5 minute read

Nýir sjúkrabílar

Endurnýjun flotans er loksins hafin. Ríkið og Rauði krossinn hafa samið um endurnýjun 68 bifreiða fyrir lok árs 2022. Til að byrja með voru boðnar út 25 bifreiðar sem nú eru í smíðum og má búast við þeim hingað heim í lok sumars. Marga er farið að lengja eftir þessari endurnýjun en hún er fyrir löngu orðin tímabær, ástand sjúkrabíla á landinu er vægast sagt slæmt og er víða óboðlegt.

Advertisement

Ferlið sem átti sér stað í aðdraganda útboðsins var flókið og sjúkraflutningamönnum var ekki skemmt að fylgjast með á meðan á því stóð. Samningur Rauða krossins við ríkið rann út í árslok 2015 og var hann ekki formlega endurnýjaður fyrr en í júlí 2019. Ekki voru boðnar út sjúkrabifreiðar á þessum tíma vegna ágreinings sem illa gekk að leysa. Flotinn og þjónustan tóku höggið og þungann af því og ástandið versnaði jafnt og þétt. Staðan fer nú batnandi og öll vinna hefur gengið vel síðan samningar tókust. Ríkið hafði þá í millitíðinni sett í gang vinnu við útboð og var kröfulýsing því sem betur fer klár að mestu þegar samningar náðust.

Bifreiðarnar

Fyrir lá að kröfulýsingin skyldi í grunninn byggja á þeim fyrri en með breytingum og uppfærslum. Sú breyting var innleidd að við val á tilboðum skyldi framkvæmt gæðamat sem gilti til móts við boðið verð. Þetta er í fyrsta sinn sem gæðamat af þessu tagi er framkvæmt við kaup sjúkrabifreiða en áður hafði verð gilt að fullu við val á tilboðum. Verður það að teljast mikið framfaraskref og fögnum við sjúkraflutningamenn því að fá að hafa meira um valið að segja. Bjóðandinn sem varð fyrir valinu er Fastus í samstarfi við Baus AT í Póllandi. Framleiðandinn er okkur kunnugur en síðasta útboð var einnig afgreitt af Baus AT og margar bifreiðar frá þeim eru í umferð hér á landi. Bifreiðin sem boðin var er okkur einnig kunnug en hún er af gerðinni Mercedes Benz Sprinter 419. Togaflið er 440 Nm og hafa bifreiðarnar heildarburðargetu upp á 4,1 tonn sem er talsverð aukning við þær bifreiðar sem nú eru í umferð á landinu. Bifreiðarnar verða búnar loftpúðafjöðrun að aftan. Þær verða sjálfskiptar og fjórhjóladrifnar. Nokkrar tækniuppfærslur verða frá því sem var s.s. akstursmyndavél (e. dash cam), þráðlaus samskipti (e. Intercom) milli ökumanns og sjúkrarýmis og handhæg vinnuljós fyrir vinnu á vettvangi

svo eitthvað sé nefnt. Sjúkrarýmið er, eins og bifreiðin öll, í grunninn byggt á fyrri kröfulýsingu en með nokkrum viðbótum og uppfærslum. Meðal helstu breytinga er þriðja sætið í rýminu sem bætist við fyrir aftan sætið á hægri hlið og að skápurinn á vinstri hlið rýmisins (sem alla jafna er lokaður af fyrir aftan liggjandi sjúkling) hefur verið fjarlægður. Þar með eykst olnbogarými fyrir sjúklinginn í leiðinni.

Liturinn

Bílarnir verða gulir, Ral 1016. Þessi breyting samræmist kröfu um aukinn sýnileika. Afar mikilvægt er að sjúkrabílar sjáist vel í umferðinni, hvort sem ekið er á forgangi á leið í útkall eða við lokun vettvangs, til dæmis við umferðarslys. Öryggi vegfarenda, sjúkraflutningamanna og

skjólstæðinga þeirra er betur borgið með auknum sýnileika. Breytingin er einnig tákn um þá þróun sem orðið hefur í faginu og Ísland ætlar að fylgja, en með henni samræmumst við mörgum af löndunum í kringum okkur. Tækniþróun, hækkað menntunarstig sjúkraflutningamanna, aukin geta til þess að vernda líf og heilsu og faglegt sjálfstæði eru meðal þess sem breytingin táknar. Framleiðsluferlið hefur gengið vel eftir að það var sett af stað. Þeir sem fylgdu þessu ferli eftir héldu niðri í sér andanum á meðan COVID-19 breiddist út enda hefur faraldurinn sett strik í framleiðslu og flutning vöru út um allan heim. Sem betur fer hefur faraldurinn ekki haft mikil bein áhrif á Baus AT og framleiðsluna. Vinnan hjá þeim hefur haldist óslitin en einstaka birgjar hafa seinkað afhendingu íhluta. Þeir hafa haldið okkur upplýstum með fjarfundum og samstarfið hefur gengið vel. Starfsmenn fyrirtækisins fóru í sumarfrí í júlí og stefndu þeir hörðum höndum að því að klára framleiðslu allra bifreiðanna okkar fyrir sumarleyfin. Þá var eftir flutningur, skráning og ísetning búnaðar sem ekki fylgir framleiðsluferlinu áður en þeir verða teknir í notkun. Það má því vænta þess að gulir sjúkrabílar verði áberandi í umferðinni með haustinu.

Kassabíll

Innleiðing gula litsins er nú þegar hafin. Það er a.m.k. einn gulur sjúkrabíll kominn í umferð á Íslandi þegar þetta er skrifað. Fagdeild sjúkraflutningamanna og fleiri aðilar, þar á meðal SHS, hafa lengi þrýst á að fá í umferð nokkrar sjúkrabifreiðar með kassayfirbyggingu eða svokallaða C-flokks bíla (e. C-type). Í upphafi COVID-19 var kallað eftir því að fá bifreiðar með meira vinnurými til að flytja COVID-19 sjúklinga sem þyrftu meðhöndlun. Breytt vinnulag og vinna í hlífðarfatnaði krefst betri aðstöðu.

Rauði krossinn gat fengið þessa notuðu bifreið í gegnum Fastus frá Baus AT en eintakið var til á lager hjá framleiðanda og því hægt að afgreiða með skömmum fyrirvara. Bifreiðin er af árgerð 2010 en hefur verið yfirfarin að fullu og lítur vel út. Þessi viðbót við íslenska flotann er komin til vegna sérstakra aðstæðna og við nýtum það í leiðinni til þess að prófa hvernig þessi tegund bifreiðar reynist í sjúkraflutningum hér á landi. Mikil þróun hefur átt sér stað við framleiðslu slíkra bifreiða síðan það var síðast reynt og fer hlutfall þeirra vaxandi í Evrópu. Hagkvæmara framleiðsluferli leiðir svo af sér minnkað kostnaðarbil þeirra og hinna venjulegu B-flokks bíla (e. B-type). Bifreiðin er nú komin í notkun hjá SHS og skráð með kallnúmerið 701. Rauði krossinn mun svo, eins og áður kom fram, endurnýja frekar

sjúkrabíla á samningstímanum og er undirbúningur næsta útboðs nú þegar langt kominn.

Með kveðju,

Birkir Árnason

formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna LSS, slökkviliðsmaður og bráðatæknir hjá SHS.

ivar@icepharma.is . 540 8000 C-MAC ®

POCKET MONITOR

Lausnir Icepharma til barkaþræðingar við krefjandi aðstæður

C-MAC vasamónitor með færanlegum skjá svo hægt sé að barkaþræða í erfiðri stöðu.

This article is from: