3 minute read
Samstarf með Siðferðisgáttinni
ÍBR leggur mikla áherslu á fagleg vinnubrögð þegar koma upp ósætti eða óviðeigandi mál innan íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík. Því var það eðlilegt skref fyrir ÍBR að huga að starfsfólki sínu með því að hefja samstarf við Siðferðisgáttina.
Siðferðisgáttin kemur inn sem óháður ráðgjafi ef ágreiningsmál koma upp innan fyrirtækja er varðar óæskilega framkomu eða ef starfsmenn upplifa vanlíðan á sínum vinnustað. Siðferðisgáttin styður við bakið á öflugu mannauðsstarfi fyrirtækja og stofnana með það að leiðarljósi að efla vellíðan á vinnustað.
Advertisement
Samræmd viðbragðsáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf á landinu var gefin út í nóvember 2022.
Áætlunin var unnin af vinnuhóp sem Sigurbjörg Sigurpálsdóttir samskiptaráðgjafi leiddi og í honum voru fulltrúar frá eftirfarandi samtökum;
Bandalagi íslenskra skáta (BÍS), Íþróttabandalagi Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), Kristilegu félagi ungra manna og kvenna (KFUM og K), Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og Æskulýðsvettvanginum (ÆV).
Markmið viðbragðsáætlunar er að færa aðilum innan íþrótta- og æskulýðsfélaga og samtaka um allt land áætlun vegna atvika og áfalla sem upp geta komið í starfinu svo að viðbrögð allra íþrótta- og æskulýðsfélaga séu eins.
Í áætluninni er að finna verkferla sem fylgja skal þegar upp koma atvik eða áföll í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Viðbragðsáætlunin er einföld og á við í öllum tilvikum, óháð því um hvaða aðila og atvik er um að ræða. Dæmi um atvik sem að viðbragðsáætlunin nær til eru slys, veikindi, náttúruhamfarir, einelti og ofbeldi. Einnig eru þar gagnlegar upplýsingar um meðal annars ferðalög, hinseginleika og fjölmenningu og inngildingu í félagsstarfi, öryggismál og skráningu atvika.
Áætlunin nær yfir alla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga á landinu, aðildarfélaga, þátttakendur, stjórnendur, yfirmenn, starfsfólk, sjálfboðaliða og aðra ábyrgðaraðila innan félaganna. Þó að starfsemin geti verið misjöfn á milli félaga þá er mikilvægt að öllum líði vel við leik og störf í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Allt fólk á að geta gengið að því vísu að félagsstarf þess bjóði upp á öruggt umhverfi og að fólk fái að vera óáreitt í félagsstarfinu, óháð aldri, kynferði eða stöðu að öðru leyti. Sömuleiðis á allt fólk að geta leitað réttar síns ef atvik koma upp, án þess að óttast afleiðingar. Ýmis atvik geta komið upp og mikilvægt er að geta brugðist við á sem bestan máta. Erfitt er að gera öllum mögulegum atvikum skil en mikilvægt er að hafa einhverjar grunnreglur til að fylgja.
Jafnréttisheimsóknir
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur frá árinu 2021 heimsótt öll níu hverfafélög Reykjavíkur einu sinni á ári og mun gera það árlega. Hverfafélög ÍBR eru Ármann, Fjölnir, Fram, Fylkir, ÍR, KR, Valur, Víkingur og Þróttur. Tilgangur heimsóknanna er að skoða hvernig félögin eru að standa sig í jafnréttis og siðamálum.
Það sem skoðað er í þessum heimsóknum er meðal annars:
Janfrétti kynja - Kynjahlutföll iðkenda, starfsfólks, þjálfara, stjórnarmeðlima.
Aðstaða, búnaður, æfingatímar, menntun þjálfara og tækifæri til menntunar
Verðlaunagripir, umfjöllun, auglýsingar, fyrirmyndir
Laun og hlunnindi, fjárveitingar, úthlutun úr sjóðum, fjáraflanir og ágóði þeirra
Stjórnir, ráð og nefndir - Kynjahlutfall, þátttaka ólíkra hópa
Jafnréttisstefna - Hvenær var jafnréttisstefnan síðast endurskoðuð?
Eftirfylgni, kynning á stefnu fyrir
Hús ÍBR
Talsverð undirbúningsvinna fór fram á starfstímabilinu vegna fyrirhugaðra framkvæmda við hús ÍBR. Unnið var að gerð fjárhagsáætlana fyrir byggingu hæðar ofan á húsið, fyrir klæðningu hússins í heild og jarðskjálftastyrkinga. Viðræður við ÍSÍ fóru einnig fram iðkendum og starfsfólki Ofbeldis- og siðamál - Kynning siðareglna og hegðunarviðmiða fyrir iðkendum og starfsfólki. varðandi sameiginlega þætti í mögulegum framkvæmdum. Þegar að ákvarðanatöku var komið blöstu við gríðarlegar hækkanir á byggingarkostnaði og var því ákveðið að fresta ákvörðunum og vonast eftir að verð myndi lækka. Eins var ljóst að væntanlegur leigutaki var ekki tilbúinn að greiða hærri leigu.
Verkferlar þegar upp koma ofbeldismál. Kynning verkferla fyrir iðkendum og starfsfólki.
Fjöldi mála sem hafa komið upp í félaginu.
Fólk af erlendum uppruna - Kynning á íþróttastarfsemi. Er unnið eftir móttökuáætlun fyrir börn og unglinga af erlendum uppruna? Tungumál upplýsinga til iðkenda og foreldra. Fjölbreytileiki mynda í kynningarefni. Hlutfall iðkenda, starfsfólks, þjálfara og sjálfboðaliða af erlendum uppruna.
Hinsegin iðkendur - Aðgengi að salernum/búningsklefum. Hinseginfræðsla, hinseginvænt umhverfi.
Tenging milli íþróttafélagsins og Tjarnarinnar eða Samtakanna 78.
Fatlaðir iðkendur - Aðgengi að íþróttaaðstöðu, búningsklefa og salernisaðstöðu. Stuðningur, aðstoðarmanneskjur, búnaður. Sýnileiki og hlutfall/fjöldi fatlaðra iðkenda.
Efnaminni iðkendur - Styrkir, fella niður æfingagjöld, samvinna við þjónustumiðstöð og/eða skóla.
Það liggur þó fyrir að taka þarf ákvörðun fyrr en seinna um framkvæmdir því að húsið þarfnast viðhalds og tíminn er ekki að vinna með okkur þar.
Formannafundur
Formannafundur ÍBR var haldinn í Laugardalshöll þriðjudaginn 22. nóvember 2022. Þar var kynnt vinna starfshóps umhverfisíþróttafélög sem og vinna starfshóps um styrki til íþróttastarfs.
Sérráð og Sérgreinanefndir
Sérráðin og nefndirnar eru eins og gengur misvirk. Flest hafa það verkefni helst að halda utan um Reykjavíkurmót í sinni grein. Einhverjir aðilar koma að skiptingu æfingatíma í sérhæfðum mannvirkjum fyrir viðkomandi grein og einhver sinna hagsmunabaráttu fyrir sína grein.
Þau sérráð/nefndir sem eru virk eru:
Badmintonráð
Borðtennisráð
Fimleikaráð
Frjálsíþróttaráð
Handknattleiksráð
Íshokkínefnd
Júdóráð
Karatenefnd
Keilunefnd
Körfuknattleiksráð
Knattspyrnuráð
Skíðaráð
Sundráð
Tennisnefnd