
2 minute read
Golfklúbbur Þorlákshafnar Þorláksvöllur GÞ

Kylfingar á Þorláksvallvelli.
Kafli úr bókinni Saga golfíþróttarinnar á Íslandi frá 1942 til 2012 Höfundar: Steinar J. Lúðvíksson, Gullveig Sæmundsdóttir.
Golfklúbbur Þorlákshafnar - Þorláksvöllur GÞ

Landgræðsla Ríkisins og bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn ákváðu árið 1994 að reynt skyldi að hefta sandfok við innkeyrsluna til Þorlákshafnar. Jafnframt var ákveðið að gera samhliða heftingu sandfoksins tilraun til þess að móta golfvöll og rækta hann upp. Nokkrir áhugasamir kylfingar í klúbbnum komu síðan saman um miðjan níunda áratuginn og sáðu í svæðið. Sandurinn og grunnvatnið gerðu það að verkum að grasið tók fljótt við sér. Tilraunin gekk vel og var Golfklúbbur Þorlákshafnar stofnaður 22. maí 1997 og sama ár var hægt að leika golf á vellinum. Fyrsti formaður klúbbsins var Már Michelsen sem var ásamt nokkrum félögum sínum helsti hvatamaður að stofnun klúbbsins.
Fyrst eftir að klúbburinn var stofnaður var leikið á fjórum holum en þær voru orðnar níu í byrjun tíunda áratugarins. Forsvarsmenn héldu áfram af miklum stórhug með dyggum stuðningi sveitarfélagsins og árið 2005 var Þorláksvöllur orðinn 18 holur. Völlurinn ber nafn Þorláks biskups helga. Þorláksvöllur er lengsti golvöllur landsins eða 6233 metrar af hvítum teigum. Eins og fyrr greinir eru brautirnar flestar byggðar á sandi sem krefst mikillar umhirðu þar sem sandfok getur sett strik í reikninginn. Hannes Þorsteinsson hannaði völlinn í tveimur 9 holu lykkjum og eru margar holurnar mjög skemmtilegar. Aðeins ein glompa gerð af manna höndum er á vellinum.
Umhverfi Þorláksvallar er afar sérstakt og minnir um margt á skosku og írsku strandvellina, ekki hvað síst hár karginn. Þar sem völlurinn er nálægt sjó og er byggður á sandi kemur hann snemma til á vorin. Að hluta til liggur völlurinn meðfram sjávarkannti. Skapar kannturinn oft skjól fyrir vindi frá sjónum og fyrir bragðið er hægt að spila á Þorláksvelli í ýmsum veðrum. En sá galli er á gjöf Njarðar að stundum fýkur sandur úr fjörunni inn á brautirnar sem eru næst sjónum og þegar ástandið er verst er ekki hægt að leika þær brautir vegna sandfoksins. Í upphafi var 40 feta gámi komið fyrir við völlinn sem golfskála en árið 2003 var byggt nýtt klúbbhús sem gjörbreytti allri aðstöðu og rekstri til hins betra. Sveitarfélagið hefur staðið þétt við bakið á starfsemi klúbbsins og meðal annars lagt til tvo starfsmenn sem starfa við völlinn og uppbyggingu hans.