1 minute read

949-14. Mat á norrænu rauðsmárasafni, Korpu ÁH

Smári

Nokkrum tilraunum með smára eru gerð skil undir kaflanum um túnrækt.

Smárayrki eru í borin saman í tilraun 925-14.

Í tilraun 946-12 eru bornar saman sáðblöndur með vallarfoxgrasi bæði með og án smára.

Tilraun nr. 949-14. Mat á norrænu rauðsmárasafni (Arctic Clover), Korpu. Sáð var í gróðurhúsi fræi af 48 stofnum og 3 viðmiðunaryrkjum af rauðsmára úr Norræna genbankanum. Plönturnar voru síðan gróðursettar í tilraunareiti skv. tilraunaplani 11. og 14. júlí 2014, 5 plöntur af hverjum stofni í fjórar endurtekningar, alls 1020 plöntur. Þann 8. júlí hafði verið sáð í tilraunalandið blöndu af vallarfoxgrasi (Snorra) og vallarsveifgrasi (Kupol) og borið á 57N – 25P – 46K kg/ha. Landið var mjög blautt þegar smáranum var plantað út vegna mikilla rigninga dagana á undan. Þrátt fyrir það hafa rauðsmáraplönturnar dafnað vel. Niðurstöður verða sendar til NordGen sem sjá mun um uppgjör og kynningu niðurstaðna í samvinnu við þátttakendur verkefnisins. Til hausts 2016 verða metnir eftirfarandi eiginleikar: Uppskeruhæfni, blaðstærð, stöngullengd, vaxtarform, blómgunartími, fjöldi blóma, vetrarþol og sjúkdómsþol. Þessir eiginleikar endurspegla allir mikilvæga þætti sem taka þarf tillit til við kynbætur og aðlögun rauðsmára á norðurslóð. Á þriðja ári (2016) verða bestu stofnarnir valdir úr og þeim fjölgað. Verður það gert hjá Graminor í Noregi og hjá Lantmännen í Lännäs í Svíþjóð. Markmiðið er að kynbótafyrirtækin geti fengið nægan efnivið að moða úr svo hægt sé að fara af stað með forkynbótaverkefni. Vorið 2015 lifðu 80% af smáraplöntunum og var allt metið skv. áætlun um sumarið. Töluverður breytileiki er í efniviðnum í flestum þáttum, sem metnir voru, og dæmi um það er mælingar á lengsta stöngli og blaðstærð.

Stöngullengd, mt. 46,3 cm Blaðbreidd, mt. 24,1 mm Blaðlengd, mt. 40,5 mm

This article is from: