5 minute read
Golfklúbbur Selfoss - Svarfhólsvöllur GOS
Golfklúbbur Selfoss - Svarfhólsvöllur GOS
Golfklúbbur Selfoss var stofnaður 24. janúar 1971 og var Marteinn Björnsson kjörinn fyrsti formaður klúbbsins. Á ýmsu gekk í sögu Golfklúbbs Selfoss í allmörg ár og um tíma leit út fyrir að hann lognaðist út af. Teiknaður var 18 holu golfvöllur á landi við Engjaveg á Selfossi og var komið þar upp 6 holu velli. Lítill friður ríkti um rekstur golfklúbbs á þessum slóðum og hafði Skógræktarfélag Selfoss til dæmis augastað á landinu undir sína starfsemi. Klúbbnum var síðan gert að yfirgefa svæðið án þess að annað land væri í augsýn.
Um tíma höfðu félagsmenn enga aðstöðu til að iðka íþrótt sína. Þar kom að svæði fékkst undir starfsemina í landi Alviðru við Sogið en umrætt land var í eigu Árnessýslu. Félaga í klúbbnum dreymdi stóra drauma um framkvæmdir á svæðinu og unnu hörðum höndum við hreinsun og aðra uppbyggingu enda landið og húsakostur í mikilli niðurníðslu. Hægt var að koma fyrir 9 holu velli á þessum slóðum en landrými var ekki nóg til þess að áform um 18 holu völl gætu orðið að veruleika. Þó að menn hafi glaðst yfir nýju aðstöðunni voru ýmsir gallar á þessu svæði eins og til dæmis að ekki sást þar til sólar eftir miðjan dag. Þarna hafði Golfklúbbur Selfoss aðstöðu næstu 5 árin og héldu menn allan þann tíma áfram að gera svæðinu til góða þangað til landeigendur vildu fá landið aftur.
Eftir að svæðið í landi Alviðru var ekki lengur tiltækt var klúbburinn vallarlaus í eitt ár en klúbbfélagar nutu velvildar klúbbanna á Hellu og í Öndverðarnesi og fengu að spila þar nánast að vild. Ýmsar hugmyndir komu fram um land undir nýjan völl. Til greina kom til dæmis að klúbburinn fengi land niðri á Eyrarbakka, nærri Litla Hrauni, en klúbbfélgar voru ekki á eitt sáttir með það þannig að úr flutningum þangað varð ekki. Á þessum tíma var kominn vísir að golfvelli í landi Árbæjar við Ölfusá og sú hugmynd var viðruð að Golfklúbbur Selfoss fengi aðstöðu þar. Ekki voru Rétt utan við Selfossbæ, á mótum Selfoss og Hraungerðishrepps, er jörðin Laugardæli sem á þessum tíma var í eigu Kaupfélags Árnesinga. 1986 kom til tals, ekki hvað síst fyrir tilstuðlan Pálma Guðmundssonar sem þá var vöruhússtjóri KÁ og síðar kaupfélagsstjóri á Höfn i Hornafirði, að klúbburinn fengi jörðina á leigu. Niðurstaðan varð sú að að þetta sama ár gerði klúbburinn leigusamning við KÁ um landið til næstu 30 ára eða til ársins 2016. Þar með var kominn staður undir völl klúbbsins, Svarfhólsvöll.
Völlurinn er á mjög fallegum stað á bakka Ölfusár rétt austan við Selfoss. Völlurinn er nú allur í Flóahreppi en tilheyrði áður að hluta til Árborg. Starfsemi Golfklúbbs Selfoss jókst jafnt og þétt eftir að ljóst var að landamálin voru í höfn að sinni. Hafist var handa við byggingu húss undir starfsemina 1986 en framkvæmdir gengu ekki jafn hratt fyrir sig og menn óskuðu og var húsið ekki fullbúið fyrr en tíu árum síðar. Um er að ræða 200 fermetra byggingu og þar af er 100 fermetra veitingasalur. 1998 bauð Kaupfélagið klúbbnum jörðina til kaups en ekki samdist um kaupin þar sem verðhugmyndir manna fóru ekki saman og í kjölfarið keypti Samvinnulífeyrissjóðurinn jörðina. Golfklúbbur Selfoss gerði sjóðnum síðan tilboð í þann hluta jarðarinnar sem klúbburinn hefur yfir að ráða nú og 17 hektara að auki sem myndu nægja til þess að unnt væri að koma fyrir 18 holu velli á svæðinu.
Samningurinn um land undir völlinn sem samþykktur var 1986 var til 30 ára og þótti mörgum það langur tími. Í honum voru uppsagnarákvæði sem núverandi landeigandi, byggingarfélagið Ferjukot, ákvað að nýta. 2008 var því hafist handa við töluverðar breytingar á vellinum þar sem landeigandinn hafði ákveðið að nota vestasta hluta vallarins undir íbúðabyggð. Þrjár brautir voru á umræddu svæði og var nauðsynlegt að breyta legu þeirra. Hannes Þorsteinsson gerði tillögur að breytingunum og var unnið eftir þeim. Fyrirætlanir um 18 holu völl á svæðinu bíða því enn um sinn þó að menn hafi metnað og vilja til þess að koma þeim í framkvæmd. Forráðamenn klúbbsins hafa reyndar skoðað nokkra staði sem myndu henta undir 18 holu framtíðargolfvöll og telja þrjú svæði helst koma til greina í því sambandi. Í fyrsta lagi svæðið þar sem völlurinn er nú við Svarfhól og upp með ánni austan vert við núverandi golfvöll. Ef þetta svæði fengist væri hugsanlega hægt að nýta hluta af núverandi golfvelli. Annar kostur sem kemur til greina er landsvæði sem liggur milli Stokkseyrar og Eyrarbakka en það svæði er að mestu í eigu Árborgar. Þriðji möguleikinn er land austur í Bitru en þar hefur klúbbnum verið boðið ókeypis land undir golfvöll. Gallinn við tvö síðarnefndu svæðin er að mati forsvarsmanna klúbbsins hversu langt frá Selfossi þau eru. Fjarlægðin geti orðið til þess að börn og unglingar eigi ekki eins mikla möguleika á að æfa og leika golf og nú er.
Markmiðið er enn að Golfklúbbur Selfoss eignist 18 holu golfvöll og þó að ekki sé ljóst hvar hann endanlega verður hafa forsvarsmenn klúbbsins vilja til að nýta tímann meðan þeir ráða enn yfir góðum 9 holu velli og undirbúa uppbyggingu 18 holu golfvallar. Þeir töldu að lag væri að fara í framkvæmdir eftir að kreppan skall á þar sem unnt væri að fá ódýrara vinnuafl en gerðist þegar þenslan var sem mest. Hefur Sveitarfélagið Árborg lýst yfir stuðningi við verkefnið.
Á þeim 40 árum sem liðin eru frá stofnum klúbbsin hefur hann haft aðstöðu á þremur stöðum; við Engjaveg í þéttbýlinu á Selfossi, við Alviðru í Grímsnesi og síðast í Laugardælum þar sem völlurinn er nú. Leigusamningur um núverandi svæði rann út haustið 2009 en klúbburinn fékk vilyrði fyrir því að framlengja hann um eitt ár í senn. Menn vonast til þess að starfsemin verði áfram þar sem hún er þangað til endanleg lausn hefur fengist á framtíðarvallarstæði. Mikið fé og ómæld vinna hafa farið í uppbyggingu á svæðinu síðustu tuttugu árin og því besti kosturinn ef hægt væri að halda uppbyggingunni áfram á því svæði.menn á einu máli um þá lausn mála og lá í loftinu að klúbburinn klofnaði vegna togstreitu og ágreinings um aðstöðu til golfiðkunar.