Ellen B. - leikskrá

Page 1

Leikskrá

Ritstjórn: Melkorka Tekla Ólafsdóttir. Hönnun og uppsetning: Jorri.

Ljósmyndir: Jorri o.fl.

Prentun: Prentmet, Oddi. Útgefandi: Þjóðleikhúsið.

Myndir í leikskrá eru teknar á æfingu og eru því ekki heimild um endanlegt útlit sýningarinnar.

Sýningarréttur: Colombine Teaterförlag. Sýningarlengd er um 1 klst. og 45 mín. Ekkert hlé. Þjóðleikhúsið

74. leikár, 2022–2023.

Frumsýning á Stóra sviðinu 26. desember 2022. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.

Lampinn í sýningunni er smíðaður hjá elstu lampasmiðju landsins, Flúrlampar ehf. - Lampar.is. Lampinn er sá stærsti sem fyrirtækið hefur smíðað en hann er 7x5 metrar. Í lampanum eru LED plötur sem eru 2700 Kelvin (Warm White Comfort) og 5700 Kelvin (Cool Daylight). Samtals ljósmagn 166.740 Lumen.

Ellen B. eftir Marius von Mayenburg Þýðing: Bjarni Jónsson Þjóðleikhúsið 2022 - 2023

Leikarar

Ebba Katrín Finnsdóttir Klara Unnur Ösp Stefánsdóttir Astrid Benedikt Erlingsson Úlfur

Listrænir stjórnendur

Leikstjórn

Benedict Andrews

Leikmynd og búningar Nina Wetzel

Lýsing

Björn Bergsteinn Guðmundsson

Tónlist

Gísli Galdur Þorgeirsson Hljóðhönnun Gísli Galdur Þorgeirsson Aron Þór Arnarsson

Aðrir aðstandendur

Sýningarstjóri

Elísa Sif Hermannsdóttir

Aðstoðarmaður leikstjóra Guðmundur Erlingsson

Aðstoðarmaður leikmyndaog búningahöfundar Charlotte Spichalsky

Hljóðdeild

Þóroddur Ingvarsson - hljóðstjórn

Ljósadeild

Ýmir Ólafsson – ljósastjórn Ásta Jónína Arnardóttir – ljósastjórn

Leikgervadeild

Ingibjörg G. Huldarsdóttir – yfirumsjón Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir Áshildur María Guðbrandsdóttir Hildur Ingadóttir

Búningadeild Berglind Einarsdóttir – yfirumsjón Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Berglind Birgisdóttir Hjördís Sigurbjörnsdóttir

Sviðsdeild Ásdís Þórhallsdóttir – leiksviðsstjóri og leikmunir Siobhán Antoinette Henry – yfirumsjón sýningar og leikmuna Valur Hreggviðsson – leikmunir Alexander John George Hatfield Jasper Bock

Leikmyndagerð

Hildur Evlalía – teymisstjóri, bólstrun, tæknileg útfærsla leikmyndar Atli Hilmar Skúlason – smiður, tæknileg útfærsla leikmyndar Arturs Zorģis – smiður, bólstrun Michael John Bown – smiður Haraldur Levi Jónsson – smiður Alex John George Hatfield – smiður

5

Stórviðburður í evrópsku leikhúsi Frumsýning á þríleik eftir Marius von Mayenburg

Heimsfrumsýning á nýju verki eftir eitt fremsta leikskáld samtímans, Marius von Mayenburg, sem er jafnframt fyrsta leikritið í splunkunýjum þríleik leikskáldsins sem Þjóðleikhúsið mun sýna í heild sinni, má sannarlega kallast stórviðburður í evrópsku leikhúsi. Ekki síst þegar þar við bætist að hinn heimsþekkti leikstjóri Benedict Andrews leikstýrir tveimur verkanna, Ellen B. og Ex, á þessu leikári og Marius von Mayenburg leikstýrir sjálfur því þriðja, Alveg sama (Egal), á komandi leikári, auk þess sem hinn eftirsótti listamaður Nina Wetzel gerir leikmynd og búninga fyrir þríleikinn. Það er mikill fengur að því fyrir íslenska áhorfendur og leikhúslistafólk að fá þetta virta listafólk til starfa hér, enda er samstarf við listafólk utan úr heimi í fremstu röð til þess fallið að auðga leikhúslíf okkar með margvíslegum hætti. Þjóðleikhúsið leggur sig fram um að vera í senn nálægt áhorfendum sínum og sækja fram. Til þess að þroskast og þróast, endurnýjast og auka fjölbreytni höfum við á síðustu misserum lagt mikla áherslu á að auka erlent samstarf og fá til okkar, til að vinna með listafólki Þjóðleikhússins, spennandi listafólk sem þykir skara fram úr í erlendu leikhúslífi.

8

Það er einsdæmi að verk eftir leikskáld sem nýtur viðlíka virðingar og Marius von Mayenburg sé frumflutt á Íslandi, en auk þess hefur ekki verið sviðsettur þríleikur af þessu tagi áður hérlendis.

Þjóðleikhúsið á í margþættu samstarfi við erlent listafólk um þessar mundir. Samstarf leikhússins við hinn virta, breska leikhóp Complicité með leikstjórann eftirsótta, Simon McBurney í broddi fylkingar, er í fullum gangi. Nú standa yfir æfingar á verkinu Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu, byggðu á skáldsögu pólska nóbelsverðlaunahafans Olgu Tokarczuk, sem McBurney hefur unnið í leiksmiðjum víða um heim, þar á meðal í Þjóðleikhúsinu. Sýningin verður frumsýnd í London á vordögum og sýnd í Þjóðleikhúsinu næstkomandi haust. Frekara samstarf milli leikhópsins og Þjóðleikhússins er í undirbúningi. Stofnað hefur verið til viðamikils samstarfs við hið fornfræga Stefan Żeromski leikhús í Kielce í Póllandi, með gagnkvæmum gestasýningum og sameiginlegri uppsetningu á verki eftir ungt og upprennandi leikskáld, Weroniku Murek. Hinn heimsþekkti suðurafríski leikstjóri Yaël Farber leikstýrði stórvirkinu Framúrskarandi vinkonu á síðasta leikári og hinn virti list- og aktívistahópur Pussy Riot hefur verið í samstarfi við Þjóðleikhúsið og sýnir hér á ný á nýju ári. Fleira framúrskarandi listafólk að utan tekur þátt í að auka fjölbreytnina í sýningum okkar, líkt og brúðuhönnuðurinn Charlie Tymms, myndbands-hönnuðurinn Petr Hloušek og danshöfundurinn Lee Proud í barna- og fjölskyldusýningunni Draumaþjófnum. Á liðnu vori heimsótti leikhúslistamanneskjan Taylor Mac okkur með áhrifamikilli stórsýningu á Stóra sviðinu, og vann með innlendu leikhúslistafólki.

Við erum þakklát öllu því frábæra listafólki, innlendu sem erlendu, sem starfar í Þjóðleikhúsinu, og óskum áhorfendum góðrar skemmtunar!

Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri

9

Mayenburg-þríleikurinn í Þjóðleikhúsinu

Ellen B.

Martraðarkennd viðureign þriggja persóna, þar sem enginn er óhultur og sannleikurinn smýgur stöðugt undan. Áleitnar spurningar um valdajafnvægi og trúnaðartraust í nánum samböndum, lygina og sannleikann.

Leikstjórn: Benedict Andrews

Leikmynd og búningar: Nina Wetzel Frumsýnt 26. desember 2022

Ex

Af vægðarleysi og sótsvörtum húmor er tekist á við krefjandi spurningar um hjónabandið, ástina og tærandi afbrýðisemi, fjölskylduna, kynlífið og ofbeldið í samböndum fólks.

Leikstjórn: Benedict Andrews

Leikmynd og búningar: Nina Wetzel Frumsýnt 28. janúar 2023

Egal (ALVEG

SAMA)

Hver tekur „þriðju vaktina“? Frumleg og óvægin greining á nánum samböndum í nútíma samfélagi í einstaklega vel skrifuðu verki sem kemur okkur stöðugt á óvart.

Leikstjórn: Marius von Mayenburg

Leikmynd og búningar: Nina Wetzel Frumsýning haustið 2023

Leikritin þrjú eru hvert um sig sjálfstætt verk þótt að ýmsu leyti kallist þau á, hvað efni og form varðar.

Marius von Mayenburg

Þýski leikhúslistamaðurinn Marius von Mayenburg, höfundur þríleiksins sem samanstendur af Ellen B., Ex og Egal, er eitt stórvirkasta og beittasta leikskáld Evrópu í dag. Verk hans hafa verið þýdd á yfir þrjátíu tungumál og sett upp í leikhúsum víða um heim. Hann hefur einnig þýtt leikrit og leikstýrt eigin verkum og annarra. Hann starfaði lengi sem dramatúrg við hið virta leikhús Schaubühne am Leniner Platz í Berlín og hefur sett þar upp leiksýningar. Leikrit hans Sá ljóti, Stertabenda, Bæng og Eldfés hafa verið leikin hér á landi.

14

Marius von Mayenburg (f. 1972) nam miðaldabókmenntir í München og Berlín, og lærði leikritun við Universität der Künste Berlin á árunum 1994-1998. Hann hefur allt frá árinu 1998 unnið að fjölmörgum verkefnum með hinum þekkta, þýska leikstjóra Thomas Ostermeier, fyrst í Baracke-leikhúsinu (Deutsches Theater) og síðar við Schaubühne am Lehniner Platz í Berlín. Mayenburg hlaut Kleist-verðlaunin, sem veitt eru ungum leikskáldum, fyrir fyrsta verk sitt, Feuergesicht (Eldfés) árið 1997, Frankfurter Autorenstiftung-verðlaunin árið 1998 og var útnefndur athyglisverðasta nýja leikskáld ársins af gagnrýnendum leikhústímaritsins Theater heute árið 1999. Meðal fyrri verka hans eru Eldorado, Turista og Der Häßliche (Sá ljóti). Leikrit Mayenburgs eru reglulega sett upp í Schaubühne leikhúsinu í Berlín og Royal Court leikhúsinu í London, og fleiri virtum leikhúsum víða um heim.

Frá árinu 2009 hefur Mayenburg leikstýrt fjölda verka við Schaubühne-leikhúsið í Berlín, meðal annars uppfærslum á eigin leikritum, svo sem Nachtland, Peng (Bæng), Perplex (Stertabendu), Märtyrer og Stück Plastik, en einnig Much Ado About Nothing eftir Shakespeare, Die Tauben eftir David Gieselmann og Reden über Sex og Status Quo eftir Maja Zade. Hann hefur einnig leikstýrt verkum eftir m.a. Oscar Wilde, Stefano Massini, Rafael Spregelburd og Alan Ayckbourn í ýmsum öðrum leikhúsum, m.a. Residenztheater München, Schauspielhaus Bochum og Niedersächsisches Staatstheater Hannover.

Hann leikstýrði leikriti sínu Mars við Schauspiel Frankfurt árið 2018. Haustið 2021 leikstýrði hann leikriti sínu Ex við Riksteatern í Svíþjóð, en það er hluti af Mayenburg-þríleiknum sem Þjóðleikhúsið heimsfrumflytur í heild sinni, en hin verk þríleiksins Ellen B. og Egal verða bæði frumflutt í Þjóðleikhúsinu.

Ásamt því að starfa sem leikskáld, dramatúrg og leikstjóri hefur Mayenburg þýtt leikrit. Hann þýddi leikrit Shakespeares Hamlet, Othello, Measure for Measure og Richard III fyrir uppfærslur Ostermeiers og einnig Much Ado About Nothing, Twelfth Night og Romeo and Juliet fyrir uppfærslur sem hann leikstýrði sjálfur. Hann hefur einnig þýtt leikrit eftir samtímahöfunda á borð við Söruh Kane, Martin Crimp og Richard Dresser.

15

Benedict Andrews

Benedict Andrews leikstýrir fyrstu tveimur verkunum í Mayenburg-þríleiknum, Ellen B. og Ex, á Stóra sviði Þjóðleikhússins í vetur. Hann hefur sett upp rómaðar og margverðlaunaðar sýningar í virtustu leikhúsum og óperuhúsum heims, meðal annars í Þýskalandi, Bretlandi, Ástralíu og Bandaríkjunum, og gert tvær kvikmyndir í fullri lengd. Hann hefur leikstýrt heimsfrægu listafólki, m.a. Cate Blanchett, Kristen Stewart, Sienna Miller, Gillian Anderson, Isabelle Huppert og Vanessa Kirby. Benedict fæddist í Ástralíu árið 1972 en hefur verið búsettur á Íslandi um allnokkurt skeið, og starfar víða um heim.

Fyrri uppfærslur hans við Þjóðleikhúsið, Lér konungur (2010) og Macbeth (2012), hlutu fjölda Grímuverðlauna, m.a. sem leiksýning ársins, auk þess sem Benedict var valinn leikstjóri ársins fyrir Lé konung.

16

Benedict hefur áður leikstýrt fimm leikritum eftir Marius von Mayenburg í leikhúsum í Ástralíu og við Schaubühne-leikhúsið í Berlín, Feuergesicht, Eldorado, Der Hund, die Nacht und das Messer, Der Häßliche og Freie Sicht/ Moving Target sem þeir sömdu í sameiningu.

Frumraun Benedicts sem kvikmyndaleikstjóra, kvikmyndin Una, sem byggð er á leikriti David Harrowers Blackbird, skartar Rooney Mara og Ben Mendelsohn í aðalhlutverkum, og var frumsýnd á Telluride kvikmyndahátíðinni árið 2016. Önnur kvikmynd hans, Seberg, með Kristen Stewart í aðalhlutverki, var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2019. Kvikmyndir Benedicts hafa verið sýndar á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum víða um heim. Árið 2021 leikstýrði Benedict rómaðri uppfærslu á Così fan tutte eftir Mozart hjá Bayerische Staatsoper. Meðal annarra sviðsetninga hans á óperum eru Medea eftir Reimann í Komische Oper, Fiery Angel eftir Prokofiev í Komische Oper og Opera de Lyon, Stiffelio eftir Verdi í Frankfurt, La Bohème eftir Puccini hjá Hollensku þjóðaróperunni og ENO, Caligula eftir Detlev Glanert hjá ENO og Teatro Colón í Buenos Aires, Macbeth eftir Verdi í Konunglegu dönsku óperunni og Óperu Valencia, Le Nozze di Figaro eftir Mozart hjá Óperuhúsinu í Sydney og The Return of Ulysses eftir Monteverdi hjá ENO / Young Vic. Uppfærsla Benedicts á Cat on a Hot Tin Roof hjá Young Vic árið 2018, með Sienna Miller, Jack O’Connell og Colm Meaney í aðalhlutverkum, hlaut mikið lof, og var jafnframt sýnd á West End fyrir fullu húsi. Hann leikstýrði A Streetcar Named Desire hjá Young Vic árið 2016, með Gillian Anderson, Ben Foster og Vanessa Kirby í aðalhlutverkum. Sýningin naut mikilla vinsælda og var jafnframt sýnd hjá St Ann’s Warehouse í New York. Rómaðri uppfærslu hans á The Maids hjá Sydney Theatre Company árið 2014, með Cate Blanchett, Isabelle Huppert og Elizabeth Debicki, var boðið á Lincoln Center Festival. Fyrir uppfærslu sína á Three Sisters hjá Young Vic árið 2012 hlaut hann London Critics Circle-verðlaunin sem besti leikstjóri. Hann hlaut Helpmannverðlaunin í þriðja sinn sem leikstjóri ársins fyrir Groß und Klein, með Cate Blanchett í aðalhlutverki, hjá Sydney Theatre Company, og sýningin var m.a. sýnd í París, London og Vínarborg.

Meðal þekktustu leikstjórnarverkefna Benedicts er tímamótauppsetning hans á The War of the Roses hjá Sydney Theatre Company árið 2009, átta tíma leikgerð af verkum Shakespeares með Cate Blanchett í aðalhlutverki. Sýningin hlaut sex Helpmann-verðlaun, meðal annars fyrir besta leikverk og bestu leikstjórn, og fimm Sydney Theatre-verðlaun fyrir bestu leikstjórn og bestu sviðsetningu. Meðal annarra verkefna Benedicts hjá Sydney Theatre Company eru The City, The Season at Sarsaparilla (Green Room-verðlaunin fyrir bestu leikstjórn), Julius Caesar, Far Away, Endgame, Life is a Dream, Old Masters, Three Sisters, La Dispute (Helpmann-verðlaunin fyrir bestu leikstjórn), Mr Kolpert, Attempts on Her Life og Fireface. Á árunum 2004-2010 setti Benedict upp fjölmargar sýningar við hið virta leikhús Schaubühne am Lehniner Platz í Berlín, m.a. Cleansed, Saved, A Streetcar Named Desire, The Dog, the Night, the Knife, Drunk Enough to Say I Love You, Stoning Mary, The Ugly One og Blackbird. Auk leikstjórnarverkefna hefur Benedict sent frá sér leikrit og ljóð.

17

Nina Wetzel

Nina Wetzel hannar leikmynd og búninga fyrir Mayenburg þríleikinn í Þjóðleikhúsinu, Ellen B., Ex og Egal. Hún er einn eftirsóttasti leikmynda- og búningahöfundurinn á meginlandi Evrópu um þessar mundir. Hún hefur starfað með leikstjórum í fremstu röð og unnið fyrir virt leikhús, óperuhús og leiklistarhátíðir víða um lönd. Hún vann um árabil með leikstjóranum Christoph Schlingensief að verkefnum af ólíku tagi. Hún er einn af nánustu samverkamönnum Thomasar Ostermeier við Schaubühne-leikhúsið í Þýskalandi og hefur jafnframt unnið að ýmsum uppsetningum ásamt Marius von Mayenburg og leikstjóratvíeykinu Dead Centre - Bush Moukarzel og Ben Kidd.

18

Nina Wetzel fæddist í Þýskalandi árið 1969. Hún nam leikmynda- og búningahönnun í París. Frá árinu 1995 hefur hún gert leikmynd og búninga fyrir fjölda verkefna, meðal annars við Schauspielhaus Hamburg, Volksbühne am Rosa-Luxemburg-Platz, Schauspielhaus Zürich, Münchner Kammerspiele, Residenztheater München, Maxim Gorki Theater, Burgtheater Wien, Schaubühne Berlin, Théâtre Vidy-Lausanne, Wiener Festwochen, Avignon-leiklistarhátíðina, Óperuhúsið í Dijon og Comédie-Française.

Nina Wetzel og leikstjórinn Christoph Schlingensief unnu náið saman á árunum 1996-2000. Hún skapaði innsetningar og uppákomur, og hannaði leikmyndir og búninga fyrir m.a. 48 Stunden Überleben (Documenta X), Hotel Prora og Chance 2000 (Volksbühne am Rosa-Luxemburg-Platz), 7X Installation (Museum Folkwang), Ausländer raus (Wiener Festwochen) og Former West (HKW).

Meðal verkefna hennar hjá Schaubühne eru Das Leben des Vernon Subutex 1 eftir Virginie Despentes, Hamlet eftir William Shakespeare, Im Herzen der Gewalt og Qui a tué mon père eftir Édouard Louis, Rückkehr nach Reims eftir Didier Eribon, Italienische Nacht eftir Ödön von Horváth, Dämonen eftir Lars Norén og Die Ehe der Maria Braun eftir Fassbinder í leikstjórn Thomasar Ostermeier, Much Ado About Nothing eftir Shakespeare í leikstjórn Mariusar von Mayenburg og Stück Plastik, Peng, Perplex og Nachtland eftir Marius von Mayenburg í leikstjórn höfundar.

Hún hannaði meðal annars leikmynd og búninga fyrir Twelfth Night og King Lear eftir William Shakespeare í leikstjórn Thomasar Ostermeier hjá Comédie-Française. Hún hannaði leikmynd og búninga fyrir leiksýningar Dead Centre - Bush Moukarzel og Ben Kidd, Die Traumdeutung, byggt á verki Sigmunds Freud, og Alles, was der Fall ist, byggt á verki Wittgensteins, hjá Burgtheater í Vínarborg og Bählamms Fest eftir Olga Neuwirth og Elfriede Jelinek hjá sviðslistahátíðinni Ruhrtriennale.

19

Unnur Ösp Stefánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2002 og hefur starfað við leikhús og kvikmyndir sem framleiðandi, leikari og leikstjóri. Hún hefur m.a. starfað í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá LA, Vesturporti, Lyric Hammersmith og Young Vic. Hún er hluti af listrænu teymi Þjóðleikhússins og leikstýrði hér söngleiknum Sem á himni í vetur. Meðal fyrri hlutverka hennar eru Lenù í Framúrskarandi vinkonu, Nóra í Dúkkuheimilinu, Hallgerður langbrók í Njálu, Maríanna í Brot úr hjónabandi, Gréta í Hamskiptunum og Donna McAuliff í Elsku barni. Í Þjóðleikhúsinu leikstýrði Unnur Vertu úlfur í eigin leikgerð. Meðal annarra leikstjórnarverkefna hennar eru Mamma Mia!, Kæra Jelena og Fólkið í blokkinni í Borgarleikhúsinu. Unnur stóð að sjónvarpsþáttaröðinni Föngum og lék í henni, og lék m.a. í sjónvarpsþáttaröðunum Verbúðinni, Ráðherranum, Rétti og Ófærð 2. Unnur hefur hlotið fjölda leiklistarverðlauna, m.a. Grímuverðlaunin fyrir leik í Elsku barni og Dúkkuheimili og leikstjórn og handrit Vertu úlfur, sem hlaut sjö Grímur, Edduverðlaun og Menningarverðlaun DV. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir leik í Killer Joe, Eldhafi, Brot úr hjónabandi og Dúkkuheimili 2. hluta. Unnur var tilnefnd til Grímunnar sem leikstjóri ársins fyrir leikstjórn Mamma Mia! Hún hlaut Stefaníustjakann árið 2012. Unnur var verndari UN Women um nokkurra ára skeið og var valin bæjarlistamaður Garðabæjar ásamt eiginmanni sínum 2021.

20

Benedikt Erlingsson útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1994. Hann hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum, leikstýrt leiksýningum og kvikmyndum og skrifað leikrit og kvikmyndahandrit. Meðal leikstjórnarverkefna hans í Þjóðleikhúsinu eru Nashyrningarnir, Súper, Húsið, Sólarferð og Íslandsklukkan í eigin leikgerð. Af uppsetningum hans í Borgarleikhúsinu má nefna And Björk of course, Jesú litla, Fyrst er að fæðast, Jeppa á Fjalli, Skáldanótt, Draumleik, Ófögru veröld, Hótel Volkswagen og Sumarævintýri. Benedikt lék meðal annars Galdra-Loft í Óskinni og Vladimir í Beðið eftir Godot í Borgarleikhúsinu. Hann lék í Ormstungu í Skemmtihúsinu og samdi og lék einleikinn Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Kvikmyndir Benedikts Hross í oss og Kona fer í stríð hafa unnið til fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum víða um heim. Þær hlutu báðar Edduverðlaunin sem besta kvikmynd ársins, auk þess sem Benedikt var valinn leikstjóri ársins. Benedikt hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir báðar myndirnar. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Draumleik, Ófögru veröld og Jesú litla, fyrir handrit og leik í Mr. Skallagrímsson og handrit Jesú litla, ásamt leikhópnum, auk þess sem hann hefur hlotið ýmsar tilnefningar fyrir leikstjórn og leik.

21

Ebba Katrín Finnsdóttir útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands 2018. Í vetur leikur hún í Nokkrum augnablikum um nótt og Jólaboðinu í Þjóðleikhúsinu. Hún lék hér annað titilhlutverkið í Rómeó og Júlíu og var einn af höfundum tónlistar í sýningunni, lék Uglu í Atómstöðinni, í Ást og upplýsingum, Meistaranum og Margarítu og Þínu eigin leikriti II-Tímaferðalagi. Í Borgarleikhúsinu lék hún í Dúkkuheimili 2. hluta, NÚNA 2019, Hamlet litla og Matthildi. Hún lék í Temple of Alternative Histories í Staatstheater Kassel í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Hún fór með annað aðalhlutverkið í sjónvarpsmyndinni Mannasiðum á RÚV, sem var valin besta leikna sjónvarpsefnið á Eddunni 2019. Ebba Katrín lék í kvikmyndinni Agnesi Joy, þáttaseríunum Venjulegu fólki 2 og 3 og stuttmyndinni Samræmi, og hefur leikið þrisvar í Áramótaskaupi RÚV. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Atómstöðinni og var tilnefnd fyrir leik sinn í Matthildi og fyrir tónlist og leik í Rómeó og Júlíu.

22

Bjarni Jónsson lauk prófi í leikhúsfræðum frá háskólanum í München 1992 og starfar sjálfstætt sem leikskáld, dramatúrg, þýðandi og framleiðandi. Bjarni þýðir verkin þrjú í Mayenburg-þríleiknum sem Þjóðleikhúsið setur upp, Ellen B., Ex og Egal. Bjarni er höfundur fjölda leikverka og leikgerða fyrir leikhús og útvarp. Þar má nefna Kaffi og Óhapp í Þjóðleikhúsinu og Sendingu og leikgerðina Himnaríki og helvíti í Borgarleikhúsinu. Bjarni hefur starfað með Kriðpleir leikhópi og Ernu Ómarsdóttur danshöfundi sem meðhöfundur og dramatúrg í fjölda sýninga. Hann er starfandi dramatúrg leikhópsins The Brokentalkers í Dublin. Bjarni var einn af stofnendum LÓKAL leiklistarhátíðar. Hann hlaut Grímuna fyrir Himnaríki og helvíti og var tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna fyrir Kaffi.

Björn Bergsteinn Guðmundsson hefur lýst fjölda sýninga hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum, Leikfélagi Akureyrar, Hafnarfjarðarleikhúsinu, Íslensku óperunni, Badisches Staatstheater og ýmsum leikhópum. Hann starfaði eitt leikár í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Hann hannaði lýsingu í mörgum sýningum þegar hann var fastráðinn í Þjóðleikhúsinu á árunum 1982-2005. Hann er nú yfirljósahönnuður Þjóðleikhússins. Meðal nýjustu verkefna hans eru Sem á himni, Framúrskarandi vinkona, Rómeó og Júlía, Nashyrningarnir og Vertu úlfur í Þjóðleikhúsinu og Ríkharður III og Níu líf í Borgarleikhúsinu. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og margoft hlotið Grímuverðlaun fyrir lýsingu ársins, nú síðast fyrir Vertu úlfur.

Gísli Galdur Þorgeirsson útskrifaðist úr hljóðtækninámi frá Rytmisk Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn árið 2015. Hann hefur verið meðlimur í ýmsum hljómsveitum og samið tónlist og hljóðmyndir fyrir kvikmyndir, leikverk, sjónvarpsþætti, auglýsingar, útvarpsleikhús og innsetningar. Í Þjóðleikhúsinu samdi hann tónlist og gerði hljóðmynd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Atómstöðina-endurlit, Jónsmessunæturdraum, Óvin fólksins, Gott fólk, ≈ [um það bil], Svartan hund prestsins, Alla syni mína, Gerplu og Rambó 7. Meðal annarra leiksýninga sem hann hefur unnið við eru Mávurinn, Húmanimal, Verði þér að góðu og ÚPS! Hljómsveitirnar sem Gísli hefur unnið með og verið meðlimur í eru meðal annars Trabant, Quarashi, Ghostigital, Motion Boys og Human Woman. Hann hefur hlotið nokkrar tilnefningar til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir hljóðmynd í Húmanimal.

Aron Þór Arnarsson starfar við hljóðdeild Þjóðleikhússins og hefur hannað hljóðmynd fyrir ýmsar leiksýningar. Meðal verkefna hans hér eru Nokkur augnablik um nótt, Sem á himni, Ásta, Framúrskarandi vinkona og Kafbátur. Hann hefur unnið sem upptökustjóri og hljóðmaður í rúma tvo áratugi. Meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem hann hefur unnið með eru Björk, Of Monsters and Men, GusGus, John Grant, The Brian Jonestown Massacre, Hjaltalín, HAM, Stuðmenn, Valdimar, Leaves, Trabant, Apparat Organ Quartett, Singapore Sling, Kimono, Úlpa, Jóhann Jóhannsson, Barði Jóhannsson, Hljómar, Mannakorn, KK, Magnús Eiríksson og RASS. Hann hlaut ásamt öðrum Grímuverðlaunin fyrir hljóðmynd í Einræðisherranum, og var tilnefndur ásamt öðrum fyrir Kafbát og Atómstöðina.

24

Brot úr viðtali við Benedict Andrews leikstjóra, sem lesa má í heild sinni á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is

Ánægja og forréttindi að vera viðstaddur fæðingu nýs verks

Benedict Andrews leikstýrir Ellen B. og Ex, fyrstu tveimur verkunum í glænýjum þríleik eftir Marius von Mayenburg á leikárinu 2022-23 og höfundurinn mun sjálfur leikstýra því þriðja, Alveg sama (Egal), næstkomandi haust. Leikritin eru framúrskarandi vel skrifuð og fjalla um ástina og valdið í samtímanum, nútímafólk og nándina, af nístandi hreinskilni og kolsvörtum húmor. Bitastæð hlutverkin eru öll í höndum stórleikara.

Leiðir ykkar Mariusar hafa legið saman í leikhúsinu í tvo áratugi, og þú hefur áður leikstýrt fimm verkum eftir hann í leikhúsum í Ástralíu og í Schaubühne-leikhúsinu í Berlín. Hvað er að þínu mati áhugaverðast við leikritin hans?

Ég hitti Marius fyrst þegar ég setti upp leikrit hans Eldfés (Feuergesicht) hjá Sydney Theatre Company árið 2001. Ég var ungur leikstjóri og þráði breytingar í leikhúsinu, vildi finna ný form, prófa nýjar aðferðir. Eldfés var verkið sem kynnti Marius til leiks sem eitt hinna svokölluðu „in-yer-face” leikskálda, sem einnig voru nefnd „blood and sperm” kynslóðin. Þar fór hann fremstur í flokki ásamt Söruh Kane og Mark Ravenhill. Eldfés hafði mikil áhrif á mig, það talaði svo beint til manns, fagurfræðin var beinskeytt með stuttum, hárbeittum senum og höfundurinn kafar djúpt í sálarlíf persónanna. Verkið sameinar frumstæða og goðsagnakennda arfleifð grísku harmleikjanna og hraðann sem einkennir kvikmyndir Tarantinos. Það er fyndið og skrítið, villimannslegt og áræðið, alveg einstakt. Það fannst á hverju orði í leikritinu að þarna fór rithöfundur sem vildi kraftmikið og ágengt leikhús, líkt og ég sjálfur. Við hittumst fyrst í Sydney í tengslum við uppsetninguna og náðum strax vel saman, þar hófst samvinna okkar og vinátta. Segja má að samtal okkar sem hófst þegar við borðuðum saman í fyrsta skipti sé enn í gangi, samtal um leikhúsið og lífið og allt þar á milli. Fyrir milligöngu Mariusar var mér boðið að leikstýra við Schaubühne-leikhúsið í Berlín og hann var dramatúrg í nokkrum sýningum hjá mér þar.

26

Ég fann strax og við kynntumst að hann er hreinræktað „leikhúsdýr”. Hann býr yfir háþróuðu næmi fyrir list leikarans og djúpum skilningi á þeim kröftum sem eru að verki á leiksviðinu, og verkin hans bera því vitni. Hann sættir sig ekki við að vinna eftir hefðbundnum leiðum og leikritin hans bjóða því stöðugt upp á nýja möguleika og opna nýjar lendur í leikhúsinu. Hann er í stöðugri tilraunastarfsemi, reynir á þanþol leikstjórans, leikaranna og áhorfenda og fer með þá langt út fyrir þægindarammann. En hann er líka alltaf með blik í auga og hefur frábæra kímnigáfu. Ég er heillaður af því hvað hann er skarpur, heiðarlegur og uppátækjasamur, og af einstakri sýn hans á heiminn. Hann slær aldrei af, styttir sér aldrei leið. Hann er hugrakkur og samviskulaus, hann er „the real fucking deal”. Nú, tveimur áratugum eftir að ég setti upp Eldfés, leita ég enn í verkin hans af því hann er sá samtímahöfundur sem talar mest til mín. Það er enginn eins og hann.

Hvers vegna langaði þig að takast á við þessi leikrit, Ellen B. og Ex, og hvað viltu segja um tengslin á milli verkanna sem mynda þríleikinn?

Við Marius töluðum nokkuð reglulega saman í gegnum Zoom á Covidtímabilinu og þá fór hann að lýsa nýju verkunum sem hann var að skrifa og kallaði seinna „Lockdown”-þríleikinn sinn. Þegar hann deildi svo verkunum með mér varð ég heillaður af nándinni og ákefðinni í þeim, af þessum stöðugu átökum sem hann náði að láta stigmagnast.

Verkin segja ólíkar sögur og fjalla um ólíkar persónur en þau eiga ákveðin þemu og formið sameiginlegt. Þetta eru þrjú kammerverk, tvö tríó og einn dúett. Hver einþáttungur er rúmlega ein og hálf klukkustund að lengd, allt er leikið í einum rykk, í rauntíma. Öll gerast þau inni á heimili, í stofu. Öll beina sjónum að dýnamíkinni í samskiptum hjóna, af hárbeittri nákvæmni og grimmd. Mér finnst vera mikil nánd í verkunum, þó eru þau epísk, ótrúlega persónuleg en samt einhvern veginn almenn. Við fyrsta lestur gagntóku þau mig, þau voru svo hlaðin og komu mér úr jafnvægi. Mig langaði strax til að rannsaka þau með leikurum í æfingarými. Ég hafði á tilfinningunni að það myndi verða eins og að sviðsetja

27

þungavigtarbardaga í boxi, að átökin í þeim og tilfinningaleikfimin væri á þeim skala. Hvert hlutverk var eins og gjöf til leikarans. Eftir fjarveru mína frá leikhúsinu – meðan ég var að leikstýra kvikmyndum og á Covid-tímanum – þá fannst mér þessi leikrit einmitt vera „kjöt” sem mig langaði að sökkva tönnunum í.

Verkin þrjú bera þess skýr merki að hafa verið skrifuð í þeirri einangrun og innilokunarkennd sem fylgir sóttkví og samkomutakmörkunum. Þótt aldrei sé rætt um farsóttina beint í verkunum þá spretta þau greinilega upp úr bæði persónulegu og samfélagslegu hættuástandi. Hin djúpstæðu vandamál nútímans kalla fram spurningar um fortíð og framtíð. Persónurnar í verkunum lifa og hrærast í tilfinningalegu hættuástandi sem stigmagnast. Íbúðirnar þeirra verða nokkurs konar hraðsuðupottar þar sem sjálfur grunnurinn í sambandi þeirra springur og opnast. Marius býður okkur að fylgjast með átökunum sem upp úr þessu spretta, úr stúkusæti. Þó að hvert verkanna sé sjálfstætt lítur hann á þau sem systkini og ég er spenntur að bjóða áhorfendum upp á að kynnast þessum heiftúðugu þríburum. Líkt og um væri að ræða afmarkaða HBO seríu, þríleik Kieslowskis um Litina þrjá eða þrjá ólíka hluta skáldsögunnar 2666 eftir Roberto Bolaño, þá er ég forvitinn að sjá hvernig þessir sjálfstæðu hlutar koma til með að mynda eina heild.

Í Ellen B. Er komið inn á viðkvæmt umfjöllunarefni, ásakanir um kynferðislega áreitni og misnotkun. Hér á Íslandi var MeToo umræðan mjög kraftmikil, en sumir karlmenn hafa verið hræddir við að tjá sig um málefnið. Viltu segja okkur frá því hvernig þú nálgast þetta viðkvæma málefni?

Efniviðurinn í Ellen B. kemur inn á það sem ég hef mestan áhuga á sem leikstjóri – ráðgátuna um langanir og þrár mannsins og afleiðingar sem af þeim hljótast. Þó að verkið sé algjörlega einstakt hvað varðar efni og tilurð þá er sama hugmyndafræði að baki Ellen B. og Blackbird eftir David Harrower, en það verk sviðsetti ég í Schaubühne, og skrifaði svo upp úr því handrit að minni fyrstu kvikmynd, Unu. Í báðum verkunum erum við krafin um að meta eyðilegginguna sem glæpsamlegt, kynferðislegt

28

misnotkunarsamband veldur, og að greina valdastrúkturinn í slíku sambandi. Þegar ég leikstýrði Unu kynnti ég mér í þaula reynslu þolenda kynferðisofbeldis. Ég reyndi að vera trúr sannleikanum og þeim flækjum sem einkenna slíka reynslu, þeim tilfinningalega ruglingi sem getur orðið milli ástar og nauðgunar. Takmark mitt hér er það sama. Á sama hátt og verkið Una, þá neitar leikritið Ellen B. að veita auðveld svör. Marius dregur áhorfendur inn í flókinn lygavef valdbeitingar og þrár. Hann greinir hvernig valdbeiting í kynferðislegri misnotkun virkar, hvernig tungumálið er notað sem vopn til að þvinga og táldraga.

Sem leikstjóri þá lít ég svo á að starf mitt sé að vera sérfræðingur í persónulegum átökum, og það felist í að færa áhorfendur nálægt hinum nöktu taugum verksins. Ég sækist ekki eftir auðveldum lausnum, ódýrum meðölum eða plástrum. Ég vil að áhorfendur upplifi verkið með öllum sínum sóðalegu flækjum og að þeir neyðist til að taka afstöðu, en að þeir skipti svo um lið aftur og aftur á meðan þeir stara inn í sárið. Ég vil að áhorfendur rífist um verkið á barnum eftir sýningu og að persónurnar og vandamál þeirra dvelji með þeim löngu eftir að tjaldið fellur.

Frumsýningin á Ellen B. í Þjóðleikhúsinu er frumuppfærsla verkins. Er þér mikilvægt að vinna við ný verk og hvernig er það ólíkt því að leikstýra sýningum á klassískum verkum?

Það má segja að ég reyni að finna það nútímalega í klassískum verkum og öfugt. En á endanum snýst þetta alltaf um að sviðsetja lífið sjálft, með allri sinni blíðu, viðkvæmni og grimmd. Það er auðvitað mikil ánægja og forréttindi að vera viðstaddur fæðingu nýs verks, að koma með það inn í heiminn, sparkandi og öskrandi í fyrsta sinn.

Viðtal: HHG og MTÓ

29

Starfsfólk Þjóðleikhússins

Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri

Steinunn Þórhallsdóttir, framkvæmdastjóri

Hrafnhildur Hagalín, listrænn ráðunautur, staðgengill leikhússtjóra - í leyfi Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur

Tinna Lind Gunnarsdóttir, forstöðumaður skipulags, framleiðslu og ferla Aðalheiður Arna Rafnsdóttir, fjármálastjóri Jón Þorgeir Kristjánsson, forstöðumaður samskipta, markaðsmála og upplifunar Sváfnir Sigurðarson, markaðsfulltrúi Birgitta Birgisdóttir, Elísa Sif Hermannsdóttir og Jón Stefán Sigurðsson, teymi barna- og fræðslustarfs Hans Kragh, þjónustustjóri

Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósahönnuður Ilmur Stefánsdóttir, leikmynda- og búningahöfundur Ólafur Egill Egilsson, leikstjóri og höfundur Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikstjóri og höfundur Þorleifur Örn Arnarsson, leikstjóri og höfundur

Leikarar

Almar Blær Sigurjónsson

Atli Rafn Sigurðarson

Birgitta Birgisdóttir

Björn Thors

Ebba Katrín Finnsdóttir

Edda Arnljótsdóttir

Guðjón Davíð Karlsson

Guðrún Snæfríður Gísladóttir Hallgrímur Ólafsson

Hákon Jóhannesson

Hildur Vala Baldursdóttir

Hilmar Guðjónsson

Ilmur Kristjánsdóttir

Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Kjartan Darri Kristjánsson

Kristín Þóra Haraldsdóttir Nína Dögg Filippusdóttir Oddur Júlíusson Ólafía Hrönn Jónsdóttir Pálmi Gestsson

Sigurbjartur Sturla Atlason Sigurður Sigurjónsson Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Unnur Ösp Stefánsdóttir Valgerður Guðnadóttir

Vigdís Hrefna Pálsdóttir Þröstur Leó Gunnarsson Örn Árnason

Sýningarstjórn

Elín Smáradóttir Elísa Sif Hermannsdóttir María Dís Cilia

Leikgervi

Ingibjörg G. Huldarsdóttir, deildarstjóri Áshildur María Guðbrandsdóttir Silfá Auðunsdóttir Þóra Guðbjörg Benediktsdóttir

Búningar

Berglind Einarsdóttir, deildarstjóri Ásdís Guðný Guðmundsdóttir Hjördís Sigurbjörnsdóttir Hólmfríður Berglind Birgisdóttir

Hljóð Kristján Sigmundur Einarsson, deildarstjóri Aron Þór Arnarsson Þóroddur Ingvarsson

Ljós

Björn Bergsteinn Guðmundsson, yfirljósah. Jóhann Bjarni Pálmason, deildarstjóri Jóhann Friðrik Ágústsson Ásta Jónína Arnardóttir Haraldur Leví Jónsson Ýmir Ólafsson

Leikmunir Ásta Sigríður Jónsdóttir Halldór Sturluson Mathilde Anne Morant Valur Hreggviðsson

Leikmyndarsmíði Hildur Evlalía Unnarsdóttir, teymisstjóri Michael John Bown, yfirsmiður Arturs Zorģis

Umsjónarmaður Leikhúskjallara Hákon Jóhannesson

Þjóðleikhúsið er sameign íslensku þjóðarinnar. Allt frá árinu 1950 hefur leikhúsið skapað ógleymanlega leikhústöfra. Árlega setur leikhúsið upp fjölda nýrra sýninga, stendur fyrir fræðslustarfi, nýsköpun og tilraunastarfsemi, heldur í leikferðir um landið og sinnir höfundastarfi.

Svið Ásdís Þórhallsdóttir, leiksviðsstjóri Guðmundur Erlingsson, umsjón minni sviða Aida Gliaudelyte

Alexander John George Hatfield Jón Stefán Sigurðsson Jasper Bock Sigurður Hólm Siobhán Antoinette Henry

Upplifun, þjónusta, miðasala og móttaka Friðdóra Haukdal Magnúsdóttir, miðasölustjóri Anna Karen Eyjólfsdóttir Fanney Edda Felixdóttir Halla Eide Kristínardóttir Júlíana Kristín Jóhannsdóttir

Bókhald og laun Guðrún Ingólfsdóttir, bókhaldari Steinunn Þorsteinsdóttir, launafulltrúi

Eldhús

Ina Selevska, aðstoðarmaður Aida Gliaudelyte, aðstoðarmaður

Umsjón fasteigna Eiríkur Böðvarsson, húsvörður Jurate Zofija Gliaudeliene, ræsting Margarita Albina, ræsting Hafliði Hafliðason, bakdyravörður Sigurður Hólm, bakdyravörður

Ofangreindir starfsmenn eru fastráðnir við Þjóðleikhúsið eða starfa þar samkvæmt árssamningi á yfirstandandi leikári, en auk þeirra vinna fjölmargir aðrir starfsmenn í leikhúsinu.

Þjóðleikhúsráð

Halldór Guðmundsson, formaður Kolbrún Halldórsdóttir, varaformaður Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Sjón - Sigurjón Birgir Sigurðsson María Ellingsen

33

Miðasölusími: 551 1200 Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is www.leikhusid.is

36

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.