Prinsinn - leikskrá

Page 1

Nýtt verk eftir Maríu Reyndal og Kára Viðarsson

Þjóðleikhúsið sýnir í samstarfi við Frystiklefann á Rifi

Leikarar

Kári Kári Viðarsson

Tinna Birna Pétursdóttir

Sandra, mamma Kára og mamma Tinnu................................................ Sólveig Guðmundsdóttir

Bjöggi, Rúnar Bjarki, Jónas sjoppueigandi og Magni ....................... Sverrir Þór Sverrisson

Listrænir stjórnendur

Leikstjórn

María Reyndal

Leikmynd

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Egill Ingibergsson

Búningar

Guðný Hrund Sigurðardóttir

Tónlist Úlfur Eldjárn

Hljóðhönnun Úlfur Eldjárn Ásta Jónína Arnardóttir

Lýsing Jóhann Friðrik Ágústsson

Aðrir aðstandendur

Sýningarstjórn og umsjón

Jón Stefán Sigurðsson

Ásta Jónína Arnardóttir

Tæknistjórn

Ásta Jónína Arnardóttir

Aðstoð við sviðshreyfingar Ernesto Camilo Aldazábal Valdés

Aðstoð við handrit

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir

Aðstoð við dramatúrgíu Melkorka Tekla Ólafsdóttir

Hljóðdeild

Elvar Geir Sævarsson – yfirumsjón

Leikmyndarframleiðsla

Hildur Evlalía Unnarsdóttir - teymisstjóri, smiður

Michael John Bown – smiður

Arturs Zorģis – smiður

Haraldur Levi Jónsson – smiður

Leikmunadeild

Trygve Jónas Eliassen – yfirumsjón

Mathilde Anne Morant – yfirumsjón

Valur Hreggviðsson

Ásta S. Jónsdóttir

Búningadeild

Berglind Einarsdóttir – yfirumsjón

Ásdís Guðný Guðmundsdóttir

Berglind Birgisdóttir

Geirþrúður Einarsdóttir

Ingveldur E. Breiðfjörð

Tónlist í sýningunni er eftir Úlf Eldjárn, en einnig eru flutt brot úr lögum eftir aðra: Sumarsykur (Igore), Hjá þér (Sálin hans Jóns míns), Spenntur (Á móti sól), Ég er frjáls (Facon), Fingur (Írafár), Hef ekki augun af þér (Sóldögg), Skjóttu mig (Skítamórall). Titillag sýningarinnar, Prinsinn, eftir Úlf Eldjárn, er sungið af Vigdísi Hafliðadóttur sem jafnframt er höfundur texta.

Sýningarlengd er um klukkustund og tuttugu mínútur. Ekkert hlé.

Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu – Leiklistarráði og Sóknaráætlun Vesturlands.

Þjóðleikhúsið 73. leikár, 2021–2022. Frumsýning í Frystiklefanum á Rifi 27. apríl 2022. Þjóðleikhússtjóri: Magnús Geir Þórðarson.

Prinsinn

„Ég er ólétt – þú ert að verða pabbi“

Er maður áreiðanlegt vitni í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt?

Prinsinn er alveg örugglega langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast, að nóttu sem degi – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana!

Í verkinu kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann:

17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“

Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, byggt á sönnum atburðum, sem talar beint til okkar.

Leikferð um landið vorið 2022

Leiksýningin Prinsinn er frumsýnd í Frystiklefanum á Rifi þann 27. apríl 2022 og heldur síðan í leikferð um landið. Sýningar á Litla sviði Þjóðleikhússins haustið 2022.

Rif 27.-29. apríl Ísafjörður 3. maí Borgarnes 12. maí Reykjanesbær 13. maí Akureyri 17.-18. maí Egilsstaðir 19. maí

Miðasala og nánari upplýsingar á leikhusid.is

Netfang miðasölu: midasala@leikhusid.is

Miðasölusími: 551 1200

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.