimsins besti Hafragrautur og Heimsins besti Hafragrautur og The world’s finest Muesli and Porridge The world’s finest Muesli and Porridge

Murph: 1600 metra hlaup 100 upphífingar 200 armbeygjur 300 hnébeygjur 1600 metra hlaup

Músli Músli Músli Músli

Hvað er börpí?

Börpí, eða Burpee æfingin, heitir í höfuðið á Royal H. Burpee sem skóp æfinguna árið 1930 þegar hann bjó til hið svokallaða Burpee próf þegar hann var í doktorsnámi í heilsufræði við Columbia háskólann. Æfingin var hugsuð sem fljótleg og áhrifarík leið til að komast í gott líkamlegt form. Æfingin náði vinsældum þegar bandaríski herinn notaði hana fyrir hermenn sína í seinni heimsstyrjöldinni en Crossfit á stóran þátt í því að æfingin náði hylli meðal almennings. Börpí æfingin er framkvæmd svona: Staðið upprétt í upphafi, næst eru hnén beygð og lófarnir settir á gólfið fyrir framan sig og fótunum spyrnt aftur þannig að líkaminn er í plankastöðu. Þarnæst er líkamanum spyrnt frá gólfinu upp á við og stokkið frá gólfinu og höndunum klappað fyrir ofan höfuð samtímis. Allt er þetta gert í einni hreyfingu, þ.e.a.s. á sem minnstum tíma. Æfingin er svo endurtekin nokkrum sinnum.

H H H H

Winners of over 40 Great Taste Awards Hefur unnið yfir bragð Winners of 40 oververðlaun 40 Great fyrir Tasteómótstæðilegt Awards Winners of over 40 Great Taste Awards Clean Ingredients Hyfir No Sugars H No Artificial Anythings H Non-GM Winners ofRefined oververðlaun 40sykur Great Taste Awards Náttúruleg efni Enginn viðbættur Engin gerviefni Án erfðabreyttra matvæla Hefur unnið 40 fyrir ómótstæðilegt bragð Hefur unnið yfir 40 fyrir ómótstæðilegt bragð Winners of verðlaun over 40 Great Taste AwardsH Non-GM Clean Ingredients Hyfir Nowww.rudehealth.com Refined Sugars Artificial Anythings Hefur unnið 40 verðlaun fyrir ómótstæðilegt bragð Náttúruleg efni Enginn viðbættur sykur H No Engin gerviefni Án erfðabreyttra matvæla www.rudehealth.is Clean Ingredients H No Refined Sugars H No Artificial Anythings H Non-GM matvæla Náttúruleg efni Enginn viðbættur sykur Engin gerviefni Án erfðabreyttra Clean Ingredients H No Refined Sugars No Artificial H Non-GM matvæla of over 40HGreat TasteAnythings Awards Náttúruleg efni Winners Enginn viðbættur sykur Engin gerviefni Án erfðabreyttra www.rudehealth.com www.rudehealth.is Winners of over 40 Awards H Clean Ingredients H No Refined H NoTaste Artificial Anythings H Non-GM Winners of over Sugars 40 Great Great Taste Awards www.rudehealth.com www.rudehealth.is www.rudehealth.com www.rudehealth.is

H Clean Ingredients H Nowww.rudehealth.com Refined Sugars H No Artificial Anythings H Non-GM H Clean Ingredients H No Refined Sugars H No Artificial Anythings H Non-GM H Clean Ingredients H No Refined Sugars H No Artificial Anythings H Non-GM www.rudehealth.com www.rudehealth.com www.rudehealth.com


crossfit

42

Helgin 13.-15. mars 2015

Hleðsla – hollur og handhægur drykkur Þ

egar fólk byrjar að hugsa um hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl á það til að skunda af stað í líkamsræktarstöðvarnar af miklum móð og ætla að sigra heiminn og sjálft sig í leiðinni á nokkrum vikum. Margir vilja hins vegar gleyma að hollt mataræði er ekki síður mikilvægt og lykillinn að góðum árangri er að ná góðu jafnvægi þarna á milli.

Hágæðaprótein úr íslenskri mjólk

Hleðsla er íþróttadrykkur sem inniheldur prótein og kolvetni til hleðslu. Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS, segir að við þróun á drykknum hafi verið lögð mikil áhersla á að þróa hollan en jafnframt bragðgóðan drykk. „Það er ekki sjálfgefið að ná góðu bragði í svona próteinríkum vörum, en ég tel að okkar hafi tekist ágætlega upp í Hleðslu,“ segir Björn, en Hleðsla hefur nú verið á markaði í fimm ár, og gengið vel. „Hleðsla inniheldur eingöngu hágæðaprótein úr íslenskri mjólk, en í hverri fernu eða dós eru 22 g af próteinum sem eru mikilvæg til vöðvauppbyggingar og viðhalds,“ bætir Björn við. „Hleðsla er bæði fitulítil og kalkrík og reyndar er Hleðsla í fernu með kalkríkari mjólkurvörum, litla fernan gefur meira en helming af ráðlögðum dagskammti af kalki. Fernuvaran er einnig með klofnum mjólkursykri og getur því hentað þeim vel sem hafa mjólkursykuróþol,“ segir Björn.

Mikilvægir orkugjafar

Prótein í fæðunni eru samansett úr 20 amínósýrum, þar af eru 9 lífsnauðsynlegar. Þessar amínósýrur gegna mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Þær eru til dæmis grunneiningar líkamspróteinanna sem eru meðal annars byggingarefni vöðva og beina. Til að líkaminn nái að nýta próteinin sem best er mikilvægt að neyta Hleðslu eða annarra próteingjafa eins nálægt æfingu og mögulegt er og skiptir þá einu hvort það sé fyrir eða eftir æfingu, aðalatriðið er að ekki líði langur tími þarna á milli. Kolvetni eru mikilvægasti orkugjafi líkamans. Þau eru geymd í líkamanum í formi glýkógens sem er forðabúr fyrir kolvetni

og er meðal annars að finna í vöðvum og lifur. Til marks um mikilvægi þeirra sem orkugjafa má benda á að heilinn nýtir aðeins kolvetni sem orkugjafa, en ekki prótein eða fitu.

Fimm ljúffengar bragðtegundir

Hleðsla hefur á síðustu misserum fengið mjög góðar viðtökur meðal íþróttafólks og annarra neytenda. Hleðsla fæst í fimm ljúffengum bragðtegundum; súkkulaði, kókos og súkkulaði, vanillu, jarðarberja og loks brómberja, svo neytendur ættu ekki að vera í miklum erfiðleikum með að finna sitt uppáhaldsbragð. „Nýjasta Hleðslan er kælivara en hún er með súkkulaðibragði og er pakkað í 330 ml fernur

Nitric Oxide Matur sem Meiri vöðvasnerpa, orka, þrek, úthald og súrefnisupptaka. Betra blóðflæði - allt að 30% æðaútvíkkun Af hverju er BEETELITE sá eini sem þorir að bjóða Nitric Oxide próf með sinni vöru. Því BEETELITE einfaldlega virkar.

WE BEET THE COMPETITION 1 skot 30 mín. fyrir æfingar, keppnir blandað í 100 - 150 ml af vatni. Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka 30 mín. eftir inntöku. Fæst í apótekum, heilsubúðum www.vitex.is

Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt

WWW.WODBUD.IS SUNDABORG 9 S: 690 6431

VERSLUN SUNDABORG ER OPIN: ÞRI-FÖS : 14:00 – 18:00 LAU : 12:00 – 15:00

leiðir til árangurs Rétt val á fæðu skiptir gríðarlegu miklu máli í tengslum við vellíðan og heilsufar og þá sérstaklega til að líkaminn nái að starfa með fullri getu. Það er eitthvað sem íþróttafólk og fólk sem stundar Crossfit sækist eftir til að ná sem mestum árangri. Hér er listi yfir mat sem leiðir til árangurs í ræktinni.

með tappa. 250 ml fernurnar með röri innihalda líka Hleðslu með súkkulaðibragði en þær geymast utan kælis,“ segir Björn. Hinar bragðtegundirnar fást í hentugum drykkjardósum og eru kælivörur. Hleðslan hentar vel fólki sem er á ferðinni, hvort sem það er á leið í ræktina, út að hlaupa, í golf eða í fjallgöngur eða þeim sem eru í vinnu og skóla og leita eftir hollri millimáltíð. „Hérna er því drykkur sem er bæði hollur og handhægur, og ekki skemmir fyrir hversu bragðgóður hann er,“ segir Björn. Unnið í samstarfi við MS

Dökkt súkkulaði Til að fullnægja sætuþörfinni er ágætt að nasla á dökku súkkulaði. Það inniheldur andoxunarefni sem styrkja hjartað með því að lækka blóðþrýstinginn. Einungis þarf að tryggja að dökka súkkulaðið innihaldi að minnsta kosti 60 prósent af kakói.

Lax Stútfullur af Omega-3 fitusýrum sem kemur í veg fyrir ýmsa sjúkdóma, eins og hjartasjúkdóma, krabbamein og þunglyndi. Rannsóknir hafa sýnt að fitusýrur í laxi geta dregið úr harðsperrum og jafnvel stutt við vöxt vöðva. Auk þess má finna prótein, D-vítamín og B12 vítamín í laxi.

Avókadó Avókadó, eða lárpera eins og það heitir á íslensku, er uppfullt af hollri fitu sem aðstoðar líkamann að viðhalda góðu kólesteróljafnvægi. Avókadó getur einnig slegið á matarlystina og þannig forðað fólki frá því að detta í snakkpokann þegar hungrið sækir að. Auk þess inniheldur það trefjar, kalíum, og C og K vítamín.

Grænkál Grænkál lá lengi óhreyft í grænmetisdeildinni en þykir nú eitt heitasta grænmetið. Enda þarf ekki nema einn bolla af grænkáli til að mæta dagsþörf fyrir A-, Cog K-vítamín. Auk þess sem það inniheldur ákveðin andoxunarefni sem bæta sjónina. Rauðrófur Blóðrautt grænmeti hefur verið að auka vinsældir sínar upp á síðkastið og þá fyrst og fremst vegna þessu hversu trefja- og næringarríkt það er. Rannsókn sem gerð var á síðasta ári og birt var í tímaritinu Nutrients bendir til að neysla á rauðrófum get aukið árangur líkamsæfinga þar sem þær innihalda næringarefni sem hjálpar vöðvunum að nýta súrefni betur við áreynslu, sem getur aukið úthald til dæmis við kraftmiklar æfingar eins og að hoppa upp á kassa. Þar að auki innihalda rauðrófur andoxunarefni.


crossfit 43

Helgin 13.-15. mars 2015

Allir velkomnir í Crossfit XY

Léttur og skemmtilegur andi einkennir starfsemina í Crossfit XY. Æfingahópurinn gerir ýmislegt saman, eins og til dæmis að ganga Laugaveginn eins og hluti hópsins gerði síðasta sumar.

Crossfit XY býður upp á æfingakerfi fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Stöðin fagnar tveggja ára afmæli um þessar mundir.

C

rossfit XY er í Miðhrauni 2 í Garðabæ og hefur dafnað vel á þessum árum og sífellt bætast við fleiri iðkendur sem vilja byrja að stunda þessa skemmtilegu og vinsælu íþrótt. „Hingað eru allir velkomnir og líka þeir sem hafa ekki stundað crossfit áður, en þeir byrja á því að fara á svokallað grunnnámskeið þar sem undirstöðuatriðin eru kennd og æfð,“ segir Árni Björn Kristjánsson, rekstrarstjóri CrossFit XY. Grunnnámskeiðin byrja yfirleitt á tveggja vikna fresti en hægt er að fá frekari upplýsingar um þau á facebook síðu Crossfit XY og heimasíðu stöðvarinnar www.crossfitxy.is.

Fjölbreytt æfingakerfi

Crossfit er æfingakerfi sem hentar öllum, hvort sem fólk er afreksíþróttafólk eða óvant líkamsrækt, þar sem hver og einn stundar æfingarnar út frá sínum forsendum. Allir gera sömu æfingar en með mismunandi þyngdum og á mismunandi erfiðleikastigi og hraða eftir því hvað hentar. Crossfit byggir á þoli og styrk en fyrst og fremst fjölbreytni en breytileiki er lykilorð í crossfit. Þannig er hægt að ná framúrskarandi góðu líkamsformi og heilsu á breiðum grunni. „Við æfum styrk og þol á fjölbreyttan hátt og eru ólympískar lyftingar stór hluti af crossfit. Það kann að hljóma svolítið skelfilega í eyrum margra, en dæmin eru mýmörg um að fólk sem hafði aldrei lyft lóðum byrji að elska þessar ólympísku áskoranir jafnmikið og aðrar æfingar sem það kannski þekkir betur,“ segir Árni Björn.

Góður og skemmtilegur andi

„Við leggjum áherslu á léttan og skemmtilegan anda í XY þar sem allir njóta sín, ásamt því að vera með góðar æfingar og leiðsögn á degi hverjum. Í XY er fólk á öllum aldri og í alls konar formi. Við erum með iðkendur alls staðar af stór Reykjavíkursvæðinu þótt flestir komi úr Garðabæ, Hafnarfirði og Kópavogi. Við erum með keppnisfólk hjá okkur sem hefur náð góðum árangri á mótum bæði hér heima og erlendis og það er með gríðarlega reynslu sem það kennir og miðlar til annarra iðkenda. Lyftingafélag Garðabæjar var stofnað á síðasta ári og hefur aðstöðu hjá okkur en stöðin býr að stórum sölum og fyrsta flokks búnaði til að sinna afreksfólkinu okkar jafnt sem hinum, það er nóg pláss fyrir alla og allir fá sinn æfingatíma. Hlaupastígarnir í hrauninu hér beint fyrir utan húsið eru líka forréttindi á sumrin“ segir Árni Björn. Næsta grunnnámskeið hefst 17. mars. Skráning og frekari upplýsingar hjá info@crossfitxy.is

„Crossfit er æfingakerfi sem hentar öllum, hvort sem fólk er afreksíþróttafólk eða óvant líkamsrækt, þar sem hver og einn stundar æfingarnar út frá sínum forsendum,“ segir Árni Björn Kristjánsson, rekstrarstjóri CrossFit XY. Mynd/Hari

Unnið í samsarfi við Crossfit XY

Um ok kUr

CrossFit XY leggur áherslu á að bjóða upp á CrossFit þjálfun í skemmtilegu og jákvæðu umhverfi. Aðstaða og tæki: Stöðin er um 1.000 fm, þar af eru um 640 fm æfingarými sem skiptist í tvo rúmgóða sali og þriðja minni sem hentar betur fyrir minni hópa og einkaþjálfun. Utanadyra höfum við góðan aðgang að hlaupastígum í hrauninu í kring og stutt er í Heiðmörkina.

Nudd, heitur og kaldur pottur: Iðkendur geta nýtt sér notalega spa aðstöðu okkar þar sem boðið er upp á aðgang að heitum og köldum potti og mögulegt að bóka tíma í nudd.? Staðsetning: CrossFit XY er staðsett í Miðhrauni 2 í Garðabæ. Við erum við Reykjanesbrautina og því frábært aðgengi að stöðinni og fljótlegt að koma við og taka æfingu.? Það er alltaf líf og fjör á krakkaæfingunum í Crossfit XY.


crossfit

44

Helgin 13.-15. mars 2015

Ótrúlega margir hafa náð árangri „Til að gera vöðvana móttækilegri fyrir þjálfun og koma í veg fyrir meiðsl þarf að huga að réttri stignun og réttri liðleikaþjálfun í samræmi við æfingar,“ segir Daði Reynir Kristleifsson, sjúkraþjálfari hjá Afli. Sjálfur hefur hann stundað Crossfit í nokkur ár og veitir hann jafnframt ráðgjöf hjá Crossfit Reykjavík. Hann telur það algengt að fólk fari sér of geyst.

Daði Reynir Kristleifsson segir fáfræði á Crossfit kalla á ósanngjarna umfjöllun og ekki sé meira um meiðsl í Crossfit en öðrum íþróttagreinum.

Þ

að kallar á meiðsl ef fólk fer frá því að gera ekki neitt í að æfa fimm sinnum í viku af krafti,“ segir Daði Reynir Kristleifsson, sjúkraþjálfari hjá Afli. Crossfit æfingakerfið er hannað með það í huga að það sé hægt að aðlaga að hverjum sem er og telur Daði það mikilvægt að fólk geri æfingar í takt við það sem það hefur gert áður. „Fólk er í misjöfnu formi þegar það byrjar æfingar og nauðsynlegt að taka mið af því.“ Grunnnámskeið eru í boði fyrir þá sem ætla að byrja að stunda Crossfit þar sem lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu og fræðslu og telur Daði það skipta öllu máli að fara í gegnum grunnámskeið. „Einn stærsti parturinn er að fá kennslu í hvernig eigi að gera hreyfingarnar rétt, og vera sífellt að fínpússa hreyfingarnar. Crossfit æfingarnar reyna mikið á axlir, mjóbak og hné og það er fyrst og fremst mikilvægt að vera ekki með of þung lóð. Vöðvaþreytan byrjar að tikka inn þegar lóðin verða þyngri og ef fólk er ekki nægilega sterkt fer það að beita sér rangt til að svindla sér í gegnum æfinguna. Þess vegna er alltaf gott að byrja létt og vinna sig smám saman upp og halda réttri líkamsbeitingu.“ Daði Reynir segir að þetta eigi við um alla hreyfingu sem fólk stundar því það skipti engu hvort fólk sé að

Sambucol: – Náttúruleg vörn gegn flensu – Sannkölluð andoxunarbomba fyrir frumurnar Fæst í Lyfju, Apótekinu, Lyfjaveri og Garðsapóteki

æfa boltaíþrótt, lyfta lóðum, Crossfit eða sund, þá sé rétt stignun lykilatriði. Hann segir að því miður sé of oft horft á Crossfit sem meiðslagjarna íþrótt en það stafi fyrst og fremst af vanþekkingu á sportinu. „Margir þekkja boltaíþróttirnar vel en þar er mikið um meiðsl sem ekki er talað um af jafnmikilli neikvæðni. Það þykir jákvætt og gott að stunda handbolta eða fótbolta þar sem margir eru með slæmar axlir, ökkla og hné eftir þjálfun, en um leið og fólk segist stunda Crossfit þá heyrast áhyggjuraddir. Það er ósanngjarnt og ég tel að það stafi fyrst og fremst af vanþekkingu á sportinu.“ Aðspurður tekur hann undir það að áhyggjur um meiðsl í Crossfit stafi af því að það æfa margir sem hafa lítið hreyft sig áður og hafa ekki stundað íþróttir. „Það má ekki gleyma því að það eru margir sem finna sig í Crossfit sem hafa ekki áður fundið hreyfingu við hæfi og það eru ótrúlega margir sem hafa náð gríðarlegum árangri sem hefur breytt lífi þeirra til hins betra. Allskonar fólk stundar Crossfit með góðum árangri, þar á meðal fólk sem er háð hjólastól. Aðalmálið er að allir geri það sem þeir geta og hugi að því að gera það rétt. Fólk verður að þekkja sín mörk og vera ófeimið við að leita eftir leiðsögn og spyrja.“

Dregur úr einkennum og getur stytt flensu- og kveftímann um allt að 50% Sambucol Immuni Forte Sykurlaust, náttúrulegt þykkni fyrir fullorðna.

Sambucol for Kids Bragðgott náttúrulegt þykkni fyrir börn.

Sambucol Immune Forte forðahylki Fyrir þá sem ekki vilja mixtúru.

Besta flensuog kvefmixtúra sem ég hef prófað

raritet.is


heimkaup.is

Herrastuttbuxur kynningarverð 5.993,Verð 7.990,-

Dömubolur kynningarverð 3.594,Verð 5.990,-

narn er mætt! 2015 lí afsláttu +

Prufutími í World-Class í kaupbæti.

Öll tilboð eru birt með fyrirvara um breytingar og uppseldar vörur.

Kynningar

Stuttbuxur 8” kynningarverð 5.059,Verð 5.790,-

Bolur kynningarverð 5.755,Verð 6.990,-

Kvartbuxur kynningarverð 8.522 Jakki kynningarverð 13.828,Verð 9.990,Verð 15.490,-

Færð þú

Bolur kynningarverð 3.594,Verð 5.990,-

í tölvupósti?

Nýir vinningar daglega. Canon Ixus myndavél í fyrramálið og UA Apollo hlaupaskór herra á sunnudaginn.

Skráðu þig strax póstlistann og þú gætir fengið lukkupóstinn!

Heimkaup.is er stærsta netverslun á Íslandi! Öryggi - ekkert mál að skila eða skipta

Hægt að greiða við afhendingu

Augljós kostur við að versla við innlenda risavefverslun og vöruhús eins og Heimkaup.is er að ekkert mál er að skila eða skipta ef upp koma vandamál.

Ólíkt mörgum netverslunum býðst þér einnig að greiða með peningum eða korti við afhendingu vörunnar. Öruggara verður það ekki.

Frí heimsending samdægurs Pantaðu fyrir kl. 1700 og við sendum frítt heim samdægurs á höfuðborgarsvæðinu – næsta dag víðast hvar á landsbyggðinni. Frítt ef pantað er fyrir 4.000.- eða meira.

Heimkaup.is Smáratorgi 3 / 201 Kópavogi / 5502700


46

crossfit

Helgin 13.-15. mars 2015

ÞAÐ STYTTIST Í GLÆSILEGUSTU TÓNLISTARVEISLU ÁRSINS

SÖNGVARAR

BJÖRGVIN HALLDÓRSSON EGILL ÓLAFSSON EYÞÓR INGI PÁLL ÓSKAR SIGRÍÐUR THORLACIUS STEFÁN JAKOBSSON UNA STEF ÞÚ OG ÉG

HELGA MÖLLER JÓHANN HELGASON SÉRSTAKIR GESTIR

BERGÞÓR PÁLSSON ELMAR GILBERTSSON ÞÓRA EINARSDÓTTIR

HEIÐURSTÓNLEIKAR Í TILEFNI AF 70 ÁRA AFMÆLI GUNNARS ÞÓRÐARSONAR

HARPA 29. MARS HRYNSVEIT EYÞÓR GUNNARSSON HLJÓMBORÐ FRIÐRIK KARLSSON GÍTAR GUÐMUNDUR PÉTURSSON GÍTAR GUNNLAUGUR BRIEM TROMMUR JÓHANN ÁSMUNDSSON BASSI PÉTUR GRÉTARSSON SLAGVERK SIGURÐUR FLOSASON SAXÓFÓNN SNORRI SIGFÚS BIRGISSON PÍANÓ ÞÓRIR ÚLFARSSON HLJÓMBORÐ REYKJAVIK SESSION ORCHESTRA UNDIR STJÓRN ROLAND HARTWELL GOSPELKÓR ÓSKARS EINARSSONAR GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU UNDIR STJÓRN JÓNS STEFÁNSSONAR HLJÓMSVEITARSTJÓRI ÞÓRIR ÚLFARSSON KYNNIR JÓNAS R JÓNSSON LEIKSTJÓRI EGILL EÐVARÐSSON HEIÐURSGESTUR GUNNAR ÞÓRÐARSON

ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR Á AUKATÓNLEIKANA! MIÐASALA Á MIÐI.IS, HARPA.IS, Í MIÐASÖLU HÖRPU OG SÍMA 528-5050.

CrossFit samband Íslands stóð nýlega að fyrstu forkeppninni af nokkrum fyrir heimsleikana í Crossfit. Mynd/Thomas Fleckenstein

Íslendingar keppast við að komast á heimsleikana í Crossfit CrossFit samband Íslands (CFSÍ) eru samtök CrossFit iðkenda og CrossFitstöðva á Íslandi. Samtökin sjá meðal annars um að halda utan um forkeppni heimsleikanna í Crossfit, en fyrsti liður hennar fór fram nýlega og náðu íslenskir Crossfit iðkendur mjög góðum árangri.

S

amtökin hafa það hlutverk að standa að hagsmunagæslu fyrir CrossFit á Íslandi, koma að árlegu Íslandsmóti í CrossFit, bæði einstaklinga og liða, og stuðla að eflingu CrossFit á Íslandi,“ segir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður CrossFit sambands Íslands.

Ein heimsleikaæfing á viku

CFSÍ stóð nýlega fyrir fyrsta viðburði ársins, sem var haldinn í tengslum við forkeppni heimsleikanna í CrossFit. Forkeppnin hófst formlega föstudaginn 27. febrúar og kallast sú keppni „The Open“. Skipulag þeirrar keppni er að yfir fimm vikna tímabil gefur CrossFit í Bandaríkjunum út eina æfingu á viku sem keppendur þurfa að framkvæma eftir fyrirfram settum reglum. „Það sem gerir þessa forkeppni skemmtilega er að allir sem eru iðkendur í CrossFit stöð, hvar sem er í heiminum, geta verið með og þannig tekið þátt í heimsmeistaramótinu og keppt við þau bestu í heiminum sem og aðra iðkendur,“ segir Svanhildur. Eftir þessar fimm vikur taka svo við svæðiskeppnir og að lokum heimsleikarnir í CrossFit sem fara fram í Carson, Los Angeles ár hvert og er sama keppni sem Annie Mist Þórisdóttir hefur tvisvar sinnum náð að sigra í.

CrossFit veisla af bestu gerð

Það var sannkölluð CrossFit veisla þegar að CFSÍ bauð bestu CrossFit-urum landsins, í unglingaflokki, opnum flokki og flokki 40 ára og eldri, að koma saman og framkvæma fyrstu æfinguna í Open, sem kallast 15.1. Æfingin sem fyrst var birt var í tveimur hlutum 15.1 og 15.1a og voru það Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir (CrossFit Suðurnes) og Þuríður Erla Helgadóttir (CrossFit Sport) sem voru með

Svanhildur Vigfúsdóttir, stjórnarformaður í CrossFit sambandi Íslands. Mynd/Hari

hæsta skorið í þessum æfingum af íslensku konunum og Björgvin Karl Guðmundsson (CrossFit Hengli) var með besta skorið af íslensku körlunum.

Tveir karlar og sex konur meðal tíu efstu í heiminum

Staðan í forkeppninni „The Open“ eftir að 2 vikum er lokið af 5 vikum lítur vel út fyrir CrossFit á Íslandi en í fyrsta sæti í karlaflokki í Evrópu er Björgvin Karl Guðmundsson og í 6. sæti er Sigurður Hafsteinn Jónsson (CrossFit XY) og í kvennaflokki er Annie Mist Þórisdóttir (CrossFit

Reykjavík) í fyrsta sæti, Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er í öðru sæti og í þriðja er Katrín Tanja Davíðsdóttir (CrossFit Reykjavík), fast á hæla þeirra koma þær Björk Óðinsdóttir (CrossFit Nordic), Þuríður Erla Helgadóttir (CrossFit Sport) og Hjördís Óskarsdóttir (CrossFit Stöðin) en þær eru allar í topp 10 í Evrópu. „Það verður gaman að fylgjast áfram með þessum keppendum og fylgja þeim svo eftir í Evrópukeppnina en það eru 30 keppendur í kvenna- og karlaflokki sem komast áfram í þá keppni,“ segir Svanhildur.


Brandenburg

FORRÉTTUR, AÐALRÉTTUR OG EFTIRRÉTTUR


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.