![](https://static.isu.pub/fe/default-story-images/news.jpg?width=720&quality=85%2C50)
1 minute read
Efnisyfirlit
1. Formáli
Austan við Bárðardal í Suður-Þingeyjarsýslu liggja grösugar heiðar, Fljótsheiði og Mývatnsheiði. Heiðarnar afmarkast að austan af Reykjadal og Mývatnssveit. Nokkur býli hafa verið á þessum heiðum frá fornu fari, en á 19. öldinni voru byggð þarna mörg nýbýli. Þetta tengdist fólksfjölgun í sveitunum á þessum tíma. Einnig var tíðarfar hagstætt um miðja 19. öldina og þá varð mögulegt að stunda búskap á stöðum sem kalla mætti jaðarsvæði. Í lok 19. aldar versnaði árferði og upp úr 1900 komu ný atvinnutækifæri í þorpum og kaupstöðum við sjávarsíðuna. Hnignaði þá byggðinni á Fljóts- og Mývatnsheiðum og nú, árið 2019, eru einungis örfá býli á þessum heiðum enn í byggð.
Ragnar Árnason (1926-2016), verkfræðingur, var fæddur í Skógarseli á Seljadal sem er austan til á Fljótsheiði. Eftir að Ragnar fór á eftirlaun, tók hann saman íbúaskrá fyrir heiðarbýlin á Fljóts- og Mývatnsheiðum. Ragnar lagði afar mikla vinnu í þessa skrá, einkum á árunum 1997 til 2009. Rit Ragnars greinir frá heimilisfólki á 17 býlum á heiðunum, svo og uppruna þess og afdrifum. Ragnar afhenti Þormóði Ásvaldssyni bónda á Ökrum í Reykjadal ritverk sitt og hugmyndin var sú að það yrði gefið út í einhverri mynd. Rit Ragnars geymir geysimiklar upplýsingar um byggðina á heiðunum. Mikilvægt er að sá fróðleikur verði aðgengilegur til frambúðar, bæði fyrir almenning og fræðimenn. Að vel athuguðu máli varð niðurstaðan sú að gefa rit Ragnars út sem vefrit á vegum Urðarbrunns – menningarfélags, í samstarfi við Menningarmiðstöð Þingeyinga. Þar með er tryggt að hin mikla vinna Ragnars frá Skógarseli glatast ekki, heldur verður aðgengileg komandi kynslóðum.
Sverrir Haraldsson, kennari í Hólum í Reykjadal, las próförk þessa rits. Unnsteinn Ingason tók loftmyndir af eyðinýbýlunum. Snorri Guðjón Sigurðsson, héraðsskjalavörður Þingeyinga, setti ritið upp til birtingar og safnaði myndum í það. Eru þessum aðilum hér með færðar bestu þakkir fyrir sína vinnu.
Ingvar Teitsson