4 minute read
Leiðari formanns
Kæru félagsmenn
LSS er félag ómissandi starfsstétta, það er staðreynd sem ekki þarf að deila um. Sú skilgreining felur í sér mikla ábyrgð, sem meðal annars lá þeirri ákvörðun til grundvallar að fresta fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum á vordögum vegna yfirlýsts neyðarástands frá Almannavörnum vegna heimsfaraldurs. Jákvæð viðbrögð félagsmanna við þeirri ákvörðun sýndi enn frekar fram á að við deilum þeirri ábyrgð, erum stolt af okkar störfum og berum þá ábyrgð með sæmd. Að vera hluti af ómissandi starfstétt er heiður og þeir sem því starfi sinna geta verið stoltir í sínum störfum. Það getur tekið á að starfa í framlínu neyðarþjónustu hvort sem það eru neyðarverðir sem taka við fyrstu upplýsingum og þurfa að leggja mat á viðeigandi viðbragð, sjúkraflutningamenn sem hafa beina aðkomu að slösuðum eða veikum, eða slökkviliðsmenn sem leggja mikið á sig til að koma í veg fyrir frekara tjón af völdum elds í húsnæði, flugvélum eða við björgun úr slysum. LSS hefur á undanförnum árum haft það markmið að efla þjónustu við félagsmenn þegar starfið er farið að taka á og farið að hafa neikvæð áhrif á andlega heilsu, þetta er verkefni sem sífellt þarf að hlúa að, en að sama skapi treysti ég þeirri starfsmenningu meðal félagsmanna að viðurkenna að andleg áföll eru raunveruleg og ekkert feimnismál. Ég vona að sú þróun haldist og að við eflum frekar þennan mikilvæga málaflokk. Styrkur félagsins er fólginn í þátttöku félagsmanna í þeim verkefnum sem er á borði LSS hverju sinni, ég þakka öllum þeim sem hafa unnið að verkefnum fyrir LSS það óeigingjarna starf.
Advertisement
Baráttukveðja
Magnús Smári Smárason, formaður LSS
MIKIL BLÆÐING? Quick clot stoppar blæðinu hratt og örugglega
Rannsóknir sýna að 40% slysatengdra dauðsfalla má rekja til blæðinga og fylgikvilla. Quick Clot stoppar blæðingu og hefur verið notað af NATO í yfir 10 ár.
ivar@icepharma.is . 540 8000
18. þing LSS
Þann 24. september sl. var 18. þing LSS í fyrsta skipti haldið í gegnum fjarfundabúnað. Stjórnarmenn og starfsmenn þingsins voru flestir í fundarsal BSRB, Grettisgötu 89 í Reykjavík, þar sem fundarstjóri stýrði þingi. Gildandi sóttvarnareglur voru hafðar að leiðarljósi við skipulagningu þingsins. Starfsmenn þingsins héldu utan um rafræna kosningakerfið. Þingið var opið öllum í gegnum fjarfundabúnað og hátt í 90 félagsmenn tóku þátt. Breytingar voru gerðar á hefðbundinni fundardagskrá og til að mynda voru aðalfundir fagdeilda lagðar niður á þessu þingi og störf þeirra færð inn á þingið sjálft og sömuleiðis öll nefndarstörf og tók því nefndanefnd ekki til starfa á þessu þingi. Þingið tók fimm klukkustundir og er þetta líklega stysta þing sem LSS hefur haldið.
Helstu niðurstöður þingsins
Ný stjórn:
Ný stjórn var kjörin á þinginu. Magnús Smári Smárason, slökkviliðsmaður, bráðatæknir og lögfræðingur var sjálfkjörinn sem formaður félagsins. Hann hafði gegnt embætti formanns frá 5. júní 2018 eftir að fv. formaður sagði af sér. Magnús Smári var fyrst kjörinn í stjórn árið 2016. Bjarni Ingimarsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður var kjörinn varaformaður félagsins. Hann hefur ekki setið í stjórn áður en hefur sinnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið og verið fyrsti fulltrúi hjá SHS.
Aðrir í stjórn eru:
Anton Berg Carrasco, SA, meðstjórnandi Ásgeir Þórisson, BS, meðstjórnandi Birkir Árnason, SHS, formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna Jón Kristinn Valsson, SHS, formaður fagdeildar slökkviliðsmanna Ólafur Stefánsson, SA, formaður fagdeildar stjórnenda.
Varamenn í stjórn eru:
Árni Snorri Valsson, HSU og Hlynur Kristjánsson, SÍ.
Lagabreytingar
Þingið samþykkti einróma lagabreytingar um atkvæði þingfulltrúa á þingi LSS þar sem atkvæðavægi fulltrúa hér eftir miðast við greiðslur í félagið eftir deildum, ásamt nokkrum breytum sem tryggir að þingin endurspegli alla þá markhópa sem félaginu ber að sinna. Gerðar voru ýmsar breytingar
á lögunum til samræmis við þær breytingar. Lögð var fram ný reglugerð um vantraust á stjórn þar sem valdið er fært til fulltrúa ef stjórn nýtur ekki trausts. Reglugerðir um þingsköp og fulltrúaráð voru uppfærðar og reglugerð um golfmót afnumin. Reglur fagdeildar stjórnenda og fagdeildar slökkviliðsmanna voru uppfærðar og samþykktar.
Félags- og samningsréttargjald
Sem hluti af lagabreytingatillögum sem lágu fyrir þinginu var að eyða hugtakinu „hlutastarfandi“ úr lögum félagsins og var samþykkt tillaga um að allir félagsmenn greiða 1,3% af heildarlaunum til félagsins, sem var áður að aðilar í fullu starfi greiddu 2,5% af grunnlaunum til félagsins og hlutastarfandi 1% af heildarlaunum. Þeir sem starfa sem slökkviliðsmenn og hafa greitt aukafélagsgjald til LSS verða nú að greiða 1,3% af heildarlaunum til að fá fulla þjónustu. Aukafélagsaðild á eingöngu við um fagaðild til félagsins og nýtur viðkomandi hvorki réttinda úr sjóðum félagsins né aðstoð við kjaramál. Því er mikilvægt fyrir félagsmenn að breyta um fyrirkomulag.
Á þinginu voru eftirtaldar ályktanir samþykktar:
- Ályktun um að LSS telur nauðsynlegt að sjúkrabifreiðar með kassayfirbyggingu (e. C-type ambulance) verði teknar inn sem hluti af íslenska sjúkrabifreiðaflotanum. - Að skora á heilbrigðisyfirvöld og tengdar stofnanir að sameinast um eflingu málaflokks um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga og hefja þegar í stað framhaldsvinnu og uppbyggingu sem grundvallast af þeim gögnum sem liggur fyrir í þeirri stefnumótunarvinnu sem hefur þegar verið unnin. - Að nám félagsmanna verði metið með viðurkenndum hætti og því sama og þekkist í öðru fagnámi og er það því hagsmunamál að uppfæra úrelt kerfi og koma því inn í nútímann. - Engin þinggleði var í ár en ef aðstæður leyfa munu fulltrúar gera sér glaðan dag á næsta fulltrúaráðsfundi.
Hermann Sigurðsson
framkvæmdastjóri LSS