3 minute read
Fjórar nýjar slökkvibifreiðar SHS
Fjórar nýjar
SHS slökkvibifreiðar SHS
Advertisement
Haustið 2019 tók Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) í notkun fjórar nýjar slökkvibifreiðar, eina bifreið á hverja stöð. Aðdragandi innkaupanna var langur, en í kjölfar útboðs var gengið til samninga við Ólaf Gíslason & Co hf. sem bauð slökkvibifreiðar frá pólska framleiðandanum WISS á Scania undirvagni. Allar slökkvibifreiðarnar og búnaður þeirra er samræmdur. Það auðveldar slökkviliðsmönnum SHS að vinna á öllum starfsstöðvum, auk þess sem það auðveldar vinnu þeirra á vettvangi þar sem margar bifreiðar eru í notkun. Mikill vinna var lögð í útboðsferlið til að ákveða hvernig slökkvibúnað bifreiðarnar ættu að hafa, en töluverð þróun hefur átt sér stað hvað slíkan búnað varðar. Niðurstaðan varð sú að halda áfram með lág- og háþrýsti dælu, en bæta við froðuslökkvikerfi og háþrýstu skurðartæki. Bæði þessi kerfi hafa þróast mikið og aukið öryggi og getu slökkviliða við slökkvistarf. Til að nýta þau á sem öflugastan hátt þurfa kerfin að vera á þeim bifreiðum sem koma fyrst á staðinn og því var niðurstaðan sú að hafa bæði þessi slökkvikerfi á öllum bifreiðunum. Það er ákvörðun fyrsta varðstjóra á vettvangi hvaða aðferð skuli beitt þ.e. hvaða verkfæri hann velur úr verkfærakassanum. Til að auka möguleika hans á að lesa í aðstæður og taka ákvörðun um fyrstu aðgerðir er varðstjórinn með eigin hitamyndavél, en auk hennar er sérstök hitamyndavél fyrir reykkafarana. Áhafnarhúsið er tvöfalt, af lengri gerðinni frá Scania, sem eykur plássið fyrir áhöfnina og búnað þeirra. Þrjú reykkafarasæti eru aftur í og reykköfunartæki er einnig í varðstjórasætinu. Auk þess er fimmta reykköfunartækið inni í áhafnarhúsinu, svo fimm manns geta sett á sig reykköfunartæki ef þörf er á. Bifreiðarnar eru fjórhjóladrifnar, með aflmiklum vélum, hátt og lágt drif, ásamt læsingum. Gírkassi er alsjálfvirkur (Allison) með þremur aflúttökum, ásamt 15 kVA rafal og loftdælu. Hægt er að vinna með öll slökkvikerfin samtímis. Framan á bifreiðunum er Warn fjarstýrt vökvadrifið 8 tonna spil. Slökkvibifreiðarnar eru með 3.000 lítra vatnstank og tvo 100 lítra froðutanka fyrir A og B froðu. Dælan er 4.000 lítrar/ mín. af gerðinni Ruberg, með háþrýstingi. Tvö þúsund lítra vatnsbyssa (monitor) er á þaki slökkvibifreiðanna sem stýrt er með þráðlausri fjarstýringu, en auk þess er ein þeirra með vatnsbyssu (monitor) að framan, sem hægt er að fjarstýra innan úr áhafnarhúsinu. Sú bifreið er staðsett á Skarhólabraut, næst Hvalfjarðagöngum.
Froðukerfi bifreiðanna er CAFS kerfi frá One Seven. Um er að ræða mun öflugri og umhverfisvænni froðu en SHS hefur verið með í notkun hingað til. One Seven froða og búnaðurinn sem henni fylgir býður upp á mun meiri möguleika í slökkvistarfi. Hægt er að nýta One Seven búnaðinn út um tvö úttök, slönguhjól eða vatnsbyssuna (monitor) á þakinu.
Á slökkvibifreiðunum er háþrýstibúnaður með skurðarmöguleika, Cold Cut Cobra, en þetta eru fyrstu tækin af þessari tegund á Íslandi. Nánar er fjallað um hann í sérstakri grein hér í blaðinu.
Allur björgunarbúnaður á bifreiðunum var boðinn út og keyptur nýr á bifreiðarnar. Fyrir valinu urðu rafmagnsverkfæri frá Holmatro, klippur, glennur og tjakkur, ásamt ýmsum fylgibúnaði. Holmatro loftpúðar eru af tveimur stærðum og stýringar og búnaður með þeim. Einnig er Interspiro Incurve reykköfunartæki ásamt aukakútum og auk stærri búnaðar er á bifreiðunum mikið af rafhlöðuverkfærum frá Milwaukee og rafmagnsblásarar frá BlowHard. Eina tækið sem notar bensín er stóra Husquarna Partner Rescue sögin, öll önnur verkfæri eru rafhlöðuknúin. Á bifreiðunum eru NOR-BAS stigasett, tveir stigar, annar 14 metra langur björgunarstigi og hinn fjölnota, samsetjanlegur á ýmsan máta. Auk stiganna er stór búnaðarkassi á þakinu. Stigarnir og kassinn eru á á rafstýrðum brautum sem renna niður aftan við bifreiðarnar, svo ekki þarf að fara upp á þakið til að sækja stigana eða eitthvað í búnaðarkassann. Á þaki er Fireco ljósamastur ásamt myndavélamastri.
Birgir Finnsson
aðstoðarslökkviliðsstjóri SHS