2 minute read

Golfklúbbur Hveragerðis -Gufudalsvöllur GHG

Kafli úr bókinni Saga golfíþróttarinnar á Íslandi frá 1942 til 2012 Höfundar: Steinar J. Lúðvíksson, Gullveig Sæmundsdóttir.

Golfklúbbur Hveragerðis Gufudalsvöllur GHG

Gufudalsvöllur í Hveragerði var formlega vígður sumarið 2002 en golfklúbbur Hveragerðis var stofnaður 1. júní 993. Völlurinn er í fallegu og sérkennilegu umhverfi með hindrunum sem sjást óvíða á golfvöllum, opnum hverum sem setja sterkan svip á völlinn. Saga golfs í Hveragerði er þó mun eldri.

Á árunum 1954 til 1962 var 9 holu golfvöllur í landi Fagrahvamms sem Golfklúbbur Árnesinga starfrækti og var hluti Íslandsmótsins 1956 haldið á vellinum jafnframt því sem leikið var á golfvelli GR í Öskjuhlíð. Golfiðkun var síðan endurvakin í Hveragerði 1987 þegar hópur áhugamanna um golfíþróttina kom saman.

Undirbúningshópurinn fékk fljótlega augastað á jörðinni Gufudal fyrir innan Hveragerði sem golfvallarstæði en hún var í eigu ríkisins og ekki í ábúð. Tveimur árum síðar náðist samkomulag um málið við Landbúnaðarráðuneytið. Árið 1995 hófu Hvergerðingar að leika á sex holum í Gufudal og þrjár holur til viðbótar voru teknar í notkun aldamótaárið 2000.

Eins og raunin er með gerð flestra golfvalla hér á landi á hópur áhugasamra hugsjónamanna heiðurinn af gerð Gufudalsvallar.

Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa komið þar við sögu og lagt drjúga hönd á plóg og segir sagan að í fáum klúbbum hafi jafn margir sjálboðaliðar lagt sitt af mörkum. Sem dæmi um þá miklu vinnu sem leggja þurfti í við völlinn má nefna að 4-5 þúsund rúmmetrum af jarðvegi var ekið í fimmtu braut vallarins sem liggur í hrauni.

Í kjölfarið var kallaður til mannskapur sem handlagði þökur í alla brautina. Ónefndur kylfingur sem þar lagði sitt af mörkum sagðist vísvitandi slá út í hraunið til að hlífa þökunum þar sem svo mikil vinna hafi farið í að leggja þær.

Frá 8. holu á Tungudalsvelli. Brautin liggur í ,,hundslöpp” meðfram áni

Golfklúbbur Hveragerðis hefur notið góðs af velvilja ýmissa styrktaraðila og fékk til að mynda fjölmörg tré að gjöf, þar á meðal fjögurhundruð plöntur, mest víði og birki, sem Dvalarheimilið Ás gaf klúbbnum og voru þær allar gróðursettar við völlinn.

Golfvöllurinn í Gufudal er að mörgu leyti afar sérstakur og setja hverirnir ekki hvað síst sérstakan svip á völlinn og árnar tvær, Sauðá og Varmá. Land vallarins er í tveimur sveitarfélögum, Ölfusi og Hveragerðisbæ. Klúbburinn hefur yfir að ráða skemmtilegu landi undir 18 holu golfvöll en þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hvenær af stækkun vallarins verður. Markmið klúbbsins er fyrst og fremst að gera þær 9 holur sem fyrir eru sem allra bestar og helst enn betri áður en ráðist verður í framkvæmdir við stækkun vallarins. Gamalt fjós stóð í Gufudal sem klúbbfélagar tóku í gegn og gerðu að golfskála.

Félögum í klúbbnum hefur fjölgað ört. Þegar klúbburinn var stofnaður voru á svæðinu nokkuð margir kylfingar en um að bil 30 manns mættu á stofnfund klúbbsins. Margir þeirra höfðu leikið á Strandavelli og á golfvelli sem var í Alviðru. Fjöldi kylfinga á höfuðborgarssvæðinu leggur leið sína austur fyrir fjall til þess að leika á Gufudalsvelli.

This article is from: